Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Qupperneq 27
„Þýskaland.“
Kári Espolín Jónsson,
starfsmaður á frístundaheimili.
„spánn.“
árni Már árnason,
kennari og byggingarmeistari.
„ghana.“
KorMáKur pétursson,
leikskólakennari.
„spánverjar.“
Erna svala Gunnarsdóttir,
húsmóðir.
„spánn, þeir hafa sjö menn frá
barcelona.“
Þórður JaKobsson,
húsasmiður.
Hverjir verða Heimsmeistarar í knattspyrnu?
ásdís HJálMsdóttir
spjótkastari sigraði á kastmóti í
glasgow fyrir helgi en ásdís kastaði
57,43 metra sem er langt frá hennar
besta árangri. ásdís stefnir á
evrópumeistaramótið í barcelona í júlí
og er staðráðin í að standa sig vel
enda stolt af íþróttaafrekum sínum.
„Ólafur StefánS
í uppáhaldi“
Ástæða er til að ætla að lýðræði hér
á landi hraki, og almannavald eigi
enn um sinn á brattann að sækja
gagnvart valdahópum í viðskipta-
lífinu.
Þetta er bagalegt fyrir réttarríkið
og endurreisn efnahagslífsins eftir
bankahrunið og dregur mjög úr lík-
um þess að vel takist til við að upp-
ræta spillta siðmenningu í íslensku
viðskiptalífi.
Rannsóknarnefnd Alþingis hef-
ur leitt fram í dagsljósið hversu rot-
ið viðskiptalífið var orðið undir af-
skipta- og eftirlitsleysinu, sem rekið
var hér á landi í tvo áratugi í nafni
frjálshyggju Sjálfstæðisflokksins.
Himinháir staflar mála bíða úr-
lausnar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara. Vonir standa til að með
fleiri sérfræðingum og betri þjálf-
un takist embættinu að hraða af-
greiðslu mála og gefa út ákærur
á hendur þeim sem gerðust sekir
um refsivert hátterni í aðdraganda
bankahrunsins, svo sem eins og
umboðssvik, peningaþvætti, mark-
aðsmisnotkun og önnur auðgunar-
brot eða fjársvik.
Einstaklingar á borð við Willi-
am Black og Evu Joly hafa með
ferskri nálgun sinni vakið íslensk-
an almenning til vitundar um að
landlægur klíkuskapur og íslensk
sjálftaka innmúraðra hópa er ekk-
ert sjálfsagt mál. Black, Joly og fleiri
hafa bent einangraðri þjóð á villu
síns vegar; þjóð sem er svo samof-
in bjöguðum séríslenskum heimi,
að hún þekkir ekki lengur muninn á
glæpsamlegri spillingu og almennri
greiðasemi. Ekki frekar en fiskurinn
sem veit ekki að vatnið, sem hann
syndir í, er blautt.
samfélagssáttmáli í hættu
Á sama tíma og þessi þjóðarvitund
er í fæðingu berst kerfið við að lög-
helga sjálft sig með gömlum úrræð-
um. Stjórnvöld halda fundi með
FME og Seðlabankanum í bakher-
bergjum og reyna að finna leiðir
til þess að hemja máttugt afl heill-
ar þjóðar, greiðsluviljann, og veita
honum í öruggan farveg. Leggja til
leiðir, sem þau telja að séu þjóðinni
fyrir bestu, en uppskera reiði og
vanþóknun almennings.
Enn er óvíst hvernig þessum
stóru málum reiðir af. Menn ættu
að staldra við og hugleiða vandlega
að uppreisn skuldara gagnvart lán-
ardrottnum er blákaldur veruleiki.
Sá veruleiki er jafn raunverulegur
þeim veruleika sem banksterar, fjár-
glæframenn, meðvirkir embættis-
menn og sofandi stjórnmálamenn
bjuggu þjóðinni með bankahrun-
inu.
Vandinn snýr ekki aðeins að
fjármálafyrirtækjum. Hann er ekki
aðeins efnahagslegur; hann er
pólitískur, félagslegur og réttarfars-
legur og snýst um það hvernig þjóð-
félag menn vilja reisa á rústum þess
gamla. Allt snýst á endanum um
leiðir til þess að leysa upp gamla
og ógeðfellda starfshætti og siði og
smíða úr þeim nýtt og heilbrigðara
þjóðfélag, heilbrigðara viðskiptalíf.
vanmáttugt stjórnvald
Vald kjörinna stjórnvalda til þess
að fara fyrir nauðsynlegum dýpri
breytingum, til dæmis á viðskipta-
siðferði, er ofmetið. Ástæðurnar
eru margar. Þau hafa bæði afsalað
sér valdi og látið undir höfuð leggj-
ast að taka sér vald á sumum svið-
um. Völd skilanefnda og slitastjórna
bankanna eru til að mynda mikil
þótt þau fari ekki hátt. Lögfræðing-
ar og endurskoðendur, sem sitja í
þessum stjórnum, hafa mikil áhrif
en starfa ekki í umboði almennings.
