Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 36
36 viðtal 9. júlí 2010 föstudagur SKEMMTISIGLING: AUSTUR-KARÍBAHAF OG FLÓRÍDA 2.–11. OKTÓBER 2010 Liberty of the Seas Miami – Florida, Philipsburg – St. Maarten, San Juan – Puerto Rico, Labadee – Haiti, Miami – Florida Úrval Útsýn kynnir með stolti, Liberty of the Seas, eitt stærsta og mikilfenglegasta skemmtiferðaskip heims. Skipið er eitt af nýjustu viðbótum Royal Caribbean skipafélag- sins en það fór jómfrúarferð sína í maí 2007. Það hefur einstaka eiginleika og aðstöðu, t.d. vatnagarð með brimbrettaaðstöðu, skautasvell, klifurvegg, verslunargötu og skem- mtistaði svo fátt eitt sé nefnt. Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist. Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu sundlaugasvæði. Liberty of the Seas er sannkallað fljótandi 5 stjörnu lúxus hótel sem undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist. á mann m.v. 2 fullorðna.* MEIRA Á urvalutsyn.is Eitt stærsta og mikilfenglegasta skemmtiferðaskip heims! Verð frá: 236.900 kr. * Innifalið: Flug til og frá Orlando, gisting á Baymont Inn & Suites í Orlando með morgunverð í eina nótt, skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7 nætur, þjórfé um borð í skipinu og allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips. Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu fengið mikla aðstoð. Og það er ekkert annað að gera en að líta á þetta sem nýjan kafla. Þú hef- ur líka ýmislegt um þetta að segja – eymd er val- kostur og maður þarf að spyrja sig: „Ætla ég að sitja fastur í þessu eða ætla ég að halda áfram?“ Og ég ætla að halda áfram.“ Kjörinn formaður á erfiðum tíma Valgeir tók við formennsku í Borgarahreyfing- unni í september í fyrra, eða um það leyti sem skilnaðurinn stóð yfir. Hann segist hafa uppgötv- að skömmu síðar að það væri verkefni sem hann gæti ekki staðið undir á þeim tímapunkti í sínu lífi. „Það var haldinn landsfundur í september þar sem kosið var í stjórn. Það hefur alltaf verið tiltölulega flatur strúktúr í Borgarahreyfingunni, það var lagt upp með það í byrjun að það væru ekki einhverjar vegtyllur og eitthvað slíkt, en við urðum auðvitað að hafa þetta formfast út af lög- unum - að titla menn formenn, gjaldkera og svo- leiðis eins og gert er ráð fyrir í lögum um félög og félagasamtök. Niðurstaðan úr kosningunni var sú að ég fékk flest atkvæði í fyrsta sætið og samkvæmt hefðinni hlýtur sá formannssætið sem fær flest atkvæði. Við héldum fund eftir kosninguna þar sem við ræddum það fram og til baka hvað vildum gera, hvort við ætluðum að fylgja hefðinni með þetta eða gera þetta einhvern veginn öðruvísi. Eftir japl, jaml og fuður var tekin sú ákvörðun að ég yrði formaður í ljósi þess að ég fékk flest atkvæði og nyti þar af leiðandi augljóss trausts félags- manna hreyfingarinnar til að leiða þennan hóp. Vegna skilnaðarins var ég kannski ekki í standi til þess að vega og meta mína eigin að- stöðu og minn eigin styrkleika sem karakters á þessum tíma. Ég ætlaði mér því kannski um of, en eins og mér leið þá taldi ég mig fullfæran til þess að takast á við þetta verkefni. Ég byrjaði svo sem ágætlega, fór í einhver viðtöl og spjöll út af þessu, en svo bara gekk þetta ekki.