Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 41
föstudagur 9. júlí 2010 helgarblað 41 hermaðurinn og ég höfðum tek-ið okkur sæti á trjábol. Nokkrum augnablikum síðar kvað við skot-hvellur. Ungi hermaðurinn kastað- ist aftur á bak. Hann hafði fengið skot í brjóst- ið. Ég fleygði mér flötum á jörðina, nánast ær af skelfingu. Fleiri urðu skotin ekki. Hermenn þustu út en leyniskyttan var á bak og burt. Farið var að skyggja og tilgangslaust að leita. Ég stóð upp og hugaði að hermanninum, sem hafði lát- ist samstundis. Hann hafði verið skotinn með sprengikúlu og stórt, gapandi sár komið á bakið ofanvert. Sjálfur ældi ég galli og görnum. Þessi ungi maður var einn af meira en 58 þúsund bandarískum hermönnum, sem létu lífið í þessu skelfilega stríði. Um þessa skotárás var nánast ekkert talað. Staðhæfingar um öryggi stöðvar- innar voru rangar. Ég og hermaðurinn vorum í samlitum skyrtum og sátum hið við hlið. Hvers vegna varð hann fyrir skotinu en ekki ég? Hver gætti mín?” segir Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, sem í hlutverki fréttamanns Ríkis útvarpsins fór til átakasvæða Víetnam síðla hausts 1966. Virkisborgin Fréttamennirnir voru komnir til Camp Carrol, skammt frá landamærunum á 17. breiddar- gráðu í Suður-Víetnam, sem stundum var kall- að vopnlausa eða hlutlausa beltið. Fjalllendi var talsvert í nágrenni herstöðvarinnar og þótti hún mjög þýðingarmikil, enda stóð hún við mikilvægar þjóðbrautir og Norður-Víet nam skammt undan. Í Camp Carrol voru öflugar 175 millimetra fallbyssur sem drógu langt inn í óvinaríkið. Stjórnstöðin í þessari virkisborg var neðanjarðar og á hæð skammt frá var skóg- ur fjarskiptamastra sem voru vinsæl skotmörk andstæðinganna. Svæðið í kringum stöðina hafði verið sléttað og mest allur trjágróður fjar- lægður. Líklega var jarðsprengjubelti umhverfis hana. Harðar atlögur voru gerðar að þessu fall- byssuhreiðri, en unnt var að miða og skjóta úr fallbyssunum frá neðanjarðarstjórnstöð. Á fundi með herforingjum í Camp Carrol, var fréttamönnum tjáð að hersveitir Suður-Víet- nam stjórnarinnar og Bandaríkjamenn hefðu yfirhöndina á þessu svæði þar sem barist var við Norður-Víetnama og skæruliðasveitir Víetkong. „Við vorum fullir efasemda um sannleiksgildi þessa. Eftir ferðir okkar um hið stríðshrjáða land, blasti við annar veruleiki en stjórnendur stríðs- ins héldu fram. Haustið 1966 var til dæmis orð- ið ljóst að Bandaríkjamenn og herlið þeirra áttu ekki í tré við herlið Norður-Víetnam og skæru- liðasveitir Víetkong. Sókn norðanmanna var orðin öflugri en áður og því var ekki heldur leynt lengur af hálfu Bandaríkjamanna að herlið úr norðrinu væri komið yfir landamærin til Suður- Víetnam, eins og lengi hafði þó verið þrætt fyr- ir. Hins vegar var reynt að spyrna við fótum og reynt eftir föngum að bregða upp þeirri mynd af stríðinu, sem bætt gæti vígstöðuna áróðurslega. Hvort það tókst veit ég ekki. Hitt var þó ljóst, að oft var mikill munur á þeim upplýsingum, sem herstjórnin gaf út frá degi til dags, til dæmis um mannfall og stöðuna á vígvellinum, og þeim upplýsingum, sem fréttamenn gátu aflað með nærveru sinni og frásögnum heimildarmanna.