Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Qupperneq 19
GUNNAR ANDRÉSSON tók við 1.
deildar liði Aftureldingar á erfiðum
tímapunkti fyrr í vor. Hann kom liðinu
upp í N1-deildina í handbolta á
mánudagskvöldið þegar liðið valtaði
yfir Gróttu fyrir framan troðfullt
íþróttahúsið í Mosfellsbæ.
BJÓST VIÐ
BARÁTTULEIK
Yfir þjóðina hafa dunið hamfarir af
tvennum toga. Í fyrra tilvikinu er um
að ræða hamfarir af mannavöldum,
bankahrun og feiknalegt eignatjón,
hérlendis sem erlendis. Í síðara til-
vikinu er um náttúruhamfarir að
ræða, gos í Eyjafjallajökli með til-
heyrandi flóðum og öskufalli.
Margt bendir til að hamfarirn-
ar af mannavöldum hafi nú þegar
kostað mannslíf. Vitað er að þessar
hamfarir hafa sett líf um 100 þúsund
Íslendinga verulega úr skorðum og
ekki sér fyrir endann á vanda þeirra.
Skuldir eru óbærilegar á sama tíma
og skattar hafa hækkað og tekjur og
kaupmáttur rýrnar.
Eldgosið í jöklinum hefur
ekki kostað mannslíf það
best er vitað. En það
hefur raskað mann-
lífi undir Eyja-
fjöllum og vald-
ið umtalsverðu
en staðbundnu
eignatjóni. Fyrstu
dagana varð
veruleg truflun
á áætlunarflugi
um mestalla Evr-
ópu. Það skaðaði
fjölda flugfélaga
og olli margvís-
legu fjárhagstjóni
með óbeinum
hætti.
Liður í
því
að setja hjól þjóðlífsins aftur af
stað eftir hamfarir af mannavöld-
um er að lækka vexti í landinu og
búa í haginn fyrir aukinn fjármála-
legan stöðugleika. Þar kemur við
sögu Már Guðmundsson, nýráðinn
seðlabankastjóri. Hann og Seðla-
bankinn gegna mikilvægu hlut-
verki við að framfylgja áætlunum
um afnám gjaldeyrishafta, huga að
bættri peningamálastjórn og örva
fjárfestingar.
Þjóðin virðist hins vegar hafa
mestar áhyggjur af því hvort Már
hafi hundrað þúsund krónum meira
eða minna í kaup.
Jarðvísindi og bankavísindi
Á meðan þessu vindur fram kem-
ur Magnús Tumi Guðmundsson,
bróðir Más, fram í fjölmiðlum nær
dag hvern og útskýrir hvernig jarð-
vísindin hafi full tök á náttúruham-
förunum ef svo mætti segja: Búast
megi við öskufalli á morgun á þess-
um stað, fólk ætti að taka mið af
því að varasamar gusur geti komið
frá eldfjallinu þar sem hraun renn-
ur undir jökli og truflun geti orðið
á flugi yfir Írlandi næstu tvo daga
vegna vindáttar.
Magnús Tumi er eins konar
óskoraður forsætisráðherra nátt-
úruhamfaranna og kemur fram eins
og jarðvísindin hafi full tök á fram-
vindunni. Enginn rífst yfir launum
hans.
Hins vegar er ekki að sjá að
nokkur hafi stjórn á framvindu
þjóðfélagsins eftir hamfarir af
mannavöldum. Enginn kemur fram
í sjónvarpi á kvöldin og útskýrir fyrir
þjóðinni hvað sé að gerast og hvort
von sé um betra líf á næstunni. Eng-
inn veit hvort það er á valdi Hæsta-
réttar, stjórnvalda eða banka hvort
stökkbreytt lán verði klafi á herðum
manna um aldur og ævi.
Á sama tíma vinna sýslumenn,
lögregluþjónar, björgunarsveitir,
jarðvísindamenn, veðurfræð-
ingar, sjálfboðaliðar, héraðs-
stjórnir og jafnvel stjórnvöld
agað og skipulega að því að
upplýsa fólk og leysa þau
vandamál sem upp koma
vegna náttúruhamfaranna í Eyja-
fjallajökli. Þjóðin virðist ráða vel við
náttúruhamfarir af þessari stærðar-
gráðu.
Þessi endalausa þrasgirni
Stjórnvöld hafa ekki átt neina leið til
þess að veita þjóðinni nauðsynlega
almannavarnaþjónustu vegna ham-
fara af mannavöldum. Þau afsala sér
valdi yfir bönkunum sem þau hefðu
vel getað tekið sér meðan unn-
ið var að því að hreinsa öskuna og
skúra þar innandyra. Þau setja Ar-
ion banka og Íslandsbanka í hendur
skilanefnda sem verða eins og ríki
í ríkinu. Í slökkvilið bankanna velj-
ast brennuvargar hrunsins. Jóhanna
og Steingrímur sitja auðum hönd-
um, jafnvel þó svo að kjósendur séu
látnir ábyrgjast fulla endurgreiðslu
á þeim krónufjöllum sem safnast nú
fyrir í bönkunum.
Helstu viðfangsefnin eru að setja
forsetanum siðareglur og leysa deil-
ur um laun Más.
Hvernig stóð á því að lýðræðis-
lega valið meirihlutavald vildi ekki
taka að sér neyðarstjórn á hrundu
bankakerfi þar til sýnt þótti að hætta
á tjóni vegna siðlausra spellvirkja
hrunverja innan bankanna var hjá
liðin?
