Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 24
24 erlent 23. júlí 2010 föstudagur
„Hvaða kreppa?“
Faðir evrunnar, Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands á árunum 1989 til 1998
vísar því á bug að evran sé að hruni komin. Hann segir að fjölmiðlar hafi stundað
æsifréttamennsku um vandann sem steðji að henni. Hann segir óraunhæft að taka
upp gömlu gjaldmiðla Evrópu á ný.
„Sonur minn spurði mig einu sinni:
„Er það rétt sem sagt er, að þú sért
faðir evrunnar?“ Ég sagði: „Svo er
nú sagt.“ „Jæja,“ svaraði hann, „mig
langar ekki að vera bróðir henn-
ar,“ segir Theo Waigel sem var fjár-
málaráðherra Þýskalands á tíunda
áratugnum og hlær dátt. Waigel
er gjarnan uppnefndur Herr Euro
(herra Evra) en var einn af helstu
arkítektum evrunnar og hefur ver-
ið áberandi í fjölmiðlum undanfar-
ið vegna þess vanda er evran glímir
nú við. Í viðtali við BBC á dögunum
vísaði hann því á bug að evran væri
í slæmum málum og segir að „evru-
kreppan“ sé hugtak sem orðið hafi til
vegna móðursýki fjölmiðlafólks og
þvælu í stjórnmálamönnum. Hann
segir Evrópu miklu sterkari í dag en
fyrir daga sameiginlegs gjaldmiðils.
Enginn annar valkostur
„Það er enginn annar valkostur en
evran. Það væri ekki hægt að leysa
alþjóðlegu fjármálakreppuna með
20 eða 30 gjaldmiðlum í Evrópu.
Hvernig væri hægt að hafa samstarf
á milli þessara gjaldmiðla við Seðla-
banka Bandaríkjanna eða Kína?“
spyr Waigel.
Blaðamaður BBC bendir þá á að
margir segi að aðgerðir liðinna vikna
í Brussel, þar á meðal 750 milljarða
evra neyðarsjóður, séu einfaldlega til
þess að bjarga myntsvæði sem eigi á
hættu að hrynja.
„Það er móðursýki í fjölmiðlum,“
segir þýski ráðherrann fyrrverandi.
„Ég held að evrulöndin – líka Þýska-
land – verði að útskýra fyrir þegnum
sínum að næstu 10 til 15 árin verði
aðal vandamálið að lækka halla
og skuldir. Ef fólkið er ekki til í það,
verður landið að ganga úr evrusvæð-
inu.“
Evran regnhlíf
Waigel segir að ýmis vandamál steðji
vissulega að evrunni og fjármála-
stjórn í Evrópu. Hins vegar sé eng-
in ástæða til þess að taka aftur upp
þýska markið. „Það er ekki raun-
hæft,“ segir hann. „Ef við hefðum
þýska markið í dag, stæðum við í
sama vanda og árið 1995. Við vorum
með gríðarsterkt mark, en töpuð-
um einu prósenti af hagvextinum og
einni milljón starfa. Það myndi líka
gerast í dag.“
Waigel segir að þrátt fyrir allt sé
evran besti kosturinn fyrir lönd á
borð við Grikkland og Spán. „Hún
hefur verið regnhlífin þeirra. Í gamla
daga þurftu þessi lönd að fella geng-
ið. Í hvert skipti var það algjört stór-
slys fyrir þessi lönd.“
Símanúmer Evrópu
„Árin 1992 og 1993 lentum við í stór-
um kreppum. Seðlabankarnir þurftu
að fá rúma 300 milljarða dala lánaða
frá öðrum löndum og sá þýski lét
seðlabönkum í Evrópu í té 95 millj-
arða þýskra marka,“ segir Waigel og
bendir á að boðleiðir upplýsinga og
samræming aðgerða fyrir daga evr-
unnar hafi verið mjög slæm.
„Minn gamli vinur Henry Kiss-
inger [utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna í stjórnartíð Richard Nixon,
innsk. blm.] sagði einu sinni í gríni:
„Hvert er símanúmer Evrópu?“ Nú
höfum við loksins eitt símanúm-
er fyrir fjármálakerfið. Það er sím-
inn hjá Jean-Claude Trichet, seðla-
bankastjóra Evrópu í Frankfurt.
Hann hefur staðið sig frábærlega
undanfarið,“ segir Theo Waigel að
lokum.
hElgi hrafn guðmundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Það er enginn ann-ar valkostur en evr-
an. Það væri ekki hægt að
leysa alþjóðlegu fjármála-
kreppuna með 20 eða 30
gjaldmiðlum í Evrópu.
faðir evrunnar TheoWaigel,fyrrverandi
fjármálaráðherraÞýskalands,segirevruna
einavalkostinn. mynd: rEuTErS
mark gilbert vill 17 milljónir eftir að hafa stolið 160 þúsund krónum:
Þjófurvillskaðabætur
Bretinn Mark Gilbert, sem árið 2008
viðurkenndi að hafa stolið 845 pund-
um af vinnuveitanda sínum, hefur
nú höfðað mál gegn fyrrverandi yf-
irmanni sínum vegna málsins. Gil-
bert var nefnilega gert að ganga nið-
ur á lögreglustöðina í Witham í Essex
með stórt skilti hangandi um háls-
inn sem á stóð: „ÞJÓFUR. Ég stal 845
pundum Er á leið minni niður á lög-
reglustöð.“
Gilbert fer nú fram tæpar 17
milljónir króna í skaðabætur frá yf-
irmanni sínum Simon Cremer sem
þvingaði hann til að bera skiltið um
hálsinn er hann fylgdi honum til lög-
reglunnar. Gilbert kveðst hafa orðið
fyrir miklu áfalli og hefði ekki getað
unnið í tvö ár vegna þessa.
