Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Qupperneq 20
Tvær norrænar glæpasögur væntanlegar í íslenskri þýðingu:
Metfé og mansal„Besta fjall-konan 2010“
Áhugaleikhús at-
vinnumanna efnir til
keppninnar „Besta
Fjallkonan 2010“ á
morgun, fimmtu-
dag, í Hugmynda-
húsi háskólanna að
Grandagarði. Aug-
lýst er eftir þátttak-
endum í keppnina
sem er opin öllum óháð kyni og aldri.
Keppt verður í fyndni, fegurð, frum-
leika og heiðarleika, segir í tilkynn-
ingu. Einnig er nauðsynlegt að eiga
skautbúning eða ígildi hans. Áhuga-
samir sendi tölvupóst á steinunn@
ahugaleikhus-atvinnumanna.com eða
hringi í síma 662 4805 í síðasta lagi
klukkan17 í dag. Keppnin á morgun
hefst klukkan 12.30. Á myndinni sést
leikkonan Lára Sveinsdóttir sem und-
irbýr sig nú af krafti fyrir keppnina.
náði toppsætinu
leikandi létt
Toy Story 3 var vinsælasta mynd-
in á Íslandi um síðustu helgi.
Tæplega tíu þúsund og fjögur
hundruð manns sáu þessa þriðju
mynd í Leikfangasögumynda-
flokknum sem frumsýnd var
á föstudaginn. Vel þar á eftir í
öðru sætinu, með rétt innan við
fimm þúsund áhorfendur, kem-
ur A-Team með Liam Neeson og
Bradley Cooper úr Hangover í
aðalhlutverkum. Í þriðja sætinu
situr svo vinsælasta myndin í
síðustu vikum, Sex and the City
2, sem fengið hefur lélega dóma
víðast hvar.
stórlax á riff
Cameron Bailey, stjórnandi Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinn-
ar í Toronto, hefur þegið boð frá
RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík, um að taka sæti í dóm-
nefnd á hátíðinni nú í ár. Dóm-
nefndin sker úr um það hvaða mynd
hlýtur aðalverðlaun hátíðarinnar ár
hvert. Ljóst er að mikill fengur er í
komu Baileys hingað til lands, enda
hefur hróður Toronto-hátíðarinnar
vaxið mjög á undanförnum árum.
Þannig sækja yfir 250 þúsund manns
hátíðina á hverju ári og er hún oft
nefnd í sömu andrá og hátíðir á borð
við Sundance-hátíðina og þær sem
haldnar eru í Cannes, Berlín og Fen-
eyjum. RIFF fer fram í sjöunda sinn
23. september til 3. október næst-
komandi.
20 fókus 23. júní 2010 miðvikudagur
Íd til finnlands Íslenski dansflokkurinn hélt af stað í dag til
Finnlands til að sýna á einni stærstu nútímadanshátíð Norðurlanda sem haldin er
árlega í Kuopio. Áhersla hátíðarinnar, sem haldin er í 41. skiptið, í ár er á dans frá
Argentínu, Kína og Norðurlöndunum. Íd er því í góðum félagsskap með helstu
dansflokkum þessara landa. Í anda þema hátíðarinnar mun Íslenski dansflokkurinn
sýna þrjú norræn verk sem hafa öll fengið frábæra dóma og verið sýnd víða
erlendis: Svaninn eftir Láru Stefánsdóttur, Kvart eftir norska dansleikhúskónginn Jo
Strömgren og loks Endastöð eftir Svíann Alexander Ekman. Í framhaldinu heldur Íd
til Póllands þar sem hann mun sýna nýtt verk á alþjóðlegri danshátíð í Bytom.
Hvað Heitir lagið?
„Og fólk skilur ekki, engar
kærustur munu skilja, í geim-
ferjum þau munu ekki skilja.“
svar: Last Night með the strokes.
„Það eru eiginlega tvær aðalástæð-
ur fyrir því að við ákváðum að stofna
til svona hátíðar. Annars vegar af því
að okkur fannst vanta alhliða lista-
hátíð í Reykjavík þar sem áherslan
er á yngra fólk. Það er svo mikið af
sérhæfðum listahátíðum, til dæm-
is kvikmyndahátíðum, myndlista-
hátíðum og sviðslistahátíðum. Við
vildum búa til hátíð þar sem nokkr-
ar listgreinar mætast undir einum
hatti og er um leið stökkpallur fyrir
listamenn af yngri kynslóðinni. Hin
ástæðan er sú að það hefur aldrei
verið gert neitt svona stórt í tengslum
við Jónsmessu,“ segir Hildur Maral
Hamíðsdóttir, stjórnandi listahátíð-
arinnar Jónsvöku sem hefst á morg-
un, fimmtudag.
