Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 34
34 viðtal 23. júlí 2010 föstudagur
B
ubbi Morthens hefur lengi
verið einn þekktasti tón-
listarmaður þjóðarinnar og
sennilega einn sá afkasta-
mesti. Hann er dáður og
elskaður, umdeildur og hat-
aður. Allir hafa skoðun á honum. Þegar hann
sló í gegn á níunda áratugnum eltu unglings-
stúlkur hann á röndum í von um að komast í
rúmið með honum. Síðan hefur hann haldið
ótrauður áfram og samið sín lög sem eru nú
orðin meira en 500 talsins. Lögin hafa haft
áhrif á mann og annan og fjórum sinnum hafa
veikir einstaklingar talið sig fá dulin skilaboð
úr textunum sem leiddu til ofsókna á hendur
honum og fjölskyldu hans. Hann hefur feng-
ið líflátshótanir, litlar líkkistur í pósti, fólk hef-
ur sofið fyrir utan heimili hans en ekkert gerði
hann eins reiðan og þegar brjálaður maður
hótaði börnunum hans lífláti.
Árið 1982 var vægast sagt viðburðaríkt ár í
lífi Bubba. Þetta ár komu fyrsta og önnur plata
Egó út. Sú fyrri var í öðru sæti yfir mest seldu
plötur landsins og sú seinni í því fyrsta. Í kjöl-
far útgáfunnar fór bandið tvisvar í tónleikaferð
um landið og þetta ár hitaði það tvisvar upp
fyrir erlend bönd í Höllinni, Human League
og reggí-sveitina Babatunde Tony Ellis. Rokk
í Reykjavík kom út og Egó tók þátt í rokkhá-
tíðunum Rokkhátíð ´82 og Risarokk í Höllinni.
Bubbi lék fyllibyttu og smáglæpon í Skilaboð-
um til Söndru, spilaði með föngum á Hraun-
inu og var valinn vinsælasti textahöfundurinn
í vinsældakosningu Dagblaðsins Vísis.
En þrátt fyrir mikla velgengni ríkti ekki
eintóm gleði í lífi Bubba árið 1982. Þetta ár
var hann nefnilega í fyrsta skipti ofsóttur af
manni sem átti við alvarleg geðræn vanda-
mál að stríða. „Ég hef oft lent í því að vera
með „stalker“. En fjórir hafa gengið svo langt
að það hefur verið einhver ástæða til þess að
hafa áhyggjur af því.“
Krafðist þess að fá Kredit
Sá fyrsti taldi Bubba hafa stolið af sér lögun-
um sínum. Fyrstu kynni Bubba af manninum
voru þegar hann fékk bréf þar sem hann krafð-
ist þess að Bubbi leiðrétti þetta fyrir þjóðinni.
„Hann vildi að ég myndi viðurkenna það að
hann ætti öll lögin mín, þar á meðal Ísbjarn-
arblús. Ég þurfti ekki að vita meira til þess að
vita að maðurinn væri ekki í lagi. Ég vissi það
um leið og ég fékk fyrsta bréfið frá honum. Það
fór ekki á milli mála þegar hann fór að tala um
það að hann hefði samið Ísbjarnarblús. Og ég
hefði stolið laginu af honum. Fyrst datt mér í
hug að hann væri kommúnisti. Ég vildi frek-
ar trúa því. Svo kom í ljós að maðurinn var að
meina þetta. Hann skrifaði meira að segja les-
endabréf í Morgunblaðið sem fjallaði um það
að hann ætti öll lögin mín og fékk það birt.“
ÍtreKaðar lÍflátshótanir
Maðurinn hafði ítrekað samband við Bubba
og sendi honum fjölmörg bréf. Bréfin urðu
hvert öðru furðulegra. „Meiri geðveiki fór að
einkenna þau og hann talaði um hluti sem
áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Mjög
skrýtna hluti.“
Bréfin fjölluðu meira og minna um það að
hann ætlaði annaðhvort að drepa Bubba eða
meiða hann ef hann fengi ekki kredit fyrir lög-
unum. Og hann var með alls kyns hugmyndir
um það hvernig hann myndi gera það. Þegar
þetta fór að ágerast talaði Bubbi við lögregl-
una en það var lítið hægt að gera. „Þetta var í
raun orðin svo mikil geðveiki að það var ekki
hægt að horfa fram hjá þessu lengur. Hann
sendi mér ítrekað líflátshótanir og þetta var
ofbeldishneigður maður. Eftir að hann réðst
á gamlan mann og slasaði hann mjög illa var
hann tekinn úr umferð og settur inn. Þá linnti
ofsóknunum loksins. Það er enginn glaður
þegar hann lendir í svona aðstæðum, en þetta
var nú ekki það svæsnasta sem ég hef lent í.“
sendi snöru
Nokkrir mánuðir liðu og allt lék í lyndi. Allt
þar til næsti eltihrellir tók að ofsækja Bubba.
