Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 4
GJAFIR SAMHERJA
n Meðal þeirra sem sitja í nefnd sem
á að marka framtíðarfiskveiðistjórn-
un með fyrningu er Svanfríður
Jónasdóttir, bæj-
arstjóri á Dalvík.
Þá á einnig sæti
í nefndinni hin
umdeilda Sigrún
Björk Jakobs-
dóttir, fyrrver-
andi bæjarstjóri
og oddviti Sjálf-
stæðisflokks-
ins á Akureyri sem hrökklaðist frá
völdum eftir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Innan Samfylking-
ar kom fram hvöss gagnrýni á setu
bæjarstjóranna tveggja í nefndinni,
sem áttu mikið undir einum stærsta
kvótaeiganda landsins, Samherja,
sem færði báðum bæjarfélögum
að gjöf fimmtíu milljónir króna til
æskulýðsmála. Ólíklegt þótti að
slíkt velgjörðafyrirtæki yrði svipt
kvóta sínum.
ATVINNULAUS OG
SNIÐGENGINN
n Alþingismaðurinn Björgvin G.
Sigurðsson er ennþá atvinnulaus á
Selfossi eftir að hafa vikið af þingi í
vetur í kjölfar út-
gáfu rannsókn-
arskýrslu Al-
þingis. Björgvin
bíður niðurstöðu
þingmanna-
nefndar um það
hvort hann verði
lögsóttur fyrir
embættisafglöp
á stóli viðskiptaráðherra hrunsins.
Á meðan á þeirri rannsókn stendur
verður Björgvin utan þings. Björg-
vin hafði fengið loforð forystu Sam-
fylkingar um að flokkurinn legði
honum til launuð verkefni til að
hann næði að framfleyta sjö manna
fjölskyldu sinni. Það var svikið og
fullyrt er að eini forystumaðurinn
sem Björgvin er í sambandi við sé
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra.
INGA JÓNA Í ÁRBORG
n Inga Jóna Þórðardóttir eigin-
kona Geirs H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, þykir einna
líklegust til að
hreppa starf
framkvæmda-
stjóra Árborgar
en það hnoss hef-
ur verið auglýst
laust til umsókn-
ar. Fjöldi karla
og kvenna sóttu
um starfið sem er
ígildi þess að vera bæjarstjóri en þó
án þeirra ofurlauna sem þeim titli
fylgir. Af þeim tugum umsækjenda
sem sóttust eftir starfinu eru tvær
konur líklegastar. Það eru þær Inga
Jóna og Ásta Stefánsdóttir, stað-
gengill bæjarstjóra, sem þykir hafa
staðið sig einkar vel í starfi. Inga
Jóna er aftur á móti með sterk ítök
innan Sjálfstæðisflokksins og slapp
frá hruninu án þess að félli á ímynd
hennar. Af þeim sökum þykir ekki
ólíklegt að Inga Jóna verði ráðin
framkvæmdastjóri Árborgar.
VANTAR VINNU
FYRIR GEIR
n Fari svo að Inga Jóna Þórðardóttir
verði ráðin framkvæmdastjóri Ár-
borgar er víst að hún og eiginmað-
ur hennar, Geir
Haarde, munu
flytja úr vestur-
bæ Reykjavíkur
í Árborg. Menn
velta nú fyrir
sér hvað Geir
muni taka sér
fyrir hendur ef af
f lutningum verð-
ur. Í héraðinu starfar dýralæknirinn
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjár-
málaráðherra og nánasti samherji
Geirs á hruntímanum. Það er því
aldrei að vita nema leiðir þeirra liggi
aftur saman. Árni gæti verið hjálp-
legur við að útvega Geir starf þó afar
ólíklegt sé að það verði á sama vett-
vangi og Árni starfar á.
SANDKORN
4 FRÉTTIR 23. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Fullyrti að sér hefði verið nauðgað í Elliðaárdalnum:
Ekkert sem styður frásögnina
„Það er fátt sem bendir til þess að
þetta hafi orðið með þeim hætti sem
hún lýsir,“ segir Björgvin Björgvins-
son, yfirmaður kynferðisbrotadeild-
ar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Eins og DV greindi frá í síðustu
viku tilkynnti kona nauðgun til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
sem átti að hafa átt sér stað á mánu-
dagskvöldið í þar síðustu viku.
Hin meinta nauðgun á að hafa átt
sér stað á víðavangi, nánar tiltekið
þar sem stúlkna var á gangi í Elliða-
árdalnum í Reykjavík. Björgvin seg-
ir konuna ekki hafa lagt fram kæru
vegna málsins og komi ekki til með
að gera það. Málinu sé því lokið af
hálfu lögreglunnar.
