Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 30
Davíð Þór á Gljúfrasteini Á sunnudaginn mun Davíð
Þór Jónsson píanóleikari og tónskáld flytja píanóverk í stofunni á Gljúfra-
steini í Mosfellsdal. Davíð mun leika frumsamin lög í bland við tónverk eftir
helstu tónskáld síðustu alda á borð við Bach, Schumann og Chopin. Davíð
hefur starfað með ýmsum hljómsveitum, en hann útskrifaðist frá Tónlist-
arskóla FÍH árið 2001 og gaf fljótlega út sína fyrstu sólóplötu. Tónleikarnir
hefjast stundvíslega kl 16.00 og kostar 100 krónur inn. Forsvarsmenn
safnsins vilja benda gestum á fyrirbærið Mos-Bus, sem er ekið ókeypis um
Mosfellsbæ í sumar og stoppar meðal annars á Gljúfrasteini.
latin-Danshátíð í reykjavík Lat-
in-danshátíð fer fram í Reykjavík á laugardaginn. Hópurinn
Worldwide Friends mun dansa eins og hann eigi lífið að
leysa frá klukkan 12.00 til klukkan 18.00 á Laugarveginum,
rétt fyrir framan Oliver. Að hátíðinni koma 20 alþjóðlegir
sjálfboðaliðar sem hafa eytt síðustu tveimur vikum í að
læra um suðræna danstónlist, menningu og mat. Meðal
skemmtiatriða má nefna dans og lifandi tónlist en einnig
verður hægt að narta í ókeypis mat.
Styrkur Hjaltalín úr Inspired by Iceland kom sér vel:
risaumfjöllun í Bretlandi
„Öll umfjöllun hjálpar, og ágætt
að fá stuðning frá stórum blöðum.
Sérstaklega ef við ætlum að reyna
endurtaka leikinn einhvern tímann
aftur, einhvers staðar annars stað-
ar,“ segir Högni Egilsson, söngvari
Hjaltalín, um grein sem birtist um
hljómsveitina í The Sunday Times í
síðustu viku. DV greindi frá því fyrr
í júlí, að hljómsveitin hefði fengið
styrk úr Inspired by Iceland verk-
efninu til þess að bjóða erlendum
blaðamönnum á tónleika sveitar-
innar með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands fyrr í sumar. Ljóst er að styrk-
urinn kom sér vel fyrir Hjaltalín, en
greinin sem um ræðir er afrakstur
samstarfsins við Inspired by Ice-
land og nær yfir heila opnu, sem
verður að teljast ansi gott þar sem
Sunday Times er einn útbreidd-
asti fjölmiðill Bretlands. Blaða-
maðurinn Dan Cairns er ansi hrif-
inn af hljómsveitinni og segir hana
dansa á mörkum tilgerðar annars
vegar og snilldar hins vegar. Fjöldi
blaðamanna mætti á tónleika
Hjaltalín og hafa birst greinar um
hljómsveitina í aragrúa erlendra
fjölmiðla, á borð við Drowned In
Sound og AU Magazine, en líklega
er grein Sunday Times sú vegleg-
asta. Í haust heldur svo hljómsveit-
in í tónleikaferðalag um Evrópu.
dori@dv.is
30 fókus 23. júlí 2010 föstudagur
sumarGleði kimi
á BlússanDi
Sumargleði Kimi Records brunar
nú um landið á blússandi ferð. En
hvar sem gleðin stoppar koma fram
Benni Hemm Hemm, Retro Stefson,
Miri og Snorri Helgason. Í vikunni
var meðal annars spilað á Fáskrúðs-
firði og á Akureyri, við geggjaðar
undirtektir. Nú er gleðin á leiðinni
í bæinn, en í kvöld verður spilað í
Hvammsvík í Hvalfirði, og annað
kvöld í Faktorý bar í Reykjavík. Hús-
ið er opnað kl 20.00 og miðaverð er
1.000 krónur.
stemminG á
Græna
hattinum
Í kvöld verður heljarinnar
stemming á Græna hattinum á
Akureyri. Þar koma fram hljóm-
sveitirnar Moses Hightower
og Song for Wendy. Moses
Hightower gaf út sína fyrstu plötu
á dögunum, en sú hefur aldeilis
fengið glimrandi dóma. Sveitin
spilar r&b-tónlist og gaf Andr-
ea Jóns þeim 9 af tíu möguleg-
um fyrir diskinn Búum til börn.
Dúettinn Song for Wendy var
stofnaður 2010 og samanstendur
af þeim Bryndísi Jakobsdóttur og
Mads Mouritz frá Danmörku. Þau
syngja lög sem þau hafa sam-
ið við texta og ljóð eftir aðra og
skapa draumkennda stemmingu
með röddum hljómborði og gítar.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.
mammút í tón-
leikaferðalaG
Hljómsveitin Mammút hélt út til
Evrópu í tónleikaferðalag í vikunni.
