Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 24
Desailly ósáttur við afríkuliðin „Á heild-
ina litið er ég ósáttur við liðin frá Afríku en kannski gerði ég mér of miklar
væntingar,“ segir franska knattspyrnugoðið Marcel Desally, um frammi-
stöðu liðanna frá Afríku á HM en sjálfur fæddist hann í Gana. „Ég varð fyr-
ir mestum vonbrigðum með Kamerún. Nígeríumenn hafa verið svolítið
barnalegir og Alsíringar gert mistök í vörninni. Mér finnst Ganverjar ekki
hafa nýtt þau tækifæri sem þeim hafa boðist en Fílabeinsströndin er ein-
faldlega í gríðarlega erfiðum riðli. Svo er það Suður-Afríka. Liðið hefur spil-
að með hjartanu en það er bara ekki nóg á HM,“ segir Desailly.
Ætla að vinna ástrala „Það hefur alltaf
verið draumur minn að spila á HM, ég tala ekki um að skora
sigurmark,“ segir Milan Jovanovic, leikmaður Serbíu, sem skor-
aði eina mark leiksins þegar Serbar lögðu Þjóðverja 1-0. Serbía
kemst í 16 liða úrslitin með sigri á Ástralíu í lokaumferðinni.
„Það verður ekki auðvelt. Ástralía er með gott lið þrátt fyrir að
það hafi fengið á sig fjögur mörk gegn Þýskalandi. Við viljum
samt fara langt í keppninni og það byrjar allt á því að vinna
Ástrala og komast þannig í 16 liða úrslitin,“ segir Jovanovic.
24 uMSJóN: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 23. júní 2010 miðvikudagur
Bíóið var ekki búið hjá franska lands-
liðinu þegar kom að leiknum við Suð-
ur-Afríku á þriðjudaginn sem heima-
liðið vann, 2-1. Eftir allt sem á undan
var gengið þar sem liðið neitaði að
æfa og fyrirliðinn Patrice Evra reifst
við líkamsræktarþjálfarann í leit sinni
að rottunni í hópnum héldu vand-
ræðin áfram. Evra var tekinn úr liðinu
fyrir að mæta ekki á blaðamannafund
og Domenech gerði sex breytingar á
liðinu. Frakkland toppaði svo ömur-
legt heimsmeistaramót með því að
tapa fyrir Suður-Afríku í lokaleiknum
og enda neðst í riðli sem átti að vera
formsatriði að klára. Á sama tíma
lagði Úrúgvæ lið Mexíkó, 1-0, með
marki Luis Suarez. Þau úrslit dugðu
báðum liðum í 16 liða úrslitin en Mex-
íkó bíður þó töluvert erfiðara verkefni.
andlausir Frakkar
Raymond Domenech, þjálfari Frakk-
lands, hefur haft í nógu að snúast á
þessu heimsmeistaramóti. Hann hélt
áfram að gera allt vitlaust þegar hann
tók fyrirliðann Patrice Evra út úr lið-
inu fyrir lokaleikinn fyrir að mæta
ekki á blaðamannafund með hon-
um degi áður. Sögusagnir innan úr
frönsku herbúðunum herma að ungu
leikmennirnir hafi vælt í Domenech
um að leyfa þeim að spila lokaleik-
inn og svo fór að sex breytingar voru
gerðar á liðinu. Inn komu nokkrir af
þeim ungu, Yoann Gourcuff, Squil-
acci, Gignac og Gael Glichy og féll
það vægast sagt ekki vel í kramið hjá
eldri leikmönnum liðsins en gífurleg
stéttaskipting er innan hópsins.
Þessir ungu piltar gátu heldur ekk-
ert frekar en þeir gömlu. Liðið sem
spilaði með hjartanu í leiknum, Suð-
ur-Afríka, uppskar sanngjarnan sig-
ur, 2-1, og hefði hann auðveldlega
getað verið stærri. Ýmis dæmi voru,
bæði fyrir og eftir leik, um þá gríðar-
legu óeiningu sem er í franska liðinu.
Ekki nokkur maður talaði við þjálfar-
ann þegar liðið skoðaði völlinn fyrir
leikinn og þegar Gourcuff var rekinn
af velli eftir 25 mínútna leik sýndi eng-
inn svipbrigði nema Djibril Cisse sem
virtist vera eini maðurinn sem þetta
hafði einhver áhrif á.
Ekkert gengið frá
úrslitaleiknum 2006
Frakkar þurftu að vinna leikinn með
fjögurra marka mun til þess að komast
áfram en þeir sýndu svo sannarlega
aldrei að þeir hefðu minnsta áhuga
á því. Þeir sköpuðu sér varla færi fyr-
ir utan markið sem Florent Malouda
skoraði en það var eina markið sem
Frakkland skoraði á mótinu. Frakkar
hafa ekkert gert af viti síðan þeir töp-
uðu úrslitaleiknum gegn Ítalíu á HM
2006 en þeim hefur nú þrisvar mistek-
ist að komast upp úr riðlinum á síð-
ustu fimm stórmótum.
Franska knattspyrnusambandið
þarf augljóslega að líta í eigin barm og
spyrja sig af hverju það var ekki búið
að losa sig við Domenech þjálfara sem
var fyrir löngu búinn að missa klef-
ann. Það má ekki heldur gleyma því
að Frakkar komust inn á mótið vegna
óheiðarleika og dómaramistaka. Hef-
ur orðinu „karma“ verið slegið upp á
mörgum frönskum vefsíðum á meðan
kepninni hefur staðið. Að fá það sem
maður á skilið er eitt en spilamennska
og hegðun franska liðsins á HM 2010
er eitthvað allt annað.