Frásögn konunnar var á þá vegu
að hún hefði verið á gangi þegar hún
mætti karlmanni. Sagðist konan hafa
rankað við sér skömmu síðar og ljóst
hefði verið að maðurinn hefði kom-
ið fram vilja sínum. Konan taldi að
hún hefði verið sprautuð með ein-
hverju deyfilyfi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni fékkst staðfest
að konan hefði tilkynnt um atburð-
inn og var málið rannsakað hjá kyn-
ferðisbrotadeildinni.
Rannsókn leiddi í ljós að ekkert
hefði komið fram sem styddi frásögn
konunnar. Þannig fundust engin um-
merki um verknaðinn og ekkert sem
benti til þess að karlmaður hefði verið
þarna á ferð á umræddum tíma. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur rannsókn
hvorki sýnt fram á að konan hafi ver-
ið sprautuð með lyfjum né að nokkur
hafi komið fram vilja sínum gagnvart
henni.
birgir@dv.is
Ekki kært Konan sem tilkynnti nauðgun til lögreglu hefur ákveðið að kæra ekki
atburðinn.
Björgólfur Thor Björgólfsson á millj-
arða króna í reiðufé í sameignar-
sjóðum (e. trusts) á eyjunni Jersey
á Ermarsundi. Þetta staðfestir Ás-
geir Friðgeirsson, sem unnið hefur
sem talsmaður og ráðgjafi fyrir Björ-
gólf. Breskir eignamenn nota margir
hverjir slíka sameignarsjóði á Erm-
arsundseyjunum vegna þess skatt-
hagræðis sem það hefur í för með en
þar á meðal eru margir heimsfrægir
kaupsýslumenn og skemmtikraftar.
Ásgeir segir að eignirnar á Jersey,
reiðuféð en einnig aðrar eignir, séu
undir í 1.200 milljarða króna skulda-
uppgjöri Björgólfs Thors sem gengið
var frá í vikunnni. Líklegt má því telja
að hluti af þeim eignum sem Björ-
gólfur á á Jersey muni renna til lánar-
drottna fjárfestisins þó ómögulegt sé
að segja hvaða eignir nákvæmlega.
„Stór hluti af eignum Björgólfs var í
þessum félögum [á Jersey, innskot
blaðamanns] og jafnvel heilu félög-
in, eins og Play í Póllandi „...Þetta er
allt hluti af uppgjörinu; þetta er allt
tekið með. Það eru allar eignir uppi á
borðinu,“ segir Ásgeir.
Kostir sameignarsjóða
Slíkir sameignarsjóðir virka þannig
að eignamenn, eða starfsmenn
þeirra, setja reiðufé eða eignir inn
í slíka sjóði til ávöxtunar í tiltekinn
tíma. Þeir sem sjá um sameignar-
sjóðinn fyrir hönd þess sem leggur
reiðufé eða eignir inn í hann er ekki
skuldbundinn til að fylgja fyrirmæl-
um eiganda fjármunanna eða eign-
anna varðandi það hvernig þessar
eignir eru ávaxtaðar þó eigandinn
leggi oft línurnar. Eigandi eignanna
missir eigna- og umráðarétt á eign-
unum yfir til þess sem sér um ávöxt-
un á eignunum í sameignarsjóðnum
og getur umsjónarmaður eignanna
neitað að fylgja óskum eigandans ef
hann telur að þær séu ekki líklegar til
góðrar ávöxtunar.
Í útskýringu lögmannsstofu á
Jers ey á sameignarsjóði sem finna
má á internetinu kemur fram að
margir fjárfestar eigi í erfiðleikum
með að sjá kostina við það að missa
umráðarétt yfir eigin eignum sínum
tímabundið. Þar kemur hins vegar
fram að þetta sé einmitt helsti kost-
urinn við sameignarsjóðina vegna
þess að: „Um leið og eignir sjóðsins
hætta að vera eign fjárfestisins, þarf
hann ekki að greiða af þeim skatta og
hugsanlegt er að lánardrottnar við-
komandi geti ekki gert tilkall til þess-
ara eigna.“
Í yfirlýsingu sem talsmaður
Novators, Ragnhildur Sverrisdóttir,
sendi til fjölmiðla á miðvikudag er
sagt: „Allar eignir Björgólfs Thors og
Novators liggja til grundvallar í upp-
gjörinu...“ Ekki er hins tilgreint ná-
kvæmlega hvaða eignir þetta eru.
Hluti af eignunum eru hins vegar
umræddir fjármunir og eignir Björ-
gólfs á Jersey og í öðrum skattaskjól-
um samkvæmt því sem Ásgeir segir.
