Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 53
föstudagur 9. júlí 2010 53
að dúsa á bekknum. Hann vonast þó
til að fá að spreyta sig í Jóhannesar-
borg á sunnudaginn.
„Það hefur ekki verið auðvelt að
sitja á bekknum. Það er frekar pirr-
andi að sitja þar á meðan leikurinn
er í gangi. Ég verð samt bara að vera
þolinmóður og reyna að hjálpa lið-
inu þegar ég fæ tækifæri. Það verð-
ur virkilega skemmtilegt fyrir mig að
fá tækifæri gegn Spáni. Hluti af mér
er spænskur og ég er mjög stoltur af
því. Móðir mín er spænsk og þá spila
ég auðvitað fyrir Real Madrid. Mitt
land er samt auðvitað Holland og
sama hvort ég er á bekknum eða ekki
er ég alltaf stoltur þegar ég fæ kallið
í landsliðið,“ segir Rafael van der Va-
art.
Erfitt að eiga við goðsagnir
Oft er sagt að hollenska landsliðið
sem tapaði í úrslitum í Þýskalandi
árið 1974 sé besta liðið sem vann
aldrei HM. Undir dyggri forystu goð-
sagna á borð við Johan Cruyff og Jo-
han Neeskens spilaði Holland fal-
legasta fótbolta í heimi en vann enga
titla. „Það er svolítið erfitt fyrir okk-
ur að berjast við Cruyff-kynslóðina,“
segir Robin van Persie, framherji
Arsenal og hollenska landsliðsins.
„Ég veit að fólk er alltaf að tala
um þessi gömlu lið en það eina sem
ég veit er að liðið okkar býr yfir ótrú-
lega miklum og góðum anda. Ef þið
mynduð elta okkur með myndavél á
hótelinu mynduð þið sjá okkur spila
borðtennis og segja brandara. Það
eru bara allir að spila á spil og tala
saman sem er mikilvægt ef maður
ætlar sér einhverja hluti. Þegar maður
er með hóp af leikmönnum þar sem
helmingurinn talar ekki hver við ann-
an og engum líkar við næsta mann
mun manni ekkert ganga. Þannig er
það ekki hjá okkur og því hef ég góða
tilfinningu fyrir úrslitaleiknum,“ segir
Persie en dragbítur hollenska lands-
liðsins hefur ávallt verið hversu mikil
óeining er innan hópsins. Það virðist
ekki vera á þessu móti.
Varla hægt að vinna Spán
Eins marks sigur Spánar á Þýska-
landi í undanúrslitum gáfu vart rétta
mynd af leiknum. Yfirburðir Evrópu-
meistaranna voru slíkir að Þjóðverjar
fóru varla yfir miðju á löngum köfl-
um í leiknum og stundum fengu þeir
ekki einu sinni að koma við boltann.
Joachim Löw, þjálfari Þýskalands,
telur Spánverja mun sigurstranglegri
á sunnudaginn því það sé varla hægt
að vinna þá.
„Fyrir tveimur árum vann Spánn
Evrópumótið mjög sannfærandi
og liðið hefur lítið breyst síðan þá.
Spánn spilar frábæran fótbolta, svo
auðveldan en fallegan, og ég er viss
um að Spánverjir vinna titilinn.
Spánn hefur spilað vel í öllum leikj-
unum sínum til þessa og þeir geta
svo sannarlega unnið alla,“ segir Löw
og bætir við: „Síðustu tvö til þrjú
árin hefur Spánn verið með besta lið
heims. Sendingarnar þeirra eru frá-
bærar. Við gátum ekki spilað gegn
þeim eins og við gerðum gegn öðr-
um liðum, þeir eru bara of góðir,“
segir Joachim Löw.
n Mörkin
David Villa - 5
Wesley Sneijder - 5
n Stoðsendingarnar
Dirk Kuyt - 3
Xavi - 2
n Skotin
David Villa - 26 (16 á markið)
Wesley Sneijder - 22 (10 á markið.
5 mörk)
n Sendingarnar
Xavi - 570 (464 heppnaðar 81%)
Mark van Bommel - 540 (339
heppnaðar 78%)
n Hlaupin
Xavi - 65.22 KM (30,05 með bolta -
20,60 án bolta)
Dirk Kuyt - 59.97 KM (24,67 með
bolta - 20,15 án bolta)
n Varnarvinnan
Xabi Alonso - 8 tæklingar (5 unnu
boltann), 2 sinnum hreinsað frá, 5
sinnum unnið boltann
Joris Mathijsen - 7 tæklingar (4 unnu
boltann), 11 sinnum hreinsað frá, 8
sinnum unnið boltann
tölfræðin:
WESlEy SnEijdEr - Holland daVid Villa - Spánn
Leikir: 6 Leikir: 6
Mínútur spilaðar: 532 Mínútur spilaðar: 529
Mörk: 5 Mörk: 5
Skot: 22 Skot: 26
Á markið: 10 Á markið: 16
Brotið af sér: 13 Brotið af sér: 2
Gul spjöld: 1 Gul spjöld: 0
Sendingar: 325 Sendingar: 219
Sendingar heppnaðar: 230 Sendingar heppnaðar: 148
Hættulegustu mennirnir
loksins sigur? Holland
hefur tvisvar leikið til úrslita
en aldrei unnið. Mynd rEutErS
Nýir meistarar krýNdir Nýjar íslenskar
barnabækur
- í hverjum mánuði -
Þú getur gerst áskrifandi á
www.nonnasogur.is eða í síma 661-7080.
Allar nánari upplýsingar um sögurnar á
www.nonnasogur.is
Áskriftartilboð
Þrjár fyrstu Nonnasögurnar, litabók,
verðlaunaspjöld og teikniblokk
2.490kr.
Nonnasögur eru nýjar íslenskar sögur um venjulegan strák, hann Nonna, sem
er 4ra ára og býr í Reykjavík. Sögurnar eru um hans daglega líf og ævintýrin
sem hann lendir í með fjölskyldu sinni. Höfundurinn, Helga Jóhanna Úlfarsdóttir,
uppeldis- og menntunarfræðingur, nýtir menntun sína og reynslu við skrif bókanna.
Mikil áhersla er á textann og að börnin læri af bókunum. Málfar bókanna er einfalt til
að börnin nái dýpri skilningi. Sögupersónur eru látnar setja sig í spor annarra í von
um að efla samkennd hjá lesendum.
Sölustaðir: Eymundsson, Office 1, A4, Hagkaup, Olís, Bókabúðin Iða,
Bóksala stúdenta, Bókabúðin Hamraborg.