Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Blaðsíða 29
Ofurtöffarinn Brad Pitt eyddi á dögunum meira en einni milljón króna í föt
handa dóttur sinni, Shiloh.
Brad Pitt fór ásamt dætrum
sínum, Shiloh og Zahara, í versl-
unarferð í hátískuborginni Par-
ís á meðan móðir þeirra, Ange-
lina Jolie, var upptekin við tökur á
myndinni The Tourist.
Að sögn heimildarmanna fór
Brad með stelpurnar í verslunina
Bonpoint og leyfði þeim að velja
sér föt. Á meðan Zahara valdi sér
mjög stelpuleg föt vildi Shiloh ein-
göngu föt úr strákadeildinni í ann-
arri búð hinum megin við götuna.
„Hún hafði engan áhuga á falleg-
um kjólum og pilsum,“ segir heim-
ildarmaður vefsíðunnar X17.
Viðskiptin í strákadeildinni
hljóðuðu upp á tæpar 1,3 millj-
ónir og meðal þess sem var í inn-
kaupapokunum voru skærgular
gallabuxur.
Fatakostnaður vegna barn-
anna mun sannarlega verða hár
í framtíðinni ef Brad og Angelina
ætla að eyða svo miklu í hverri
verslunarferð fyrir hvert barn.
SVIÐSLJÓS 1. mars 2010 MÁNUDAGUR 29
Leikarinn Matt Damon mætti með mottu, eða yfir-
varaskegg, á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, The
Green Zone. Matt er ekki vanur því að vera með yfir-
varaskegg enda ekkert með þéttustu skeggrótina þrátt
fyrir að vera orðinn 39 ára.
Leikarinn er að safna skeggi fyrir hlutverk en hann
landaði nýlega stóru hlutverki í mynd um Bobby Kenn-
edy, bróður Johns F. Kennedy. Nýjasta myndin hans,
Green Zone, er ekki ósvipuð Bourne-myndunum. Í henni
leikur hann útsendara CIA sem leitar að gjöreyðingar-
vopnum.
MATT DAMON Á
FRUMSÝNINGU:
MATT
MEÐ
MOTTU
Matt Damon og
eiginkonan Hin
argentínska Luciana
Bozan Barroso.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
AMBER ROSE, KÆR-
ASTA KANYE WEST:
Stælir
Grace
Jones
Rappstjarnan Kan-ye West birti fyrir skömmu þessa mynd á bloggsíðu sinni. Hún
er af kærustu kappans, Amber
Rose, en á myndinni stælir hún
fræga mynd af fyrirsætunni og
leikkonunni Grace Jones. Örlítið er
búið að stílfæra myndina þó svo að
Amber nái ekki eins tignarlegri lík-
amsstöðu og vinkona hennar Grace.
Kanye West vann hin
umdeildu verðlaun Vil lain
of the Year, eða Illmenni
ársins, á NME-tónlistarhá-
tíðinni sem fór fram í síð-
ustu viku í
Lund-
ún-
um. Verðlaunin hlaut Kanye fyr-
ir uppákomuna á MTV Video Music
Awards. Þá ruddist hann upp á svið þeg-
ar Taylor Swift var að taka við verðlaun-
um fyrir besta myndbandið og sagði að
Beyoncé ætti þau frekar skilið. Hann
reitti ótrúlega marga til reiði með því og
hefur margoft beðist afsökunar síðan.
Glæsilegar báðar tvær
Amber Rose og Grace Jones.
Amber og Kanye
Á leið á tónleika með
Black Eyed Peas.
Meira en
milljón
í föt á
Shiloh
BRAD PITT FER
MEÐ DÆTURNAR
Í BÚÐIR:
Góður pabbi Brad tekur sig vel út
þar sem hann leiðir dætur sínar.
Með pabba Brad Pitt eyddi 1,3
milljónum króna í föt á dóttur
sína Shiloh. Athyglisvert er að
fötin voru öll úr strákadeildinni.