Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Qupperneq 20
HVAÐ VEISTU? 1. Hvaða borgarfulltrúa vinstri grænna var hótað nauðgun vegna skoðana sinna á klámráðstefnunni fyrirhuguðu á Hótel Sögu? 2. Snæfell varð Íslandsmeistari í körfubolta fyrir helgi. Hversu oft hafði liðið unnið titilinn áður? 3. Hvað heitir nýr dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins? Á M Á N U D E G I 20 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FÓKUS SJÓMANNALAGA- KEPPNI RÁSAR 2 Sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins hefur nú verið ýtt úr vör. Óskað er eftir frumsömdum sjómannalögum við frumorta ís- lenska texta og er skilafrestur til 25. maí. Úrslit verða kunngjörð í Popp- landi föstudaginn 4. júní en í fyrstu viku júnímánaðar verða lögin sem komast í úrslit spiluð frá morgni til kvölds á Rás 2. Hlustendum verð- ur einnig gefinn kostur á að kjósa sitt uppáhaldslag á ruv.is. Sigurlag- ið verður svo flutt á Hátíð hafsins á Grandagarði, sjómannadagshelgina 5.-6. júní. EIVÖR Í ÓPERUNNI Færeyski söngfuglinn og heiðurs Íslendingurinn Eivør Pálsdóttir heldur tónleika í Íslensku óper- unni föstudaginn 28. maí í tilefni af útgáfu nýrrar breiðskífu. Hún hélt eftirminnilega tón- leika hérlendis í Fríkirkjunni í desember og komust þá færri að en vildu. Eivör var þá eins síns liðs en í Óperunni verður hún með band á bak við sig og hyggst frumflytja lög af nýju plötunni. Forsala miða hefst næsta föstu- dag klukkan 10 á Miði.is og öllum sölustöðum Miða.is. Miðaverð er 3.900 krónur en eingöngu er selt í númeruð sæti. HRÓS OG LEIKSÝNING Skáldsaga Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, er nýkomin út í Þýska- landi og hefur fengið rífandi góðar viðtökur. Fékk bókin til að mynda fimm stjörnur í tímaritinu Stern og í stórblaðinu Frankfurter Allgemeine er hún sögð „fyndnasta og þéttasta bók Hallgríms Helgasonar til þessa“. Fyrsta upplag bókarinnar seldist upp á tveimur vikum og annað upplag er senn á þrotum. Tvö leikhús á þýska málsvæðinu hafa þegar falast eftir því að sviðsetja söguna og er stað- fest að leiksýning byggð á bókinni verði frumsýnd í Borgarleikhúsinu í Salzburg haustið 2011.  Svör: 1. Sóleyju Tómasdóttur 2. Aldrei. 3. Erna Kettler Létu lífið vegna myndarinnar Þessi magnaða heimildamynd fjall- ar um 2007 mótmælin í Burma eða Mjanmar eins og er hið opinbera nafn landsins. Burmneska þjóð- in hefur búið við harða herfor- ingastjórn í áratugi og andstaðan kraumar undir niðri. Það er ekki oft sem búddamunkarnir beita sér í mótþróa af þessu tagi svo þegar það gerist getur maður gert ráð fyr- ir að allir hafi fengið miklu meira en nóg. Þegar munkarnir hafa látið í sér heyra er það áhrifamikið, rétt eins og í 1919 mótþróa þeirra gegn nýlendukúgun Breta. Svo herfor- ingjarnir skjálfa á beinunum fyrir aflinu sem felst í friðsamlegri and- stöðu þeirra. Hér sjáum við þá leiða þúsundir að stofufangelsi Aung San Suu Kyi í trássi við útgöngubann herforingjastjórnarinnar. Óvenju- legt rétt eins og hrikalegar aðgerðir hersins til að stemma stigu við upp- reisninni. Við sjáum rauðklædda munk- ana fylla göturnar og snúa ölmusu- skálum sínum á hvolf til að sýna að þeir þiggi ekki gjafir stjórnvalda. Þetta eru gæsahúðaraugnablik sem er skilað til okkar með djarfri nú- tímafjölmiðlun eins og hún gerist best. Upptökur af gsm-símum og litlum földum kamerum er dreift í vefsamskiptum gegnum gervihnetti þar sem stjórnvöld skrúfa fyrir net- ið þegar þurfa þykir. Fjölmiðlafólk- ið hættir lífi sínu til að koma hinum óopinberu staðreyndum á framfæri eins og sést þegar hermenn skjóta til bana japanskan túrista sem tekur upp atburðina. Eini galli myndarinnar er vönt- unin á fræðilegum staðreynd- um um framvinduna. Til dæm- is hvernig Aung San Suu Kyi fór