Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Page 22
22 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 ÚTTEKT Hjónin, verðlaunahöfundarnir og hjónabandsráðgjafarnir dr. Charles og Elizabeth Schmitz hafa rannsakað hjónabandið í tæp 30 ár. Hjónin hafa ferðast um heiminn, rætt við hjón og sankað að sér efni um þá þætti sem gera hjónaband hamingjusamt. Samkvæmt þeirra athugunum skipta þessi litlu atriði mestu máli ef við viljum lifa í hamingjuríku hjónabandi. 1. Hjónabönd unglinga eru líklegust til að enda með skilnaði. Hjón sem giftast fyrir tvítugt eru tvisvar til þrisvar sinnum lík- legri til að skilja en þeir sem ganga í það heilaga á þrítugsaldr- inum eða síðar. 2. Það eru mestar líkur á að þú kynnist framtíðarmaka í gegnum fjölskylduna, vini og kunningja. Eins rómantískt og það er að hitta og falla fyrir einhverjum fyr- ir algjöra tilviljun sýna gögn hjónabandsráðgjafanna að mestar líkur séu á því að finna maka innan félagslega netsins. 3. Því líkari sem þið eruð því líklegra er að hjónabandið gangi vel. Andstæður geta laðast að hvor annarri en slíkt hjónaband geng- ur sjaldnast upp. Einstaklingar með svipaðan bakgrunn passa betur saman en þeir sem koma úr sitt hvoru umhverfinu. 4. Ungar einstæðar konur eiga minni möguleika á að ganga í það heilaga. Konur sem eignast barn eftir einnar nætur gaman eru ólíklegri til að gifta sig en aðrar. Eiginleikinn „að eiga barn“ er einn af þeim minnst aðlaðandi þegar fólk velur sér maka. Það eina sem virkar meira fráhrindandi er atvinnuleysi. 5. Menntað fólk giftir sig frekar og skilur síður. Þeir sem ná sér í háskólapróf eru betur settir en þeir ómennt- uðu. Þar sem konur hafa tekið fram úr körlum varðandi mennt- un verður æ erfiðara fyrir þær að finna sér jafnmenntaðan maka. 6. Sambúð er ekki prófsteinn á hjónaband. Einstaklingar sem hafa nokkrar sambúðir að baki eru líklegri til að vera óhamingjusamir í hjónabandi og á endanum að skilja. 7. Hjónaband veitir fjárhagslegt öryggi Miðað við þá sem búa saman eru giftir einstaklingar betur settir fjárhagslega. Giftir karlmenn þéna yfirleitt meira en þeir ógiftu. Innkoma og laun skipta hjón meira máli en einstaklinga og sambúðarfólk. 8. Giftir eru líklegri til að lifa betra kynlífi en þeir sem búa saman. Þvert á þá trú að kynlíf giftra sé fyrirsjáanlegt og leiðinlegt gefa rannsóknir til kynna að kynferðisleg fullnægja beggja kynja er mun meiri hjá giftum en öðrum, þar á meðal sambýlinga. Yfir 42% aðspurða giftra kvenna sögðust mjög fullnægðar bæði til- finningalega og kynferðislega miðað við 31% einstæðra kvenna með bólfélaga. Hjá giftum karlmönnum sögðust 48% afar ánægð með kynlífið en 37% af þeim sem voru í sambúð. Talið er að staðfestunni sem fylgir hjónabandinu sé að þakka auk meira trausts og öryggis og minni áfengis- og fíkniefnanotkun. 9. Þeir sem ólust upp á skilnaðarheimili eru aðeins ólíklegri til að giftast og mun líklegri til að skilja. Samkvæmt rannsókn þrefaldast hættan á skilnaði ef skilnaðar- barn á í hlut. Áhættan er þó minni ef makinn kemur frá ham- ingjuríku heimili. 10. Líkurnar á skilnaði eru undir 50%. Samkvæmt bandarískum tölum eru líkurnar á að menntað fólk, sem á ekki hjónaband að baki, skilji langt undir 50% og enn minna ef það bíður með hjónabandið fram að þrítugu, hefur ekki átt marga fyrrverandi maka og deilir sömu trúnni. 10 staðreyndir um hjónaband: Hversu traust er hjónaband ykkar? Ung ást Samkvæmt rannsóknum Scmithz- hjónanna eru meiri líkur á að hjón sem gifta sig mjög ung skilji en önnur hjón. Hamingjuríkt hjónaband Dr. Charles og Elizabeth Schmitz segja hjón ekki mega tapa þræðinum í barnauppeldinu. Ef þeim tekst að halda sambandi sínu góðu fylgi allt annað með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.