Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 23
miðvikudagur 23. júní 2010 úttekt 23 19. Hugleiddu í fimm mínútur Prófaðu að einbeita þér að núinu og minnka þannig stress og álag. Lokaðu augunum og einbeittu þér að því að anda. 20. kynnstu andlegri hlið þinni Rannsóknir sýna að líf þeirra sem iðka trú sína er lengra og betra og þeir eru ólíklegri til að fá hjartaáfall. 21. vertu tengd/ur Sterk tengsl milli fjölskyldumeðlima, vina og innan samfélagsins minnka kvíða og þunglyndi en hvort tveggja eykur líkur á hjartaáfalli. Skipulegðu hádegisstefnumót með vinkonu og taktu eitt kvöld í viku frá fyrir fjölskylduna. 22. Taktu inn vítamín og lýsi „Eina bætiefnið sem læknavísindin geta mælt með gegn hjartaáföllum er fiskolía,“ segir Dariush Mozaffarian hjá Harvard- læknaháskólanum. 23. gerðu góðverk Hamingjuríkt hjónaband er frábær forvörn gegn hjartaáfalli. Samkvæmt rannsókn sem birtist í tímaritinu Annals of Behavioral Medicine mælast einstaklingar sem sögðust eiga neikvæðan maka með hærri blóðþrýsting en aðrir. Gerðu eitthvað fyrir makann, útkoman verður frábær fyrir hjarta þitt. 24. gæddu þér á dökku súkkulaði Dökkt súkkulaði sem er allavega 70% kakó er ríkt af andoxunar- efnum. Í rannsókn þar sem þátttakendur voru látnir borða dökkt súkkulaði var hægt að fylgjast með lækkun blóðþrýstings frá degi til dags. 25. Haltu þig frá reykingum Ef þú átt vini sem reykja skaltu ekki fara með þeim út þegar þörf- in kallar á þá. Áhrif óbeinna reykinga á hjarta- og æðakerfið eru mikil og í mörgum tilvikum 80-90% af áhrifum beinna reykinga. 26. minnkaðu sykurneyslu Þeir sem drekka tvo til þrjá sykraða gosdrykki á dag eru 87% líklegri til að þjást af of háum blóðþrýstingi en aðrir samkvæmt nýlegri rannsókn. Forðastu gosdrykki og sætabrauð. 27. Hafðu húmor fyrir sjálfum þér Vísindamenn í háskólanum í Maryland Medical Center í Baltimore fundu út að á meðal 300 þátttak- enda voru þeir sem höfðu lítinn húmor fyrir sjálfum sér 40% líklegri til að þjást af hjartavandamálum. „Hlátur kemur ekki í stað holls mataræðis, hreyfingar og í sumum tilfellum lyfja, en að skella upp úr daglega skemmir ekki fyrir og samkvæmt okkar rannsóknum hefur húmor góð áhrif á hjartað,“ segir Michael Miller höfundur rannsóknarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.