Um er að ræða stærsta tónleika-
ferðalag sveitarinnar frá upphafi, en
það er tónlistarsjóðurinn Kraumur
sem hjálpar krökkunum af stað. Á
ferðalaginu verður meðal annars
komið við á tónleikahátíðunum
Am Schluss Festival í Sviss og Loft
festival í Þýskalandi. Ferðin er liður
í kynningu Mammúts á tónlisti sinni
og nýjustu breiðskífu Karkari, en
sérstök áhersla hefur verið lögð á
þýskumælandi lönd.
Hjaltalín Hljómsveitin heldur í
tónleikaferðalag til útlanda í haust.
Um þessar mundir vinnur hópur fólks hörðum höndum við
upptökur á sjónvarpsþáttunum Hæ Gosi. Þættirnir eru teknir
upp á Akureyri og skarta bræðrunum Árna Pétri og Kjartani
Guðjónssonum í aðalhlutverkum. Leikstjóri þáttanna er Arnór
Pálmi Arnarson, en hann er aðeins 23 ára og veit nákvæmlega
hvað hann er að gera.
„Við stofnuðum fyrirtækið um ára-
mótin og eftir það lögðumst við í
þriggja mánaða handritaskrif. Við
mættum á morgnana og skrifuð-
um, vissum að það væri hart í ári,
en vonuðum bara að við gætum
komið þessu á koppinn að lokum,“
segir Arnór Pálmi Arnarson, sem
er um þessar mundir að leikstýra
sjónvarpsþáttunum Hæ Gosi, sem
sýndir verða á Skjá einum í haust.
Fyrirtækið sem um ræðir heitir
Zeta-films og er stofnað í kringum
þættina. Stofnmeðlimir, sem einn-
ig starfa sem handritshöfundar, að-
stoðarleikstjórar og framleiðendur
þáttanna eru ásamt Arnóri, Katr-
ín Björgvinssdóttir, Heiðar Mar og
Baldvin Zophanías. Arnór er að öll-
um líkindum einn yngsti leikstjóri
landsins, aðeins 23 ára gamall.
Hann útskrifaðist úr Kvikmynda-
skóla Íslands fyrir ári, en einmitt
þar kviknaði hugmyndin að þátt-
unum.
Skjár einn sló til
„Hugmyndin var alltaf að koma
bræðrunum Árna Pétri og Kjart-
ani Guðjónssonum saman í gam-
anþátt. Ég og Heiðar Mar, sem
var bekkjarfélagi minn, skrifuð-
um handrit að „pilot“, [prufuþætti,
innsk. blaðamanns], fengum þá
með okkur í þetta ásamt fleiri leik-
urum og gerðum prufuþáttinn í
stað þess að gera lokaverkefni. En
pælingin var a-lltaf að gera þessa
seríu,“ segir Arnór, en eftir að hann
kynntist Baldvini Zophaníasi fór
boltinn að rúlla. Þegar handrit-
ið lá svo næstum klárt, var farið í
viðræður við sjónvarpsstöðvarnar.
Skjár einn beit á agnið, og lagði til
ákveðna prósentu af kostnaði við
þættina, en ekki var alveg útséð um
hvernig yrði með afganginn. „Við
sendum umsókn í Kvikmyndamið-
stöðina, og fengum svar í júní og
þá gátum við farið af stað. Það var
mikill áfangi fyrir okkur að fá styrk-
inn frá þeim. Það er hrikalegur nið-
urskurður í greininni og því góð
viðurkenning fyrir okkur að þeir
hafi viljað vera með,“ segir Arnór.
Akureyri í stóru hlutverki
Þættirnir fjalla um bræður á Akur-
eyri og samskipti þeirra við aldrað-
an föður sinn, hitt kynið og fólkið í
kringum sig. Um er að ræða gam-
anþætti í anda dönsku Klovn-þátt-
anna. „Við erum að vinna með
húmor sem hefur ekki verið unn-
ið með mikið hérna heima. Sagan
er fyndin og bakvið allar fyndn-
ar aðstæður býr gífurlega mikið
drama,“ segir Arnór og bætir við
að upptökur hafi gengið ótrúlega
vel. „Við erum með brilljant krú og
þetta kemur mjög vel út. Við erum
líka að skjóta þetta á Akureyri og
ég held að það sé besta ákvörð-
unin sem hefur verið tekin hing-
að til. Þetta sögusvið er yndislegt
og að sjá þetta í mynd er glænýtt
fyrirbæri, enginn Skólavörðustíg-
ur og svona.“ Stórskotalið leikara
kemur nálægt þáttunum, en auk
þeirra Árna Péturs og Kjartans má
nefna Þórhall Sigurðsson, Maríu
Ellingsen, Helgu Brögu Jónsdóttur,
Gosi kemur GlæsileGa út
Hæ Gosi Bræðurnir Kjartan og Árni Pétur
Guðjónssynir leika bræður í gamanþáttum í
anda Klovn.