Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Page 17
miðvikudagur 23. júní 2010 erlent 17 Alexander Lúkasjenkó forseti Hvíta- Rússlands hefur fyrirskipað að hlé verði gert á jarðgasflutningum til Evrópu í gegnum Hvíta-Rússland. Fyrirmæli hans eru gefin á sama tíma og Rússar draga úr magni þess jarðgass sem þeir senda til Hvíta- Rússlands vegna meintrar skuldar Hvít-Rússa við Rússland. Forseti Hvíta-Rússlands segir hins vegar Rússland skulda Hvíta- Rússlandi 260 milljónir bandaríkja- dala vegna þess jarðgass sem Rúss- ar flytja í gegnum landið. „Ég hef fyrirskipað ríkisstjórninni að loka fyrir gasflutninga í gegnum Hvíta- Rússland þar til Gazprom greiðir fyrir þá. Þeir hafa ekki borgað krónu fyrir þá síðastliðið hálft ár,“ hafði rík- isfréttastofa Hvíta-Rússlands, Belta, eftir Lúkasjenkó. Lúkasjenkó sagði einnig að það væri kaldhæðnislegt að Rússar drægju úr gasflutningum til Hvíta-Rússlands vegna 190 millj- óna dala skuldar þegar Rússar sjálf- ir skulduðu Hvít-Rússum 260 millj- ónir dala. Tilkynning Lúkasjenkós kom í kjölfar fyrirskipunar Dmitrys Med- vedev, rússnesks starfsbróður hans, til Gazprom um að takmarka skyldi gasflutninga til Hvíta-Rússlands vegna ógreiddrar skuldar. Yfirmað- ur Gazprom, Alexander Medvedev, sagði að fyrirtækið myndi gera allt sem í þess valdi stæði til að koma í veg fyrir að aðgerðir Hvít-Rússa bitnuðu á evrópskum viðskiptavin- um fyrirtækisins. Áætlað er að um tuttugu pró- sent gasflutninga Rússa til Evrópu fari í gegnum Hvíta-Rússland og um áttatíu prósent í gegnum Úkra- ínu, en 6,25 prósent af heildargas- innflutningi Evrópu koma frá Rúss- landi í gegnum Hvíta-Rússland. Jarðgas frá Rússlandi til Evrópu stoppar í Hvíta-Rússlandi: Skuldir hamla gasflutningum Játar sig sekan um sprengjutilræði Á mánudagskvöld játaði Faisal Shahzad, þrítugur Bandaríkjamað- ur, sig sekan um að hafa staðið að sprengjutilræði við Times Squ- are í New York þann 1. maí. Faisal Shahzad, sagði tilræðið hafa verið „að hluta til svar við hryðjuverkum Bandaríkjanna gagnvart löndum múslíma og múslímum.“ Ákæruatriðin á hendur Shahzads eru í tíu liðum og varða sum þeirra lífstíðarfangelsi. Shahzad reyndi að sprengja jeppabifreið sem hlaðin var sprengiefni en hafði ekki erindi sem erfiði. Engu að síður olli tilraunin mikilli truflun enda þurfti að rýma svæðið.Hann var handtekinn tveim- ur dögum síðar í flugvél sem fljúga átti til Dúbaí. Yfirvöld krafin svara vegna „ærudrápa“ Hæstiréttur Indlands hefur fyr- irskipað að ríkisstjórn landsins verði að útskýra til hvaða aðgerða hún hefur gripið til að koma í veg fyrir „heiðursdráp“. Það var gert eftir að hæstiréttur hafði hlýtt á beiðni þar sem sagt var að yfir- völdum hefði „mistekist að fyrir- byggja dráp á pörum og einstakl- ingum undir yfirskyni æru“. Um síðustu helgi voru tvö pör fórnarlömb meintra „ærudrápa“, annað í höfuðborginni Delí og hitt í nágrannafylkinu Haryana. Undanfarið eitt og hálft ár hafa „ærumorð“ kostað að minnsta kosti þrjátíu lífið og að sögn að- gerðarsinna hafa á sama tíma tugir mála sem varða ógnanir og pyntingar verið skráð. Staðsetningu mosku mótmælt Áform um að byggja mosku