Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 40
Kjartan fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1974, þá átján ára og var dúx úr áfangakerfi. Hann lauk BA-prófi í íslensku frá Há- skóla Íslands 1979, kandidatsprófi frá sama skóla 1982, doktorsprófi frá Há- skólanum í Lundi 1992 og stundaði auk þess doktorsnám við University of Maryland í Baltimore í Bandaríkjun- um á árunum 1988-92. Kjartan var langdvölum erlendis við nám og margvíslegar rannsóknir. Hann var skipaður prófessor í íslensku við Háskólann í Osló 1992 og starfaði þar til dauðadags. Hann var því búsett- ur í Osló sl. átján ár. Þá gegndi hann jafnframt hluta úr prófessorsstöðu við Háskólann í Bergen frá 2008. Kjartan var afkastamikill og mik- ils metinn fræðimaður en eftir hann liggja rit og fjöldi greina í innlendum og erlendum fræðitímaritum. Hann sinnti einkum rannsóknum á sviði ís- lenskrar og norrænnar málfræði og málsögu en þar fjallaði hann með- al annars um þróun miðmyndar í ís- lensku og norrænum málum (ekki síst í doktorsritgerð sinni, The Icelandic Middle Voice, 1992), um norsk mál- áhrif í íslensku til forna og miðnorska málþróun, um málbreytingar og mál- heimildir og um sögu íslenskrar mál- ræktar (Íslensk málhreinsun, Sögulegt yfirlit, 1990). Kjartan stýrði framhaldsnámi í málvísindum og textafræði við Osló- arháskóla á árunum 2000-2002 og sinnti ýmsum alþjóðlegum rannsókn- arverkefnum, svo sem FORSE – For- skergruppe i samfunn og språkendr- ing við Björgvinjarháskóla frá 2007, og Linguistic Theory and Grammatical Change við Center for Advanced Stu- dy í Osló á árunum 2004-2005. Kjartan sat í ritstjórn tímarits- ins Collegium medievale 2002-2007. Hann var í forsvari fyrir Heimskringlu- rannsóknarverkefninu við Institutt for lingvistiske og nordiske studier á árun- um 1993-2000. Kjartani voru veitt Ingerid Dal og Ulrikke Greve Dal verðlaunin fyr- ir rannsóknir sínar á indóevrópskum tungumálum og sögu íslenskrar tungu. Fjölskylda Alsystkin Kjartans: Óttar Ottósson, f. 14.1. 1956, var kvæntur Sigþrúði Al- bertsdóttur en þau skildu og er son- ur þeirra Kjartan Þór, f. 13.6. 1988, en önnur börn Óttars eru Kaare Stark, f. 18.5. 1986, og Samúel Hjalti, f. 18.7. 1996; Helga Ragnheiður Ottósdóttir, f. 14.3. 1957, en eiginmaður hennar er Stefán S. Guðjónsson og eru börn þeirra Snorri, f. 7.12. 1981, Guðrún, f. 20.1. 1983, Ottó S. Michelsen, f. 29.4. 1986, og Ragnheiður Gyða, f. 20.11. 1990; Geirlaug Ottósdóttir, f. 16.9. 1964, en eiginmaður hennar er Grím- ur Guðmundsson og eru börn þeirra Bryndís Gyða, f. 5.6. 1991, Snæfríður, f. 13.4. 1993, Guðmundur Ottó, f. 28.9. 2000, og Grímur Dagur, f. 2.10. 2002. Hálfsystkini Kjartans, samfeðra: Helga Ehlers Wolf, f. 5.1. 1945, búsett í Köln en eiginmaður hennar er Rein- hard Wolf og eru börn þeirra Helga Ursula, f. 8.2. 1973, Reinhard Albert, f. 10.10. 1974, Christiane Henriette, f. 8.5. 1979, og Peter Andreas, f. 10.6. 1981; Theodór Kristinn Ottósson, f. 25.7. 1951, en kona hans er Árný Elías- dóttir og eru synir þeirra Rúnar, f. 7.6. 1974, og Grétar Sveinn, f. 5.4. 1980. Foreldrar Kjartans: Ottó A. Michel- sen, f. á Sauðárkróki 10.6. 1920, d. 11.6. 2000, forstjóri IBM á Íslandi, og k.h., Gyða Jónsdóttir, f. á Sauðárkróki 4.8. 1924, heimilisiðnaðarkennari. Ætt Systkini Ottós: Karen Edith Michel- sen, f. 2.8. 1910, d. 20.2. 1965, prjóna- kona; Pála Elínborg Michelsen, f. 24.8. 1911, d. 19.6. 2005, prjónakona; Hulda Ester Michelsen, f. 26.11. 1912, d. 29.8. 1985, ljósmyndari; Franch Michelsen, f. 31.12. 1913, d. 7.6. 2009, úrsmíða- meistari í Reykjavík; Rósa Kristín Mi- chelsen, f. 5.3. 1915, d. 25.12. 1917; Georg Bernharð Michelsen, f. 20.5. 1916, d. 3.11. 2001, bakarameistari; Paul Valdimar Michelsen, f. 17.7. 1917, d. 27.5. 