Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Qupperneq 16
16 fréttir 23. júlí 2010 föstudagur
myndaVélinni Var
beint að gluggum
Myndavél á vegum Inspired by Iceland-verkefnisins var tekin niður í kjölfar kvartana. Vélin beindist óþarf-
lega mikið í átt að gluggum íbúða og verslana á svæðinu, segir starfsmaður í verslun á Skólavörðustíg.
Persónuvernd sendi bréf til iðnaðarráðuneytisins vegna málsins 29. júní.
Persónuvernd gerði athugasemd
við vefmyndavél sem sett var upp á
Skólavörðustíg á vegum Inspired by
Iceland-verkefnisins. Þetta var gert í
kjölfar ábendinga íbúa götunnar um
að myndavélin beindist að gluggum
fólks, en óheppilegt þótti að heimil-
islíf fólks gæti endað í beinni útsend-
ingu á netinu. „Okkur barst erindi frá
einstaklingi, þar sem bent var á að
þessi tiltekna myndavél væri í mikilli
nálægð við heimili nokkurra manna,
en af þeim sökum var lýst yfir áhyggj-
um,“ staðfestir Þórður Sveinsson hjá
Persónuvernd.
Þann 29. júní var sent bréf til iðn-
aðarráðuneytisins og bent á þessa
tilteknu vél, og óskað eftir tillögum
ráðuneytisins um breytingar á upp-
setningu hennar. Ráðuneytið brást
við með því að loka myndavélinni og
fjarlægja.
Beint óþarflega mikið að
gluggum
Einar Karl Haraldsson, formaður
framkvæmdanefndar Inspired by
Iceland, sagði í samtali við DV á dög-
unum að nokkrar vélar hefðu verið
teknar niður vegna of mikils kostn-
aðar. „Átakið átti fyrst og fremst að
standa í maí, júní og fram í júlí. Þetta
er bæði kostnaðarsamt og svo eru
líka tæknilegir erfiðleikar,“ sagði Ein-
ar Karl í DV á mánudag.
Þegar Inspired by Iceland-átak-
inu var hrundið af stað í vor voru sett-
ar upp sjö myndavélar við vinsæla
ferðamannastaði á Íslandi, sem
áhugasamir gátu skoðað á netinu.
Núna er hinsvegar einungis hægt að
skoða myndir frá þremur stöðum.
Aðspurður staðfestir Einar að
kvörtun vegna vélarinnar á Skóla-
vörðustíg hafi borist ráðuneytinu og
að í kjölfarið hafi vélin verið tekin
niður. „Já, það kom kvörtun, og hún
var bara tekin niður, en það var í raun
búið að slökkva á henni,“ segir Einar
Karl.
Starfsmaður í verslun á Skóla-
vörðustíg staðfesti í samtali við DV
að myndavélinni hefði verið beint
óþarflega mikið að gluggum fyrstu
daga átaksins, en svo hafi vélinni
verið snúið þannig að hún beindist
meira í átt að Hallgrímskirkju. „Hún
var hreyfð aðeins til nokkrum dög-
um eftir að þetta fór af stað, þannig
að sást meira í himininn,“ segir hann.
Hann telur því líklegt að ábendingar
frá fólki í götunni hafi borist strax í
upphafi, sem og seinna.
Engar viðvaranir
Í lögum um rafræna vöktun eru
ákvæði um viðvaranir til þeirra
sem verða fyrir slíkri vöktun. Þórði
Sveinssyni er ekki kunnugt um að
slíkar viðvaranir hafi verið til staðar
í tengslum við myndavélar tengdar
Inspired by Iceland. Einari Karli er
heldur ekki kunnugt um hvort slíkar
viðvaranir hafi verið settar upp. „En
það var auðvitað rækilega skýrt hvar
þessar vélar væru og svoleiðis,“ segir
Einar Karl
Þórður segir að Persónuvernd
hafi í bréfinu spurst fyrir um hvernig
fara mætti að ákvæði í persónuupp-
lýsingalögunum um viðvaranir til
þeirra sem eru í mynd, en málið hafi
ekki farið lengra þar sem ráðuneytið
hafi brugðist við með því að taka vél-
ina niður. Hann segir því að málið sé
úr sögunni af hálfu Persónuverndar.
Ekki hugsað út í persónu-
verndarsjónarmið
Einar Karl telur ekki að það hafi ver-
ið vanhugsað að setja upp mynda-
vél á Skólavörðustígnum sem kom
á þennan hátt svo nálægt einka-
lífi fólks. „Nei, það var í rauninni
enginn sem hugsaði beinlínis út í
það að það væru einhver persónu-
verndarsjónarmið í kringum þetta,“
segir hann en bætir við að sjálfsagt
hafi verið að taka tillit til þess.
„En þetta vara bara hugsað sem
tímabundið átak og sönnun á því
að hér væri ekki allt þakið í ösku í
Reykjavík,“ segir hann og ítrekar
að engum í tengslum við verkefnið
hefði komið til hugar að persónu-
verndarsjónarmið gætu komið
fram í tengslum við myndavélarnar.
Ekki lengra en brýn nauðsyn
krefur
Í reglum um rafræna vöktun segir
meðal annars í fjórðu grein að slík
vöktun eigi að fara fram í yfirlýst-
um, skýrum og málefnalegum til-
gangi, svo sem í þágu öryggis eða
eignavörslu. Í fimmtu greininni
um meðalhóf segir að við alla raf-
ræna vöktun skuli þess gætt að
ganga ekki lengra en brýn nauðsyn
krefur miðað við þann tilgang sem
að er stefnt. Þá skuli gæta þess að
virða einkalífsrétt þeirra sem sæta
vöktun og forðast alla óþarfa íhlut-
un í einkalíf þeirra. Við ákvörð-
un um hvort viðhafa skuli rafræna
vöktun skal því ávallt gengið úr
skugga um hvort markmiðinu með
slíkri vöktun sé unnt að ná með
öðrum og vægari raunhæfum úr-
ræðum.
jón Bjarki magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Nei, það var í rauninni enginn
sem hugsaði beinlínis
út í það að það væru
einhver persónuvernd-
arsjónarmið í kringum
þetta.
Ekkert mál EinarKarlHaraldssonsegirað
þaðhafiveriðlítiðmálaðmætasjónar-
miðumumpersónuverndentekurframað
engumhefðidottiðíhugaðslíkmálmyndu
komaupp.
Breytt sjónarhorn Áfyrstudögum
átaksinsvarvélinhreyfðtil,endabeindist
húnaðsögnsjónarvottsóþarflegamikiðað
gluggumíbúða.