nærri þeim stað þar sem Tvíburaturnarn- ir stóðu og nú er nefndur Ground Zero hafa valdið úlfaþyt á með- al íbúa New York-borgar, en tæpur áratugur er liðinn síðan múslímskir öfgamenn flugu flugvélum á turn- ana með þeim afleiðingum að þeir hrundu til grunna. Cordoba House-moskan, hluti af miðstöð múslíma, á að rísa stein- snar frá svæðinu þar sem turnarn- ir stóðu og var bygging moskunnar samþykkt með miklum meirihluta af grenndarnefnd svæðisins í maí. Ein- hver fjöldi borgarbúa mótmælir nú fyrirhugaðri byggingu og telur óvið- eigandi að staðsetja moskuna svo nærri stað þar sem um 3.000 manns létu lífið. Hvítrússnesk kona glímir við gaskút Rússar hafa dregið úr gasflutningi til Hvít-Rússa. Mynd Afp „MiðaldaMeðul gegn Miðaldahegðun“ heldur ferð í fangelsi þar sem hún ræddi við dæmda nauðgara til að komast að því hvort kvensmokkur af þessu tagi hefði fælingarmátt. Sumir sögðu svo vera, að sögn Ehlers. Gagnrýnendur Rape-aXe kven- smokksins eru þeirrar skoðunar að hann sé ekki lausn til lengri tíma litið og geti hugsanlega valdið því að karlmenn sem verða fyrir barð- inu á honum beiti meira ofbeldi. Óæskilegir fjötrar ótta Á meðal þeirra sem efast um ágæti kvensmokks Sonnet Ehlers er Vict- oria Kajja hjá sjúkdóma- og for- varnamiðstöð Úganda. Kajja sagði að smokkurinn væri eins konar „fjötrar“. „Óttinn sem umlykur fórnar- lambið, það að vera með smokk vegna hræðslu um árás er áminn- ing um fjötra sem engin kona ætti að þurfa að bera,“ sagði Kajja og bætti við að smokkurinn væri stöðug áminning um varnarleysi kvenna. Victoria Kajja sagði að auk þess sem smokkurinn veitti fórn- arlömbum falskt öryggi þá fyrir- byggði hann ekki andlegt áfall í kjölfar nauðgunartilraunar. Kajja sagði þó að Rape-aXe smokkurinn hefði þann kost að „réttlæti næði fram að ganga.“ Ýmsar mannréttindastofnanir í Suður-Afríku hafa ekki viljað tjá sig um kvensmokkinn. Miðaldameðul gegn miðaldahegðun Nauðgunartíðni í Suður-Afríku er ein sú mesta í heimi, samkvæmt vefsíðu mannréttindasamtakanna Human Rights Watch, og könnun árið 2009 leiddi í ljós að tuttugu og átta prósent aðspurðra karlmanna höfðu nauðgað konu eða stúlku og einn af hverjum tuttugu höfðu nauðgað síðastliðið ár. Sakfellingar vegna nauðgana eru sjaldgæfar í flestum Afríkuríkjum og bráðaþjónusta fyrir fórnarlömb þeirra er dýr sem og söfnun sönn- unargagna á borð við lífsýni. Gagnrýnendur hafa sakað Sonn- et Ehler um að hafa þróað miðalda- meðal til að berjast gegn nauðg- unum, en Ehlers tekur þá gagnrýni ekki nærri sér. „Kvensmokkurinn kann að vera miðaldalegur, en honum er beint gegn miðaldahegðun sem hefur ver- ið við lýði áratugum saman,“ svar- aði Sonnet Ehler þeirri gagnrýni og sagði að hún teldi að tími væri kom- inn til að aðhafast eitthvað og að smokkurinn fengi „einhverja karl- menn til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir réðust á konur.“ Rape-aXe smokkurinn Nýtt tæki í baráttunni gegn nauðgunum. Mynd AntiRApe.co.zA Ef hann reynir að fjar-lægja hann bítur hann sig enn fastar á, en smokkurinn veld- ur ekki opnum sárum og það er engin hætta á blæðingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.