Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Síða 50
„Bútik.is er „one stop shop“ eða versl-
unarmiðstöð á netinu,“ segir Margrét
Hlöðversdóttir ein Bútik-kvenna en
hún ásamt Auði Einarsdóttur, Stellu
Stefánsdóttur, Svanhvíti Hrólfsdótt-
ur og Soffíu Steingrímsdóttur hefur
innleitt nýjung í verslun á Íslandi.
Á síðunni Bútik.is er hægt að versla
ýmsar vörur, bæði íslenska hönn-
un, bækur og vörur sem snerta börn,
heilsu og vellíðan. „Í framtíðinni
stefnum við að því að bæta stöðugt
við vöurúrvalið í öllum flokkum,“
segir Margrét en hópurinn hefur
undanfarið tæpt ár starfað saman að
verkefni sem tengist markaðssetn-
ingu íslenskra fatahönnuða erlend-
is. „Við ætlum að vera með puttann
á púlsinum í öllu sem tengist lífsstíl
og tísku og teljum það jákvætt að við
erum konur með fjölbreytta mennt-
un og starfsreynslu því það gerir okk-
ur sterkari saman.“
Bútik.is er í samstarfi við Press-
una og nudemagazine.is sem kom
út í þriðja sinn í byrjun júlí. „Við-
tökurnar hafa verið framar vonum.
Þetta er búið að vera mikil vinna en
voðalega skemmtileg. Það er mik-
ilvægt að vera með netverslun þar
sem traffíkin er og því viljum við vera
þar sem bloggið og fréttirnar eru. Að
mér vitandi er þetta í fyrsta sinn á
Íslandi þar sem hægt er að fara inn
á veftískutímarit og versla vöruna
sem þú ert að lesa um með einum
smelli. Við erum stöðugt að fjölga
vörumerkjum og ætlum að vera með
puttann á púlsinum að bjóða upp á
nýjar og spennandi vörur.“
Fimm flottar konur innleiða nýjung í verslun á Íslandi:
Verslunarmiðstöð á netinu
Samkvæmt breskri rannsókn missa
konur frekar fóstur eftir frjósemis-
meðferð ef þær eru of þungar. Fyrri
rannsóknir hafa sýnt að feitar konur
sem verða ófrískar á eðlilegan hátt
eru einnig í meiri hættu á að missa
fóstur. Læknirinn Tarek El-Toukhy
skoðaði 300 konur sem höfðu und-
irgengist frjósemismeðferð á sama
sjúkrahúsinu í London. BMI-stuðull
helmings þeirra var yfir 25, sem
flokkast sem of þungt, og 14% höfðu
BMI meira en 30, sem er þýðir offita.
Rúmlega 35% þeirra sem mældust
of þungar höfðu missti fóstur en
aðeins 21% kvenna í eðlilegri þyngd.
Vísindamenn vita ekki hvað veldur að
of þungar konur missa frekar fóstur.
Föt Fram
yfir kynlíf
Fyrir flestar konur er valið á milli kyn-
lífs og fatakaupa einfalt, þær velja
fötin. Í könnun sem gerð var í Banda-
ríkjunum kom í ljós að flestar konur
væru til í að gefa kynlíf upp á bátinn
í 15 mánuði fyrir fullan fataskáp af
nýjum fatnaði. Um 2% aðspurðra
sögðust til í að sleppa ástarleikjum í
þrjú ár í skiptum fyrir nýjan klæðnað.
Rúmlega 60% kvenna sögðu verra
að týna uppáhaldsflík en að vera án
kynlífs í mánuð. „Sumir segja að fötin
skapi manninn en í sumum tilfellum
getur honum hreinlega verið skipt
út fyrir þau,“ sagði sjónvarpsstjarnan
og stílistinn Carson Kressley þegar
hann var spurður út í könnunina.
50 lífsstíll UMSjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 9. júlí 2010 föstudagur
n Virðing Sýndu ástinni þinni með
gjörðum þínum að þú virðir skoðanir
hennar, áhugamál, vini, líkama og sál.
Þú þarft samt ekki að vera sammála
öllu sem hún segir eða gerir, komdu
bara fram við hana eins og þú vilt að
hún komi fram við þig.
n Kynlíf já, konur elska líka kynlíf!
n rómantík Prófaðu að leggja þig
örlítið fram – það er þess virði. Þótt
þið hafið planað DVD-kvöld er alltaf
hægt að bæta smá við rómantíkina.
Kveiktu á kertum og komdu fram við
ástina þína eins og þið séuð nýbyrjuð
saman – jafnvel þótt þið séuð gift.
n Málsverður Þótt þú sért enginn
meistarakokkur muntu slá í gegn ef
hennar bíður heit máltíð þegar hún
kemur heim eftir erfiðan dag.
n samskipti Hún veit kannski að
þú elskar hana en það er svo ljúft að
heyra þig segja það.
n hlátur Hafðu húmor fyrir sjálfum
þér. Gaurar sem taka sjálfa sig of
hátíðlega eru ekki skemmtilegir.
n hvatning Rannsóknir segja þau
hjón hamingjusömust sem hvetja
hvort annað áfram í
lífinu.
