Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 42
42 skrýtið umsjón: helgi hrafn guðmundsson helgihrafn@dv.is 9. júlí 2010 föstudagur kaldir vindar í yfirgefnum kringlum nístandi gegnumtrekkur feykir pappírsdrasli til og frá í auðum verslunarrýmunum. Gróður hefur fest sig í steypuveggina sem eru að hruni komnir. Við erum stödd í Dixie Square Mall í bænum Harvey í Illinois-fylki í Banda- ríkjunum, verslunarmiðstöð sem hefur staðið tóm í þrjátíu ár. 64 búðir voru starfræktar við opnun kringlunnar árið 1966 en hún varð gjaldþrota undir lok áttunda áratugarins eftir að eigendurnir fóru á hausinn. Dixie Square Mall hefur síðan hlotið þann heiður að vera frægasta „dauða kringla“ Bandaríkjanna. Það er ekki síst vegna þess að atriði í kvikmynd- inni The Blues Brothers voru tekin upp í Dixie Square Mall. Frægð kringlurústanna hefur orð- ið til þess að margir forvitnir ferðalangar leggja leið sína til Harvey og virða fyrir sér yfirgefið mannvirkið, sem er engin smásmíði, um 25 þúsund fermetrar. Nýjasta eyðilega kringlan er Nýja suðurkín- verska verslunarmiðstöðin í borginni Dong- guan, næststærsta verslunarmiðstöð í veröld- inni, en 99 prósent verslunarrýmisins standa auð. rústuðu kringlunni Ungur maður stendur við búðarborðið í Toys R Us og heldur á tuskudýri. Afgreiðslustúlkan ætlar að fara að segja eitthvað þegar gríðarstór bíll af Cadillac-gerð brýtur sér leið inn í búð- ina með lögreglubíla í eftirdragi. Allt leikur á reiðiskjálfi. Þannig hefst senan í kvikmyndinni The Blues Brothers sem tekin var upp í Dixie Square Mall. Bílarnir brjóta allt og bramla inni í leikfangabúðinni og halda sína leið inn í aðal- rýmið þar sem kringlugestir flýja í dauðans of- boði frá hættulegum bílaeltingarleiknum sem fram fer innandyra. Blúsbræður keyra inn í hverja búðina á fætur annarri – og löggan fylg- ir þeim eftir. Eyðileggingin er gríðarleg, hver einasta rúða virðist vera brotin þegar bílarnir eru á bak og burt. Það skipti hins vegar engu máli. Verslunarmiðstöðin, Dixie Square Mall, var þegar farin á hausinn þegar framleiðend- ur Blúsbræðra-myndarinnar leigðu hana sum- arið 1979. Þeir fengu greinilega að leika sér að vild á staðnum, líkt og iðnaðarmenn sem rífa út gamlar innréttingar í íbúðum þegar nýja eig- endur ber að garði. ekki tekist að rífa bygginguna Versnandi efnahagsástandi og auknum glæp- um í Harvey í Illinois hefur verið kennt um ófarir Dixie Square Mall. Verslunarmiðstöðin tæmdist jafn hratt og hún var reist. Fjölmarg- ar áætlanir hafa verið á teikniborðinu í gegnum tíðina um að rífa risastóra bygginguna niður, en það hefur engum tekist hingað til. Kringlan hefur því staðið auð, líkt og fornar menningar- rústir, í áratugi og vakið forvitni margra eins og fyrr segir. Í gegnum tíðina hafa fjölmargir heim- ilislausir fundið húsaskjól í byggingunni. Á þessum 30 árum hafa fjölmargir eyðileggingar- fíklar fundið útrás í því að brjóta gler og spýtur í kringlunni, en hún stendur þó enn. 659 þúsund ferkílómetrar New South China Mall er næststærsta versl- unarmiðstöð í heiminum, á eftir Dubai