Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 FRÉTTIR
Prestur í fangelsi
Breskur prestur hefur verið handtek-
inn fyrir áreiti eftir að hafa opinber-
lega lýst því yfir að samkynhneigð
væri synd. Baptistapresturinn
Dale McAlpine þurfti að dúsa í sjö
klukkutíma í fangelsi fyrir ummælin.
McAlpine var að dreifa trúarritum á
meðal almennings, þegar hann vatt
sér upp að vegfarenda sem var á leið
inn í tískuvöruverslun og tjáði hon-
um að samkynhneigð væri synd-
samleg og færi gegn orði Guðs.
Brandarar Jons
Stewart
Barack Obama forseti Bandaríkj-
anna, sló í gegn á hátíðarkvöldverði
með fréttamönnum í Washington á
dögunum, þar sem góður rómur var
gerður að gamanmáli hans. Obama
skaut meðal annars á Jay Leno fyrir
að vera eini maðurinn sem hefði
tapað meiri vinsældum á einu ári
en forsetinn. Nú hefur komið í ljós
að handritshöfundar grínarans Jons
Stewart sáu um að skrifa brandarana
fyrir forsetann.
Heimsótti Kína
Kim Jong-II, leiðtogi Norður Kóreu,
er talinn hafa farið í heimsókn til
Kína á mánudag, í skugga vaxandi
spennu á mili Norður-Kóreu og Suð-
ur-Kóreu vegna orðróms um að ráð-
ist hafi verið á suðurkóreskt flutn-
ingaskip á dögunum. Leiðtoginn er
talinn vera að afla stuðnings Kín-
verja, en ráðamenn í Seúl eru sagðir
vilja refsa Norður-Kóreumönnum
fyrir árásina.
Í rusli eftir
brottreksturinn
Bandaríski spjállþáttastjórnand-
inn Conan O´Brien segist hafa verið
eyðilagður eftir að NBC sjónvarps-
stöðin rak hann úr Tonight Show-
spjallþættinum aðeins nokkrum
mánuðum eftir að hann tók við
starfinu. O´Brien sagði við 60 mín-
útur á dögunum að brottreksturinn
hafi ekki aðeins verið fagleg móðg-
un, heldur einnig persónuleg. Hann
hafi orðið mjög dapur og liðið eins
og eftir óvæntan hjónaskilnað.
Pakistani á von á dauðarefsingu fyrir að myrða óbreytta borgara í Mumbai:
Háði stríð gegn Indlandi
Indverskur dómstóll hefur sakfellt
pakistanskan karlmann fyrir aðild
sína að skotárásinni í Mumbai árið
2008, þar sem 166 manns voru myrt-
ir á hóteli og á lestarstöð. Umsáturs-
ástand skapaðist í borginni sem stóð
í þrjá daga.
Mohammed Ajmal Kasab var eini
árásarmaðurinn sem féll ekki í bar-
dögum við lögregluna. Hann var sak-
felldur fyrir fyrir að myrða og særa lífs-
hættulega tugi vegfarenda á lestarstöð
í Mumbai, þar sem hann hóf skot-
árás í allar áttir. Hann var hins vegar
handtekinn á fyrsta degi umsátursins
en vitorðsmaður hans féll í skotbar-
daga við lögregluna. Myndband af
Kasab með byssu í hendi hefur farið
um eins og eldur í sinu um netheima.
Þar sést hann skjóta að því er virðist
handahófskennt á saklausa vegfar-
endur. Kasab var sakfelldur í öllum 86
ákæruliðunum gegn honum, þeirra
á meðal fyrir morð og fyrir að heyja
stríð gegn Indlandi. Dómur verður
kveðinn upp yfir ódæðismanninum í
næstu viku, en fastlega er búist við því
að dauðarefsingin bíði hans.
Umsátrið í Mumbai stóð yfir í þrjá
daga og létu allir byssumennirnir lífið
nema Kasab. Þeir voru óvenjulega vel
vopnum búnir, með vélbyssur, stað-
setningartæki og greinilega tilbúnir til
þess að heyja harða baráttu. „Venju-
legir glæpamenn undirbúa sig ekki
svona,“ sagði dómarinn þegar hann
sakfelldi Kasab.
Mikla athygli vakti í réttarhöldun-
um þegar Kasab játaði óvænt fulla að-
ild að morðunum áður en hann dró
þær til baka á þeim forsendum að
hann hefið verið pyntaður til að játa.
Taj hótelið Alls létust 166
manns í skotárásinni.