Spurning með eignir á Jersey
Ásgeir segir að í samningaferlinu við
lánardrottna Björgólfs Thors hafi það
verið til umræðu fyrr í samningaferl-
inu hvort eignir Björgólfs Thors í
þessum sameignarsjóðum ættu að
vera hluti af uppgjörinu eða ekki.
DV hefur heimildir fyrir því úr ann-
arri átt eða þetta hafi komið til um-
ræðu við lánardrottnana í samninga-
ferlinu. Ásgeir segir að lendingin hafi
hins vegar verið sú að „allar“ eignir
Björgólfs Thors hafi verið teknar inn
í uppgjörið, líka þær sem er að finna í
sameignarsjóðunum á Jersey.
Aðspurður hversu háar fjárhæðir
sé um að ræða á Jersey segir Ásgeir
að hann viti það ekki nákvæmlega:
„Ég veit ekki nákvæmlega hvaða fjár-
munir þarna eru en það er allt und-
ir. Þetta eru ekki stórar upphæðir í
heildarupphæðinni, það er náttúru-
lega fyrst og fremst Actavis,“ segir Ás-
geir.
Aðspurður hvort einhverjar af
fjárfestingum Björgólfs í sameignar-
sjóðunum á Jersey hafi átt sér stað
eftir hrun segir Ásgeir að svo sé ekki.
Ásgeir segir að verið sé að leysa ein-
hverja af þessum sameignarsjóðum
upp vegna skuldauppgjörs Björgólfs.
Hann segir að í samningaferlinu við
lánardrottna Björgólfs hafi aldrei
komið til tals að lánardrottnar hans
reyndu að rifta einhverjum af við-
skiptum Björgólfs við þessa sam-
eignarsjóði. „Ég held að menn hafi
séð takmarkaðan tilgang í að rifta
þessum viðskiptum við þessi félög ef
eignir þeirra eru líka undir í skulda-
uppgjörinu,“ segir Ásgeir.
Samkvæmt þessu, og svari Björ-
gólfs við einni af spurningum DV í
síðasta mánuði, er staðan því sú að
lánardrottnar fjárfestisins hafa líka
aðgang að eignum Björgólfs á Jersey
og á öðrum aflandseyjum, jafnvel
þó að það sé yfirlýst markmið slíkra
félaga að komast hjá því að lánar-
drottnar viðkomandi hafi aðgang að
eignunum ef svo ber undir.
Björgólfur Thor Björgólfsson á reiðufé og eignir á aflandseyjum eins og Jersey á Erm-
arsundi. Sumar eignirnar eru inni í sameignarsjóðum en tilgangur þeirra er að hjálpa
fjárfestum við að komast hjá að greiða of háa skatta.Samstarfsmenn Björgólfs Thors
segja að allar eignir Björgólfs, líka Jersey-eignirnar, séu undir í skuldauppgjöri hans.
BJÖRGÓLFUR THOR Á
MILLJARÐA Á JERSEY
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þetta er allt hluti af uppgjörinu;
þetta er allt tekið með.
Jersey-eignirnar undir Eignir Björgólfs Thors á eyjunni Jersey
og í öðrum skattaskjólum eru líka undir í skuldauppgjöri hans við
lánardrottna sína. Skuldauppgjörið miðar að því að hann borgi
allar skuldir sínar til baka og að engar skuldir verði afskrifaðar.
Í uppgjörinu felst einnig að Björgólfur verður áfram hluthafi í
Actavis og nokkrum öðrum félögum.
Úr viðtali DV við Björgólf Thor frá því í júní 2010:
BTB: „Ég á enga peninga á Kýpur eða á Tortóla. Í tengslum við yfirstand-
andi samninga við lánardrottna mína hef ég gert þeim grein fyrir öllum
mínum eignum, þar með talið eigum og fjármunum félaga sem hafa
lögfesti á svokölluðum aflandseyjum. Ég á félög sem skráð eru á Kýpur og
Tortóla. Það hefur aldrei verið neitt launungarmál. Flestir þeir sem stunda
alþjóðlegar fjárfestingar hafa átt félög á aflandseyjum, en það helgast fyrst
og fremst af hagkvæmni við uppsetningu og rekstur slíkra félaga. Rétt er að
benda á að bankareikningar aflandsfélaga, a.m.k. þeirra sem notuð eru í
lögmætum tilgangi, eru nær alltaf í löndum sem eru ekki aflandseyj-
ar. Hvað mig varðar þá voru viðskipti minna félaga nær eingöngu í
Evrópu. Það eru því engir fjármunir á aflandseyjum. Hversu miklar eignir
þessi félög eiga, þ.m.t. innistæður á bankareikningum í Evrópu, skýrist við
skuldauppgjör mitt. Ég ítreka að lánardrottnar hafa að sjálfsögðu allan
aðgang að þeim upplýsingum.“