Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 10
10 fréttir 9. júlí 2010 föstudagur DV hefur undir höndum gögn er sýna hvernig fjármögnunarfyrirtækin Avant og SP-fjármögnun verðmátu bifreiðar að því er virðist langt undir markaðsvirði. Eftir að bílarnir höfðu verið metnir var lántakandinn Ólafur Oddgeir Einarsson, krafinn um ýmsar greiðslur fyrir viðgerðir, þrif, vörslusviptingu og annað til- fallandi. Ólafur segir fjármögnunarfyrirtækin stunda rányrkju, en hann er gjaldþrota í dag. Bílar metnir langt undir markaðsvirði Ólafur Oddgeir Einarsson lántak- andi tekur undir með Sveinbirni Ragnari Árnasyni fyrrverandi bíla- sala og segir fjármögnunarfyrirtæk- in hafa stundað rányrkju alveg frá því fyrir hrun. Ólafur er gjaldþrota í dag en hann hefur afhent DV gögn sem benda til þess að Avant og SP-fjár- mögnun hafi verðmetið bíla hans, sem þau höfðu tekið af honum, langt undir markaðsvirði. Fjár- mögnunarfyrirtækin neita öll sem ein ásökunum Svein- bjarnar. Haraldur Ólafsson hjá SP-fjármögnun segir fyr- irtækið hafa frá því í janúar 2009 greitt lántakendum söluandvirði bíla sem það hafði tekið, en sú ákvörðun hafi verið gerð afturvirk allt til 1. október 2008. Þá kref- ur hann DV um afsökunar- beiðni vegna viðtals sem blaðið birti við Sveinbjörn Ragnar á miðvikudaginn, ellegar íhugi hann að lög- sækja DV. 212 þúsund fyrir skoðun DV hefur undir höndum uppgjör á lánasamningum og stefnur sem sýna hvern- ig fjármögnunarfyrirtækin Avant og SP-fjármögnun verðmátu bíla langt und- ir markaðsvirði, rétt eins og Sveinbjörn Ragnar hélt fram í blaðinu á miðviku- daginn. Ólafur Oddgeir Einarsson vandar þessum fjármögnunarfyrirtækjum ekki kveðjurnar og seg- ir þau hafa gert sig gjald- þrota. Ólafur yfirtók kaup- leigusamning hjá SP-fjár- mögnun á Jeep Grand Cherokee SRT8-bifreið upp á 6.857.159 krónur þann 21. maí 2008. Bíll- inn var þá svo gott sem nýr, árgerð 2007, og ein- ungis keyrður 10.000 kílómetra. Ólafur segir að almennt markaðsverð bílsins hafi á þessum tíma verið í kringum sjö milljónir. Hann átti strax erfitt með að borga af bílnum: „Það stoppaði allt þarna um sumarið, og um mitt sumar þá var eiginlega ekki hægt að halda áfram,“ segir Ólafur en hann skil- aði bílnum sem þá var keyrður rúm- lega 14.000 kílómetra á planið hjá vörslusviptingu SP-fjármögnunar og afhenti lyklana þann 17. septem- ber 2008. Ólafur þurfti, þrátt fyrir að hafa skilað honum sjálfur, að greiða 23.655 krónur fyrir vörslusvipting- una, ásamt því að þurfa að greiða 212.194 krónur fyrir mat og skoðun á bílnum. Draga bílinn niður í ekki neitt Eftir að bíllinn hafði verið metinn fyrir SP-fjármögnun var niðurstað- an sú að að matsverð á honum væri 2.983.500 krónur. Til samanburð- ar má nefna að nú tveimur árum seinna, á bílasölunni bilfang.is er í dag bíll sömu tegundar, Jeep Grand Cherokee SRT8, árgerð 2007, til sölu og er ásett verð 5,9 milljónir króna. „Þeir verðmátu bílinn á 2,9 millj- ónir og það var mínusað frá skuld- inni,“ segir Ólafur en hann skuldaði við riftingu heilar 7.534.942 krónur í bifreiðinni. „Þarna draga þeir bílinn einfaldlega niður í ekki neitt, draga hann í raun niður um fjórar milljón- ir.“ Eftirstöðvar lánsins sem Ólafur tók tæpum fjórum mánuðum áður voru því 4.804.682 krónur. Avant litlu betri Ólafur hefur svipaða sögu að segja af Avant. TJ-B00 Chverolet Silverado- bifreið, árgerð 2007 sem tekin var af honum 8. október 2008 var þá metin af Avant á 3.690.000 krónur. Þess má geta að bifreið svipaðrar tegundar, Chevrolet Silverado K1500 LTZ, ár- gerð 2007, er til sölu í dag á bilfang. is og er ásett verð 4.690.000 krónur. Ólafur fékk þó ekki 3.690.000 krón- ur fyrir Chevrolet-bifreiðina. Eftir að áætlaður viðgerðarkostnaður upp á 150.035, afföll bifreiðar upp á 553.500 krónur, lágmarkssölulaun upp á 160.791 og annar tilfallandi kostn- aður hafði verið dregin frá matsverði bílsins fékk Ólafur 2.731.507 krónur til að vega upp á móti gengistryggðu láni sem komið var upp í 9.138.842 með lögfræðikostnaði. Eftirstöðv- arnar voru því 6.407.335 krónur. „Búnir að gera mig gjaldþrota“ Ólafur segir fjármögnunarfyrirtæk- in hafa gert hann gjaldþrota. „Þeir gerðu mig einfaldlega gjaldþrota