Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 15
miðvikudagur 23. júní 2010 neytendur 15 BreiðBandið Burt Nú vinnur Síminn að því að breyta breiðbandi Símanns í ljósnet. Það mun taka tvö til þrjú ár en um 40 þúsund heimili nota breiðbandið. Í Neyt- endablaðinu greinir frá þessu en þar segir að þetta muni verða kostnaðarsamt fyrir neytendur. Síminn hyggist senda bréf til allra heimila fjórum vikum áður en breytingin verður þar sem kynntir verða þeir möguleikar sem í boði verða. Enn fremur segir að kostnaður geti hlaupið á tugum þúsunda fyrir sum heimili. Ekkert banni Símanum hins vegar að gera þetta. ryk skemmir tölvur Mikilvægt er að hafa hreinlegt í kringum tölvuna því ryk og önnur óhrein- indi geta stíflað viftur þannig að tölvan ofhitni. Einnig eru dæmi um að ryk hafi valdið skammhlaupi. Neytendablað- ið greinir frá þessu og segir að margir noti tölvurnar uppi í rúmi og láti þær liggja á sængum sínum eða lökum. Slíkt auki hættuna á því að þær skemmist. Mikilvægt sé að hafa fartölvuna á hentugum stað þannig að vel lofti um hana. Helgi Hjörvar veitir efnahags- og skattanefnd Alþingis formennsku: Hækka ekki vext- ina afturvirkt Eins og fram hefur komið hafa þau sjónarmið heyrst, aðal- lega frá fjármálafyrirtækjunum sjálfum, að óvissa sé uppi um hvernig fara eigi með vextina. Þau hafa sum hver kallað eftir handleiðslu stjórnvalda um það hvernig reikna skuli út vextina í ljósi dómsins. Álitamál sé hvort miða skuli við samningsvexti eða lægstu óverðtryggðu vexti Seðla- bankans. Helgi Hjörvar, formaður efna- hags- og skattanefndar Alþing- is, segir í samtali við DV að ekki komi til greina að stjórnvöld setji lög sem rýri rétt skuldara. Hann segir aðspurður að ef stjórnvöld myndu hlutast til um að hækka vextina afturvirkt væri þau að rýra rétt fólks. Það hafi því ekki verið rætt í nefndinni, sem hitt- ir bankastjóra og formenn slita- stjórna bankanna á morgun. „Dómurinn er skýr um ólög- mæti gengistryggingarinnar. Það getur verið að frekari spurning- um sé ósvarað en ég legg mikla áherslu á að þangað til að ein- hverjar aðrar niðurstöður verða túlki bankarnir þessa niðurstöðu varlega og gæti þess að ganga ekki lengra gagnvart skuldurum en dómurinn gefi tilefni til,“ seg- ir Helgi og bætir við að fjármála- fyrirtækin hafi í níu ár farið fram með ólögmætar kröfur á hendur fólki og valdið viðskiptavinum sínum margs konar erfiðleikum. „Sú staðreynd leggur þeim ríkari skyldur á herðar í framhaldinu um að ganga varlega fram gagn- vart fólki ef þeir telja að óvissa sé uppi,“ segir Helgi sem gerir ráð fyrir að úr frekari óvissu muni dómstólar þurfa að leysa. Spurður hvernig honum lítist á að látið verði reyna á lögmæti verðtryggðu lánanna fyrir dóm- stólum segir Helgi að sjálfsagt sé að fólk láti reyna á lögmæti þeirra fyrir dómstólum en hann voni hins vegar að stjórnmálaöflin geti beitt sér fyrir leiðréttingum á stökkbreyttum lánum skuldara. Stjórnmálamenn eigi að taka á vandamálinu. baldur@dv.is „Í mínum huga er dómur Hæsta- réttar afar skýr; einstaka ákvæði lánasamninga og skuldabréfa um gengistryggingu eru ólögmæt en eftir standa önnur  