Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FRÉTTIR Fjöldi leikara, rithöfunda og tónlistarmanna skorar á ríkisvaldið að ákæra sig í stuðningsyfirlýsingu til handa mótmælendunum níu sem þegar hafa verið ákærðir fyrir aðför gegn Alþingi. Fyrir helgi brutust út átök í réttarsalnum þegar dómari vísaði fjölda áhorfenda úr salnum og lögregla handtók tvo þeirra. Dómari vísar málinu ekki frá og réttað verður um miðjan mánuðinn. LISTAELÍTAN VILL LÁTA ÁKÆRA SIG Stór hluti listaelítu þjóðarinnar óskar eftir því að vera ákærður af ríkisvald- inu fyrir þátt sinn í búsáhaldabylt- ingunni eftir bankahrunið. Það gera listamennirnir með því að lýsa yfir stuðningi við mótmælendurna níu sem þegar hafa verið ákærðir fyrir að- för að Alþingi og réttað verður yfir um miðjan mánuðinn. Taki ákæruvaldið áskorun lista- mannanna mörgu þarf meðal ann- ars að ákæra þau Auði Jónsdóttur rit- höfund, Benedikt Erlingsson leikara, Gauk Úlfarsson kvikmyndagerðar- mann, Guðberg Bergsson rithöfund, Guðmund Odd Magnússon listapróf- essor, Guðrúnu Evu Mínervudóttur rithöfund, Hallgrím Helgason rithöf- und, Jón Atla Jónasson leikskáld, Ótt- arr Proppé tónlistarmann, Pál Ósk- ar Hjálmtýsson tónlistarmann, Pétur Gunnarsson rithöfund, Tómas Lem- arquis leikara og Tómas R. Einarsson tónlistarmann. Lögregan tók völdin Fullt var út úr dyrum í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag þegar mál mótmælendanna níu var tekið fyrir og dómari tók þá afstöðu til frávísunarkröfu verjenda. Skemmst er frá því að segja að á þá kröfu var ekki fallist og því verður réttað yfir mót- mælendunum nú í maí. Verði mót- mælendurnir fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér fangelsisvist frá einu ári upp að ævilöngu fangelsi, eða 16 árum. Fleiri áhorfendur mættu í dóm- salinn en sætarými leyfði og því ákvað dómarinn að vísa standandi áhorf- endum úr salnum. Sú ákvörðun upp- skar hneykslan og á endanum voru tveir áhorfendur handteknir og í kjöl- farið fór dómshaldið fram undir vernd nokkurra lögregluþjóna. Hæstaréttar- lögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson, einn verjenda mótmælendanna, hef- ur ritað Rögnu Árnadóttur dómsmála- ráðherra bréf þar sem framgöngu dómara og lögreglumanna í réttar- salnum er harðlega mótmælt þar sem þinghaldið var opið öllum. Ákæra alla Sumir áhorfenda í dómsalnum báru tilfinningar sínar utan á sér því eftir lögregluhandtöku tveggja áhorfenda mátti sjá tár renna úr augum margra í salnum. Að loknu dómshaldinu var reyksprengja sprengd fyrir utan and- dyri Héraðsdóms Reykjavíkur. Það eru ekki aðeins listamenn sem hafa lýst yfir stuðningi við mótmæl- endurna heldur einnig þingmenn. Þannig hafa bæði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og Þrá- inn Bertelsson, óháður þingmaður, óskað eftir því að vera einnig ákærð fyrir þátt sinn í mótmælum eftir bankahrunið. Alls hafa 315 einstaklingar skrif- að nafn sitt á stuðningsyfirlýsingu þar sem þess er fyrst og fremst krafist að ríkið falli frá málarekstri gegn níu- menningunum. Nú þegar ljóst er að frá málinu verður ekki fallið stend- ur eftir varakrafa þessara hundraða stuðningsmanna en hún er að ákæru- valdið ákæri alla þá sem tóku þátt í búsáhaldabyltingunni veturinn 2008- 2009 og þar með talið alla þá sem skrifa undir stuðningsyfirlýsinguna. Þar er stóran hluta listaelítu landsins að finna. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is n Steinar Immanúel Sörensson, annar tveggja sem handtekinn var í réttarsalnum, býst fastlega við því að eftirmál verði af handtöku sinni og segir að af sinni hálfu ætli hann með málið alla leið. Aðspurður segir hann það hafa verið forvitnilega upplifun að vera handtekinn og dúsa í fangaklefa. „Löggan greip mig þarna og stakk mér síðan inn. Þetta var mjög skrítið en bæði var þetta góð hvíld fyrir fjögurra barna föður og svo fékk ég voða gott að borða; steiktan fisk með kartöflum og hrásalati,“ segir Steinar. „Í mínum huga er þetta ekkert annað en brot á mannréttindum, það er ekki flóknara en svo. Ég var ekki með neina ógnandi tilburði eða dónaskap við lögreglu. Eina sem ég gerði var að neita að fara út en lögreglan kom alveg ljómandi vel fram við mig á stöðinni. Mér finnst þetta eiginlega pínulítið fyndið og fróðleg upplifun. Lögmaður minn á von á því að þetta mál verði mjög stórt því þinghaldið er opið og það á ekki að vera hægt að meina fólki aðgang að réttarsalnum. Af þeim sökum kann þetta að fara alla leið og enda úti hjá mannréttindadómstólnum.“ Gott að borða í steininum Þetta var góð hvíld fyrir fjög- urra barna föður og svo fékk ég voða gott að borða; steiktan fisk með kartöflum og hrásalati. BIÐJA UM ÁKÆRU Fjöldi landsþekktra listamanna hefur skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við mótmælendurna níu og biður um að vera ákærður með þeim. Páll Óskar Benedikt Erlings Guðbergur Guðrún Eva Gaukur Tómas R Óttarr Proppé Pétur Gunnars Guðmundur Oddur Auður Jónsdóttir Hallgrímur Þráinn Jón Atli Bjarni Bernharður Tómas Lemarquis Birgitta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.