í janúar á þessu ári, ég átti peninga í sumum þessum bílum, en ég á ekki neitt í dag,“ segir Ólafur en hann hefur misst allar sínar eignir. „Þetta er náttúrulega bara rányrkja, það er ekkert annað, það er bara verið að ræna fólk,“ segir Ólafur. Þá segir hann frá svipuðu dæmi og sýnir uppgjörs- blað því til staðfestingar. Þar var um að ræða Kia Sedona-bifreið, árgerð 2005 sem Avant mat á 1.154.000 við riftingu samnings í október 2008. Eft- ir að hafa greitt allan aukakostnað, fékk hann 498.204 krónur til að vega upp á móti eftirstöðvum lánsins sem komið var upp í 5.467.369 krónur. Íhugar málsókn Sveinbjörn Ragnar Árnason bílasali og fyrrverandi eigandi bílasölunn- ar Bílamarkaðurinn var ómyrkur í máli í miðvikudagsblaði DV og benti á það sem hann kallar „svikamyllu“ fjármögnunarfyrirtækja. Þar sagði hann að fjármögnunarfyrirtækin hefðu frá því fyrir hrun stundað að verðmeta bíla niður úr öllu valdi. Þá sagði Sveinbjörn að nauðsynlegt væri að farið yrði í gagngera rann- sókn hið fyrsta. Haraldur Ólafsson, forstöðumað- ur verkefna- og þjónustusviðs hjá SP- fjármögnun, sagði ummæli Svein- björns í DV á miðvikudaginn ekki á rökum reist og segist íhuga máls- höfðun verði SP-fjármögnun ekki beðin afsökunar. Þess ber að geta að dæmi Sveinbjörns var fræðilegt og til útskýringar á máli hans, en ekki byggt á sérstöku til- felli. Í tölvupósti sem Haraldur sendi blaðamanni sagði hann meðal annars að það sé enginn hagur í því fyrir SP-Fjármögnun að selja bifreiðarnar á lágu verði. Þá tekur hann fram að frá því í janúar 2009 hafi SP-Fjármögn- un greitt lántakendum söluand- virði bíla sem eru voru teknir en sú ákvörðun hafi verið gerð aftur- virk allt til 1. október 2008. Harald- ur hefur ekki svarað fyrirspurnum DV varðandi tilvik Ólafs Oddgeirs. jÓn BjArki mAgnússOn blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Gunnar Kristinn Sigurðsson hjá Íslandsbanka: „Allir verkferlar vegna fullnustueigna eru mjög skýrir hjá Íslandsbanka Fjármögnun og því telj- um við þessar ásakanir ekki snerta Íslandsbanka.“ Birgir Björnsson hjá Avant: „Verðmat og sala á bifreiðum hefur verið unnin eftir vissum vinnuferlum hjá Avant. Bílar sem hafa verið vörslu- sviptir eru settir í ástandsskoðun hjá hlutlausri og viðurkenndri skoðun- arstöð sem skoðar ástand bifreiða. Verðmæti bíla er fundið með viðmið- unarkerfi Bílgreinasambandsins, ef bíltegund er ekki til í því kerfi þá er fengin hlutlaus aðili (bílasali) til þess að verðmeta bílinn. Allir bílar Av- ant eru seldir í gegnum bílasölur eða á uppboðum.“ Magnús Steinþór Pálmarsson hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum: „Frjálsi fjárfestingarbankinn (FFB) var lítið í bílalánum, innan við 200 lán samtals á bókunum. Öll þau lán voru bílalán en ekki bílasamningar, ss. veðlán, og sem slík ef að um viðvarandi vanskil er/var um að ræða og þurft hefur að vörslusvipta enda þeir á uppboði hjá sýslumanni. Þetta gerir það að verkum að FFB kemur ekki að neinu leiti að því að verðmeta bifreiðar sem þarf að endurheimta, markaðurinn sér alfarið um það.“ Haraldur Ólafsson hjá SP-fjármögnun: „Eins og skýrlega kemur fram í okkar gögnum þá er matsverðið/ eignfærsluverðið einungis fundið til þess að loka málinu með formlegum hætti. Hjá SP-Fjármögnun hef- ur það verði vinnuregla að söluverðmætið að frádregnum sölukostnaði og öðrum kostnaði fer allt til lækkunar á skuld leigutaka eða er greitt til hans ef hann hefur gert upp skuld sína hjá SP-Fjármögnun. Sé söluverð hinsvegar lægra, ber SP-Fjármögnun það tap. Það er vandséð hverjir hagsmunir SP-Fjármögnunar eru með því að selja leigumuni á lágu verði og lækka þar með skuld leigutaka sem leiðir af sér meira tjón fyrir bæði viðskiptavininn og félagið.“ Halldór Jörgenssen hjá Lýsingu: „Ég neita þessu alfarið.“ viðbrögð fjármögnunarfyrirtækja um aðferðir fyrirtækjanna Vill gagngera rannsók Sveinbjörn RagnarÁrnasonbílasaliogfyrrverandi eigandibílasölunnarBílamarkaðurinn lýstiskoðunsinniímiðvikudagsblaði DVogbentiáþaðsemhannkallar „svikamyllu“fjármögnunarfyrirtækja. Bílahaf Bílarsemfjármögnunar- fyrirtækitakatilsínerugeymdirá sérstökumsvæðumíeiguþeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.