Úrúgvæjar sannfærandi
Það má með sanni segja að bestu
liðin í A-riðli hafi komist í 16 liða
úrslitin. Úrúgvæ og Mexíkó spiluðu
úrslitaleik um fyrsta sætið á sama
tíma og Suður-Afríka lagði Frakk-
land. Vitað var að liðið sem myndi
enda í öðru sæti þyrfti væntanlega
að leika við stórlið Argentínu í 16
liða úrslitum en það vildu bæði lið
forðast. Aðeins eitt mark var skorað
og það gerði framherjinn Luis Suar-
ez fyrir Úrúgvæ á markamínútunni,
þeirri 43.
Markið var gríðarlega mikilvægt
fyrir Suarez sem hefur hingað til lít-
ið getað á mótinu. Það var búist við
miklu af þessum 23 ára framherja Ajax
í Hollandi en þar skorar hann gjör-
samlega að vild. Hann setti 35 mörk
í 33 leikjum á liðnu tímabili þar sem
Ajax endaði í öðru sæti deildarinnar.
Alls hefur Suarez skorað 84 mörk í 126
leikjum á fjórum tímabilum sínum í
Hollandi með Ajax og Gronigen. Það
er því gríðarlegur styrkur fyrir ann-
ars sterkt lið Úrúgvæ ef sá ágæti piltur
ætlar að detta í gang.
Úrúgvæ fékk ekki á sig mark í riðl-
inum en liðið hefur spilað virkilega
sterkan varnarleik og með framherja
á borð við Suarez og Forlan eru þeim
allir vegir færir. Að sama skapi hefur
Mexíkó leikið einstaklega vel en Lion-
el Messi og félagar í Argentínu gætu
orðið of stór biti fyrir nokkuð ungt en
sprækt lið Mexíkóa.
Frakkar út
með skömm
Úrúgvæ og Mexíkó lyftu sér upp úr A-riðli HM 2010 en Úrúgvæjar fóru taplausir í
gegnum riðilinn. Hetjuleg barátta Suður-Afríkumanna og glæsilegur sigur þeirra á
frönsku vandræðagemsunum, 2-1, dugði ekki til áframhaldandi þátttöku á HM. Suður-
Afríka er því fyrsta gestgjafaþjóðin í sögunni sem kemst ekki upp úr riðlinum.
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
sáttir við sitt Úrúgvæ landaði
toppsætinu og sleppur því við Argentínu.
mynd aFP
Börðust eins og hetjur
Suður-Afríku vantaði þrjú mörk til
viðbótar til að komast áfram. mynd aFP
nÆstuleikir
23. júní kl. 14:00:
slóvenía - england
í C-riðli
n Enskir eru upp við
vegg og verða að
vinna Slóvena til
að allt verði ekki
endanlega vitlaust
heima fyrir. Jamie
Carragher er í banni og
Ledley King meiddur, annars getur
Capello stillt upp sínu sterkasta liði.
23. júní kl. 14:00:
Bandaríkin - alsír
í C-riðli
n Bandaríkin þurfa einnig sigur
gegn Alsír til að komast í 16 liða
úrslitin. Alsíringar hafa lítið sýnt fram
á við en í vörninni eru þeir þéttir og
hafa aðeins fengið á sig eitt mark
til þessa sem var markverðinum að
kenna.
23. júní kl. 18:30:
gana - þýskaland
í D-riðli
n Eftir stórkostlegan sigur á Ástralíu
í fyrstu umferð eru
Þjóðverjar í hættu
á að komast ekki
áfram. Nái Gana
jafntefli og Serbía
vinnur Ástralíu fara
Þjóðverjar heim.
23 júní kl. 18:30:
Ástralía - serBía
í D-riðli
n Serbar verða væntanlega að vinna
Ástrala en jafntefli dugir þeim vinni
Gana Þýskaland. Það er samt ekkert
sem hægt er að reikna með þannig
að Serbar verða að spila til sigurs.
24. júní kl. 14:00:
slóvakía - ítalía
í F-riðli
n Slóvakar eru eitt
slakasta liðið í
keppninni en Ítalir
þurfa að minnsta
kosti stig gegn
þeim til að tryggja sig
áfram. Það ætti ekki að vera mikið
mál miðað við leikinn sem Slóvakía
sýndi gegn Paragvæ.
24. júní kl. 14:00:
paragvæ - nýja-
sjÁland í F-riðli
n Það er tæpt að ævintýri Nýja-Sjá-
lands haldi áfram gegn virkilega
sterku liði Paragvæ. Nýsjálendingar
berjast þó eins og ljón en Paragvæj-
ar vilja án efa sigur og efsta sætið í
riðlinum.
24. júní kl. 18:30:
danmörk - japan
í E-riðli
n Eftir frábæran sigur á Kamerún
eru Danir komnir í dauðafæri á að
komast áfram í 16 liða
úrslitin. Það sama
gildir um Japana
en þessi leikur er
hreinn úrslitaleik-
ur um sæti í 16 liða
úrslitum.
24 júní kl. 18:30:
kamerún - holland
í E-riðli
n Holland er komið í 16 liða úrslit og
Kamerún er úr leik. Því geta Hollend-
ingar hvílt menn sína og líklega
þurfa þeir þess því líklegt er að liðið
mæti Ítalíu í 16 liða úrslitum.