Þeir vinna í skjóli erlendra kröfu-
hafa föllnu bankanna og hafa um
leið mikilla persónulegra og fjár-
hagslegra hagsmuna að gæta. Þeir
eiga sæti í bankaráðum endurreistu
bankanna, Íslandsbanka og Arion-
banka. Bráðabirgðastjórnir og slita-
stjórnir hafa verið skipaðar yfir öðr-
um fjármálafyrirtækjum, svo sem
Byr, Sparisjóðabankanum og VBS-
fjárfestingarbanka. Tengsl sumra
þessara manna eru mikil og víðtæk
bæði í viðskiptum sem og pólitísk
eða félagsleg. Neðanjarðar geta þeir
haft afgerandi áhrif á framtíðareign-
arhald fyrirtækja, fram hjá reglum
um útboð og gagnsæ viðskipti. DV
hefur til að mynda bent á vafasöm
tengsl slitastjórnarmanna Spari-
sjóðabankans og Kaupþings við
ráðstöfun eigna og byggingarsvæð-
is í Örfirisey. Þessi tengsl eru bæði
flokksleg og viðskiptaleg og lang-
lykta af klíkuskap og sérhagsmuna-
gæslu.
Stjórnvöld hafa að mörgu leyti
dæmt sjálf sig til þess að horfa að-
gerðalaus á nýja valdastétt hræ-
gammahagkerfisins stíga fram í
dagsljósið. Þessi nýja stétt gef-
ur lýðræði og almannavaldi langt
nef. Hún er í mörgum hlutverkum
og fer lipurlega úr einu hlutverki í
annað. Hún athafnar sig á mörkum
hins opinbera og einkamarkaðar-
ins. Mestan hag hefur þessi stétt af
því að koma sér upp sveigjanlegu
neti valda og áhrifa sem lifir af rík-
isstjórnir sem koma og fara.
Hrægammar taka völdin
JóHann
HauKsson
útvarpsmaður skrifar
„Stjórnvöld hafa að
mörgu leyti dæmt sjálf sig
til þess að horfa aðgerðar-
laus á nýja valdastétt
hrægammahagkerfisins
stíga fram í dagsljósið.“
bláu ninjurnar Þessir bláklæddu herramenn sýndu listir sínar þegar mótmælin við seðlabankann stóðu yfir í vikunni. um er að ræða hóp sem kallar sig bláu ninjurnar og
hafa þær verið áberandi í borginni upp á síðkastið. Mynd Hörður svEinsson
myndin
Hver er konan? „ásdís hjálmsdóttir
spjótkastari.“
Hvað drífur þig áfram? „metnaður og
ánægjan við að upplifa drauminn minn.“
Hvar ertu uppalin? „Ég er fædd og
uppalin í reykjavík.“
af hverju ertu stoltust? „Ætli það séu
ekki íþróttaafrekin mín.“
Hver er uppáhaldsíþróttamaðurinn
þinn? „ólafur stefánsson, hann er
frábær karakter. hvernig hann hugsar
hlutina öðruvísi en aðrir.“
Hver er uppáhaldskvikmyndin
þín? „engin ein sérstök, margar góðar.
Ég hef gaman af gamanmyndum og
spennumyndum en ekki þessum típísku
hollywood-myndum.“
Hvort sigrar Holland eða spánn
HM? „Ég veit ekki. Ég er mjög lítil
áhugamanneskja um fótbolta.“
Hvert stefnirðu í lífinu? „Ég stefni á að
gera það sem þarf til að vera hamingju-
söm og njóta lífsins.“
lengsta kastið? „61,37 metrar.“
áttu þér uppáhaldsbók? „Ég er að
lesa munkinn sem seldi sportbílinn sinn
og hún er í miklu uppáhaldi núna.“
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„fara til barcelona og standa mig vel á
evrópumeistaramótinu sem verður í lok
júlí.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
föstudagur 9. júlí 2010 umræða 27