OF þungar missa
Frekar Fóstur
7 einföld
atriði sem konur þarfnast
Bútík-konur Þær stöllur eru með mikla
og fjölbreytta menntun og starfsreynslu
að baki sem Margrét segir gera þær
sterkari saman. Mynd sigtryggur ari
1. gleymir sólgeraugunum
Grettur eru ágætis líkamsrækt fyrir vöðva í andliti en eftir áratugi af geiflum -
annað hvort vegna sólar eða lélegrar sjónar – verða vöðvarnir í kringum aug-
un stífir og óeftirgefanlegir og hrukkurnar spretta fram. Notaðu sólgleraugu
í mikilli birtu svo þú getir viðhaldið eðlilegu andlitsfalli í sem lengstan tíma.
2. Ferð förðuð í háttinn
Það kemur fyrir flestar konur annað slagið að nenna ómögulega að þrífa
meikið framan úr sér fyrir svefninn. Að fara stífmáluð í rúmið hefur neikvæð
áhrif á húðina því fitukirtlarnir, sem mýkja og verja húðina, eru hvað virkastir
á næturna en eru óstarfhæfir þegar þeir eru stútfullir af meiki. Með tímanum
verður húðin þurr og bólugrafin.
3. sefur á maganum
Það er ekki aðeins slæmt fyrir bakið að sofa á maganum heldur er það ekki
gott fyrir húðina að vera þrýst ofan í koddann tímunum saman. Ung húð
jafnar sig auðveldlega en með aldrinum verður húðin minna teygjanleg svo
koddafarið getur breyst í varanlegar línur og hrukkur.
4. Forðast alla fitu
Þótt enginn mæli með kleinuhringjum og löðrandi snakki í tíma og ótíma er
nauðsynlegt fyrir húðina að fá fitu úr mataræðinu. Fitulagið undir húðinni
ver hana og skapar það útlit sem tengt er við æsku. Ef þú leyfir þér aldrei að
smakka fitu mun efsta lag húðarinnar hverfa og húðin slappast.
5. Þrífur of mikið
Ekki gera of mikið af því góða.
Eins nauðsynlegt og það er að
þrífa húðina daglega verðurðu
að gera það varlega og inn-
an skynsamlegra marka. Ekki
skrúbba svo harkalega að vefir
skemmast. Of heitt vatn þurrk-
ar húðina og sterkar sápur hafa
sömu áhrif.
6. Þyngist, léttist, þyngist,
léttist
Ef þú ert eins og jójó þegar kem-
ur að þyngd fylgir húðin eftir og
teygist og skreppur saman til
skiptis. Að lokum hverfur teygj-
anleiki húðarinnar og við lít-
um út fyrir að vera eldri en við
erum og jafnvel með slappa og
ójafna húð.
7. drekkur of mikið
Margir sem drekka of mik-
ið sofna á maganum, með
meikið klesst ofan í koddann.
En það er ekki allt því alka-
hól eykur blóðflæði til and-
litsins sem getur valdið roða
og háræðaslitum sem veldur
litamismun. Alkóhól þurrkar
einnig húðina og gerir hana
viðkvæma fyrir línum og
hrukkum.
8. Blandar öllu saman
Ef þú notar tóner, næturkrem,
augnkrem og annað á húðina
í einu skaltu vera viss um að
þú sért að gera húðinni gott
en ekki skaða. Sumar vörur innihalda efni sem virka
neikvætt eða hætta jafnvel að virka þegar þeim er
blandað saman við aðrar. Þær vörur sem eru líkleg-
astar til að skemma virkni annarra vara eru þær sem
innihalda efnin benzoyl peroxide, retinols, og glycol-
ic acid.
9. ekki nægur svefn
Á meðan við sofum endurnýjar húðin sig og losar sig
við dauðar húðflögur. Ef við sofum ekki nóg missum
við af þessari endurnýjun sem verður til þess að húðin
verður líflaus og missir allan gljáa.
10. skokk
Góðu fréttirnar eru þær að skokk eykur blóðflæðið og
minnkar stress. Slæmu fréttirnar eru að þyngdarafl-
ið vinnur sitt verk við hopp, skopp og skokk. Síendur-
tekin hreyfing upp og niður veldur því að húðin byrj-
ar fyrr að losna frá og lafa. Fæstir húðsjúkdómalæknar
vilja banna konum að hlaupa en mæla með því að þær
haldi sig frá öðrum neikvæðum áhrifavöldum á húðina
í staðinn og að þær hefji notkun krems sem hefur áhrif
á öldrun húðarinnar fyrr en aðrar.
10 ávanar
sem gera þig eldri