Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 4
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
á fimmtudag Skúla Þór Hilmarsson,
35 ára, í sex mánaða óskilorðsbundið
fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás.
Maðurinn var dæmdur fyrir að berja
karlmann margsinnis í andlitið með
þeim afleiðingum að hann hlaut
opið brot á nefi.
Atvikið átti sér stað í Hólahverf-
inu þann 8. febrúar 2009. Samkvæmt
dómnum hringdi Skúli í manninn
og bað hann um að koma út í bíl og
hitta sig. Ók hann með hann á brott
og lagði við grindverk við verslunar-
miðstöðina Hólagarð svo hann
komst ekki út úr bílnum. Sló hann
fórnarlambið um það bil tíu sinnum
í andlitið.
Samkvæmt skýrslu lögreglunnar
sem lögð var fyrir dóminn sagði fórn-
arlamb árásarinnar að Skúli hefði
borið það á hann að hann hefði ver-
ið með kærustu sinni. Þá hefði hann
hótað honum lífláti ef hann gerði lög-
reglu viðvart. Sagði fórnarlamb árás-
arinnar að ekkert væri hæft í því sem
Skúli hefði borið á hann. Þau væru
vinnufélagar og sagðist hann rekja
tildrög árásarinnar til þess að hann
hefði sent kærustu mannsins og öðr-
um vinnufélögum sínum tölvupósta
með ýmsu gríni. Taldi hann að Skúli
hefði séð einhvern þessara pósta og
dregið þá ályktun að hann ætti í sam-
bandi við konuna.
Fórnarlamb árásarinnar sagði
einnig í skýrslutöku hjá lögreglu að
Skúli hefði sagt að faðir sinn væri
háttsettur í „stærstu glæpasamtök-
um heims“. Lítið mál væri að láta
menn á hans vegum vinna barns-
hafandi konu hans mein. Þá hefði
hann hótað að ræna heimili hans og
„rústa“ sumarbústaðnum.
Skúli neitaði staðfastlega sök fyr-
ir dómi. Hann var hins vegar sak-
felldur fyrir árásina, meðal annars
vegna þess að hægt var að rekja sím-
töl úr síma Skúla til fórnarlambsins
skömmu fyrir árásina. Þá voru blóð-
sýni úr bifreið Skúla send í rannsókn
til Rettsmedisinsk Institutt í Noregi
sem leiddi í ljós að blóðslettur í bif-
reið hans voru úr fórnarlambinu.
Auk þess að sæta sex mánaða fang-
elsi var Skúla gert að greiða fórnar-
lambi árásarinnar 346 þúsund krón-
ur í skaðabætur.
GálGafrestur til
næsta sumars
n Menntaskólinn Hraðbraut og
menntamálaráðuneytið hafa undir-
ritað nýjan samstarfssamning sem
gildir til loka júlí á
næsta ári. Núver-
andi samningur
rennur út í árslok.
Ljóst þykir að til-
gangur endur-
nýjunarinnar sé
fyrst og fremst að
tryggja hagsmuni
þeirra nemenda
sem eru í skólanum og leyfa þeim að
ljúka námi þar. Með þessu fær Ólafur
Johnson, skólastjóri og eigandi skól-
ans, gálgafrest í eitt ár og mun hann
væntanlega hætta afskiptum af skól-
anum í kjölfarið eða skólinn verða
lagður niður. En fréttir DV af fjár-
málaaustri Ólafs út úr skólanum hafa
vakið sterk viðbrögð hjá almenningi
og skoðar Ríkisendurskoðun nú fjár-
hag skólans. Heimildir DV innan úr
Hraðbraut herma samt að Ólafur beri
sig vel þrátt fyrir rannsóknina.
lúxuslíf á flórída
n Ólafur Johnson í Hraðbraut á
glæsihús í Orlando á Flórída, líkt
og DV hefur greint frá, og ver hann
nokkrum mánuðum þar á hverju
ári. Samkvæmt heimildum DV munu
aðrir Íslendingar í nágrenni við Ólaf í
Orlando hafa oft
velt því fyrir sér
hvernig skóla-
stjóri hafi efni á
því að búa svo vel
en Ólafur mun
meðal annars
eiga bíl í Banda-
ríkjunum sem
hann notar ein-
göngu þegar hann dvelur þar. Hús Ól-
afs í Orlando var keypt eftir að hann
tók við Hraðbraut en svo vill til að
sama ár og skólinn var opnaður, árið
2003, stækkaði Ólafur einnig við sig í
Garðabænum. Ólafur á því tvö glæsi-
hús sem hann keypti eftir að Hrað-
braut var opnuð. Alveg er ljóst að ekki
eru margir skólastjórar hér á landi
sem hafa efni á slíku.
umboðsmaður
fólksins í fríi
n Nýlega var búið til nýtt stöðugildi
hjá Landsbankanum. Stöðugildið
hlaut nafnið umboðsmaður við-
skiptavina og var ætlað að sjá um hag
þeirra viðskiptavina sem töldu á sér
brotið í bankan-
um. Eggert Á.
