Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 23. júní 2010 miðvikudagur Nær engar líkur eru til þess að nefnd Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráð- herra um endurskoðun kvótakerf- isins nái samkomulagi um fyrningu og innköllun kvóta í anda stefnuyf- irlýsingar ríkisstjórnarinnar. Nefndin hefur fundað stíft að undanförnu og er nú ráðgert að hún skili niðurstöð- um innan tveggja til þriggja vikna. Björn Valur Gíslason, þingmað- ur VG, á sæti í nefndinni, en hann lýsti því efnislega eftir umfangsmikla gagnasöfnun nefndarinnar að fyrn- ingarleiðin ræki sjávarútvegsfyrir- tæki í þrot og leita yrði annarra leiða. „Líkleg niðurstaða er að tekinn verði upp nýtingarréttur útgerða til ákveð- ins tíma með hliðstæðum hætti og á til dæmis við um orkuauðlindir. Þannig er unnt að sneiða hjá mynd- un séreignarréttar á kvóta. Ekki verða allir sáttir við þetta en ég held að menn ættu að geta unað þessu,“ segir Björn Valur. „Ég lít svo á að í raun verði um að ræða innköll- un kvóta og endurúthlut- un til tiltekins tíma verði sú leið ofan á sem við ræðum nú,“ segir Guðbjartur Hann- esson, Samfylkingunni, og formaður nefndarinnar. Við fylgjum þeirri meginreglu að eignarrétturinn sé ríkisins og menn fái nýtingar- rétt sambærilegan þeim sem gildir um orkulindir. Það er ágrein- ingur um framsalið en mér sýnist að ekki verði um leigu- framsal að ræða.“ Í stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að endurskoðun laga um stjórn fiskveiða verði unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávar- útvegi. Meðal annars er þar kveðið á um að stuðlað verði að vernd fiski- stofna, hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar og að endurskoðunin treysti atvinnu og efli byggð í landinu. Þá segir í stefnuyfirlýsingunni að endurskoðunin eigi að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar. Umdeilda lykilatriðið í stefnuyfirlýsingunni er svo ákvæðið um að lagður skuli grunnur að innköllun og endurráð- stöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja stjórnar- flokkanna, Samfylkingarinnar og VG. Hjaðna langvinnar deilur? Mikil átök hafa staðið um síðast- nefnda ákvæðið, svo mjög að full- trúar Landssambands íslenskra út- vegsmanna og síðar Landssambands fiskvinnslustöðva hættu að mæta á nefndarfundi síðastliðinn vetur. Full- trúar Farmanna- og fiskimannasam- bandsins voru á bandi LÍÚ og töldu að fyrirhugað- ar breyting- ar skertu kjör sjómanna en héldu áfram nefndarstarf- inu. Fylgi ríkisstjórnin ekki upp- haflegum yfirlýsingum sínum um fyrningu kvótans og inn- lausn hans til ríkisins er við- búið að það verði túlkað svo að hún hafi gengið á bak ofan- greindra orða í liðlega ársgam- alli stefnuyfirlýsingu sinni. Það gæti einnig gengið gegn fróm- um óskum hennar um sátt meðal þjóðar- innar um eignar- hald og nýtingu auðlinda sjávar. Fylgi ríkis- stjórnin aftur á móti stefnu sinni um fyrningu og innlausn kvót- ans út í hörg- ul virðist einn- ig borin von að deilur um kvóta- kerfið hjaðni eins og átökin síðastliðinn vetur um skötuselskvóta til útleigu af hálfu rík- isins bera vott um. Bara orðalagsbreytingar „Ég óttast að það samkomulag, sem nú virðist í fæðingu innan nefndar- innar, feli ekki aðeins í sér óbreytt kvótakerfi heldur styrki það jafnvel stöðu kvótahafa frá því sem nú er,“ segir Finnbogi Vikar, fulltrúi Hreyf- ingarinnar í nefndinni, en hann tel- ur að um orðaleiki stjórnarliða sé að ræða í nefndinni. „Ég læt sjónarmið mín koma fram í nefndinni. Mér finnst til dæmis allt tal um varanlegar aflaheimildir hvergi eiga heima í umfjöllun nefnd- arinnar. Það getur vel verið að þetta orðalag komi fyrir í bókhaldi út- gerðarfyrirtækja. Veiðiheimildir eru ekki varanlegar og eiga ekki að vera varanlegar nema að því marki sem samfélagið telur heppilegt á hverj- um tíma. Það má vera til 3 til 15 ára og ekki er nauðsynlegt að úthluta öllum veiðiheimildum til jafn langs tíma. Það þarf að koma skýrt fram að þjóðin eigi fiskinn í sjónum og geti ráðstafað aflaheimildum að vild. Þeir sem veiða eru leigjendur kvóta en ekki eigendur.“ Finnbogi leggur til að kvótinn verði innkallaður allur í einu lagi og verði leigður aftur út. Miðað verði í því sambandi við veiðireynslu und- angenginna þriggja ára. Hann vill að leigutíminn verði þrjú ár í fyrstu. „Leiguverðið á að vera fast gjald. All- an fisk ætti auk þess að selja á mark- aði eða á markaðsverði. Ég legg jafn- framt til að frjálsræði til strandveiða verði stóraukið,“ segir Finnbogi. Guðbjartur Hannesson segir að innan nefndarinnar sé góður ein- hugur um að sett verði í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á náttúruauð- lindum. Stjórnarliðar í nefnd sjávarútvegsráðherra um endurskoðun kvótakerfisins hallast nú að því að binda að- gang að auðlindum sjávar við nýtingarrétt til lengri eða skemmri tíma, hliðstæðan þeim sem ríkir um orku- lindir. Þannig verði sneitt hjá því að nýtingarréttur myndi varanlegan eignarrétt kvótahafa. Nefndarmaður í minnihluta telur að þetta merki óbreytt kvótakerfi sem engin sátt verði um og aðeins sé um að ræða breytt orðfæri sem engu breyti um kvótakerfið í raun. NÝTINGARRÉTTUR Í STAÐ INNKÖLLUNAR jóHann Hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Ég lít svo á að í raun verði um að ræða innköllun kvóta og endurúthlutun til tiltekins tíma verði sú leið ofan á sem við ræðum nú. Djúpt kann að vera á fullri sátt Ríkisstjórninhefur ekkináðsáttum innköllunkvótaog útleiguhans. Guðbjartur og Finnbogi Guð- bjarturlítursvoáaðumverðiað ræðainnköllunákvótatiltiltekins tíma.Finnborgivillaðkvótinn verðiinnkallaðuralluríeinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.