Um er að ræða nýja hátíð sem
verður haldin nú í fyrsta sinn og fer
fram í miðbæ Reykjavíkur. Hátíðin,
sem stendur fram á sunnudag, dreg-
ur nafn sitt af Jónsmessunótt sem er
á morgun, 24. júní, en á árum áður
voru dagurinn fyrir Jónsmessu og
Jónsmessunóttin sjálf nefnd einu
nafni Jónsvaka.
Hildur segir undirbúning fyrir há-
tíðina hafa byrjað í nóvember síðast-
liðnum en þá fékk hópurinn sem
stendur að henni frumkvöðlastyrk
frá samtökunum Evrópa unga fólks-
ins. Seinna hafi þau einnig fengið
styrk frá Reykjavíkurborg.
Samhliða hinum ýmsu listvið-
burðum með ungt fólk í brenni-
depli verður boðið upp á þriggja
daga tónleikadagskrá þar sem
rjóminn af íslensku tónlistarlífi
spreytir sig. Þar koma fram Agent
Fresco, Árstíðir, Bloodgroup, Ens-
ími, For a Minor Reflection, For-
eign Monkeys, Hjaltalín, Hjálmar,
Hudson Wayne, Kimono, Mamm-
út, Ólafur Arnalds, Rökkurró, Sea-
bear, Sin Fang, Sudden Weather
Change og Útidúr.
Opnunarhóf Jónsvöku fer fram
í Hinu húsinu við Pósthússtræti á
morgun. Snorri Helgason leikur
nokkur lög auk tónlistargjörnings í
flutningi Mukkaló og Júníus Meyvant
band.
Hægt er að kaupa þriggja daga há-
tíðararmband á 2.900 krónur á midi.
is. Miðar á stök kvöld verða seldir við
dyrnar á Nasa. Armbönd á kvöld-
in þrjú verður hægt að ná í hjá Hinu
húsinu. Aldurstakmark er tuttugu ár.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina eru á jonsvaka.is.
kristjanh@dv.is
Ný listahátíð
í ReykjavíkListahátíðin Jóns-vaka fer nú fram í fyrsta sinn. Hátíð-
inni er ætlað að vera
stökkpallur fyrir
listamenn af yngri
kynslóðinni en fjöl-
margir þeirra koma
fram á Jónsvöku.
Sænska glæpasagan Det Fördolda,
sem útleggst Falið á íslensku, er að
verða ein eftirsóttasta bók síðari ára
á Norðurlöndunum. Þessu er alla
vega haldið fram í fréttatilkynningu
frá bókaforlaginu Bjarti sem var að
tryggja sér útgáfuréttinn á bókinni
hér á landi. Det Fördolda er eftir
Hans Rosenfeldt og Michael Hjorth,
unga sænska höfunda sem áður hafa
getið sér gott orð fyrir sjónvarps-
þáttaskrif.
Útgáfuréttur bókarinnar hefur
verið seldur fyrir metfé í Evrópu á
liðnum vikum. Hún kemur út í Sví-
þjóð í september en tveimur mánuð-
um síðar hjá Bjarti. Það er Stieg Lars-
son-þýðandinn Halla Kjartansdóttir
sem enn situr yfir sænskum metsölu-
krimmum og þýðir bókina á íslensku.
Á síðustu vikum hefur handritið farið
eins og eldur í sinu um útgáfuheima
og er útgáfurétturinn þegar seldur
á tólf tungumálum. Aðalpersónan,
Sebastian Bergman, þykir sérlega vel
heppnuð og skemmtileg; pirrandi og
heillandi í senn. Framhald bókarinn-
ar er væntanlegt árið 2011.
Á vegum bókaútgáfunnar Undir-
heima er að koma út önnur norræn
glæpasaga, bókin Aldrei framar frjáls,
sem kemur út á morgun, fimmtudag.
Höfundurinn er hin danska Sara
Blædel sem kemur reyndar til lands-
ins í dag til að kynna sig og bókina í
Norræna húsinu á föstudaginn.
Blædel sendi frá sér sína fyrstu
skáldsögu árið 2004 sem sló í gegn.
Danskir lesendur hafa meðal annars
útnefnt hana vinsælasta rithöfund
Danmerkur og í vali lesenda Søn-
dagsavisen á rithöfundi ársins 2009
í Danmörku hafði Blædel mikla yfir-
burði.
Aldrei framar frjáls tekur meðal
annars á mansali en þetta er önn-
ur bók Blædel um Louise Rick sem
kemur út á íslensku. Sú fyrri heitir
Kallaðu mig prinsessu og kom út hér
á landi í fyrra. Árni Óskarsson þýðir.
Mammút Er á meðal fjölmargra
listamanna sem fram koma á
Jónsvöku. MYND KristiNN MagNússoN
seabear Þau eru svöl, krakkarnir í Seabear.
Ferskir Agent Fresco verða vafalítið ferskir á Jónsvöku. MYND róbert reYNissoN
sara blædel Er á
meðal vinsælustu rit-
höfunda Danmerkur
um þessar mundir.
MYND FleMMiNg gerNYx