Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR 23. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Fjárfestingarfélagið Gnúpur greiddi
starfsmönnum félagsins, sem voru
níu talsins, 472 milljónir króna
í laun á árinu 2007. Þetta kemur
fram í ársreikningi félagsins sem
samþykktur var á stjórnarfundi fé-
lagsins um miðjan júlí. Skilanefnd
Glitnis stýrir Gnúpi en bankinn tók
félagið yfir í ársbyrjun 2008 vegna
skuldastöðu þess. Eigendur félags-
ins voru Magnús og Birkir Kristins-
synir, Kristinn Björnsson og Þórður
Már Jóhannesson, sem jafnframt
var forstjóri félagsins.
Gnúpur var einn stærsti hlut-
hafinn í FL Group, stærsta hluthafa
Glitnis, og var fyrsta stóra fjárfest-
ingarfélagið til að fara á hliðina í
aðdraganda hrunsins. Það þjónaði
því hagsmunum Glitnis að láta fé-
lagið ekki fara í þrot og því var það
tekið yfir og eigum þess komið yfir
til annarra aðila. Fyrir utan fjár-
festinguna í FL Group átti Gnúpur
einnig nokkurra prósenta hlut í
Kaupþingi. Þetta voru helstu eignir
félagsins.
Ársreiknings félagsins fyrir árið
2007 hefur verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu og hefur hann
nú loks skilað sér en um það bil
tveimur árum of seint. Skilanefnd
Glitnis hefur undanfarið rannsak-
að hvort Glitnir hafi notað Gnúp í
markaðsmisnotkun eftir að félagið
var tekið yfir af bankanum í janúar
2008. Talið er að Glitnir hafi notað
Gnúp sem eins konar ruslakistu og
fært þangað hlutabréf í bankanum
þegar hann var kominn að þeim
lögbundnu mörkum sem hann
mátti eiga – Fréttablaðið greindi
fyrst fjölmiðla frá þessari rannsókn
í maí síðastliðnum.
Tekið skal fram að þessi rann-
sókn tengist ekki fyrri eigendum
Gnúps heldur aðeins meðferðinni
á félaginu eftir að Glitnir hafði tek-
ið það yfir.
Þórður Már og þotuferðirnar
Í ársreikningi Gnúps kemur fram
að ofan á launakostnað upp á nærri
hálfan milljarð króna hafi bæst
„annar rekstrarkostnaður“ sem
nam nærri 170 milljónum króna.
Engar frekari skýringar eru gefn-
ar á þessum kostnaði. Nærri 600
milljónir fóru því í þetta tvennt hjá
Gnúpi: Laun níu starfsmanna og
svo annan rekstrarkostnað.
Tekjuhæsti starfsmaður Gnúps
var án nokkurs vafa Þórður Már
Jóhannesson, forstjóri félagsins. Í
ársreikningnum er ekki tekið fram
hvað Þórður var með í laun en ætla
má að hann hafi verið með tölu-
vert hærri laun en meðallaun hjá
Gnúpi sem námu rúmum 50 millj-
ónum króna á ári. Því til stuðnings
má nefna að Þórður Már var með
88 milljónir króna í laun árið 2006
þegar hann stýrði Straumi-Burða-
rási. Vel má áætla að Þórður Már
hafi verið með meira en 100 millj-
ónir króna í laun árið 2007.
Ofan á þessi laun bættist svo
mikill rekstrarkostnaður vegna
Þórðar en heimildir DV herma að
meðal þess sem hann hafi stund-
að hafi verið þotuferðir hingað og
þangað um heiminn. Slíkir þættir
kunna að skýra að hluta af hverju
rekstrarkostnaður Gnúps var eins
hár og raun ber vitni.
Annað sem einnig kann að
skýra þennan háa rekstrarkostnað
að hluta er að Gnúpur leigði um
1.000 fermetra skrifstofuhúsnæði
á sjöundu hæð í Borgartúni 26 sem
var innréttað fyrir nærri 100 millj-
ónir króna. Gnúpur náði hins veg-
ar aldrei að flytja inn í húsnæðið
þar sem félagið fór á hliðina áður
en af því gat orðið. Félagið leigði
hæðina af fasteignafélagi Baugs,
Þyrpingu, en Baugur var með skrif-
stofu á hæðinni fyrir ofan höfuð-
stöðvar Gnúps. Fasteignamat hæð-
ar Gnúps er tæpar 160 milljónir
króna í dag.
34 milljarða tap
Í ársreikningi Gnúps kemur fram
að félagið hafi tapað nærri 34 millj-
örðum króna á árinu 2007 og að
eiginfjárstaða félagsins hafi ver-
ið neikvæð um tæplega 520 millj-
ónir króna í lok árs 2007. Þar segir
einnig að félagið hafi fengið nærri
3 milljarða króna í arð á árinu 2007,
væntanlega vegna eignarhlutarins í
FL Group. Vitað var að félagið tap-
aði gríðarlegum fjármunum á árinu
2007 en ekki lá almennilega ljóst
fyrir hversu mikið þetta tap var og
eru þessar upplýsingar því nokkur
tíðindi.
Annar af stjórnarmönnum
Glitnis í Gnúpi, Eiríkur S. Jóhanns-
son starfsmaður bankans, segir
að unnið sé að gerð ársreiknings
Gnúps fyrir árið 2008 og að hann
sé væntanlegur einhvern tímann á
næstunni. Hann segir að ekkert nýtt
sé að frétta af rannsókn skilanefnd-
arinnar á meðferð Glitnis á Gnúpi.
„Við höfum bara verið að vinna í
því að ganga frá bókhaldsgögnum.
Eins og þú sérð er ársreikningurinn
fyrir 2007 að koma núna.“
Eiríkur segist að svo stöddu
ekkert geta tjáð sig um inntak árs-
reikningsins eða hvað liggi að baki
launa- og rekstrarkostnaði Gnúps.
„Við þurfum meiri tíma til að fara
yfir þessi gögn. En þetta er sá kostn-
aður sem féll til á meðan þáverandi
eigendur félagsins stýrðu því. Ég er
ekki í stöðu til að ræða þetta nánar
núna,“ segir hann.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Ársreikningi fjárfestingarfélagsins Gnúps fyrir árið 2007 hefur loksins verið skilað. Skilanefnd Glitnis stýrir
félaginu og gerir það nú upp. Í ársreikningnum kemur fram að launa- og rekstrarkostnaður Gnúps var nærri
600 milljónir króna árið 2007. Eins kemur fram að félagið tapaði nærri 34 milljörðum á árinu og að eigið féð hafi
verið neikvætt um rúmar 500 milljónir. Starfsmaður Glitnis segir að unnið sé að næstu ársreikningum Gnúps.
En þetta er sá kostnaður sem
féll til á meðan þáver-
andi eigendur félagsins
stýrðu því.
NÍU STARFSMENN
GNÚPS MEÐ 472
MILLJÓNIR Í LAUN
100 milljóna húsnæði HúsnæðiGnúpsíBorgartúnikostaðium100milljónirkrónaþegarþaðvarinnréttaðárið2007.Húsnæð-
iðerum1000fermetraraðstærðen9starfsmennunnuhjáGnúpi.SkilanefndKaupþingsnotarþettahúsnæðiídag.Myndiner
tekiníársbyrjun2008. MYND RÓSA JÓHANNSDÓTTIR