“ eKKi fullreynt að sameina þingmennina Þeir fjórir einstaklingar sem kjörnir voru á þing fyrir hönd Borgarahreyfingarinnar í fyrravor eru allir gengnir úr henni. Þráinn Bertelsson yfirgaf hreyfinguna eftir deilur í fyrrasumar sem ekki verða raktar hér, og hinir þrír vegna óánægju með landsfundinn þar sem Valgeir var kjör- inn formaður. Valgeir segir það hafa verið efst á sinni stefnuskrá eftir formannskjörið að sætta óánægjuraddirnar innan hreyfingarinnar og fá þingmennina aftur í þeirra „lið“. „Frá þeim tímapunkti að það veljast fjórir ein- staklingar inn á þing undir merkjum Borgara- hreyfingarinnar varð til einhver sundurþykkja á milli manna. Það náðist ekki að skapa traust á milli manna því þetta er stjórnmálaafl sem er stofnað á mjög stuttum tíma. Þetta var ofsalega skemmtileg tilraun, en þetta var erfið fæðing. Mér tókst ekki það sem ég ætlaði mér, að ná þingmönnunum aftur saman. Skömmu eftir landsfundinn fór ég á fund þessara tveggja þing- manna Borgarahreyfingarinnar sem átt höfðu í deilum. Við áttum langan fund og ég hélt að ég gæti náð þeim saman, en því miður tókst það ekki. Þegar þetta mistókst kom skilnaður minn í bakið á mér og ég hafði bara ekki andlegan styrk til að leiða starf Borgarahreyfingarinnar áfram af þeim sökum. En ég tel ekki fullreynt að ná þing- mönnunum saman. Kannski tekst það núna þeg- ar landslagið er breytt,“ segir Valgeir og vísar þar til þess að Gunnar Sigurðsson er nýgenginn úr stjórn hreyfingarinnar. allt í einu Kominn í silfur egils Valgeir kveðst ekki hafa verið með í sköpun Borg- arahreyfingarinnar frá upphafi, en hafa þó komið inn í dæmið nokkuð fljótlega eftir að menn voru farnir að reifa hugmyndina um að stofna stjórn- málaafl. „Ég hef alla tíð haft mínar meiningar og mín- ar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hlutina. Þess vegna fannst mér heillandi að fara inn í Borgara- hreyfinguna eftir búsáhaldabyltinguna. Ég fór dag einn að blogga um ástandið en hafði ekkert blandað mér í þessar umræður fram að því, var stuttu seinna beðinn um að flytja ræðu á Austur- velli og í kjölfarið var ég allt í einu kominn í Silf- ur Egils að ræða málin með einhverju liði. Þetta gerðist mjög hratt og áður en ég vissi af var ég bú- inn að taka sæti á lista hjá Borgarahreyfingunni og kominn í framboð. Það var svolítið erfitt að fóta sig í þessu því þetta gerðist rosalega hratt,“ segir Valgeir sem var í 2. sæti í Suðvesturkjör- dæmi í Alþingiskosningunum í fyrra og var ekki fjarri því að komast á þing. Hann lét af formennsku í Borgararhreyf- ingunni skömmu eftir áramót en á sæti í stjórn hennar. „Ég hef verið svolítið í fríi frá þessu vafs- tri síðan þá. Ég þrífst nefnilega illa í umhverfi þar sem er sundurþykkja. Ég fór að beita mér í pólit- ík af því að ég vildi breytingar og ég vildi heiðar- leika, en umhverfið í stjórnmálum er í eðli sínu óheiðarlegt. Það er umhverfi sem ég sem mann- eskja á mjög erfitt með að þrífast í.“ Óheiðarleika stjórnmálanna kveðst Valgeir fyrst hafa kynnst þegar hann var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem hann hef- ur búið síðustu sautján ár, í sveitarstjórnarkosn- ingunum 2002. „Í stjórnmálum koma saman einhverjir hóp- ar fólks til að leggja á ráðin um að stinga ann- að fólk í bakið. Það er ofsalega skrítið að vera innan í þannig hóp. Kannski er það eðli stjórn- málanna að þetta sé alltaf svona. Við sáum nú öll farsann með endalausu borgarstjóraskiptin. Það eru þessar hnífsstungur og plottin um þær sem eru svo grátleg við þetta. Eins og núna, þeg- ar við þurfum á því að halda að það sé talað til okkar og að stálinu sé stappað í þjóðina, þá sitja menn á svikráðum hver gagnvart öðrum, bara til þess að ná völdum, í staðinn fyrir að taka hönd- um saman, leggja af eitthvað svona stjórnarand- stöðukjaftæði og vinna þjóðina sameiginlega út úr kreppunni.