1995, garðyrkjumaður; Aðal- steinn G. Michelsen, f. 28.10. 1918, d. 9.12. 1994, bifvélameistari; Elsa María Michelsen, f. 12.5. 1922, d. 6.2. 1976, húsmóðir; Kristinn Pálmi Michelsen, f. 5.3. 1926, d. 29.5. 2008, verslunar- stjóri; Aage Valtýr Michelsen, f. 14.10. 1928, bifvélameistari og forstjóri. Ottó var sonur Jörgens Frank Mi- chelsen, f. í Horsens í Danmörku, úrsmíðameistara og kaupmanns á Sauðárkróki, sonar Jens Michelsen, múrarameistara, og k.h., Karenar Mi- chelsen. Móðir Ottós var Guðrún, dóttir Páls, b. á Draflastöðum í Eyjafirði Ól- afssonar, b. á Gilsbakka Benjamíns- sonar. Móðir Páls á Draflastöðum var María Jónasdóttir, b. í Meðalheimi Jónssonar. Móðir Guðrúnar var Krist- ín Gunnlaugsdóttir, b. á Draflastöðum Sigurðssonar, b. á Þormóðsstöðum Jónassonar, b. í Syðri-Gerðum í Stóra- dal Jónssonar, b. í Gerðum Einars- sonar. Móðir Kristínar var María Sig- urðardóttir. Móðir Jónasar var Helga Tómasdóttir, b. að Hvassafelli Tóm- assonar, ættföður Hvassafellsættar. Bróðir Helgu var Jósef, langafi Kristj- áns, afa Jónasar frá Hriflu. Jósef var einnig langafi Jóhannesar, afa Jóhanns Sigurjónssonar skálds og Jóhannesar, afa Benedikts Árnasonar leikara, föður Einars borgarfulltrúa. Systir Jóhanns var Snjólaug, móðir Sigurjóns, fyrrv. lögreglustjóra, og Ingibjargar, móður Magnúsar Magnússonar hjá BBC, föð- ur Sallýjar hjá BBC. Þá var Jósef langafi Jóns, langafa Sigrúnar, móður Kristj- áns Karlssonar skálds. Enn var svo Jós- ef langafi Ingiríðar, langömmu Steins Steinarr. Loks var Jósef langafi Finns Jónssonar ráðherra, afa Hallgríms Snorrasonar, fyrrv. hagstofustjóra. Annar bróðir Helgu var Jónas, móð- urafi Jónasar Hallgrímssonar. Jónas var einnig langafi Kristínar, ömmu Kristjáns og Birgis Thorlaciusar. Þá var Jónas langafi Friðbjörns, afa Ólafs Jó- hannessonar forsætisráðherra. Systkini Gyðu: Stefán Jónsson, f. 16.10. 1913, d. 11.3. 1989, arkitekt; Jó- hanna Margrét Jónsdóttir, f. 2.2. 1915, d. 22.3. 1985, húsmóðir og saumakona í Noregi og í Reykjavík; Þorbjörg Jóns- dóttir, f. 2.1. 1917, d. 14.12. 2005, skóla- stjóri Hjúkrunarkvennaskóla Íslands; Sigurgeir Jónsson, f. 30.8. 1918, d. 25.1. 1996, gjaldkeri; Björn Jónsson, f. 21.5. 1920, lengst af héraðslæknir í Kanada; Ragnheiður Lilja Jónsdóttir, f. 14.4. 1923, húsmóðir í Bandaríkjunum; Jó- hannes Geir, f. 24.6. 1927, d. 29.6. 2003, listmálari; Ólína Ragnheiður Jónsdótt- ir, f. 7.10. 1929, húsmóðir; Geirlaugur Jónsson, f. 29.3. 1932, bókbindari. Gyða er dóttir Jóns, skólastjóra á Sauðárkróki, bróður Haraldar leik- ara, föður Jón arkitekts, föður Stefáns yfirlæknis. Systir Jóns var Björg, hús- freyja í Vigur, móðir Baldurs, hrepp- stjóra í Vigur, Sigurðar, fyrrv. alþm., ritstjóra og sendiherra, Sigurlaug- ar, fyrrv. alþm. og Þorbjargar, fyrrv. skólastjóra Bjarnabarna. Jón var son- ur Björns, hreppstjóra og dbrm. á Veðramóti í Skagafirði Jónssonar, b. í Háagerði Jónssonar, á Finnastöðum, bróður Jónasar á Gili, föður Mein- grundar-Eyjólfs, langafa Jóns, föður Eyjólfs Konráðs alþm. Dóttir Jónasar og Gili var Sigurlaug, langamma Árna Björnssonar, afa Jóns L. Árnasonar stórmeistara. Móðir Björns hrepp- stjóra var Guðríður, systir Steinunn- ar, móður Jóns Árnasonar þjóðsagna- safnara. Guðríður var dóttir Ólafs, b. á Harastöðum Guðmundssonar, bróð- ur Davíðs á Spákonufjalli, langafa Davíðs Jónatanssonar, langafa Dav- íðs Oddssonar Morgunblaðsritstjóra. Móðir Jóns skólastjóra var Þorbjörg, systir Stefáns skólameistara, föður Valtýs ritstjóra, föður Helgu leikkonu og Huldu, fyrrv. blaðamanns. Syst- ir Valtýs var Hulda skólastjóri, móðir Guðrúnar Jónsdóttur arktekts. Annar bróðir Þorbjargar var Sigurður, pr. og alþm. í Vigur, faðir Bjarna, hreppstjóra þar, manns Bjargar. Þorbjörg var dótt- ir