Enginn véfengir orð Magnús-
ar Tuma og annarra jarðvísinda-
manna. Þeir njóta trausts. Almenn-
ingi líður einhvern veginn betur
eftir að hafa fengið leiðbeiningar
þeirra dag hvern varðandi náttúru-
hamfarirnar.
En fáir treysta stjórnvöldum.
Almenningi líður einhvern veg-
inn verr þegar rifrildi um laun Más
seðlabankastjóra og siðareglur fyrir
forseta Íslands eru meðal helstu af-
leiðinga hamfara af mannavöldum.
Bræðurnir Már og Magnús Tumi
UMRÆÐA 5. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 19
1JÓN GNARR: MAN EKKI EFTIR AÐ HAFA STUTT GUÐLAUG ÞÓR
Formaður Besta flokksins ræðir um
stuðning sinn við frambjóðendur.
2 FALLEGAR KONUR ERU HÆTTULEGARSamkvæmt nýlegri rannsókn geta
fallegar konur verið hættulegar
heilsu karlmanna.
3 EIÐUR SMÁRI HNEYKSLAR: SAGÐUR HAFA HEILSAÐ
AÐ HÆTTI HITLERS
Daily Star í Bretlandi sló upp meintri
nasistakveðju Eiðs á forsíðu sinni.
4 ALMENNINGUR BÚIST VIÐ HINU VERSTA
Yfirvöld í Louisiana segja olíuslysið á
Mexíkóflóa mjög alvarlegt.
5 MYNTKÖRFULÁNIN VERÐA LÆKKUÐ
Félagsmálaráðherra vill lækka
höfuðstól myntkörfulána með
ýmsum úrræðum.
6 NORÐMAÐUR LÉST EFTIR RÚSSNESKA RÚLLETTU
29 ára Norðmaður skaut sig í
höfuðið í rússneskri rúllettu.
7 EIÐUR REIÐUR: SÉR EKKERT FYND-IÐ VIÐ ÞÝSKALAND NASISMANS
Knattspyrnumaðurinn svarar fyrir sig
og sigar lögfræðingum á Daily Star.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn? „Gunnar Andrés-
son, fjölskyldufaðir.“
Hvar ertu uppalinn? „Í Safamýri,
Framari.“
Hvað drífur þig áfram? „Áskorarnir
myndi ég segja og börnin mín.“
Hver er þín fyrsta minning úr æsku?
„Ætli það sé ekki bara leikskólalífið á
Álftaborg.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi? „Í Sviss. Ég bjó í Zürich og þar
var gott að vera.“
Hvernig var tilfinningin þegar lokal-
flautið gall gegn Gróttu? „Maður var
nú kannski búinn að átta sig á sigrinum
fyrr en það kom. Ég leyfði mér nú samt
ekkert að fagna fyrr en það voru svona
3-4 mínútur eftir og við vorum með gott
forskot. Þetta var alveg rosalega vel gert
hjá mínum mönnum og stuðningurinn
var með ólíkindum. Það var þvílíkt sætt
að vinna þetta fyrir framan okkar fólk.“
Hvað var gert eftir leikinn? „Við fögn-
uðum með stuðningsmönnum okkar á
Kaffi Kidda Rót. Þar var alveg troðfullt og
mikil stemmning fram á nótt.“
Bjóstu við svona öruggum sigri?
„Nei, ég átti nú ekki von á svona leik. Ég
hélt þetta yrði meiri barátta og spenna.“
Þarftu að styrkja liðið mikið fyrir
efstu deildina? „Ég þarf eitthvað að
skoða það. Við þurfum einhverja
leikmenn en það verða engar stórkost-
legar breytingar. Hjartað í þessu lið er úr
Mosfelslbæ og það breytist ekkert. Það
verða einhverjir leikmenn fengnir og það
verður smá kúnst að finna þá.“
Eru framtíðarlandsliðsmenn í þessu
Aftureldingar-liði? „Ég hef mikla trú á
mörgum leikmönnum þarna en það er
undir þeim sjálfum komið hvað þeir ætla
að gera. Getan er til staðar en svo þarf
viljann til að fara jafnlangt og að berja á
einhverjar landsliðsdyr.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Já.“
ÍSAK GUÐBERGSSON
16 ÁRA NEMI
„Já, það verður mikill missir að þeim
held ég.“
DAVÍÐ MÁR MÖLLER
16 ÁRA NEMI
„Já, ég á eftir að sakna þeirra.“
GUÐBJÖRG VIGNISDÓTTIR
60 ÁRA TEYMISSTJÓRI Í HEIMAÞJÓNUSTU
„Það er ákveðinn missir að þeim enda
hef ég alist upp við þær.“
PÉTUR DUFFIELD
STARFSMAÐUR HJÁ HÚSASMIÐJUNNI
„Ég veit það ekki, ekkert endilega.“
JAKOB INGIMUNDARSON
BÍLSTJÓRI
ÁTTU EFTIR AÐ SAKNA ÞULANNA Á RÚV?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
Sumarið loksins komið Íslendingar sem og erlendir ferðamenn tóku góða veðrinu fagnandi í miðbænum í gær. Þeir sem hér
sjást nutu blíðunnar fyrir utan Café París þegar Róbert Reynisson ljósmyndara bar að garði. Einmunablíðu er spáð alla næstu daga,
hlýjast verði þó fyrir austan. MYND RÓBERT REYNISSON
JÓHANN
HAUKSSON
útvarpsmaður skrifar
„Enginn veit hvort það
er á valdi Hæstaréttar,
stjórnvalda eða banka
hvort stökkbreytt lán
verði klafi á herðum
manna um aldur og ævi.”