“ féKK hugljómun Aðalstarfi Valgeirs síðustu ár hefur verið kennsla við grunnskólann á Álftanesi. Þar hefur hann kennt leiklist, stuttmyndagerð og heimilisfræði auk sérkennslu. Skrifin eiga hann nú hins vegar óskiptan. „Ég er hættur kennslunni til að vera laus og liðugur í listinni. Ég er meðal annars að vinna verk upp úr bókinni Ótuktin eftir Önnu Pálínu Árnadóttur sem var kona vinar míns, Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Þegar ég var að ganga í gegnum mína erfiðleika fékk ég eins konar hug- ljómun og fór að hugsa um þennan vin minn sem hafði upplifað að missa konuna sína,“ segir Valgeir en Anna Pálína lést úr krabbameini árið 2004 , en hafði skrifað bókina eftir að hún greind- ist með meinið nokkrum árum áður. „Ég fór að hugsa um allt sem Anna Pál- ína hafði gert, las Ótuktina aftur og fattaði allt í einu þann styrk sem felst í þessari sögu. Þetta er kannski saga sem allir verða að heyra því all- ir þekkja einhvern sem hefur fengið krabbamein. En þetta er samt ekki bara bók um krabbamein heldur er þetta líka óður til mannsins og þess krafts sem hann býr yfir þegar erfiðleikar steðja að - hvað hann getur gert með hugarfarinu. Anna Pálína var algjör fyrirmynd í þessu og við Katla Margrét Þorgeirsdóttir, sem er að vinna þetta með mér og verður leikkonan í einleiknum, ætl- um líka að nota lögin hennar Önnu Pálu,“ segir Valgeir en Anna Pálína var söngkona og var einna þekktust fyrir vísnasöng sinn. Auk Ótuktarinnar er Valgeir með barnaleikrit í vinnslu. Um er að ræða leikgerð á gamalli þjóð- sögu um Grámann í Garðshorni. „Þetta er gamal- dags íslenskt ævintýri með texta sem þú þarft að- eins að hlusta eftir. Ég samdi nýja músík við þetta og er að vinna þetta með Oddi Bjarna í Ljótu hálf- vitunum og Margréti Sverrisdóttur. Ágústa Skúla- dóttir ætlar aðeins hjálpa okkur í þessu.“ Valgeir stefnir á að setja bæði verkin í gang í haust. Varðandi stað fyrir sýningarnar segir Val- geir að ætlunin sé bara að æfa upp þessar sýning- ar og svo sé hægt að fara með þær hvert sem er. nýr Kafli – ný ást? Allar dætur Valgeirs og Guðrúnar hafa verið í leik og söng á sínum æsku- og unglingsárum. Sú elsta, Ólöf Jara, hefur þegar náð fínum árangri á því sviði þrátt fyrir ungan aldur. Hún lék og söng annað aðalhlutverkið í söngleiknum Grease þeg- ar hann var settur upp í Loftkastalanum á síðasta ári og nýverið var svo sagt frá því að hún myndi leika hlutverk eiginkonu Buddy Holly í söngleik um ævi popparans sem frumsýndur verður í Austurbæ í haust. Sú í miðið, Anna Hjördís, er afar hæfileikarík söngkona að sögn Valgeirs, og þá yngstu, Elísa- betu, segir hann haldna algjörri söngleikjadellu. „Og elsta dóttirin, Eva Lilja, hefur þegar gefið mér þrjú barnabörn, þar á meðal Valgeir Hrafn Skag- fjörð sem fór með hlutverk Hrapps í söngleiknum Óliver í Þjóðleikhúsinu í vetur. Þannig að dóttur- sonurinn ætlar líka að feta listabrautina,“ seg- ir Valgeir en Eva Lilja sjálf stundar nám í mann- fræði við Háskóla Íslands. Fjögurra stúlkna faðirinn í Kópavogi er því umkringdur ungum, hæfileikaríkum konum. Og Valgeir er hugsanlega búinn að finna nýja ást í sínu lífi. Hann vill þó ekkert ræða það að svo stöddu – það eina sem sé víst er að nýr kafli í hans lífi er nú hafinn. „Það er nýr kafli fram undan og hann er óskrifaður. En það er í mínu valdi að skrifa þenn- an kafla. Og ég ætla að hafa hann góðan og skemmtilegan.“ kristjanh@dv.is En ég er ekkert ósátt-ur við að hafa fellt tár og það hafi verið sýnt í sjón- varpinu. Þetta er bara augna- blik sem festist á myndband. stoltur Ólöf Jara, ein fjögurra dætra Valgeirs, er efnileg söng- og leikkona. Hún lék meðal annars annað aðalhlutverkið í uppfærslu á söngleiknum Grease í Loftkastalanum í fyrra. í ræðustól Valgeir þrumar yfir fólki á Austurvelli á mótmæla- fundi snemma árs 2009.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.