á fund herforingjanna til að vernda mótmælendurna í miðjum mót- þróanum. Að öðru leyti er myndin kvikmyndalega vel upp sett og upp- byggingin er markviss. Tónlist spil- ar með magnþrunginni framvindu og sögumaður leiðir okkur áfram þar sem hann fær fréttirnar gegnum ýmsa miðla þar sem hann hefst við í felum í Taílandi. Fólk lét lífið til að þú gætir séð þessa mynd svo ekki láta það fréttast að þú hafir frekar farið á Date Night. Erpur Eyvindarson BURMA VJ Heimildamynd Leikstjóri: Anders Østergaard Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins KVIKMYNDIR Burma VJ Mynd með „lífshættulegum“ myndskeiðum. Heimildamyndin Until the Light Takes Us leggur upp með að útskýra sögu og hugmyndafræði sterkustu svartmálmssenu í heimi sem er klárlega norsk. Kvikmyndagerðar- mennirnir settust að í Noregi í tvö ár til að skila sínu sem best. Mynd- in er byggð á viðtölum við aðal- spaða senunnar, Fenriz, Varg Viker- nes, Hellhammer, Frost, Immortal og Bjarne Melgaard svo nokkrir séu nefndir. Myndefni er yfirgripsmik- ið og gerir gott mót í fréttaskotum, myndböndum og viðtölum við rétta fólkið. Myndin skartar síðan falleg- um myndbrotum af heillandi nátt- úru Noregs sem myndar hið dular- fulla yfirbragð sem svartmálmsliðar vilja móta með tónlist sinni. Við sjá- um þá mála sig dramatískt og setja ákveðið leikrit á svið. Aðrir taka óhugnaðinn mun alvarlegar, virðast snargeðveikir en oftar en ekki mjög nördalegir. Viðtölin afhjúpa mikla geðveiki, ofsóknarbrjálæði og sjálfstortím- ingu. Gott dæmi um óhugnaðinn er áhrifamikill gjörningur Frost í galleríi á Ítalíu þar sem hann spýr eldi, sting- ur húsgögn í hakk og sker loks sjálfan sig til blóðs. Myndin gerir enga róm- antík úr þessu öllu sem er vond leið sem ýmsir aðrir myndu fara. Myndin gerir gott í umfjöllun sinni um hug- myndaheiminn. Varg Vikernes er dæmdur morðingi sem hefur birst gegnum tíðina sem svartmálmsliði, fasisti og hugmyndafræðingur sen- unnar. Hann er einmitt maðurinn sem sagði að undir ríkisstjórn Bond- evik væri Noregur eina klerkaríkið í heimi ásamt Íran. Hann er alvarlega tæpur en virðist vera ágætlega að sér. Hann útskýrir hvernig hinir kristnu þurrkuðu út heiðna siði Noregs með eldi og ofbeldi og hvernig hann hafi tileinkað sér sömu aðferðafræði við að leiðrétta þetta. Myndin sýnir skýrt hvernig fjöl- miðlar upp á sitt einsdæmi útmál- uðu hreyfinguna sem djöfladýrk- endur sem þeir voru klárlega ekki. Þetta er örugglega sterkasta framlag myndarinnar til upplýsandi umræðu og þar skilar hún fræðsluhlutverki sínu vel. En það eru nokkrar alvar- legar brotalamir á myndinni. Hljóð- ið var það lágt að maður gat tæplega tuggið popp og heyrt hvað fór fram á sama tíma. En það er kannski við bíógræjurnar að sakast fremur en kvikmyndagerðarmennina. Áferðin er hrá sem er kannski ágætt í sam- hengi við hvernig tónlistin sem um fjallar er unnin. En tónlistarlegi part- urinn er einmitt veikasti hlekkurinn í mynd sem á að fjalla um tónlistar- stefnu. Það er lítið sagt frá sjálfri tón- listinni og við heyrum fá tóndæmi. Fínt að hafa frábæra tónlist Múm og álíka undir mörgum atriðanna en það vantar meiri svartmálmsstemn- ingu. Myndin er keyrð áfram á við- tölum sem snúast mest um innbyrð- isdeilur í senunni. Um er að ræða reynsluleysi leikstjóranna í sinni fyrstu mynd og ef til vill áhugaleysi á sjálfri tónlistinni sem um ræðir. Erpur Eyvindarson UNTIL THE LIGHT TAKES US Heimildamynd Leikstjórar: Aaron Aites og Audrey Ewell. Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins KVIKMYNDIR Hvar er SVARTMÁLMURINN Sjálfstortíming „Viðtölin afhjúpa mikla geðveiki, ofsóknarbrjálæði og sjálfstortímingu,“ segir gagnrýnandi um heimildamyndina Until the Light Takes Us.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.