Mall. Starfsmenn Nýju suðurkínversku verslunar- miðstöðvarinnar eru örugglega hreyknir af því að vinna þar og eflaust ánægðir með að þurfa ekki að vinna í einhverjum af hinum ótelj- andi verksmiðjum í Dongguan-borg sem spúa þykkri þoku úr svörtum reykháfunum. Dongguan-borg liggur við óshólma Perlu- fljóts (Zhujiang), sem er ríkasta svæði landsins og mesta hagvaxtarsvæði Alþýðulýðveldisins. Verslunarmiðstöðin var reist árið 2005 og var byggð til dýrðar efnahagsuppganginum. Hún er 659 þúsund ferkílómetrar. Allir spáðu því að hún myndi fyllast af verslunum og kúnnum á augabragði. En það gerðist ekki. Átakanlegasta sjón ævinnar Við kringluna eru átta þúsund bílastæði. Í henni eru rússíbanar, skurðir og síki fyrir báta og tilbúinn regnskógur. Krúnudjásn og mesta aðdráttarafl Nýju suðurkínversku verslunar- miðstöðvarinnar áttu að vera erlendu borgirn- ar sjö. Hönnuðir kringlunnar létu byggja eftir- líkingar af sjö fjarlægum stöðum. Í kringlunni eru sjö svæði sem hönnuð eru eftir stórborg- um, þjóðum og svæðum: Amsterdam, Róm, Feneyjum, París, Egyptalandi, Karíbahafi og Kaliforníu. Nýja suðurkínverska verslunarmiðstöðin er tómasta kringla heims. Í henni eru aðeins nokkrir tugir búða en verslunarmiðstöðin var byggð fyrir 1.500 búðir. Kringlan minnir á leik- mynd í stórslysabíómynd. Hún er samstæða rykugra, skítugra bygginga þar sem málningin flagnar af veggjum sem enginn sér. Erlendur blaðamaður, sem heimsótti verslunarmiðstöð- ina, sagðist hafa séð gríðarstórt fjall af rykfölln- um gínum í miðri auðninni – og hefði sú sjón verið ein sú átakanlegasta sem hann hefði séð á ævinni. engar djúpstæðar tilfinningar Veröldin er víst full af galtómum kringlum og það er meira að segja til síða á netinu, dead- malls.com, þar sem birtar eru ljósmyndir af hinum og þessum yfirgefnum risamannvirkj- um, flestum í Bandaríkjunum, sem hrunið hafa í vinsældum og farið á hausinn. Dixie Square Mall mun vera frægasti staðurinn af þessu tagi. Nokkrir skipulagsfræðingar hafa skrifað um ótímabæra „dauða“ verslunarmiðstöðva í heiminum og reynt að komast að því hvers vegna andlátin beri jafn hratt að garði, eins og dæmi Dixie Square Mall sýnir. Niðurstaðan virðist vera að verslunarmiðstöðvar séu ekki sérlega kærar almenningi og því sé ákaflega auðvelt að leita annað, þegar svo ber undir. Til- finningar fólks gagnvart verslunarmiðstöðvum séu aldrei djúpstæðar, ólíkt miðbæjarkjörnum og grónum götum. helgihrafn@dv.is Dixie Square Mall í Illinois-fylki í Bandaríkjunum er verslunarmiðstöð sem hefur staðið auð í þrjátíu ár. Hún er frægust fyrir að í henni voru atriði tekin upp fyrir kvikmyndina The Blues Brothers árið 1979. Ný kínversk kringla er næststærsta verslunarmiðstöð veraldar, en einnig sú tómasta. lifði stutt Verslunarmiðstöðin var starfrækt í tólf ár. rústir Dixie square mall hefur staðið yfirgefin í þrjátíu ár. Blúsbræður á flótta Atriði úr kvikmynd- inni The Blues Brothers sem tekið var upp í Dixie square mall eftir að verslunarmið- stöðin lagði upp laupana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.