Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2010, Síða 24
Fyrrverandi Arsenal-goðsögnin, Ian
Wright, hefur miklar áhyggjur af
framtíð Liverpool í Meistaradeild-
inni takist Manchester City að hirða
fjórða sætið í Úrvalsdeildinni í ár og
þannig komast í deild þeirra bestu.
City mætir Tottenham í kvöld, mið-
vikudag, og með sigri kemur það sér
þægilega fyrir í bílstjórasætinu í bar-
áttunni um fjórða sætið. Takist City
að komast í Meistaradeildina þýði
það hörmung fyrir Liverpool, segir
Wright. Peningastaða City er einfald-
lega of sterk og mun liðið vera með
forskot á Liverpool takist því að vera
reglulega í Meistaradeildinni.
„Söngvar stuðningsmanna Liver-
pool minna okkur ætíð á að liðið hef-
ur fimm sinnum orðið Evrópumeist-
ari. Þeim leiðist ekkert að minna
okkur á það. En hinn harði sannleik-
ur er sá að Liverpool gæti þurft að
venjast lífinu utan Meistaradeildar-
innar á næstu árum,“ segir hann.
„Þetta sigursælasta lið Englands
mun ekki enda ofar en í sjötta sæti í
ár og verður því aftur í Evrópudeild-
inni á næsta tímabili. Og ef City vinn-
ur Tottenham sem ég held að það
geri óttast ég um að það verði í það
minnsta fimm ár, ef ekki lengra, þar
til Liverpool kemst aftur í Meistara-
deildina.“
Margir stórir leikmenn hafa neit-
að City á þeim grundvelli að liðið er
ekki í Meistaradeildinni en takist lið-
inu að komast þangað ætti það að
verða óstöðvandi á leikmannamark-
aðinum. „Stórar stjörnur myndu
ekki lengur þurfa að neita City eða
fara þangað bara fyrir peninga. Þeir
gætu alltaf sagt að þeir vildu spila í
Meistaradeildinni og því væru þeir
að ganga til liðs við Manchester
City. Komist City í Meistaradeildina
munu eigendur liðsins fá nýjar og
fleiri ástæður til þess að kaupa leik-
menn og það er nokkuð sem þeir
munu gera.“
tomas@dv.is
Ian Wright segir árangur Manchester City fara illa með Liverpool:
Fimm ára frí frá Meistaradeildinni
FJÓRTÁN MILLJARÐA KAPPHLAUP UM TORRES Liverpool
mun lenda í harðri samkeppni um markamaskínuna sína, Fernando Torres, í sumar. Liverpool
komst ekki í Meistaradeildina og vann engan titil annað árið í röð en til þess kom Spánverj-
inn til félagsins. Manchester City er sagt í breskum miðlum muni hefja kapphlaupið með 70
milljóna punda tilboði í Torres en Juventus hefur einnig mikinn áhuga á leikmanninum.
Þar sem Juventus er að missa af Meistaradeildarsæti heima fyrir virðist það alls ekki lík-
legur áfangastaður fyrir Torres. „Liverpool verður einfaldlega að halda leikmönnum á
borð við Steven Gerrard og Fernando Torres, annars gæti verið illt í efni,“ segir ísraelski
vængmaðurinn Youssi Benayoun.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010
MOLAR
FYRSTI ÁSTRALSKI
MEISTARINN
n Hinn ungi Neil Robertsson
fagnaði vel og innilega þegar hann
tryggði sér sigur á heimsmeistara-
mótinu í snóker
eftir auðveldan
sigur á Graeme
Dott, 18-13.
Robertsson er
fyrsti ástralinn
til að vinna þetta
stærsta og virt-
asta mót hvers
ár og um leið
fyrsti maðurinn utan Bretlands til
að hampa sigri í 30 ár. Robertsson
faðmaði móður sína innilega
eftir sigurinn en hún flaug hálfa
leið kringum hnöttinn til þess að
horfa á strákinn í úrslitaleiknum.
Enginn bjóst við sigri Robertson
fyrir mótið.
FERRARI BETRA
ÁN SCHUMI
n Fernando Alonso hefur sent
Michael Schumacher væna pillu.
Hann segir Ferrari-liðið mun betra
án afskipta
Þjóðverjans
en hann hefur
undanfarin
tvö ár verið
sérstakur
aðstoðarmaður
liðsins. Schum-
acher ekur í dag
fyrir Mercedes
þar sem honum gengur ekkert.