ákvæði óhögg- uð meðal annars um vexti,“ segir Lúðvík Bergvinsson, starfandi lög- maður, spurður hvernig hann telji að reikna eigi gengistryggðu lánin. Hann segir að endurreikna þurfi lánin í samræmi við vaxtaprósentu samninganna auk þess sem inn- borganir skuli dregnar frá. Þá komi eftirstöðvarnar í ljós. Lúðvík bætist því í hóp Hags- munasamtaka heimilanna, Neyt- endasamtakanna, talsmanns neyt- enda og fleiri sem segja skýrt að vaxtaskilmálar lánanna standi. Við því verði ekki hróflað. „Það er ljóst að fjármálastofnanir bera alfarið ábyrgð á því að samningar og öll skjalagerð við lánveitingar séu með þeim hætti að það fái samrýmst lögum, enda sérfræðiþekkingin al- farið hjá fjármálastofnunum. Hug- mynd um að verðtrygging komi í stað gengistryggingar er fráleit, því í mörgum tilvikum leiddi hún til þess að viðskiptabréf og lánasamning- ar yrðu verðmeiri en ella hefði ver- ið ef þeir hefðu áfram verið geng- istryggðir. Það yrði athyglisverð niðurstaða í kjölfar dómsins,“ seg- ir Lúðvík og bætir við að efnahags- hrunið hafi haft í för með sér gríð- arlega eignatilfærslu frá almenningi og fyrirtækjum til fjármagnseig- enda vegna gengis- og verðtrygg- ingarákvæða. „Það myndi líklega vekja heimsathygli, ef stjórnvöld undir forystu vinstrimanna, myndu við þær aðstæður sem hafa skapast í kjölfar hæstaréttardómanna um ólögmæti ákvæða um gengistrygg- ingu, færa fjármagnseigendum á nýjan leik þau verðmæti sem þeir hafa, að mati Hæstaréttar, tekið á ólögmætan hátt frá almenningi og fyrirtækjum í þessu landi. Þá væri óhætt að segja að byltingin væri far- in að éta börnin sín,“ segir Lúðvík sem var þingmaður Samfylkingar- innar en gaf ekki kost á sér í þing- kosningunum vorið 2009. baldur@dv.is Lúðvík Bergvinsson lögmaður segir að vaxtakjör lánanna skuli standa: „Myndi vekja heimsathygli“ Ekki hróflað við vöxtunum Lúðvík segir dóm Hæstaréttar skýran. Harður Helgi Hann segir að þeir sem telji óvissu uppi um uppgjör myntkörfulána geti leitað til dómstóla.vilja fá Hundrað þúsund meira af Hverri milljón væri sífelld hækkun stýrivaxta, sem hafði bein áhrif til hækkunar á vísi- tölu neysluverðs,“ segir í bréfinu en hann segir enn fremur að í ljós hafi komið að bankarnir hafi unnið gegn krónunni. Það hafi skilað sér beint í hærra vöruverði og hækkun verð- tryggðra lána. Bráðum er liðið ár frá því Sig- urður sendi Íslandsbanka bréfið en því hefur ekki verið svarað efnis- lega. Sigurður segir að ákveðið hafi verið að vera ekki með neinn æsing til að byrja með en að nú sé þolin- mæðin að bresta. „Ég bíð ekki leng- ur. Við gáfum þeim frest til að svara en fengum ekki önnur svör en þau að svar myndi berast frá lögfræðingi á þeirra vegum. Þrátt fyrir ítrek anir hefur það ekki borist,“ segir Sigurður sem segir einnig útséð um að stjórn- völd komi til móts við lántakendur. Hann segist ekki hafa sett kröfuna endanlega saman en þess verði kraf- ist að bankinn taki á sig hluta hækk- unarinnar og vísitalan verði færð aftur. Það er því ekki útilokað að þeir sem tóku verðtryggð lán muni fá leiðréttingu sinna mála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.