Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 12
Samráðshópur um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða fer nú yfir þrjár leiðir að innköllun aflaheim- ilda. Í einni þeirra er gert ráð fyr- ir svokallaðri pottaleið þar sem gert er ráð fyrir innköllun aflaheimilda með endurúthlutun til núverandi handhafa aflamarks. Þetta eru mikl- ar breytingar frá því sem lagt var upp með í upphafi þegar fyrningarleiðin var kynnt. Þá var gert ráð fyrir fimm prósenta árlegri innköllun aflaheim- ilda yfir tuttugu ára tímabil. Sú tillaga mætti harðri andstöðu hagsmuna- aðila í sjávarútvegi auk þess sem hún var talin geta haft mjög neikvæð áhrif á rekstrarstöðu sjávarútvegsfyr- irtækja. „Ég held að það sé enginn að bakka í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, þann 19. maí í fyrra. Hún sagði að það væri vilji beggja stjórnarflokkanna að kalla inn aflaheimildir í áföngum og að sú leið yrði farin. Fyrningarleiðin yrði farin í sjávarútveginum. Helmingur í erfiðri stöðu Samráðshópurinn hefur miðað við álit nokkurra aðila um áhrif innköll- unar aflaheimilda á fjárhagsstöðu útgerða. Þetta eru álit þeirra Daða Más Kristóferssonar, dósents í um- hverfis- og auðlindafræðum við Há- skóla Íslands, Jóns Steinssonar, hag- fræðings við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, Deloitte, sem gert var fyrir Landssamband íslenskra út- vegsmanna (LÍÚ), og Rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA). Í niðurstöðum RHA kemur fram að átta til tólf prósent aflaheimilda eru í höndum fyrirtækja í óviðráðan- legri skuldastöðu og 40 til 50 prósent hjá fyrirtækjum í erfiðri stöðu. Talið er að 30 til 35 prósent heimildanna séu hjá fyrirtækjum í góðri stöðu og að skuldlaus félög fari með átta til tólf prósent. Samkvæmt áliti RHA er talið að innköllun aflaheimilda á tuttugu árum, líkt og fyrningarleiðin geri ráð fyrir, leiði til gjaldþrots sjávarútvegs- fyrirtækja sem ráði yfir allt að helm- ingi aflaheimilda í dag. Aðrir ráði við innköllunina. Þurrki út hagnað útgerðarinnar Í áliti Daða Más kemur fram að línu- leg innköllun umfram 0,5 prósent á ári myndi þurrka út hagnað út- gerðarinnar. Meira en eins prósents innköllun þurrki út eigin fé útgerð- arinnar. Samkvæmt áliti hans yrðu neikvæð áhrif af því að takmarka tímalengd aflaheimilda minni en af innköllun. Þær álögur sem fylgi inn- köllun dreifist ójafnt yfir landsbyggð- ina og leggist þyngra á sjávarþorp þar sem útgerð er stór hluti atvinnulífs. Þá geti innköllun dregið úr hvata til góðrar umgengni um auðlindina þar sem hagsmunir komi til með að snú- ast um skammtímagróða. Auk þess fjarlægi innköllun fjármagn úr virkri nýtingu hjá útgerðarfyrirtækjum yfir til ríkisins þar sem arðsemi sé minni. Hlutfallsleg innköllun, minni áhrif Þessu er Jón Steinsson ósammála og bendir á að hlutfallsleg innköll- un aflaheimilda geti haft minni áhrif en þau sem Daði skoði með tilliti til línulegrar innköllunar. Jón telur að fimm prósenta hlutfallsleg fyrning á ári skilji um sextíu prósent af fram- tíðarauðlindarrentu eftir í höndum útgerðarinnar. Restin færi til ríkis- ins. Þetta þýði að verðmæti útgerð- arfyrirtækja rýrna um 76 milljarða króna. „Hlutfallsleg innköllun þýðir að á hverju ári eru innkölluð fimm prósent af öllum aflaheimildum og er endurúthlutað. Heimildir sem er endurúthlutað fyrnast því að sama skapi áfram. Þetta skapi leigumarkað og takmarki „leigjendavandann“ og þar sem innköllunin er viðvarandi ætti það ekki að hafa sérstök áhrif á umgengnissjónarmið,“ segir um álit Jóns. Bæði Jón og Daði Már setja út á að í skýrslu RHA gefi höfundar sér að farið sé með aflaheimildir sem var- anlega eign og að úttektin geri ekki ráð fyrir hlutfallslegri fyrningu. Gert er ráð fyrir að samráðshóp- urinn skili inn tillögum sínum til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um miðjan ágúst. Jón þarf síðan að koma fram með áætlun um hvernig standa eigi að innköllun aflaheimilda fyrir 1. september. Í stjórnarsáttmála er þess þó getið að áætlunin skuli taka gildi þá. Guðbjartur Hannesson, formað- ur samráðshópsins, segir upplýs- ingarnar sem koma fram í drögun- um eiga eftir að breytast mikið. Því sé ótímabært að tjá sig um þær. Ráð- herra ákveði hvernig hann vinni úr þeim tillögum sem fyrir hann verði lagðar. „Þú ert bara með eitt vinnu- plagg sem hefur gengið milli manna og er til umsagnar hér og þar. Þessi hluti er meira að segja algjörlega ókláraður,“ segir Guðbjartur. Guðbjartur segir ákveðin atriði hafa legið til grundvallar vinnu hóps- ins sem ekki hafi verið hvikað frá um að auðlindirnar verði í eigu þjóðar- innar. Þar skuli þeim verða úthlut- að til tiltekins tíma og að borguð séu gjöld af nýtingu þeirra. 