Sverrisson var
ráðinn í starfið.
Það er hins vegar
ekki mikið hugs-
að um viðskipta-
vini bankans
þessa dagana
því að reyni fólk
að ná í umboðsmann viðskiptavina
fást þau svör í bankanum að hann sé
í sumarfríi til 28. júlí. Starfið þykir
greinilega ekki mikilvægara en það
innan bankans að enginn var fenginn
til að leysa hann af. Þetta þykir ekki
mjög heppilegt þar sem margir af við-
skiptavinum Landsbankans þurfa að
fá upplýsingar um ýmis mál og lenda
því á vegg þar til í lok júlí.
bauGstenGslin í
metro
n Skyndibitakeðjan Metro, áður
McDonald‘s, á í miklum rekstrarerfið-
leikum þessa dagana, líkt og greint er
frá í helgarblaði
DV. Athygli vekur
að eigandi Metro
er Jón Garðar Ög-
mundsson, sem
rekið hefur marga
skyndibitastaði
í gegnum tíðina
og var fram-
kvæmdastjóri
McDonald‘s og Pizza Hut, er fyrrver-
andi eiginmaður Kristínar Jóhannes-
dóttur, dóttur Jóhannesar í Bónus og
systur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Jón Garðar var meðal annars einn af
þeim sem ákæruvaldið tók skýrslu af í
Baugsmálinu á sínum tíma.
sandkorn
4 fréttir 9. júlí 2010 föstudagur
ÞYRLA MAGNÚSAR SELD
RÚSSNESKuM AuÐJÖFRi
Lúxusþyrla Magnúsar Kristinsson-
ar, útgerðarmanns í Vestmanna-
eyjum, hefur verið seld fyrir tilstilli
skilanefndar Landsbanka Íslands,
samkvæmt heimildum DV. Kaup-
andinn er auðugur Rússi. Skila-
nefnd Landsbankans átti veð í
þyrlunni sem er af gerðinni Bell 430
og er öll hin glæsilegasta. Söluverð-
ið er tæpar 300 milljónir króna.
Gengið var frá sölu þyrlunnar um
miðja vikuna og var það framleið-
andi hennar, Bell, sem hafði milli-
göngu um söluna. Skilanefndin
seldi þyrluna yfir til Bell sem svo
áframseldi hana til Rússans auð-
uga. Ekki er vitað hvað hinn auðugi
Rússi heitir.
Skilanefnd Landsbankans fær
bróðurpartinn af söluverðinu þar
sem Magnús skuldar bankanum
tugi milljarða króna. Magnús mun
hins vegar aðeins vera í persónu-
legum ábyrgðum fyrir 1,5 milljörð-
um króna.
Sagðist hafa selt þyrluna
Í lok maí var haft eftir Magnúsi í fjöl-
miðlum að hann hefði selt þyrluna
fyrir skömmu og vildi hann ekki
gefa upp hversu mikið hann hefði
fengið fyrir hana. Magnús sagðist
hafa selt þyrluna til útlanda og að í
framtíðinni ætlaði hann að reiða sig
á ferjuna Herjólf til að fara á milli
lands og Eyja. Þyrlan hafði þá verið
til sölu í langan tíma.
Þyrluflug Magnúsar vakti ávallt
mikla athygli og umtal í Vestmanna-
eyjum enda var hann eini Eyjamað-
urinn sem átti slíkan fararskjóta til
að skjótast á milli lands og Eyja.
Heimildir DV herma hins vegar
að ekki sé rétt að búið hafi verið að
selja þyrluna á þessum tíma og að
Magnús sjálfur hafi ekki séð um söl-
una á þyrlunni heldur skilanefnd
Landsbankans. Magnús kom þar
hvergi nærri. Sannleikurinn er sá,
herma heimildir DV, að skilanefnd-
in tók þyrluna af Magnúsi til að selja
hana upp í hluta skulda hans við
bankann.
Magnús tjáir sig ekki
DV hafði samband við Magnús til
að spyrja hann út í hvort búið væri
að ganga frá sölu þyrlunnar líkt og
hann hélt fram í lok maí. Magnús
vildi hins vegar ekki svara spurn-
ingu blaðsins um þetta atriði. „Ég
hét því að svara DV-mönnum
aldrei. Þeir svoleiðis skemmta sér
við að fjalla um mig viku eftir viku.