„Ég held að allir séu bara töluvert
frjálsari að hafa hann ekki hérna,“
segir Alonso sem hefur aldrei verið
vel til vina við Schumacher, í raun
frekar en nokkurn annan. Alonso
gekk í raðir Ferrari frá Renault í
haust.
RISATILBOÐ CHELSEA
n Talið er að Chelsea ætli að gera
risatilboð í tvo leikmenn ítalska
stórliðsins AC Milan í sumar. Leik-
mennirnir tveir
sem Chelsea
vill er fram-
herjinn Pato og
miðvörðurinn
Thiago Silva
en þá keypti
Carlo Ancelotti,
stjóri Chelsea,
til Milan þegar
hann var við stjórnvöldin þar.
Sagt er að Chelsea ætli að eyða 80
milljónum punda í leikmennina
tvo. Ætla þeir að borga 60 milljónir
fyrir hinn stórefnilega Pato og 20
milljónir fyrir Thiago Silva.
HENRY MÁ FARA
n Thierry Henry virðist á útleið frá
Barcelona en Joan Laporta, forseti
félagsins, hefur staðfest að honum
sé frjálst ferða sinna. Henry kom
til Barca frá Arsenal sumarið
2007 en hefur aldrei sýnt virkilega
hvað í honum býr, sérstaklega
hefur þetta tímabil verið vont fyrir
Frakkann. „Henry á eitt ár eftir af
samningnum
sínum og við mun-
um standa við
það. Eftir þetta
vonbrigðaár veit
ég samt ekki hvað
hann gerir. Hann
má fara í sumar ef
hann vill,“
segir La-
porta. Nei, ekki Meistaradeild fyrir
mig, takk Steven Gerrard og félagar
verða að láta sér Evrópudeildina að
góðu verða á næsta tímabili. MYND AFP
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON READING
Langbestur allra Íslendinganna í deildinni. Gylfi fékk tækifærið hjá þjálfaranum í
ár og svaraði því kalli með stæl. Hann skoraði sextán mörk í deildinni og tuttugu
í öllum keppnum. Hann var valinn leikmaður mánaðarins í tvígang og svo var
hann valinn leikmaður ársins hjá Reading. Frammistaða hans hefur vakið athygli
nokkurra úrvalsdeildarliða en ólíklegt er að Reading gæti hafnað góðu tilboði þar
sem liðið vantar pening. Úlfarnir eru einna hrifnastir af Gylfa en þeir héldu sæti
sínu í úrvalsdeildinni í ár. Hann á annars tvö ár eftir af samningi sínum við Reading.
ÍVAR INGIMARSSON READING
Ívar hóf tímabilið í miðri vörninni eins og endranær, alltaf fyrstur á leikskýrslu. Hann
átti erfitt uppdráttar fyrri hluta móts eins og allt liðið þar sem það gat varla keypt
sér stig í deildinni. Hann varð síðan fyrir alvarlegum meiðslum sem tóku hann úr
leik það sem eftir var tímabils. Tókst honum því aðeins að leika 25 leiki með Reading
þetta tímabilið. Hann er án samnings og ætlar að skoða sig um í sumar en alls ekki er
ólíklegt að hann semji aftur við Reading. Peningastaða liðsins er þó ekki sterk og gæti
Ívar verið liðinu of dýr.
BRYNJAR BJÖRN
GUNNARSSON READING
Brynjar Björn var einhvern veginn alltaf á leið frá Reading í vetur, fékk lítið að spila
og var ósáttur. Það var ekki fyrr en hann byrjaði að fara á kostum í bikarnum að
Reading-menn sáu hvað í hann var spunnið. Þegar hann fíflaði Liverpool-mennina
svo svakalega í seinni bikarleiknum var ein af stundum ársins á tímabilinu. Hann fór
að leika meira eftir það en ekki jafnmikið og hann vildi. Reading ætlar þó að bjóða
honum nýjan samning enda Brynjar afar traustur varamaður.
GUNNAR HEIÐAR
ÞORVALDSSON READING
Það á nú ekki af Gunnari Heiðari að ganga. Frá því hann varð markahæstur í Svíþjóð
hefur allt legið beint niður á við og ekki var það skárra hjá Reading. Gunnar var
gríðarlega ánægður að komast frá Esbjerg í Danmörku í 1. deildina og í raun skildu
voða fáir hvers vegna Reading væri að semja við Gunnar. Það kom líka á daginn að
hann sló álíka mikið í gegn og sjálfsmark. Hann kom inn á í tvígang en lék annars bara
með varaliðinu. Hann fer nú aftur til Esbjerg í sumar en hvort það vilji halda honum er
góð spurning.