12 fréttir 23. júlí 2010 föstudagur OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar DETOX 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur - Endurúthlutun aflaheimilda til núverandi handhafa kvóta er meðal þeirra tillagna sem samráðshópur um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða fer yfir. Verði ákveðið að fara þá leið hefur hún takmörkuð áhrif á aflaheimildir núverandi kvótahafa. Nú er talið afar ólíklegt að fyrningarleiðin verði farin eins og lagt var upp með hana í upphafi. DV hefur undir höndum drög að skýrslu samráðshópsins. RóbeRt HlynuR balduRsson blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Þrjár leiðir til umsagnar Samráðshópurinnhefur fariðyfirþrjárleiðirtilinnköllunaraflaheimildasam- kvæmtdrögumaðskýrsluhans.Þettaeru„pottaleiðin“, hlutfallsleginnköllunoglínuleginnköllun. sægreifar gætu haldið kvótanum fyRsta tillaganAllarveiðiheimildireruinnkallaðar.Þærerusíðanleigðarúttil langstímaísvokölluðum„pottum“semeigaaðveraaðgengilegiröllum.Ennvantar nánariútfærsluáþvíhversustórirþessirpottareigaaðverða.Allireigaaðgetaboðið íveiðiheimildiríþessumpottumenþeirverðafylltirmeðþeimkvótasemhefur veriðnotaðuríbyggðatengdumtilgangi,svosembyggðakvóta.Verðiþessileiðfarin munlítiðbreytastínúverandiskiptingukvóta.Fyrstogfremsterhorfttilbreytingaá nýtingar-ogeignarrétti. Verðiþessitillagafarinmununúverandikvótahafarþvílíklegahaldasínumhlut. Þeirgetafengiðveiðiheimildirmeðnýtingarréttarsamningumenóvísterhversu langtframítímann.Þvímáreiknameðaðmeirihlutiauðlindarinnarverðiáfram áframfærinúverandikvótahafa.Ídrögumaðskýrslustarfshópsinssegiraðþessa leiðmegikalla„innköllunaflaheimildameðendurúthlutuntilnúverandihandhafa aflamarks...Heildaraflaverðiágrundvelliþorskígildisstuðlaskipthlutfallslegajafnt ámillipottannaáhverjufiskveiðiári.Handhafaraflahlutdeildaíaflamarkskerfinufá úthlutaðaflamarkiágrundvelliheildarhlutdeildarenráðherraákveðurskiptingu ágrundvellijöfnunarpottsinseftirþörfumhverjusinnisamkvæmtlagaákvæðum ogreglugerðum.Þegarnýjartegundirkomainníkerfiðerstuðstviðsamahlutfall, aflmarmarkskerfiðfærúthlutaðhlutdeildumágrundvelliveiðireynslu,jöfnunarpott- urinnfærsitthlutfallfyrirráðherratilmeðferðar.Þegarskerðingverðuríaflaheimild- umhefurþaðsambærilegáhrifábæðikerfinogjöfnáhrifáaflamarkaflamarksskipa ogkrókaaflamarksskipa.HeimilaþarfAuðlindasjóðiað„eiga“aflaheimildirtilsérstakra aðgerðas.s.tilráðstöfunarvegnaaðsteðjandivandaákveðinnabyggðalagasemog tilútleiguinnanársins,þ.e.tilaflamarksframsals.“ ÖnnuR tillaganGertráðfyrirhlutfallslegriinnköllunaflaheimilda.Þarergert ráðfyriraðfimmprósentallraaflaheimildaverðiinnkölluðárlegaogboðinuppá opnummarkaði.Þannigyrðuallirfyrirskerðinguáhverjuári.Sásemkaupirhundrað tonnyrðiþvíaffimmprósentumáriðeftirogættiþá95.Áriðþaráeftirmynduþessi 95tonnskerðastfrekarumfimmprósentogeftirstæðu90,25tonn.Þannigyrðu aflaheimildirnarinnkallaðarhlutfallslegaíáföngum.Ætlamáaðsalakvótansáslíkum markaðiskiliríkissjóðiábilinutíutiltuttugumilljörðumáári. ÞRiðja tillaganRættumlínulegainnköllun.Þettavaríraunogverufyrningar- leiðineinsoghúnvarræddíupphafi.Þávargertráðfyriraðkvótinnyrðiinnkallaður íáföngumátuttuguárummeðþvíaðtakafimmprósentafheildaraflaheimildum áhverjuári.Taliðermjögólíklegtaðþessileiðverðifarin,enhúnhefurmættharðri andstöðuhagsmunaaðilaísjávarútvegi. tillögurnar þrjár Ég held að það sé enginn að bakka í þessu máli. aðeins vinnuplagg GuðbjarturHann- esson,formaðurhópsins,segirótímabært aðtjásiguminnihaldskýrslunnar. skipstjóri hjá brim BjörnValur Gíslasonásætiíhópnumenhannerí launalausuleyfisemskipstjórihjáBrim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.