Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2010, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2010 sviðsljós 29
Tori Spelling segir alla fyrrverandi vini sína úr þáttunum vinsælu Beverly Hills 90210 hata sig. Frá þessu greindi hún í útvarps-
viðtali við Idol-kynninn Ryan Seacrest á dögun-
um. Málið kom upp þegar Ryan spurði Tori út í
fyrrverandi meðleikara sína.
„Hún talar ekki við mig lengur. Allir sem léku
með mér í þáttunum hata mig. Fólk segir þá: Þú
meinar á meðan á þáttunum stóð. Ég segi þá: Nei.
Við vorum frábærir vinir á meðan á þáttunum
stóð. Þau komu öll í fyrsta brúðkaupið mitt. Svo
þegar ég giftist Dean McDermott gerðist eitthvað.
Ég hef misst alla vini mína úr þáttunum,“ segir
Tori döpur.
Ástæðan fyrir vinamissi Tori gæti verið sú að
hún og Dean voru bæði gift þegar þau hófu ást-
arsamband sitt.
Tori spelling um meðleikara sína í Beverly Hills 90210:
„Allir hAtA mig“
Tori Spelling
Búin að tapa
öllum vinunum.
Beverly Hills 90210 Tori Spelling segir fyrrver-
andi samstarfsfólkið hafa snúið við henni bakinu.
Hin 24 ára gamla Amanda Bynes greindi frá því, öllum að óvörum, að hún væri hætt að leika. Bynes hefur verið ansi vinsæl í Bandaríkjunum undanfarin ár og hefur meðal ann-
ars farið með aðalhlutverkið í þættinum What I Like About You sem
sýndur hefur verið á Skjá einum.
„Ég hef aldrei skrifað handritið að myndunum eða þáttunum sem
ég hef leikið í. Ég hef bara leikið þær persónur sem framleiðendur og
leikstjórar hafa viljað,“ sagði leikkonan á Twitter-síðu sinni. „Að vera
leikkona er ekki eins skemmtilegt og
það lítur út fyrir að vera. Ef ég er hætt
að njóta einhvers sem ég geri þá geri
ég það ekki lengur. Ég veit að 24 ára
er ungur aldur til þess að hætta en þú
sást það fyrst hérna. Ég er hætt.“
Amanda lauk nýverið við tökur á
kvikmyndinni Esay A þar sem hún
fer með aðalhlutverkið ásamt Emmu
Stone. Það verður því að öllum lík-
indum síðasta mynd hennar. Nema
þá að hún hætti við að hætta eins og
margir íþróttamenn.
Amanda Bynes segir skilið við leiklistina:
Hætt í Hollywood
Amanda Bynes Nennir ekki
að vera leikkona lengur.
Gallaefnið virðist vera að ryðja sér til rúms sem eitt heitasta efn-
ið á ný. Þótt það sé alltaf sí-
gilt eru vinsældir þess mismiklar
í tískuheiminum.
Söngkonan Ciara
þykir fylgja nýjustu
tískustraumum og
klæddist hún kjól
úr gallaefni í gæsa-
partíi vinkonu sinn-
ar fyrir stuttu.
Ekki eru allir
jafn hrifnir af þess-
ari endurkomu
gallaefnisins en
hvað sem því líð-
ur má ætla að mun
meira sjáist af því á
næstunni.
Ciara fylgir tískustraumum:
gallaefnið
HeiTT
Ciara Er gullfalleg.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -