Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 48
48 útlit umsjón: viktóría hermannsdóttir viktoria@dv.is 9. júlí 2010 föstudagur katrín Þóra Bragadóttir eða katrín Braga hefur vakið athygli fyrir frumlegar ljós- myndir sem hún tekur allar á gamla filmuvél pabba síns. Katrín er aðeins 17 ára göm- ul og ekki er langt síðan hún fékk ljósmyndabakteríuna. RómantískaR flott/ljótar myndir Þetta byrjaði þannig að ég fann gömlu vélina hans pabba síð-asta sumar, svona gamla filmu- vél sem ég var búin að steingleyma að hann ætti. Pabbi kenndi mér á hana, ég vissi ekki einu sinni að það þyrfti að kaupa filmu í hana eða neitt þannig,“ segir Katrín og bætir við: „Þannig byrjaði þetta og síðan þá er ég bara búin að vera að fikra mig áfram.“ með mikinn áhuga á tísku Tískuljósmyndun heillar Katrínu og hana langar að starfa við þann bransa í framtíðinni. „Ég er með miklu meiri áhuga á tískuljósmynd- un heldur en til dæmis náttúrulífs- ljósmyndum eða eitthverju þannig. Það heillar mig einhvern veginn miklu meira þegar það er tíska með. Mér finnst það áhugaverðara þegar módelin eru í geðveikum fötum. Ég er með mjög mikinn áhuga á tísku og langar að vinna við í tískubransan- um í framtíðinni.“ Gott samstarf Katrín hefur tekið margar mynd- ir af vinkonu sinni Brynju Jónbjarn- ardóttur en hún hefur gert það gott sem fyrirsæta undanfarið. „Við Brynja erum mjög nánar vinkon- ur og höfum verið að vinna mik- ið saman. Þetta byrjaði þannig að ég spurði hvort ég mætti ekki taka myndir af henni og hún var til í það. Henni finnst gaman að módelast og mér finnst gaman að taka myndir.“ Samstarf þeirra hefur vakið mikla at- hygli og myndir Katrínar af Brynju hafa hjálpað henni að komast áfram í fyrirsætubransanum. „Við sett- um myndirnar sem við tókum inn á lookbook.nu og nú er hún framan á síðunni,“ segir Katrín sem segist hafa áttað sig á því þegar myndin komst á forsíðuna að ljósmyndun væri eitt- hvað sem hana langaði að starfa við. „Þá einhvern veginn fattaði ég að kannski gæti ég gert þetta í framtíð- inni,“ segir Katrín. rómantískar myndir Katrín lýsir ljósmyndastíl sínum sem flott/ljótum. „Ég nota alltaf filmu og það er dálítil oflýsing á myndunum og ég er ekkert að fikta með hana. Myndirnar eru frekar rómantísk- ar, mikið af pastel litum,“ segir Katr- ín sem er ekki hrifin af því að vinna myndirnar of mikið – hún vill frekar hafa þær hráar. „Sumir vinna mynd- irnar svo mikið og eru svo stafrænir, ég fíla það ekki. Ég vil hafa þetta nátt- úrulegt og ekki of stafrænt eitthvað.“ Ljósmyndir Katrínar eru allar teknar á filmu. „Ég stefni samt á að kaupa mér stafræna vél í september. Ég hef samt alltaf verið hrifnari af filmuvél- um en það er bara svo dýrt að vera alltaf að taka á filmu. Þá get ég líka séð myndirnar sem ég tek,“ segir hún. Katrín segist sækja innblástur til erlendra ljósmyndara. „Mér finnst til dæmis Allison Scapulla taka mjög skemmtilegar myndir. Hún tekur einstaklega flottar myndir sem eru eins og klipptar út úr draumi og hún framkallar allt sjálf,“ segir Katrín. Ís- lenskir ljósmyndarar höfða ekki jafn mikið til hennar en þó finnst henni nokkrir standa upp úr. „Saga Sig er til dæmis að gera frábæra hluti. Hún er einn besti ljósmyndari á Íslandi að mínu mati og svo finnst mér líka flott það sem Jói Kjartans er að gera.