Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 64
n Það lítur allt út fyrir að hjóna-
kornin Ásdís Rán Gunnarsdóttir
og eiginmaður hennar Garðar
Gunnlaugsson flytji frá Búlgaríu til
Þýskalands. Garðar mun að öllum
líkindum skrifa undir samning við
þýska liðið Unterhaching sem spilar
í þriðju efstu deild. Garðar hefur að
undanförnu verið á reynslu hjá fé-
laginu og spilað vel í æfingaleikjum.
Ásdís segir frá því á bloggsíðu sinni
að Garðar muni yfirgefa Búlgaríu
í næstu viku en hún
verður væntanlega
áfram í Búlgaríu þar
til í lok ágúst. „Mér
líst ágætlega á þetta
allt saman enda
Munich flott borg
sem er eflaust
ekki slæmt að
búa í og gott
fyrir krakk-
ana,“ segir
Ásdís.
Ætli Gillz hafi ekki
stjórnað í brúðarvals-
inum?
Þýskaland næsti
áfangastaður ásdísar
n Gunnar Lárus Hjálmarsson, bet-
ur þekktur sem Dr. Gunni, hefur
sýnt það og sannað í gegnum tíðina
að hann er hugmyndaríkur með
eindæmum. Dr. Gunni heimsótti á
dögunum Hvalstöðina í Hvalfirði
en þá voru starfsmenn nýbúnir að
vinna hval sem dreginn hafði ver-
ið á land. Búið er að girða svæðið
af en áhugasamir geta samt fylgst
með vinnslunni fyrir utan svæðið.
„Þarna er gráupplagt að moka inn
ferðamannagjaldeyri. Fyrst
að leyfa liðinu að sjá hvali
svamla í sjó, svo að kippa
því niður á jörðina og
glápa á töffara í vöðlum
brytja hina „blíðu risa
hafsins“ ofan í göt.
Selja því hvalapyls-
ur og hvalabíffdjörkí
á meðan,“ segir Dr.
Gunni á bloggi sínu.
Vill selja túristum
hValapylsur
n Þau tíðindi berast nú frá höfuð-
stöðvum Stöðvar 2 í Skaftahlíð að
ein skærasta stjarna stöðvarinnar,
æringinn Auðunn Blöndal, hafi
gengið í það heilaga í nýlegri ferð
sinni til Bandaríkjanna. Hjónavígsl-
an mun hafa farið fram í Las Vegas
og herma heimildir DV að Auðunn
hafi gifst engum öðrum en lyftinga-
massanum Agli Einarssyni, sem er
betur þekktur sem Gillz eða Þykki.
Giftingin mun hafa verið hluti af
sprelli í sjónvarpsþáttasyrpu sem
þeir Auðunn og Gillz voru að vinna
í Bandaríkjunum ásamt Sveppa
og Villa naglbíti. Meðal þess sem
þeir félagarnir gerðu í Bandaríkj-
unum var að fækka fötum fyrir hóp
samkynhneigðra manna þannig
að hugsanlega hafa þeir séð ljósið
meðan á strippinu stóð. Líklegt má
telja að sýnt verði frá giftingunni
og hugsanlega brúðkaupsnóttinni í
þættinum þegar þar að kemur.
gillz og auddi
giftu sig
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
Fréttaskot 512 70 70
sólarupprás
03:24
sólsetur
23:40
Skipverjar á hollenska birgðaflutn-
ingaskipinu Amsterdam lögðu að
Skarfabakka í Sundahöfn í Reykjavík
í tæka tíð fyrir leik Hollands og Úrú-
gvæ í undanúrslitum heimsmeist-
arakeppninnar í fótbolta. Hollend-
ingar báru sigur úr býtum, 3–2, og
mæta því Spánverjum í úrslitaleik
keppninnar á sunnudagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum DV
fylgdust allnokkrir skipverjanna með
leiknum gegn Úrúgvæ á knæpum
í Reykjavík og var stemningin mik-
il. Liðsforingi sem blaðið ræddi við
sagði að þar á bæ biðu menn spennt-
ir eftir úrslitaleiknum á sunnudag.
Hermönnunum hafi þótt sínir menn
standa sig vel og voru þeir afar sátt-
ir í leikslok þegar úrslitin voru ljós og
sigur Hollands var staðreynd.
Engar aðrar upplýsingar fengust
um hvað skipverjarnir væru að gera
á svo norðlægum slóðum. Þeir höfðu
engar fregnir að færa af Icesave.
Samkvæmt upplýsingum frá Varnar-
málastofnun er koma skipsins ekki á
vegum íslenskra stjórnvalda heldur
hafi það líklega aðeins verið að sækja
birgðir. Skipið hefur leyfi til að vera
við höfnina til 11. júlí.
Amsterdam er annað af tveim-
ur birgðaflutningaskipum konung-
lega hollenska flotans. Það var tek-
ið í notkun árið 1995. Það var meðal
annars notað í hernaðarverkefn-
inu um stríðið gegn hryðjuverkum
árið 2005, sem ríkisstjórn George W.
Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta,
átti frumkvæði að.
rhb@dv.is
Hollenskir hermenn fylgdust með HM í fótbolta í Reykjavík:
sjóarar í sigurVímu
Birgðaflutningaskipið Amsterdam
Hollenskir hermenn voru ánægðir með
sína menn á heimsmeistaramótinu.
H&N-myNd Sigtryggur Ari