“ Ferð á eigin ábyrgð Ferð Árna til Víetnam var óvænt. Um mitt haust 1966 fór hann í kynnisferð um Bandaríkin, ásamt blaða- og fréttamönnum frá átján Evrópulönd- um og einum frá Kanada. Þessi ferð var að form- inu til í boði Hvíta hússins í Washington D.C., en síðar kom í ljós að leyniþjónustan CIA hafði skipulagt hana. Á 30 dögum var farið til tólf ríkja Bandaríkjanna. [...] Undir lok ferðarinnar um Bandaríkin var fréttamönnunum skýrt frá því, að meira gæti hangið á spýtunni. Þeim stæði til boða, að fara austur til Víetnam, en á þessum tíma hafði þung- inn í stríðsátökum þar vaxið til mikilla muna. „Nokkrir af ferðafélögunum mínum þekkt- ust strax þetta boð og sjálfur var ég mjög áfram um að komast til Víetnam, enda ungur og kapp- samur í fréttamennskunni. Ég hringdi heim til Íslands og talaði við fréttastjóra minn á Ríkisút- varpinu, Jón Magnússon, þann mikla heiðurs- mann, og sagði honum hvers kyns var. Það var ekki auðvelt fyrir Jón að taka ákvörðun um hvort ég færi eða ekki, en hann sagði að ef ég færi yrði það að vera á mína eigin ábyrgð. Fjölskyldan var óneitanlega ósátt við þá ákvörðun mína að fara til Víetnam. Gestgjafar okkar, hverjir sem það nú voru, gerðu það að skilyrði að ég yrði tryggður í bak og fyrir og þar stóð hnífurinn í kúnni. Fyrst í stað vildi enginn tryggja íslenskan fréttamann á ferð um þennan fjarlæga vígvöll. Einhvern veg- inn leystist málið á endanum, þótt enn viti ég varla hvernig. Og mér var ekkert að vanbúnaði að leggja af stað.“ gúmmípokar með rennilás Fréttamennirnir flugu með farþegavél frá New York yfir Atlantshafið til Lundúna, þaðan sem var haldið til Beirút í Líbanon og áfram til Bangkok á Taílandi með millilendingu í Kalkútta á Indlandi. „Til höfuðborgar Suður-Víetnam, Saigon, kom- um við frá Bangkok. Síðasti leggur ferðarinn- ar var tiltölulega fljótfarinn, en þegar til Saigon kom, sem nú heitir Ho Chi Minh-borg, varð flug- vélin að halda sig í umferðarhring hátt yfir vell- inum í talsverðan tíma og sæta lagi til lendingar. Átök höfðu orðið í nágrenni vallarins og öryggið ekki uppá það besta,“ segir Árni. Þegar komið var í flugstöðina í Saigon þurftu allir að afhenda vegabréf sín og var gert að ferð- ast á sérstökum vegabréfum, sem herstjórn Suð- ur-Víetnam gaf út. „Um leið og við komum út úr flugvélinni í Saigon var sem við gengjum beint inn í gufubað. Þarna var molluhiti og loftið svo rakt að svitinn lak af öllum og fötin urðu fljótlega rennblaut. Eitt hið fyrst sem við veittum athygli á flugvellinum í Saigon var hvar verið var að bera langa gúmmípoka, mig minnir dökkbláa með rennilás, um borð í herflutningavél. Svona poka áttum við eftir að sjá oftar í ferðinni, og vissum sem var, að þarna var verið að flytja lík hermanna sem látist höfðu á vígvellinum. Um slíkt var þó ekki mikið talað, frekar en svo margt annað, enda varð mér fljótlega ljóst í þessari ferð minni um Víetnam að fréttaflutningur af stríðinu var oftar en ekki í ósamræmi við raunveruleikann. Margir herforingjar Bandaríkjamanna voru á þessum tíma farnir að gera sér ljóst, að sigur yrði vart unninn í þessari styrjöld, nema með róttæk- um aðgerðum. Á æðstu stöðum var