Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 3
n Síðast þegar frétt var sögð af Hannesi
snérist hún um að BMW 760-bifreið sem skráð
er á Unni Sigurðardóttur, sambýliskonu hans,
hefði verið flutt úr landi um borð í Norrænu
á fimmtudaginn í síðustu viku. Bifreiðin var
áður skráð á Jón Þór Sigurðsson, sem lengi
var einkabílstjóri Hannesar. Markaðsvirði
bílsins er á bilinu 6 til 8 milljónir króna.
Skattrannsóknaryfirvöld munu kyrrsetja
eignir nokkurra útrásarvíkinga á næstunni
og þar á meðal eignir Hannesar Smárasonar.
Eignir hans sem verða kyrrsettar eru taldar vera mörg hundruð milljóna króna virði.
Ekki er vitað hvort flutningurinn á bifreiðinni tengist væntanlegri kyrrsetningu á
eignum Hannesar.
FRÉTTIR 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 3
FJÖGUR FÉLÖG
HANNESAR Í ÞROT
n Hannes Smárason er fæddur 25. nóvember 1967 og verður því 43 ára á árinu.
Fortíð hans í íslensku viðskiptalífi er vægast sagt litrík. Hannes var aðstoðarforstjóri
deCODE Kára Stefánssonar þegar félagið flaug sem hæst í upphafi aldarinnar. Hann
átti hvað mestan þátt í því að félagið var skráð á bandaríska hlutabréfamarkaðinn.
Hannes starfaði í sjö ár hjá deCODE en þar á eftir fór hann inn í Icelandair ásamt
tengdaföður sínum, Jóni Helga Guðmundssyni, kenndum við BYKO. Þegar Hannes
skildi við dóttur Jóns Helga keypti hann Jón Helga út úr Icelandair. Hann tók svo
saman við einkaritara Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Unni Sigurðardóttur, og búa þau
saman í dag í London.
Eftir að hann eignast Icelandair urðu skilin á milli flugreksturs og fjárfestingastarf-
semi félagsins minni og minni. Á endanum var fjárfestingastarfsemin skilin frá flug-
rekstrinum og var hann seldur út úr félaginu. Eftir stóð Icelandair sem flugfélag og
FL Group sem fjárfestingafélag sem Hannes stýrði. Á endanum missti Hannes tökin á
FL Group og í árslok 2007 var honum ýtt úr forstjórastöðu félagsins eftir vægast sagt
glæfralegan rekstur. Jón Sigurðsson tók við af honum en Jón Ásgeir Jóhannesson
hafði bæði tögl og hagldir í félaginu.
Eftir brotlendingu sína hjá FL Group hefur Hannes ekki látið mikið fyrir sér fara. Hann
hefur alið manninn hvað mest í London og má ætla að hann sleiki nú sár sín.
Fortíð Hannesar
liggur ljóst fyrir hver það er sem á
Codrington Limited.
Öll þau fjögur fyrirtæki sem
skráð voru til heimilis á Talbot
Road í fyrra og sem Hannes stýrði
hafa nú verið tekin til gjaldþrota-
skipta eða eru í greiðslustöðvun.
Þetta eru félögin Novel Realisat-
ions Limi ted, Novel Food Prov-
isions Limited, FOCPL Limited
og Novel Olive Limi ted. Félögin
eru nú öll skráð hjá skiptastjóra í
Leeds sem heitir Zolfo Cooper. Út-
rás Hannesar inn á matvælamark-
aðinn í Bretlandi endaði því ekki
vel.
Ekki er vitað hvað Hannes
Smárason fæst annars við í Bret-
landi þessa dagana. Enginn af
þeim heimildarmönnum sem DV
ræddi við veit nokkuð um Hann-
es eða hvað hann er að sýsla. Hann
hefur mjög hægt um sig í London
samkvæmt því sem heimildir DV
herma. Þó hefur sést til Hannesar
ásamt fyrrverandi eiganda súlu-
staðarins Óðals, Magnúsi Ármann,
á íslenska veitingastaðnum Text-
ure við Oxford-stræti. Ekki er ólík-
legt að þeir félagarnir séu í ein-
hverjum viðskiptum saman.
Hannes hefur nánast ekk-
ert komið fram í fjölmiðlum eft-
ir bankahrunið 2008. Hann virðist
ekki hafa tekið sæti sem stjórnandi
í neinum öðrum félögum, sam-
kvæmt nýrri stjórnendaskýrslu
frá því í maí sem DV hefur undir
höndum frá bresku hlutafélaga-
skránni. Í skýrslunni stendur að
Hannes sé enn framkvæmdastjóri
hjá Novel Food Pro visions Limit-
ed og FOCPL Limi ted en bæði eru
þau í gjaldþrotameðferð. Í þessari
skýrslu kemur fram að hann hafi
stýrt Novel Olive Limited og Novel
Cheese en að þeim hafi verið slitið
þann 27. febrúar 2010 og því stýri
Hannes félögunum ekki lengur.
Gjaldþrot þessara félaga hans í
Bretlandi sýnir hins vegar hversu
tæpt hann hlýtur að standa þar
einnig enda virðist útrás hans til
Bretlands að mestu hafa verið fjár-
mögnuð með lánsfé úr íslenskum
bönkum. Sýn Hannesar og skoð-
anir á hruninu hafa hins vegar ekki
ennþá komið fram og er hann einn
þeirra fáu íslensku auðmanna sem
ekkert hafa tjáð sig eftir atburðina
dramatísku í íslensku efnahagslífi
haustið 2008.