Þannig að ég held ég segi bara pass,“
sagði Magnús. Ljóst er hins vegar að
Magnús seldi þyrluna ekki í lok maí
líkt og hann sagði þá.
Söluverðið dugar skammt
Söluverðið á þyrlunni dugar þó
skammt til að dekka skuldir Magn-
úsar við skilanefnd Landsbankans
því hann og félög í hans eigu skulda
bankanum um 50 milljarða króna,
líkt og DV greindi frá í ágúst í fyrra.
Skilanefndin hefur gengið að
þeim eignum Magnúsar sem hún
hefur getað og liggur ljóst fyrir að
afskrifa þarf meirihluta skulda hans
við bankann. Bankinn er reyndar í
erfiðri stöðu hvað varðar tvær af
eignum Magnúsar: Toyota-umboð-
ið og útgerðarfélagið Berg-Hugin í
Vestmannaeyjum.
Í tilfelli Toyota-umboðsins á
skilanefndin veð í eignum þess
sem og Nýi-Landsbankinn, sem
er helsti lánardrottinn fyrirtækis-
ins. Hvorugur bankinn getur hins
vegar gengið að félaginu þar sem
stjórnendur Toyota í Evrópu telja
að bankar séu ekki heppilegir eig-
endur að Toyota-umboðinu á Ís-
landi. Bílasalan er því enn þá í eigu
Magnúsar að nafninu til þó svo að
kröfuhafar félagsins eigi það í raun
og muni sjá til þess að umboðið
verði selt upp í skuldir útgerðar-
mannsins.
Annað vandamál sem skila-
nefndin stendur frammi fyrir er að
hún á ekki nema 12. og 13. veðrétt í
einu skipi í útgerð Magnúsar, Bergi-
Hugin. Þar er um að ræða veðrétt í
skipinu og kvótanum sem fylgir því.
Íslandsbanki á fyrstu veðréttina í
þessu skipi sem og hinum skipum
útgerðarfélagsins. Það er því Ís-
landsbanki sem á veð í verðmæt-
ustu eignum Magnúsar enda virðist
lánafyrirgreiðsla til hans frá Lands-
bankanum hafa verið með þeim
hætti að oft voru veðin fyrir lánun-
um afar léleg.
Söluverðmæti þyrlunnar glæsi-
legu ratar þó að mestu til Lands-
bankans en ekki annarra kröfuhafa
Magnúsar.
Þannig að ég held ég segi bara
pass.
Skilanefnd Landsbankans hefur lokið sölunni á lúxusþyrlu Magnúsar Kristinssonar í
Eyjum. Kaupandinn er auðugur Rússi. Milliliður í sölunni er framleiðandi þyrlunnar,
Bell. Söluverðið er um 300 milljónir króna. Söluverðmæti þyrlunnar dugar þó skammt
upp í skuldir Magnúsar við Landsbankann en þær nema um 50 milljörðum króna.
inGi f. vilhJÁlMSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
MAGNÚS KRISTINSSON Í TOYOTA:
dv.is
þriðjudagur 18. ágúst 2009 dagblaðið vísir 114. tbl.99. árg. – verð kr. 347
fréttir
BÆjarStjÓri
grÆddi
tViSVar
n hValSkurðarmenn meiddir
n Brúðkaup illuga
n Skilanefnd landSBankanS Semur um að afSkrifa lÁnin
n fékk 50 milljarða að lÁni – fÆr tugi milljarða afSkrifaða
n reStin greiðiSt af grÓða útgerðarinnar Í eYjum
ÞARF EKKI
AÐ BORGA
FImmtíu
mILLJARÐA
Uppi:
Fréttir
-
-
H&N-mynd
við hlið logos:
hValur
Sprakk ÁStin Á tÍmum iceSaVe
fÓlk
INGA LIND
í SKÓLA
fÓlk
hOrn-
Steinar
daVÍðS
n lagðir Á afmÆliSdögum fOreldra hanS
Veldu réttu
SkÓlatölVuna
neYtendur
auður capital
StOfnuð með
kúlugrÓða
fréttir
Dv 18. ágúst 2009
Karlmaður hótaði að siga glæpamönnum á ólétta konu:
Dæmdurfyrirhrottalegaárás
hótaði konu líkamsmeið-
ingum Skúlihótaðiaðláta
mennávegumföðursíns
vinnaóléttrikonufórnar-
lambsinsmein.
Þyrlan seldÞyrlaMagnúsarvarseldtilauðugsRússaí
vikunniígegnumframleiðandahennar,Bell.Magnússést
hérmeðþyrlunaíbakgrunniámeðanhannflaugenná
henniámillilandsogEyja.