Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 25
föstudagur 23. júlí 2010 erlent 25
Nýverið ferðaðist hinn 89 ára gamli
gyðingur Adolek Kohn, sem lifði af
skelfilega vist í Auschwitz-búðunum
í Helförinni, til Evrópu og dansaði
við hinn fræga smell Gloríu Gaynor, I
Will Survive, við útrýmingarbúðir nas-
ista um alla álfuna þar sem milljónir
manna týndu lífi. Með í för var dóttir
hans og barnabörn sem stíga dansinn
með honum og tóku upp á myndband.
Það hefur nú slegið í gegn á You Tube.
Deilt er um hvort myndskeiðið sýni
fórnarlömbum Helfararinnar vanvirð-
ingu – eða aðeins skemmtilega leið til
þess að fagna lífinu.
500.000 manns
séð myndbandið
Óþægilegar spurningar hafa vaknað
um hvernig eigi að minnast atburð-
ar á borð við þennan sem er einn sá
hræðilegasti í mannkynssögunni.
Má sá sem lifði af Helförina minn-
ast hennar með hætti sem aðrir gætu
aldrei vogað sér að gera? Það sem
flækir svo málið enn frekar er að dans-
fjölskyldan getur þakkað nýnasistum
fyrir frægð sína á YouTube. Mynd-
skeiðið birtist fyrst á YouTube í jan-
úar en hlaut enga athygli fyrr en fyrir
nokkrum vikum þegar nýnasistar fóru
að birta það á vefsvæðum sínum. Í síð-
ustu viku hafði hálf milljón manna séð
myndbandið. Aðstandendur YouTube
kipptu því út eftir það.
Dansa við „Arbeit
Macht Frei“-skiltið
Myndbandið, sem er fjögurra mín-
útna langt, hefst með dansi Adolek
Kohn, dóttur hans Jean Korman og
þremur barnabörnum við lestartein-
ana í Auschwitz. Næst sést fjölskyld-
an dansa við ýmsa staði í Evrópu er
tengjast Helförinni, þar á meðal við
Dachau-fangabúðirnar, Lodz-gettóið
í Póllandi og síðast en ekki síst við hið
illræmda skilti við Auschwitz, þar sem
ritað er „Arbeit Macht Frei“ (Vinnan
gerir menn frjálsa). Dansinn er fjörug-
ur og fyndinn og í einu atriðinu leið-
ir gamli maðurinn fjölskylduna áfram
í kongadansi við dúndrandi diskótakt
Gloríu Gaynor.
„Við lifðum hryllinginn af“
Kohn settist að í Ástralíu og var
spurður í fjölmiðlum þar um ástæð-
ur dansins. „Af hverju gerði ég þetta?
Í fyrsta lagi vegna þess að ég fór með
barnabörnin mín. Hver af þeim sem
var í útrýmingarbúðunum hefði get-
að það? Þau eru flest látin. Við kom-
um til Auschwitz með barnabörn-
um okkar til að skapa nýja kynslóð
og þess vegna dönsuðum við,“ sagði
Kohn.
Dóttir hans, myndlistarmaður-
inn Korman, segir að foreldrar sínir,
sem bæði voru í Auschwitz, hafi elsk-
að að fá að dansa í útrýmingarbúðun-
um, þrátt fyrir allar slæmu minningar.
„Þau sögðu: „Við lifðum hryllinginn af
og núna dönsum við““.
Smekklaust
Michael Wolffsohn, Helfararsagn-
fræðingur hjá þýska hernum í
München, segir dansmyndbandið
„smekklaust“. „Það sýnir ekkert ann-
að en vandræðalega athyglissýki,“ seg-
ir hann í samtali við AP-fréttastofuna.
„Öllum hefði verið sama um þetta,
hefðu myndirnar birst í myndaalbúmi
fjölskyldunnar. En þar sem þetta er á
veraldarvefnum nær myndbandið at-
hygli sem það á ekki skilið,“ segir rabb-
íninn Andres Nachmara, safnvörður í
höfuðstöðvum Gestapo í Berlín.
Tekur ofan fyrir Kohn
Myndbandið hefur verið gífurlega
vinsælt í Þýskalandi á síðustu vikum
og verið margsinnis sýnt í sjónvarps-
stöðvum. Flestir hafa verið jákvæð-
ir í garð dansins. „Allir ættu að fá að
finna eigin leiðir til að vinna úr fortíð
sinni og því sem gerðist í Þýskalandi
fyrir sextíu árum, sérstaklega eftirlif-
endurnir sjálfir. Það má enginn segja
þeim hvernig á að gera upp fortíð-
ina,“ segir hinn 22 ára þýski nemi Falk
Ebert.
Poitr Kaldcik, formaður samtaka
pólskra gyðinga, segir viðbrögðin hafa
verið blendin hjá gyðingum í Var-
sjá. Honum finnst myndbandið ekki
ósmekklegt, þar sem Adolek Kohn
lifði sjálfur af Helförina. „Það er gríð-
arlega erfitt að gagnrýna eftirlifendur
Helfararinnar á stöðum sem þessum.
Kannski þurfti hann á þessu að halda;
ef til vill var það mikilvægt fyrir hann
að bjóða þeim birginn sem vildu út-
rýma gyðingunum,“ segir Kaldcik. „Ef
einhver annar hefði gert þetta, hefði
mér fundist það gífurlega óviðeigandi.
En þar sem umræddur maður lifði
þennan hrylling sjálfur tek ég ofan fyr-
ir honum. Þetta fólk upplifði hluti sem
við getum sem betur fer ekki ímyndað
okkur hvernig voru.“
„We survived“
Adolek Kohn segir í samtali við BBC
að hann hafi engan viljað særa með
myndbandinu, sem dóttir hans stakk
upp á að yrði tekið. „Ég var ekki á
móti því að dansa því ég ferðaðist til
Auschwitz með barnabörnum mín-
um. Ef einhver hefði sagt mér, þegar ég
var fangi hérna, að einn góðan veður-
dag eftir 62 ár myndi ég snúa aftur
með barnabörnunum mínum, hefði
ég sent þann sama mann á geðveikra-
hæli. Það var mikilvægt að dansa því
við erum á lífi, „we survived“,“ segir
Kohn hrærður.
Ef einhver annar hefði gert þetta,
hefði mér fundist það
gífurlega óviðeigandi.
DANSAÐ VIÐ „I WILL
SURVIVE“ Í AUSCHWITZ
Hann lifði af Helförina og dansar í myndbandi á YouTube við
smellinn I Will Survive í útrýmingarbúðum nasista í Evrópu og
þar á meðal í Auschwitz þar sem hann átti skelfilega vist í síðari
heimsstyrjöldinni. Deilt er um hvort dansinn sé vanvirðing við
minninguna um þær sex milljónir sem létust í Helförinni, eða
einungis skemmtileg leið til að fagna því að vera á lífi.
helgi hrAFn guðMunDSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
gaman „Þaðvarmikilvægtaðdansaþvíviðerumálífi,„wesurvived“,“segirAdolek
Kohn,semlifðiafskelfilegavistíAuschwitz.
umdeilt SumumþykirmyndbandiðsmekklaustogvanvirðaminningunaumHelför-
ina.Aðrirsegjaaðeftirlifendurhennarráðiþvíhvernigþeirminnastskelfingarinnar.
Auschwitz Milljónirgyðingaogannarra
létustíHelförinni.
MynD reuTerS