Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Síða 6
6 fréttir 23. júní 2010 miðvikudagur
„Ég hef engar áhyggjur og er von-
góður um sigur,“ segir Stefán Hilmar
Hilmarsson, fjármálastjóri 365 miðla
og fyrrverandi fjármálastjóri Baugs,
um þrjú dómsmál sem hann tengist
þessa dagana.
Arion banki og Landsbankinn
hafa stefnt Stefáni Hilmari vegna
lána skulda, sem tengjast ekki Baugi,
en sjálfur bíður hann niðurstöðu í
launamáli gegn þrotabúi Baugs. Von
er á niðurstöðu í launamálinu í þess-
ari viku.
Kröfur bankanna eru upp á tugi
milljóna en eftir því sem DV kemst
næst er krafa Arion banka upp á tæp-
ar 50 milljónir og Landsbankans tals-
vert lægri. Sjálfur fer hann fram á
tæpar 30 milljónir króna úr þrotabúi
Baugs vegna vangoldinna launa og
orlofs.
Sterk staða
Stefán Hilmar staðfestir að mál
Landsbankans hafi bæst við og því
sé um að ræða bardaga á þrennum
vígstöðvum fyrir dómstólum. Að-
spurður vill hann ekki gefa upp ná-
kvæmar tölur en staðfestir þó að þær
sem heimildir DV hljóði upp á séu
nærri lagi. „Já, ég er vongóður í öll-
um þessum málum. Ég met það bara
þannig að réttur launamanna sé svo
sterkur en auðvitað veit maður aldrei
hver niðurstaðan verður. Það er ekk-
ert víst að öll krafan gangi í gegn,“
segir Stefán Hilmar.
„Ég lít síðan þannig á að bankarn-
ir hafi farið langt út fyrir sínar heim-
ildir og ráðstafað mínu fé án sam-
þykkis. Slíkt kemur til dæmis víða
fyrir í rannsóknarskýrslunni.“
Áhyggjulaus fjölskylda
Í skýrslunni sem Stefán Hilmar nefn-
ir er hann sjálfur inni á topp hundrað
listanum yfir mestu skuldara lands-
ins. Þar er hann skráður með fjóra
milljarða á bakinu. Engan bilbug er
þó á Stefáni Hilmari að finna. „Ég er
bjartsýnn og vongóður. Ég reyni að
vinna allt sem ég fer í og hef gert það
hingað til. Ég ætla að vinna þetta.“
Stefáni Hilmari finnst ekki óþægi-
legt að standa í þrennum málaferl-
um því hann sé einfaldlega að berj-
ast fyrir rétti sínum. Aðspurður hvort
málaferlin og skuldirnar taki á fyrir
fjölskylduna segir hann svo ekki vera.
„Nei, þetta tekur hvorki á fyrir mig né
fjölskylduna. Þarna er einfaldlega á
ferðinni ágreiningur sem rétt er að
reyna á fyrir dómstólum, það er bara
þannig. Ég hef ekki áhyggjur af því að
þetta fari illa.“
Alltaf bjartsýn
„Ég er bjartsýn á framtíðina en það
er eitthvað sem ég reyni ávallt að til-
einka mér. Ég er bara þannig gerð
enda þýðir ekkert annað. Í stað þess
að hafa áhyggjur reyni ég að vera
bjartsýn og auðvitað reynir maður að
vera vongóður í þessum málum,“ seg-
ir Friðrika Hjördís, eiginkona Stefáns.
Friðrika hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana þar sem nýr mat-
reiðsluþáttur með henni er sýndur á
Stöð 2. Þátturinn heitir Matarást með
Rikku. Áður var hún kynnir í hinum
vinsælu sjónvarpsþáttum Wipeout.
Þá undirbýr hún útgáfu matreiðslu-
bókar í samstarfi við verslanir Hag-
kaupa. Nýverið lýsti hún svo yfir ást
sinni á eiginmanninum og einnig
fullum stuðningi við hann í tímarit-
inu Séð og heyrt.
Hjónin Stefán Hilmar Hilmarsson, fyrr-
verandi fjármálastjóri Baugs, og Friðrika
Hjördís Geirsdóttir fjölmiðlakona berjast
á þrennum vígstöðvum fyrir dómstólum.
Arion banki og Landsbankinn hafa stefnt
Stefáni vegna lánaskulda en sjálfur bíður
hann niðurstöðu í þessari viku í launa-
máli gegn þrotabúi Baugs. Bæði eru þau
bjartsýn á framtíðina.
bjartsýn þrátt
fyrir lögsóknir
n Kveikt var í Range Rover-glæsibifreið hjónanna Friðriku Hjördísar og Stefáns
Hilmars í ágúst árið 2008. Bíllinn brann til kaldra kola skömmu eftir miðnætti en
málið er enn óleyst. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hætt rannsókn á
bílbruna Wipeout-hjónanna.