“ mikið af verkefnum Katrín hefur fengið talsvert af verk- efnum þrátt fyrir nokkuð stuttan fer- il. „Ég hef tekið myndir meðal annars fyrir Nýtt Líf. Síðan var ég að vinna í Nostalgíu og tók myndir fyrir þær og svo hef ég líka tekið fyrir Rokk og Rósir. Ég tók líka nýlega myndir af Fabúlu söngkonu fyrir tónleikaferð sem hún er að fara í um landið. Síð- an hafa bara alls konar aðilar haft samband við mig. Mynd eftir mig var meðal annars í nýsjálensku tímariti um daginn,“ segir hún. Mest hefur Katrín þó verið að taka myndir sjálf og þá oft af vinkonum sínum sem eru fyrirsætur. „Það hefur fólk verið að biðja mig um að taka myndir en ég þori ekkert að rukka þau nema bara fyrir kostnaðinum á filmum og svona. Ég hef ekkert viljað vera að rukka, ég er svo ung og er ekkert komin svo langt. Það er bara mjög gaman að gera svona alls konar verk- efni og líka lærdómsríkt,“ segir Katr- ín hlédræg. „Mér finnst þetta bara gaman og svo kynnist maður fullt af fólki sem er að gera það sama og ég.“ Ætla að læra ljósmyndun Framtíðin er björt hjá þessum hæfi- leikaríka ljósmyndara en að eigin sögn langar hana að læra ljósmynd- un í náinni framtíð. „Það er planið að fara í skóla og læra þetta betur. Helst tískuljósmyndun en líka bara al- menna ljósmyndun. Mig langar líka að læra líka bara að framkalla þetta sjálf. Það er draumurinn að kunna þetta.“ Fyrsta ljósmyndasýningin Katrín er að fara að sýna á sinni fyrstu ljósmyndasýningu ásamt fleiri ljósmyndurum. „Sýningin er í Mol- anum í Kópavogi og hefst á föstudag- inn (í dag) klukkan átta. Þetta er á vegum skapandi sumarstarfs í Kópa- vogi. Þau höfðu samband við mig og báðu mig að vera með. Ég verð með nokkrar myndir til sýnis. Við erum nokkrar saman og ég held þetta verði bara mjög skemmtilegt,“ segir Katrín að lokum. viktoria@dv.is Síð pils eru mjög móðins um þessar mundir. Síðir kjólar hafa verið heitir í sumar og nú fylgja síðu pilsin fast á eftir. Búast má við að þetta verði eitt heitasta „trendið“ í haust. Í sumar verða pilsin á glaðlegri nótum, mynstr- uð eða í ljósum pastellitum eða dökkum litum. Í haust verða pilsin aðallega í dökkum litum og þá kemur svarti liturinn hvað sterkastur inn. Alls konar snið eru leyfileg, bæði alveg síð og víð og líka þrengri sem ná niður á ökkla. Pilsin halda á manni hita og eru ágætis tilbeyting frá stutt- pilsatískunni sem hefur ráðið ríkjum undanfarin ár. viktoria@dv.is Tískubloggið killakali.tumblr.com Söngkonan Svala Björgvins skrifar frá borg Englanna, Los Angeles, skemmtilegar færslur um tísku og ýmislegt annað sem henni dettur í hug. Fallegar myndir og skemmtilegt blogg. síð pils sóley kristjánsdóttir Hvað er nauðsynlegt í fataskápinn í sumar? Sumarkjólar eru bráð nauðsyn. d v m yn d B ry n ja r sn Æ r Tískudrósin sítt pils frá Asos mary kate Olsen klæðist oft síðum pilsum sítt pils frá Asos taylor momsen í síðu pilsi Myndlistarmaður hannar ilmvötn í SPARK design space á Klapparstíg 33 er um þessar mundir sýningin Eau De Parfum. Á sýningunni eru ilmvötn unnin af myndlistarkon- unni Andreu Maack sem hún vann í samstarfi við franska ilmvatnsgerð- arfyrirtækið apf arômes & parfums. Ilmurinn á uppruna sinn að rekja til myndlistaverka Andreu og hefur verið hluti af innsetningum henn- ar síðastliðin tvö ár. Ilmvötnin þrjú sem sýnd eru bera nöfnin SMART, CRAFT OG SHARP. Andrea hann- aði umgjörð og útlit vörunnar í samvinnu við innanhúsarkitekt- inn Ingibjörgu Agnesi Jónsdóttur og fatahönnuðinn Katrínu Maríu Káradóttur. Ilmvötnin verða til sölu meðan á sýningunni stendur. Sýn- ingin stendur til 31.ágúst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.