Stefáns, b. á Heiði í Gönguskörðum Stefánssonar og Guðrúnar Sigurð- ardóttur, b. og skálds á Heiði Guð- mundssonar. Móðir Gyðu var Geirlaug, dótt- ir Jóhannesar, b. á Jökli og í Villinga- dal í Eyjafirði Randverssonar og Ólínu Ragnheiðar Jónsdóttur, systur Jóns á Vatnsenda, langafa Odds Helgason- ar æviskrárritara. Geirlaug var fóstur- dóttir Sigurgeirs Daníelssonar, hrepp- stjóra á Sauðárkróki, og k.h., Jóhönnu Margrétar Jónsdóttur. Útför Kjartans fór fram frá Bú- staðakirkju sl. þriðjudag. andlát Dr. Kjartan G. Ottósson prófessor við Háskólann í osló merkir íslendingar Fæddur 14.1. 1956 - Dáinn 28.6. 2010 Útfararþjónust Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 8284 / 551 3485 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 8284 / 551 3485 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 Útfararþjónusta Davíðs ósvalDssonar ehf. Davíð Ósvaldsson - útfararstjóri sími: 896 8284 / 551 3485 Óli Pétur Friðþjófsson - útfararstjóri sími: 892 8947 40 minning 9. júlí 2010 föstudagur Henry Alexander Hálfdánarson framkvæmdastjóri svfí f. 10.7. 1904, d. 8.11. 1972 Henry fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk fiskimannaprófi á Ísafirði 1921 og loftskeytaprófi í Reykjavík 1926. Henry kom víða við á sínum starfsferli. Hann hóf sjó- mennskuferil sinn á Ísafirði 1919 og var á vestfirskum vélbátum um skeið, var síðan í siglingum á íslenskum og erlendum farskipum og búsettur í Se- attle í Bandaríkjunum 1924-25 þar sem hann stundaði síldveiðar og síld- arverkun. Hann var loftskeytamaður á íslenskum togurum 1926-39 og var loftskeytamaður á strandferðaskip- inu Súðinni 1939-44, en það varð fyrir heiftarlegri vélbyssu- og sprengjuárás þýskrar flugvélar 16.6. 1943. Henry var í fríi er árásin var gerð en tveir skipsfélagar hans fórust í árásinni. Henry gerði mjög árangursríkar og mikilvægar tilraunir með afllitl- ar radíótalstöðvar sem hann smíð- aði sjálfur fyrir svokallaða bátabylgju. Tilraunir hans flýttu mjög fyrir út- breiðslu þessara mikilvægu öryggis- tækja. Henry var framkvæmdastjóri Slysavarnafélags Íslands frá 1944 og til dauðadags 1972. Hann hafði for- göngu um stofnun Sjómannadags- ins, sat í stjórn Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands um árabil, í stjórn Slysavarnadeildarinnar Ingólfs og var formaður byggingarnefndar DAS. Sonur Henrys er Haraldur, fyrrv. hæstarréttardómari. Anna Bjarnadóttir menntaskólakennari f. 11.7. 1897, d. 9.12. 1991 Anna fæddist í Reykjavík, dóttir hins virta fiskifræðings dr. Bjarna Sæ- mundssonar sem rannsóknarskipið heitir eftir, og k.h., Steinunnar Önnu Mettu Sveinsdóttur. Anna var lík- lega einn þekktasti tungumálakenn- ari þjóðarinnar en hún hafði feikileg áhrif með kennslubókum sínum í ensku sem kenndar voru við gagn- fræða- og framhaldsskóla landsins um áratuga skeið. Anna lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1916, stundaði norrænunám við Háskóla Íslands 1916-1919 og lauk cand.phil.-prófi 1917, stund- aði enskunám við Westhead Coll- ege í London 1919-22 og nám við Intermediate of Arts í latínu, ensku, frönsku og dönsku 1920 og lauk BA 1922, sótti fyrirlestra í dönsku, ensku og sænsku við Kaupmannahafnar- háskóla 1923 og var við nám í Eng- landi í boði British Council 1949. Anna var kennari við MR 1916- 17, hélt Shakespeare-fyrirlestra við Háskóla Íslands 1923-24, var kenn- ari við MR 1923-31, við Flensborg- arskólann1931-33, er hún flutti að Reykholti í Borgarfirði þar sem hún var síðan prestmaddama og kennari. Eiginmaður Önnu var Einar Ingi- mar Guðnason, prófastur í Reykholti en meðal barna þeirra eru Bjarni, fyrrv. aðstoðarforstjóri Byggðar- stofnunar, og Guðmundur, fyrrv. for- stjóri Skipaútgerðar ríkisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.