Flutti bíl úr landi
Þórður Hermann Kolbeinsson fjárfestir skuldar háar fjárhæðir
í gegnum félagið Tírufjárfestingar, sem átti stóran hlut í Penn-
anum. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis námu
skuldirnar ellefu milljörðum króna við bankahrunið. Þessa
dagana er hópur iðnaðarmanna að standsetja hús Þórðar sem
hann á sjálfur von á að missa í hendur bankans.
„VIÐ VORUM
ÓHEPPNIR“
Hópur iðnaðarmanna er við störf við
einbýlishús fjárfestisins Þórðar Her-
manns Kolbeinssonar, fyrrverandi
framkvæmdastjóra DHL á Íslandi,
við að endurbæta og standsetja hús-
ið við Granaskjól 34 í Reykjavík. Á
bakinu hefur hann talsverðar skuld-
ir í gegnum hlut sinn í Pennanum
og skyldum félögum en við hrun
bankanna námu skuldir fyrirtækis-
ins rúmum ellefu milljörðum króna.
Samkvæmt skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis hvíla tæpir tveir
milljarðar á herðum Þórðar Her-
manns.
Penninn ehf. rak fyrir banka-
hrunið verslanir Eymundsson og
Pennans, Saltfélagið, Te og kaffi og
Habitat ásamt húsgagnafyrirtæki,
kaffiframleiðanda og rekstrarvöru-
keðju í Eystrasaltslöndunum. Þórð-
ur Hermann átti í félaginu í gegnum
eignarhaldsfélagið Tírufjárfestingar
en í því félagi átti hann tæpan helm-
ing.
Vaxandi skuldir
Tírufjárfestingar ehf. áttu svo 36
prósenta hlut í Pennanum en í lok
október 2008, þegar bankahrunið
varð, skuldaði félagið 11,1 milljarð
króna. Þá höfðu skuldir félagsins
hækkað gríðarlega en frá janúar
2007 hækkuðu þær um 9,7 millj-
arða, mest í evrum eða tæpar 62
milljónir evra. Aukning skuldanna
nemur rúmum 400 prósentum á
þessu tímabili.
Samkvæmt rannsóknarskýrsl-
unni námu nýjar lánveitingar,
einkum Kaupþings banka, 6 millj-
örðum á áðurnefndu tímabili, frá
janúar 2007 til október 2008. Fé-
lagið sjálft, Penninn ehf., var í
sjálfskuldarábyrgðum fyrir stór-
um hluta lánanna til tengdra fé-
laga. Á þessu tímabili virðist fé-
lagið hafa verið í mikilli fjárþörf og
ítrekað óskað eftir endurfjármögn-
un og framlengingum lána. Á end-
anum fór félagið á hausinn og Nýi
Kaupþing banki tók reksturinn yfir
snemma árs 2009.
Að missa húsið
Þrátt fyrir erfiðleikana í viðskipta-
lífinu og áðurnefndar skuld-
ir vinna iðnaðarmenn að því að
standsetja hús Þórðar. Aðspurður
staðfestir hann að svo sé en bendir
á að hann komi sjálfur ekki til með
að búa þar þar sem bankinn komi
til með að leysa húsið til sín vegna
skulda. Í góðærinu reif Þórður allt
út úr húsinu en við bankahrun-
ið stöðvuðust allar framkvæmdir.
„Tilveran með skuldirnar er auð-
vitað erfið, það er engin launung
því þetta er slatti. Ég var bara hlut-
hafi í Pennanum og bendi á að við
höfum samið við bankann um all-
ar skuldirnar. Við vorum óheppn-
ir vegna falls krónunnar og fyrir-
tækin ganga vel í dag,“ segir Þórður
Hermann.
„Það hvíla talsverðar skuldir á
mínum herðum en bankinn var
með veð í húsinu. Ég veit af þess-
um iðnaðarmönnum en bankinn
er þar örugglega að tryggja sína
eign. Húsið er enn á okkar nafni
en þegar uppgjörinu verður lokið
í bönkunum á ég von á að bank-
inn leysi eignina til sín. Það mun
taka tíma en ég vonast til að ná að
standa við mínar lánaskuldbind-
ingar.“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Húsið er enn á okkar nafni en
þegar uppgjörinu verð-
ur lokið í bönkunum
á ég von á að bankinn
leysi eignina til sín.
Skuldir samkvæmt skýrslunni:
n Skuldir Pennans: 11 milljarðar
n Skuldir Tírufjárfestinga: 4 milljarðar
n Skuldir Þórðar: 1,6 milljarðar
Milljarðaskuldir
Tveir milljarðar Ef marka má rannsókn-
arskýrsluna eru skuldir Þórðar Hermanns
vegna eignarhluts í Pennanum hátt í
tveir milljarðar króna.
Ég man ekki hvað kom upp í kröfurnar en það voru
umtalsverðar afskriftir af þess-
um lánum. Það kom eitthvað upp
í kröfurnar en það var ekki mjög
mikið...
Allt á fullu Þrátt fyrir talsverðar skuldir Þórðar
er hópur iðnaðarmanna við störf við að endur-
bæta og standsetja hús sem skráð er á hann.