Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 7
miðvikudagur 23. júní 2010 fréttir 7
Íslenskir fjárfestar áttu stóran hlut í norræna smálánafyrirtækinu Folkia árið 2008.
Meðal hluthafa var Engey Invest, félag í eigu Einars Sveinssonar og Benedikts Ein-
arssonar, og Sjávarsýn, félag Bjarna Ármannssonar. Aðeins einn Íslendingur er nú
á hluthafalistanum, Hörður Bender, stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins.
Íslendingarnir á
bak við smálánin
Engey Invest, fjárfestingarfélag í
eigu Einars Sveinssonar og Bene-
dikts Einarssonar, átti tíu prósenta
hlut í norska smálánafyrirtækinu
Folkia árið 2008. Samkvæmt árs-
skýrslu félagsins áttu íslensk félög
að minnsta kosti fjórðungshlut í
Folkia þá. Af fjórum stærstu eig-
endum Folkia á þessum tíma voru
þrjú félög í íslenskri eigu.
Sjávarsýn ehf., félag í eigu
Bjarna Ármannssonar fyrrverandi
forstjóra Glitnis banka, átti einnig
tíu prósenta hlut. Á þessum tíma
átti félag í eigu fjárfestisins Harðar
Bender stærsta hlutinn í félaginu,
eða fimmtán prósent. Auk þess átti
Landsbankinn um 1,3 prósent í fé-
laginu.
Samkvæmt heimildum DV eru
íslensku félögin ekki lengur á hlut-
hafalista Folkia, að félagi Harð-
ar Bender undanskildu. Fulltrúar
Engey Invest og Sjávarsýnar sem
DV ræddi við vegna málsins vildu
ekki ræða aðkomu félaganna að
Folkia. Þeir vildu ekki veita upplýs-
ingar um hvort eða hvenær hlut-
ur þeirra í fyrirtækinu hefði verið
seldur. Kaup þeirra í Folkia komu
upphaflega til vegna hlutafjárút-
boðs hjá fyrirtækinu þar sem það
var kynnt fyrir fagfjárfestum.
Voru viðstaddir aðalfund
Þann 5. mars árið 2008 voru fimm
aðrir Íslendingar skráðir sem hlut-
hafar í félaginu. Þetta voru þeir
Jón Diðrik Jónsson, Kári Kárason,
Hjörtur Nielsen, Guðmundur Ás-
geirsson og Gunnar Jóhann Birgis-
son.
Samkvæmt yfirliti félagsins
frá desember árið 2007 höfðu þó
nokkrir Íslendingar einnig aðkomu
að því þá. Þar á meðal var fjárfest-
ingarfélagið Eyrir Invest, sem á
meðal annars hlut í fyrirtækjunum
Össuri og Marel.
Hörður Bender stofnaði Folk-
ia árið 2006 og hefur það vaxið
mikið síðan. Meginþorri starfsemi
Folkia er í Svíþjóð og Noregi, en
auk þess hefur hún teygt út arma
sína til Danmerkur, Finnlands og
Eistlands. Fyrirtækið hafði um tvo
milljarða íslenskra króna í tekjur í
fyrra.
Ísland ekki komið til greina
Hörður segir fyrirtækið ekki
tengjast smálánastarfsemi á Ís-
landi. Leifur A. Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Kredia á Íslandi,
segist þó hafa horft til Folkia sem
fyrirmyndar þegar hann ýtti verk-
efninu úr vör á Íslandi.
Í samtali við DV segir Hörður
aldrei hafa komið til álita að Folk-
ia hæfi starfsemi hér á landi. Það
hafi meðal annars verið vegna eðl-
ismunarins á íslenskri bankastarf-
semi og skandinavískri, þar sem
mun auðveldara hafi verið að fá yf-
irdrátt í íslenskum bönkum.
Ósanngjörn gagnrýni
Smálán á Íslandi sem og Norður-
löndunum hafa sætt harðri gagn-
rýni fyrir þá háu vexti sem þau
bera, en þeir geta numið hundr-
uðum prósenta á ársgrundvelli.
Hörður segir þann samanburð
hins vegar ósanngjarnan að teknu
tilliti til þess að lánin séu yfirleitt
veitt til þrjátíu daga. Hann tekur
dæmi af því að tekið sé fjögur þús-
und sænskra króna lán hjá Folk-
ia. Þá þurfi að greiða á milli fjög-
ur hundruð og fimmtíu og fimm
hundruð krónur í lántökukostn-
að, eða um tólf til þrettán pró-
sent af lánsupphæðinni. Í hverj-
um mánuði veiti Folkia um þrjátíu
þúsund lán. Upphæð þeirra getur
að lágmarki verið um þrjátíu þús-
und krónur en að hámarki fjögur
hundruð þúsund krónur.
„Menn voru fljótir að dæma
lánin þegar þeir sáu þau fyrst. En
það eru ótal dæmi í Skandinavíu
þar sem starfsemin hefur ver-
ið í gangi lengi. Þetta getur verið
gríðarlega mikilvægt fyrir fólk til
að ná endum saman, sem er hálf-
partinn utan bankakerfisins og er
kannski með tekjur sem eru ekki
reglubundnar. Við hvetjum okk-
ar kúnna til að fá aldrei meira lán-
að en þeir þurfa á að halda,“ segir
Hörður.
Hann bendir á að stjórnvöld
í Svíþjóð hafi fagnað því að fjöl-
breytileiki á fjármálamarkaði yrði
aukinn þegar starfsemin hófst.
„Það er enginn að troða þessu nið-
ur í kokið á neinum. Ef það er séð
til þess að hlutirnir séu gerðir af
fagmennsku er það síðan mark-
aðarins að ákveða hvort hann vilji
þjónustuna,“ segir Hörður.
RÓBERt HlynuR BalduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Það er enginn að troða þessu
niður í kokið á neinum.
Einar Sveinsson Fjárfestingarfé-
lagið Engey Invest var einn af fjórum
stærstu hluthöfunum í Folkia.
Bjarni Ármannsson Var einn af
mörgum Íslendingum sem sá tækifæri
í norrænni smálánastarfsemi.
sló í vélarhlíf
bifreiðar
Lögreglan í Vestmannaeyjum hand-
tók aðfaranótt sunnudags ölvaðan
mann sem slegið hafði í vélarhlíf bif-
reiðar sem stóð fyrir utan skemmti-
staðinn Höllina. Ekki reyndist unnt
að tala manninn til og endaði hann
í fangageymslu lögreglu þar sem
hann fékk að sofa úr sér ölvímuna.
Þá var ökumaður stöðvaður fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna og er
þetta sjöundi ökumaðurinn á þessu
ári sem staðinn er að akstri undir
áhrifum fíkniefna í Eyjum. Á sama
tíma í fyrra voru þeir fimm.
svanfríður áfram
bæjarstjóri
J-listinn í Dalvíkurbyggð mun ekki
kæra úrskurð kjörnefndar sýslu-
mannsins á Akureyri um niðurstöðu
sveitarstjórnarkosninga í maí síðast-
liðnum.
Er það mat þeirra sem skipa list-
ann að það séu hagsmunir sveitar-
félagsins að óvissu ljúki sem fyrst
og að bæjarstjórn með starfhæfan
meirihluta taki til starfa svo fljótt sem
verða má.
J-listinn hefur nú hafið formleg-
ar meirihlutaviðræður við A-listann,
Byggðalistann, og við það er miðað að
Svanfríður Jónasdóttir, oddviti J-lista,
verði áfram bæjarstjóri í Dalvíkur-
byggð og Kristján E. Hjartarson odd-
viti A-lista verði formaður bæjarráðs.
