Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 31
... myndinni
Inception
Lagskipt snilld,
sem talar til
manns á ótal
sviðum.
...tölvu-
leiknum
Super
Mario
Galaxy 2
Ennþá
konungur
...bókinni
Sögustaðir
Unun að lesa
þessa bók
og skoða
myndirnar,
segir gagn-
rýnandi.
...myndinni A
Nightmare on Elm
Street
Martröð af
leiðindum
föStudAGur
n Sjonni Brink og Hreimur á B5
Tígulspaðarnir Sjonni Brink og Hreimur
ætla að dusta rykið af kassagítarnum
á B5 í kvöld. Þeir félagar eru nánast
göldróttir þegar kemur að trúbba-
stemningunni svo um að gera að hita vel
upp fyrir Eyjar og mæta.
n Drekktu betur á Bar 46
Í kvöld fer fram skemmtileg spurn-
ingakeppni á Bar 46. Nokkurs konar
„bar quiz“ þar sem fyrrverandi Gettu
betur-kempan Steinþór Helgi Arnsteins-
son sér um grilla liðið. Sigurvegarinn
fær eitthvað glæsilegt í verðlaun. Ekki
spurning.
n Danni D á Prikinu
Nóg er um að vera á Prikinu um helgina.
Í hádeginu í dag er hamborgaraát-
skeppni og í kvöld snýr Búðabandið
aftur eftir langa bið. Það stígur á svið
klukkan 22.00 en í kjölfar þess mætir
gulldrengurinn sjálfur Danni Deluxx.
Gaman gaman.
lAuGArdAGur
n Pabbahelgi á Kaffibarnum
Þeir Gísli Galdur og Dj B-Ruff munu
kveikja í liðinu á Kaffibarnum á laug-
ardaginn. Drengirnir eru búnir að vera
með þessar pabbahelgar klárar og allt
hefur gengið stórkoslega þar. Ekki málið.
n Freakout á 800 Bar
Í tilefni af fyrstu plötunni hans Haffa Haff
á að slá upp heljarinnar partíi á 800 Bar
næstkomandi laugardag. Platan er búin
að seljast eins og heitar lummur um allt
land og verður hún að sjálfsögðu til sölu
þetta kvöldið. Óli Geir og Kristmundur
Axel mæta líka.
n Jonni Ólafs á Kringlukránni
Rokksveit Jonna Ólafs mun gera allt
vitlaust á Kringlukránni alla helgina. Það
er um að gera að ná í kúrekastígvélin,
setja fuglahræðu út á akur og dansa
niður í Kringlu. Það held ég.
Hvað er að
GERAST?
Sérstakur gestur RIFF í ár er kvikmyndaleikstjórinn Jim Jarmusch:
Verðlaunaleikstjóri til Íslands
Tilkynnt var í vikunni að banda-
ríski leikstjórinn Jim Jarmusch
yrði sérstakur heiðursgestur
Reykjavík International Film
Festival, RIFF, í ár. Mun leik-
stjórinn hljóta sérstök heið-
ursverðlaun hátíðarinnar fyrir
framúrskarandi listræna sýn, en
verðlaunin veitir Ólafur Ragn-
ar Grímsson á Bessastöðum.
Heiðursgestur hátíðarinnar í
fyrra var Milos Forman og því
ljóst að virtir kvikmyndaleik-
stjórar gefa gaum hátíðinni sem
stækkar með ári hverju. Jarm-
usch hefur gert margar frábær-
ar kvikmyndir, en meðal þeirra
má nefna Ghost Dog, Way of the
Samurai, Coffe and Cigarettes og
Broken Flowers, en fyrir þá síð-
ast nefndu vann hann gagnrýn-
endaverðlaunin á Cannes-kvik-
myndahátíðinni. Þrjár myndir
eftir Jarmusch verða sýndar á há-
tíðinni en ekki er enn útséð um
hverjar þær verða. RIFF verður
haldin dagana 23. september til
3. ágúst og verður dagskrá hátíð-
arinnar kynnt þegar nær dregur.
Ef íslenskir kvikmyndaleikstjórar
luma á myndum, þá hefur skila-
frestur fyrir hátíðina verið fram-
lengdur til 15. ágúst.
dori@dv.is
...myndinni
Predators
Fínasta spennu-
afþreying sem
er trú uppruna
sínum.
...myndinni Boðbera
Mislukkað þrekvirki.
föstudagur 23. júlí 2010 fókus 31
Hjálmar Hjálmarsson, Hannes Óla
Ágústsson, Þórunni Örnu Krist-
jánsdóttur og Þráin Karlsson.
Frá Versló í Kvikmyndaskólann
Arnór fór upphaflega í Verslunar-
skólann, en segist ekki hafa enst
þar lengur en í tvö ár. Því næst fór
hann að vinna hjá Stöð 2 og fann
þar smjörþefinn af kvikmynda-
gerð. Eftir smá stopp í Borgarholts-
skóla var svo förinni heitið í Kvik-
myndaskólann og segist Arnór vera
afar sáttur við námið þar. „Ég hafði
heyrt að skólinn væri ekki mjög
hátt skrifaður á evrópskan mæli-
kvarða, en ég tók sénsinn og fékk
nákvæmlega það út úr náminu
sem ég vildi fá út úr því. Þarna er
frábært fólk og margt hægt að læra
af því.“
Önnur sería á teikniborðinu
„Við klippum þetta jafnóðum, og
efnið kemur mjög vel út. Hér voru
fulltrúar frá Skjá einum í vikunni
og það er strax byrjað að tala um
aðra seríu, enda af nógu af taka,“
segir Arnór. Þættirnir hefja göngu
sína á Skjá einum í lok september.
Í fyrstu seríu eru alls sex þættir, en
það sá fjöldi sem miðað er við, í til
dæmis breskum gamanþáttum. Að
lokum segir Arnór fyrirtækið vera
hægt og bítandi að kroppa sig inn
í auglýsingagerð og eftir sjónvarps-
þættina standi allar dyr opnar.
dori@dv.is
GoSI kEMur GlæSIlEGA út
Arnór Pálmi Arnarson Er hér ásamt
aðalleikurum þáttanna Hæ Gosi, sem
sýndir verða á Skjá einum í haust.
Ungur leikstjóri Arnar er aðeins 23 ára gamall
og útskrifaðist úr Kvikmyndaskólanum í fyrra.
Jim Jarmusch
Fær viðurkenningu frá
forseta Íslands í haust.
MYND REUTERS