Hinn fingralangi Gilbert hafði í
október 2008 fyllt út ávísun upp á 845
pund, tæplega 160 þúsund krónur,
á verktakafyrirtæki Cremers og leyst
hana út og stungið í vasann. Hann
viðurkenndi brot sitt fyrir lögreglu en
var sleppt með áminningu. Gilbert
taldi sig eiga inni laun hjá Cremer og
sagði yfirmanninn hafa verið of upp-
tekinn til að gera upp við sig. Hann
hafi því gert það sjálfur.
Lögreglunni var hins vegar ekki
skemmt yfir uppátæki Cremers,
bróður hans og undirmanna, og voru
þeir kærðir fyrir frelsissviptingu fyrir
að hafa bundið hendur Gilberts fyr-
ir aftan bak og þvingað hann til að
ganga á almannafæri með skiltið um
hálsinn. Það mál var þó á endanum
látið niður falla.
„Hvar er réttlætið í því að menn
geti stolið og höfðað síðan mál gegn
þeim sem þeir stela frá?“ spyr Cremer
sem er gáttaður á aðgerðum fyrrver-
andi undirmanns síns. „Við höfum nú
tvær vikur til að svara þessu. Við verð-
um nú fyrst að skoða hvort við höfum
efni á að berjast gegn þessu. Það kost-
ar tæpa hálfa milljón króna að gera
það og við eigum ekki svoleiðis upp-
hæðir á lausu.“ mikael@dv.is
Mótmælalögga
sleppur
Lögreglumaður sem sakaður var
um að valdið dauða blaðasalans Ian
Tomlinson í G20-mótmælunum í
London í fyrra sleppur við ákæru.
Ríkissaksóknari í Bretlandi tilkynnti
þetta í gær. Þrátt fyrir að tvær krufn-
ingar hafi leitt í ljós að Ian hefði látist
sökum innvortis blæðinga taldi sak-
sóknaraembættið að fyrsta krufning-
in sem framkvæmd var myndi grafa
undan málshöfðuninni. Þar var nið-
urstaðan að Ian hefði látist af hjarta-
áfalli. Fjölskylda blaðasalans segir
úrskurð embættisins hneisu.
Flýja Mexíkóflóa
Áhafnir fjölda skipa á olíulekasvæð-
inu í Mexíkóflóa bjuggu sig undir
að verða fluttir á brott í gær þar sem
fellibylur er að magnast í Karíbahaf-
inu. Áhafnirnar hafa unnið að því að
stöðva lekann úr olíuborpalli olíu-
vinnslufyrirtækisins BP. Öll vinna
við þær aðgerðir lá að mestu niðri
í gær vegna veðursins. Þrátt fyrir
að óveðrið sé enn í hundruð mílna
fjarlægð frá olíulekasvæðinu og enn
séu nokkrir dagar í að það nái til
Mexíkóflóa þá fyrirskipuðu yfirvöld
tæknimönnum og öðrum starfs-
mönnum á svæðinu að leggja niður
störf og koma sér í land því nokkra
daga tæki að rýma svæðið.
Griffin bannaður í
garðveislu
Nick Griffin, leiðtogi hins umdeilda
breska stjórnmálaflokks BNP, var
neitað um aðgang að garðveislu
Englandsdrottningar í Buckingham-
höll í gær. Griffin var með aðgangs-
miða en vegna öfgahægri skoðana
sinna gaf höllin frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem honum var meinað að
sækja veisluna konunglegu. Griff-
in brást ókvæða við yfirlýsingunni
sem var tilkomin vegna bloggfærslu
Griffins þar sem hann óskaði eftir
spurningum frá lesendum til að
varpa til drottinguna ef ske kynni að
þau hittust hjá „gúrkusamlokunum.“
Afabörnum
Mandela ógnað
Afabörnum og dóttur Nelsons
Mandela, fyrrverandi forseta
Suður-Afríku, var ógnað af tveim-
ur mönnum vopnuðum byssum
á sunnudaginn var. Þau voru á
heimleið eftir að hafa verið í 92
ára afmæli Mandela í Jóhannes-
arborg. Þegar þau voru að leggja
bifreið sinni í innkeyrsluna við
heimili sitt skipuðu mennirnir
þeim að leggjast niður en ákváðu
síðan frá að hverfa. Þeir snéru aft-
ur andartaki síðar og leituðu að
verðmætum á þeim. Til skothríð-
ar kom svo milli bílstjórans og
mannanna sem flúðu.