Hörður Bender Er stofnandi
smálánafyrirtækisins Folkia og
stjórnarformaður þess. Hann var
valinn frumkvöðull ársins í Svíþjóð
árið 2006 og var framkvæmdastjóri
fjölmiðlasamsteypunnar Metro.
meintur dópsali
handtekinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann fíkniefni í bifreið í Árbæ í Reykja-
vík um hádegisbil á mánudag. Um var
að ræða um eitt kíló af hassi. Umráða-
maður bílsins, karl um þrítugt, var
handtekinn í tengslum við rannsókn
málsins en maðurinn hefur áður
komið við sögu hjá lögreglu. Í fram-
haldinu var framkvæmd húsleit í íbúð
í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæð-
inu en í henni fundust nokkrir tugir
kannabisplantna. Á sama stað var
einnig lagt hald á fáeina muni sem
grunur leikur á að séu þýfi.
Dagskrárstjóri
RÚV hættir
Erna Kettler, dagskrárstjóri Sjón-
varpsins, hefur sagt starfi sínu
lausu af heilsufarsástæðum. Hún
mun starfa áfram hjá Ríkissjón-
varpinu en Sigrún Stefánsdóttir,
starfandi dagskrárstjóri útvarps,
hefur verið ráðin í hennar stað
og mun taka við starfinu frá og
með deginum í dag, miðvikudegi.
Sigrún gegnir jafnframt áfram
tímabundið starfi dagskrárstjóra
útvarps.
Erna var ráðin dagskrárstjóri
Sjónvarps í apríl síðastliðnum en
37 sóttu um stöðuna.
Sigurður Á. Þorvaldsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik og leikmað-
ur Snæfells í Stykkishólmi, ætlar að
áfrýja dómi Héraðsdóms Vestur-
lands til Hæstaréttar en hann var í
síðustu viku dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir að nauðga sautján ára
stúlku. Pétur Kristinsson, verjandi
Sigurðar, segist gera ráð fyrir því að
Sigurður muni áfrýja dómnum til
Hæstaréttar og að Guðrún Arnar-
dóttir hæstaréttarlögmaður muni
verja hann.
Embætti ríkissaksóknara ákærði
Sigurð fyrir nauðgun á sautján ára
stúlku. Lögregluembætti barst form-
leg kæra nokkrum vikum eftir at-
burðinn. Samkvæmt heimildum DV
hefur stúlkan átt erfitt uppdráttar og
sótti lítið sem ekkert skóla síðustu
vikur haustannarinnar. Atvikið átti
sér stað í heimahúsi að loknu karla-
kvöldi Snæfells í nóvember síðast-
liðnum en í vetur varð Sigurður bæði
Íslands- og bikarmeistari með liðinu.
Í dómnum segir að þegar stúlk-
an kom á neyðarmóttöku eftir atvik-
ið hafi hún verið harðákveðin í að
kæra ekki af ótta við kjaftasögur og
þá staðreynd að Sigurður væri lands-
þekktur íþróttamaður. Í dómnum
kemur einnig fram að körfuboltaleik-
maðurinn hafði fyrr um kvöldið haft
samræði við aðra stúlku inni á bað-
herbergi sama húss án hennar sam-
þykkis. Stúlkan var kölluð fyrir sem
vitni en hún sagði að Sigurður hefði
hætt samförunum þegar hún spurði
hann hvort hann ætti ekki konu og
börn.
Fjölskipaður dómurinn segir
frásögn Sigurðar afar ótrúverðuga
samhliða því að hún fari í bága við
greinargóðan og samhljóða fram-
burð vitna. Vitni hafi þannig lýst því
fyrir dómi að stúlkan hafi verið sof-
andi á rúminu og ekki hægt að vekja
hana. Samkvæmt dómsorði var brot
Sigurðar alvarlegt og hafi það vald-
ið stúlkunni miklum og varanlegum
miska. Í því sambandi er sérstaklega
bent á ungan aldur stúlkunnar og að
hún búi í litlu samfélagi sem magni
áhrifin.
Landsliðsmaður í körfuknattleik áfrýjar nauðgunardómi:
Sigurður leitar til Hæstaréttar
Áfrýjar dómnum Sigurður
ætlar að áfrýja tveggja ára
fangelsisdómi sem hann fékk
fyrir nauðgun til Hæstaréttar.