um það rætt að beita kjarnorkuvopnum og þá helst að varpa þeim á Hanoi, höfuðborg Norður-Víetnam. Þess- ar hugmyndir voru þó slegnar út af borðinu.” ringulreið í borgríki [...] Árni Gunnarsson segir það hafa valdið sér undarlegri og óttablandinni tilfinningu að ganga um götur Saigon, þótt stríðsátökin í landinu hefðu ekki náð inn í borgina fyrr en í stríðslok vorið 1975. Hins vegar voru skot- og sprengju- árásir Víetkongmanna daglegt brauð og ollu mikilli skelfingu meðal borgarbúa, sem sjaldnast vissu, frekar en Bandaríkjamenn, hver var félagi í Víetkong og hver ekki. „Saigon var einskonar borgríki þar sem öllu ægði saman og ringulreiðin var mikil. Þá voru margskonar skærur hluti af borgarlífinu. Víet- kongarar voru snarir í snúningum þegar þeir komu á mótorhjólum, til dæmis upp að veit- ingastöðum, vörpuðu inn handsprengjum og létu sig síðan hverfa áður en nokkur gat brugð- ist við. Leyniskyttur þeirra gerðu líka mikinn usla. Þannig tókst þeim að vinna verulegt tjón og skapa upplausn og öryggisleysi. Í borgarum- ferðinni ægði saman hertrukkum, leigubílum, venjulegum fólksbílum og urmul af reiðhjólum og litlum skellinöðrum. Annars voru bandarísk áhrif áberandi. Götusalar voru á öllum gang- stéttum, með varning sem augljóslega var að hluta fenginn úr vörugeymslum Bandaríkja- manna. Vændiskonur voru á flestum börum og veitingahúsum. Við fréttamennirnir fengum inni á hóteli í miðborginni í næsta látlausum her- bergjum. Í mínu herbergi var gamalt gormarúm, stóll, fatasnagi og borð með Nýja testament- inu í skúffu. Við nutum einnig þjónustu nokk- urra salamandra, sem skriðu um veggi og loft og héldu flugnagerinu í skefjum. Það sem setti umtalsverðan svip á lífið í Saigon, og gerði stríð- ið í Víetnam frábrugðið flestum öðrum styrjöld- um, var að flestir bandarísku hermennirnir, sem höfðu verið sendir til landsins, vissu tæpast hvar þeir voru staddir á hnettinum né hver hinn raun- verulegi óvinur var. Oft voru þetta unglingar rétt um tvítugt, sem kvöddu tiltölulega öruggt sam- félag þar sem vitneskja þeirra um heiminn náði vart út fyrir heimaborg og ríki,“ segir Árni sem tekur undir það sjónarmið, sem oft hefur verið haldið fram, að í Víetnamastríðinu hafi hluta af heilli kynslóð bandarískra ungmenna verið fórn- að. [...] Fólk og fréttir - fjölmiðlamenn og málin sem mörkuðu skil, bls. 49-56. árni gunnarsson fór um átakasvæði í hinu stríðs- hrjáða Suður-Víetnam, eins og það hét þá, haustið 1966 og segir þá för hafa haft mikil áhrif á sig. Frásögn Árna er úr bókinni Fólk og fréttir - fjölmiðlamenn og málin sem mörkuðu skil eftir Sigurð Boga Sævarsson sem kom út nýverið og er hér birt með leyfi höfundar. Á vígaslóðí Víetnam árni í nam Af gestrisni bauð fjallafólk fréttamönnunum í samkomuhús sitt; stráþak sem stóð á nokkrum súlum. Boðið var upp á hrísgrjónavín sem sogið var með bambusstöng úr stóru leirkeri. mynD úr einkasaFni ág árni gunnarsson Var einungis tuttugu og sex ára þegar hann fór til Víetnam í miðju stríðinu. Árni var fréttamaður á Ríkisútvarpinu 1965-´76 og Alþingis- maður fyrir Alþýðuflokkinn 1978-´83 og 1987-´91.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.