Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FRÉTTIR Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis er nokkuð fjallað um hvaða afleiðingar það hafði á fjármála- kerfið hér á landi snemma árs 2008 þegar íslensku bankarnir tóku við fjármögnun nokkurra eignar- haldsfélaga sem áður höfðu verið fjármögnuð af erlendum bönkum. Þá var staðan á fjármálamörkuð- um heimsins orðin nokkuð slæm, sérstaklega hér á landi þar sem eigna- og hlutabréfaverð hafði lækkað mikið, og þessi erlendu fjármálafyrirtæki gerðu veðköll hjá íslensku félögunum. Afleiðingin af þessu varð sú að íslensku bankarnir, sem eigendur eignarhaldsfélaganna sem rætt er um í skýrslunni voru stórir hlut- hafar í, fjármögnuðu lánin til fé- laganna sem áður höfðu verið fjár- mögnuð af erlendum bönkum. Lán erlendu bankanna til íslensku félaganna höfðu meira að segja í flestum tilfellum verið veitt til að kaupa hlutabréf í íslensku bönk- unum. Því var mjög mikilvægt fyr- ir eignarhaldsfélögin sem þurfti að endurfjármagna, og eins fyrir ís- lensku bankana, að erlendu fjár- málafyrirtækin leystu þær eignir sem teknar höfðu verið að veði fyr- ir lánunum ekki til sín. Hefði flýtt hruninu Ef þetta hefði gerst hefði íslenska efnahagshrunið getað hafist í byrj- un árs 2008 en ekki um haustið því allt í einu hefðu hlutabréf í íslensku bönkunum verið á útsölu í útlöndum þar sem gengi bréfanna hafði lækkað umtalsvert í ársbyrjun 2008. Raunar var þetta lækkandi gengi bréfanna ein af ástæðunum fyrir veðköllum þeirra erlendu fjármálafyrirtækja sem lánað höfðu til kaupanna. Ályktun rannsóknarnefndar Al- þingis er sú að þessar lánveitingar hafi hugsanlega verið hluti af mark- aðsmisnotkun bankanna til að halda uppi verði á hlutabréfum í þeim og að þetta hafi aukið á áhættuna hjá ís- lensku bönkunum og að lausafé hafi farið út úr þeim á versta tíma. Staðan þrengdist mjög Eitt af þeim félögum sem rann- sóknarnefnd Alþingis ræðir um í þessu sambandi er eignarhalds- félagið Þáttur International sem var í eigu Milestone og bræðranna Einars og Benedikts Sveinssona. Í skýrslunni segir að ekki hafi verið algengt að íslensku eignarhalds- félögin hafi fengið lánveitingar frá erlendum aðilum en að þó hafi verið nokkur dæmi um það líkt og þegar Þáttur fjármagnaði kaup á 7 prósenta hlut í Glitni með láni frá bandaríska fjárfestingabank- anum Morgan Stanley árið 2007. Í skýrslunni segir um þessi við- skipti: „Þessi hlutur var fjármagn- MARKAÐSMISNOTKUN GLITNIS OG ÞÁTTAR n Áhættunefnd Glitnis hætti við að lána Þætti Inter- national beint til að borga Morgan Stanley vegna þess að bankinn vissi að þá færi Milestone-samstæðan yfir þau útlánamörk sem eru heimil til einstakra aðila lögum samkvæmt. Upphaflega stóð til að Glitnir lánaði Þætti milljarðana beint en þegar bankinn áttaði sig á þessu var Vafningssnúningurinn búinn til. Í skýrslu rannsóknarnefnd- nefndarinnar er vitnað í fundargerð áhættunefndarinnar þar sem segir: „Fallið er frá að Glitnir láni Þætti Internatio- nal ehf. nauðsynlega fjárhæð beint til þess að Milestone- samstæðan verði áfram undir gildandi útlánamörkum. Þess í stað lánar Glitnir félaginu Svartháfi ehf. 191 milljón EUR að jafnvirði 18,8 milljarða kr. Svartháfur ehf. lánar síðan Þætti International ehf. sömu fjárhæð. Þáttur International ehf. greiðir Glitni síðan sömu fjárhæð til baka. Glitnir greið- ir Morgan Stanley upphaflegt lán Þáttar International ehf. og tekur handveð í hlutabréfunum.“ n Daginn áður en þetta gerðist skipti Svartháfur um eiganda og faðir eigenda Milestone varð eigandi félagsins. Um þetta segir í skýrslunni: „Eigendaskipti urðu að félaginu Svartháfi ehf. 28. febrúar 2008, eins og áður segir, eða daginn áður en áhættunefnd Glitnis ákveður að lána félaginu 191 milljón EUR eða 18,8 milljarða króna. Því má ætla að eigendaskipti að félaginu Svartháfi ehf. hafi farið fram gagngert í þeim tilgangi að félagið gæti tekið við láni frá Glitni og endurlánað síðan sömu fjárhæð til Þáttar International ehf. Með þessu var hægt að komast fram hjá leyfilegum útlánamörkum og gildandi reglum um stórar áhættur hvað varðar lán til sömu eða fjárhagslega tengdra aðila.“ Úr greinargerð í skýrslunni í 4. bindi Fóru á svig við reglur Skýrsla rannsóknarnefndar er nokkuð af- dráttarlaus þegar kemur að Vafningsvið- skiptunum: Þau voru markaðsmisnotkun og brot á útlánareglum banka. Viðskiptin voru dæmi um það þegar íslensku bank- arnir fengu íslensk fyrirtæki í fangið þeg- ar harðna tók á dalnum í ársbyrjun 2008. Aukið var á áhættuna í bankakerfinu með þessum lánum. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Einbeittur vilji Í skýrslu rann- sóknarnefndar er komist að þeirri niðurstöðu að Svartháfur hafi verið stofnaður gagngert til að fara á svig við gildandi lög um stórar áhættur hvað varðar lán til fjárhagslega tengdra aðila en félagið miðlaði peningum úr Glitni til Þáttar International. Guðmundur Ólason og Karl Wernersson stjórnuðu og áttu Milestone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.