Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 26
Heitar umræður hafa farið fram á Barnalandi um fótbolta- skóla Grétars Rafns Steinsson- ar. Ástæðan er sú að Grétar verður ekki sjálfur í fótbolta- skólanum sem hann rekur á Siglufirði í sumar. Grétar hefur alltaf mætt en mesta spennan hjá krökkunum hefur verið fyr- ir að hitta goðið sjálft. Ástæð- an er sú að Grétar er að jafna sig á meiðslum og þarf að fara í sjúkraþjálfun nokkrum sinnum á dag. Hann mun þó vera stadd- ur ásamt fjölskyldu sinni í fríi á Flórída um þessar mundir og fer það fyrir brjóstið á einhverj- um Barnalandsnotendum. Það stendur þó hvergi á heimasíðu fótboltaskólans að Grétar verði á staðnum sjálfur og er hann því ekki að svíkja nein gefin loforð. Enginn grétar rafn KviKmynd á leiðinni um uppistöðufélagið: Stríðið milli rapparanna Erps og Móra virðist hvergi nærri vera búið. Nú síðast birti Móri mynd á Facebook-síðu sinni af strák sem stendur með buxurnar nið- ur um sig og stelpu sem situr á hnjánum fyrir framan hann og virðist vera að gera sig líklega til að gefa honum munnmök. Á sama tíma virðist strákurinn vera að taka eitthvað í nefið og Móri ýjar að því að um kókaín sé að ræða. Móri ýjar einnig að því að þarna sé Erpur á ferð. Af myndinni að dæma er það ansi ólíklegt og allt eins líklegt að maðurinn ungi sé að taka sopa af drykk. 26 fólkið 23. júní 2010 miðvikudagur Erna Gunnþórs: Ég er búin að vera að dýfa aðeins tánum í þetta aft-ur. Ég hef verið í mynda-tökum upp á síðkastið og er komin með slatta af mynd- um fyrir „portfolioið“,“ segir Erna Gunnþórsdóttir sem var áberandi fyrirsæta hér á landi fyrir nokkrum árum. Erna, sem þekktust var und- ir nafninu Erna G., sat meðal ann- ars fyrir í Bleiku og bláu og var ein fyrsta svokallaða bombufyrirsætan hér á landi sem náði miklum vin- sældum á netinu. Hún var ung á þessum árum og leiddist út í mikla ógæfu og hætti í framhaldinu að sitja fyrir, eins og Erna lýsti í viðtali við helgarblað DV í apríl síðastliðn- um. Og það var einmitt eftir viðtalið sem boltinn fór aftur að rúlla. „Sím- inn bara byrjaði að hringja á fullu og mér buðust fullt af verkefnum,“ segir Erna með miklum ánægju- tón. „Ég ákvað því bara að reyna að byrja aftur í þessu, aðallega af því að maður hefur gaman af þessu. Fólk hér á landi getur ekki orðið ríkt af því að vera í módelbransan- um, ekki frekar en í tónlistarbrans- anum. Ef einhver vill verða ríkur þá ætti hann ekki að fara í fyrirsætu- störf,“ segir Erna og hlær. Hún segist hafa verið farin að upplifa sig of gamla til þess að starfa sem fyrirsæta, en hún er einungis 26 ára. „Ég upplifði það þannig. En auðvitað er þetta ekki þannig. Þetta er mjög venjulegur aldur í glamúr- heiminum. Og þótt átján ára stelp- ur séu sjálfráða finnst mér það tæp- lega innan siðferðismarka þegar það ungar stelpur eru að sitja fyrir í karlatímaritum.“ Erna ætlar brátt að opna nýja heimasíðu með myndum af sér. Undanfarið hefur hún sett slatta af myndum inn á Facebook-síðuna sína en vill nú víkka þetta aðeins út. „Á Facebook er myndum oft eytt út þrátt fyrir að það séu kannski ekki nektarmyndir. Ég er ekki að fara að sitja fyrir alls- ber. En ég vil bara vera í friði með mitt.“ kristjanh@dv.is aftur í módelbransann Erna Gunnþórsdóttir var áberandi fyrirsæta fyrir nokkrum árum og hefur verið kölluð fyrsta svokallaða bombufyrirsæt- an á Íslandi. Hún hætti módelstörfum eftir að hafa lent á glap- stigum en hyggur nú á endurkomu. Erna Ljóst er að Erna á fullt erindi í módelbransann á ný. MYnD Pallibjoss PhotoGraPY EGGjanDi Sumar myndir segja meira en þúsund orð. MYnD Pallibjoss PhotoGraPY Rapp- stRíðið helduR áfRam Uppistandsstelpur slá í gegn „Ég horfi mikið á uppistand og hef oft verið að pæla í af hverju það eru færri konur í þessu,“ segir Þórdís Nad- ia Óskarsdóttir, kvikmyndafræðinemi og stofnandi hópsins Uppistöðufé- lagið. Hópurinn samanstendur af níu stelpum sem allar eiga það sameig- inlegt að vera yfir meðallagi fyndnar og sjá hjá sér þörf til að deila því með öðrum. Þær hafa undanfarin miss- eri staðið fyrir uppistandskvöldum á Næsta bar þar sem jafnan hefur verið troðið út úr dyrum. Að sögn Nadiu gera þær aðal- lega grín að sjálfum sér. „Við erum svo margar og með svo mismunandi húmor. Ég geri til dæmis mikið grín að því að ég sé hálfarabísk. Svo er önnur í hópnum, Íris Ellenberger, sem er lesbía og hún gerir mikið grín að stað- alímyndum lesbía.“ Ása Einarsdóttir hefur fylgt hópn- um frá árdögum hans í ágúst á síð- asta ári. Hún tók upp öll uppistands- kvöldin ásamt því að fylgja hópnum á önnur gigg og fylgdi þeim eftir í þeirra daglega lífi. Afrakstur þess er mynd- in Uppistandsstelpur. Nadia segir myndina vera fyndna en að einnig sé drama í henni. „Við vorum fengnar til að skemmta á konukvöldi FM 957 þar sem voru 450 blindfullar konur. Við áttum að byrja klukkan ellefu en húsið var opnað klukkan átta og frítt áfengi á boðstólum. Það voru allir orðnir mjög fullir þegar loksins kom að okkur og voru kannski ekki í stuði til að hlusta á uppistand,“ segir Nad- ia en þær stöllur voru ekkert sérlega ánægðar með það kvöld en geta hleg- ið að því í dag. viktoria@dv.is Þórdís nadia Forsprakki Uppistöðufélagsins. MYnD hörður svEinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.