Efnahagsstaða Íslands er ekki eins
slæm og staða Grikklands, að mati
Steingríms J. Sigfússonar fjármála-
ráðherra. Það er athyglisverð yfirlýs-
ing í ljósi þess að grísk yfirvöld hafa
sagt það sama um Ísland. Gríski fjár-
málaráðherrann George Papand-
reou lýsti því yfir í desember um það
leyti sem efnahagsvandi þjóðarinn-
ar var að koma í ljós að Grikkir væru
ekki í jafnalvarlegri stöðu og Íslend-
ingar. „Við erum ekki hinir nýju Ís-
lendingar og Grikkland er ekki hið
nýja Dubai,“ sagði Papandreou í
desember.
Steingrímur J. var nokkuð berorð-
ur í viðtali við fréttavef Bloom berg í
vikunni þegar hann bar saman efna-
hagsvanda Grikkja og Íslendinga.
„Guð minn góður. Ég myndi ekki
vilja vera í þeirra stöðu núna. Grikkir
eru í verri stöðu en Ísland er, eða hef-
ur verið; Grikkir eru með evruna og
við getum deilt um hvort það gagn-
ist þeim um þessar mundir eða ekki,“
sagði Steingrímur við Bloomberg og
bætti við: „Það verður ekki auðvelt
fyrir Grikkland að komast út úr þess-
um vandræðum.“
Mikill vandi
Fjármálaráðherrar á evrusvæðinu
gengu um helgina frá 110 milljarða
evra björgunarpakka til þess að koma
í veg fyrir greiðsluþrot gríska ríkisins
og koma um leið í veg fyrir að versta
gjaldeyriskreppa frá því evran var
tekin upp, myndi breiðast út um álf-
una og valda dómínóáhrifum í hag-
kerfum annara skuldugra ríkja. Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn ætlar að
leggja til 30 milljarða evra í björgun-
arpakkann, en nærvera hans í Grikk-
landi hefur mælst misjafnlega fyr-
ir, líkt og hér á landi. Þessar aðgerðir
verða hins vegar sársaukafullar, því
Grikkir verða að draga úr útgjöld-
um ríkisins um 13 prósent af vergri
landsframleiðslu og það mun eins og
á Íslandi bitna á nærri öllum sviðum
samfélagsins. Vonir standa til að lán-
ið dugi til þess að afstýra þjóðargjald-
þroti þar í landi.
Hvor fjármálaráðherrann sem
hefur rétt fyrir sér, Steingrímur eða
Papandreou, er ljóst að bæði ríki eru
í mjög þröngri stöðu efnahagslega.
Báðar þjóðir eru til að mynda með
lánstraust í ruslflokki.
Verri skuldir Íslands
Í kjölfar bankahrunsins hérlendis
skrapp hagkerfi Íslands saman um
6,5 prósent á síðasta ári samkvæmt
Bloomberg. Gert er ráð fyrir 3,4 pró-
senta samdrætti á þessu ári, áður en
efnahagurinn tekur við sér á nýjan
leik á næsta ári.
Til samanburðar má nefna að
samdrátturinn í efnahag Grikklands
mun nema 4 prósentum á þessu ári
og búist er við 2,5 prósenta samdrætti
árið 2011. Grískar spár gera ráð fyrir
batahorfum árið 2012.
Samkvæmt Moody´s greining-
arfyrirtækinu nema skuldir íslenska
Grikkir eru komnir í vafasaman félagsskap Íslendinga sem sú
þjóð sem hefur farið verst út úr hruninu. Risastór björgunar-
pakki var samþykktur á dögunum fyrir Grikki. Fjármálaráð-
herrar bæði Íslands og Grikklands hafa sagt stöðu síns ríkis
ekki eins slæma og hins ríkisins. Skuldir Grikkja nema um 115
prósent af landsframleiðslu, en skuldir Íslendinga miðað við
landsframleiðslu eru hærri. Mótmæli standa yfir í Aþenu.
„GUÐ MINN GÓÐUR“
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Það verður ekki auðvelt fyrir
Grikkland að komast út
úr þessum vandræðum.
Grikkir í verri málum en við „Það verður ekki auðvelt fyrir Grikkland að komast út
úr þessum vandræðum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon
Íslendingar í verri málum en við George Papandreou fjármálaráðherra Grikklands
lýsti því yfir að staðan í Grikklandi væri ekki svo slæm að hægt væri að kalla Grikki
hina nýju Íslendinga.