Skömmu eftir brunann gaf Friðrika Hjördís þá skýringu að um rafmagnsbilun
hefði verið að ræða en lögregla komst fljótt að þeirri niðurstöðu að þetta væri
íkveikja. Bíllinn stóð fyrir utan hús þeirra hjóna við Laufásveg 68 í Reykjavík en
upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýndu þrjá grunsamlega menn á vettvangi. Fyrst
sáust þeir ganga í átt að bílnum og síðar koma hlaupandi til baka. Myndavélarnar
sýndu síðan einn þremenninganna koma aftur á brunastað þegar slökkvistarf fór
fram.
Þau Friðrika og Stefán sjá væntanlega eftir Range Rovernum en þau aka aftur á
móti um á annarri glæsibifreið í staðinn. Greint var frá því í október síðastliðnum
að þau væru nú á glæsijeppa af gerðinni Cadillac Escalade Luxury.
BílaBruninn að Baki
trAuSti HAFSteinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Stefnt af Landsbankanum Lands-
bankinn hefur stefnt Stefáni vegna
lánaskulda eins og Arion banki.
Ætlar að vinna Stefán Hilmarsson er
hér með eiginkonu sinni, sjónvarps-
konunni Friðriku Hjördísi Geirsdóttur.
Þau segjast vongóð í málunum þremur.
össur segir Camer-
on misskilja
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra segir að forysta Evrópusam-
bandsins hafi margítrekað að aðild
Íslands að sambandinu væri ótengd
lausn á Icesave-deilunni.
Össur sagði í fréttum RÚV í gær
að David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, misskildi málið alvarlega
teldi hann að Íslendingar ætluðu
ekki að borga. Sagði hann að breska
ríkisstjórnin hefði ekki gefið sér tíma
til þess að semja við Íslendinga og
að það væri mjög erfitt að semja við
fólk sem vildi ekki tala við mann.
sautján króna
álagning
Álagning íslenskra olíufélaga er í
kringum sautján krónur á bensín-
lítrann, en það er um það bil fimm
krónum undir meðalálagningu
olíufélaganna alla jafna. Samkvæmt
upplýsingum DV er þetta enn hlut-
fallslega hærri álagning en tíðkast á
Norðurlöndunum.
Miðað við þá álagningu sem var
fyrir svokallað verðstríð olíufélag-
anna hefur álagning á bensín ver-
ið allt að sjö krónum hærri en til
að mynda í Svíþjóð, en álagning á
bensíni fyrir verðstríð var á bilinu 24
til 25 krónur.
þyrlan sótti
slasaða konu
Þyrla Landhelgisgæslunnar var köll-
uð út á tólfta tímanum í gærmorgun
eftir að kona slasaðist í bílveltu vest-
ur á Snæfjallaströnd við Ísafjarðar-
djúp. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var konan í bíl með eigin-
manni sínum sem slasaðist minna
en konan. Þau eru bæði ferðamenn
hér á landi. Ekki liggur fyrir hversu
mikið konan slasaðist né hver til-
drög slyssins voru.
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
DV0910221525_004.jpg Ráðherrar EFTA funda á Íslandi:
Ræða stöðu Ísraels
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra útilokar ekki að málefni Ísraels
verði rædd á ráðherrafundi EFTA sem
hefst í dag, miðvikudag. Hann segist
ekki vilja ræða slíkt fyrir fram. Hann
segir hins vegar klárt að hann hafi átt
viðræður við fulltrúa annarra ríkja
um þetta málefni.
Utanríkismálanefnd fól utanríkis-
ráðherra í byrjun þessa mánaðar að
meta til hvaða úrræða skuli gripið
gegn Ísrael eftir að ísraelskir sérsveit-
armenn réðust um borð í skip sem var
að flytja hjálpargögn til Gaza-svæðis-
ins. Létust níu skipverjar í átökum
sem brutust út milli þeirra og Ísraela.
Átti utanríkisráðherra að hafa sam-
ráð við aðrar þjóðir um hvort slíta
ætti stjórnmálasambandi við Ísrael
eða beita það viðskiptaþvingunum. Í
gildi er fríverslunarsamningur á milli
EFTA og Ísraels.
Meðal annars er gert ráð fyrir að
Doris Leuthard, forseti Sviss, Trond
Giske, efnahags- og viðskiptaráðherra
Noregs, og Aurelia Frick, utanríkis-
ráðherra Liechtenstein, sæki fund
EFTA-ríkjanna sem fer fram á Hótel
Nordica og stendur yfir til föstudags.
Össur mun gera fundargestum
grein fyrir stöðu aðildarumsóknar
Íslands að Evrópusambandinu. Þá
verða tveir fríverslunarsamningar
undirritaðir, annar við Perú og hinn
við Úkraínu, og ákvarðanir teknar um
framhald annarra fríverslunarvið-
ræðna, meðal annars við Rússland.
Aðspurður hvort Icesave verði til um-
ræðu, segist Össur ekki gera ráð fyr-
ir að það verði í miðpunkti. Honum
kæmi þó ekki á óvart ef Icesave-málið
bæri á góma.
Á fundinum verður þess minnst
að fimmtíu ár eru liðin frá stofnun
EFTA og fjörutíu ár frá því að Ísland
gerðist aðili að samtökunum.
rhb@dv.is
Össur Skarphéðinsson Hefur rætt
málefni Ísraels við fulltrúa annarra ríkja.