Í þetta skiptið var það kona „... sem ákvað að
deila með mér geðveikisórum sínum. Hún
sendi mér bréf. Stundum var hún búin að
klippa út stafi og raða þeim saman þannig að
þeir mynduðu morðhótanir. Svo sendi hún
mér snöru, byssukúlur og ösku í litlum líkkist-
um.“
Þetta gekk í einhvern tíma en eftir nokkra
mánuði sagði Bubbi stopp, hingað og ekki
lengra. „Ég náði til hennar þegar hún sat fyr-
ir mér heima hjá mér. Þá tók ég fast á henni.
Hún lét ekki af þessu en þetta minnkaði og
með tímanum hætti þetta alveg.“
Börnin óttaslegin
Næsti maður sem ofsótti Bubba þjáðist af
óbærilegri vanlíðan. Hann var sannfærður
um að Bubbi gæti náð honum upp úr þessu
og kom sér fyrir á tröppunum heima hjá hon-
um þar sem hann svaf jafnvel. „Hann kom
sér bara fyrir með plötubunkann á tröppun-
um hjá mér. Það var engin leið til að losna við
hann. Börnin mín voru mjög hrædd við hann.
En ég held að hann hafi ekki verið ofbeldis-
hneigður. En það var mikil sorg í honum.“
reyndi að vera góður
„Hann las eitthvað út úr tónlistinni minni.
Hann vildi að ég myndi leysa hann frá sálar-
kvölunum og trúði því að ég gæti það. En ég
átti engan möguleika á því. Ég reyndi að taka
utan um hann en þáverandi eiginkona mín
var náttúrulega ekki hrifin af því að ég væri að
taka svona fólk inn á heimilið. Ég skil það al-
veg. En ég tók hann inn á heimilið mitt. Ef fólk
grætur og er í uppnámi og allt þeirra líf er far-
ið úr skorðum og það stendur í þeirri trú að
ég geti hjálpað því þá skaðar ekki að vera góð-
ur við fólkið. Það skaðar engan að taka utan
um manneskju sem líður illa og tala fallega til
hennar.
Ég veit ekki hvort það varð til þess að ýta
undir áreitnina, ég veit það ekki, en hann hélt
allavega áfram að koma. Ég vildi bara vera al-
mennilegur við hann. Oft á tíðum er það frá-
bær leið til að takast á við svona aðstæður. En
það eru kannski ekki allir með taugar til þess.
Það er ekkert gaman að takast á við svona.“
Þetta ástand varði heilan vetur. En eftir vet-
urinn fékk maðurinn hjálp og þá hvarf hann úr
lífi Bubba. Bubbi hitti hann svo fjórum árum
síðar og þá var maðurinn í lagi, bað hann af-
sökunar á hegðun sinni og þakkaði fyrir það
hvernig Bubbi tæklaði hann á sínum tíma.
hótaði Börnunum
Öllu erfiðara reyndist að takast á við mann
sem trúði því að Bubbi gæti sært út úr hon-
um illan anda. „Hann var mjög erfiður. Hann
hafði líka lesið eitthvað út úr lögunum mínum
og var þess fullviss að ég gæti sært út úr hon-
um illan anda. Ég benti honum á að fara nið-
ur í Kristskirkju því þar væru kaþólskir prest-
ar sem hefðu heimild til þess að gera svona.
En hann var mjög harður á því að ég ætti að
gera þetta.“
Bubbi þvertók fyrir það og hélt áfram að
benda manninum á Kristskirkju. Þá fóru hon-
um að berast hótanir frá manninum. „Ég lét
það ekki koma mér úr jafnvægi en þegar hann
hótaði að skaða börnin mín fór ég í hann.
Hann kom æðandi til mín alveg kolgeggjað-
ur, froðufellandi og snarbrjálaður og hótaði
börnunum mínum. Þá fór ég í hann. Ég lagðist
þungt á hann og tók hann niður. Það er ekki
gaman að þurfa að slást við svona menn en ég
vissi ekki til hvers hann var vís.“
Skömmu síðar var maðurinn tekinn úr um-
ferð og færður á viðeigandi stofnun þar sem
hann fékk hjálp.
stunginn af óBoðnum gesti
„Í grófum dráttum er þetta mín reynsla af stal-
kerum. En auðvitað er hvert dæmi sem ég tek
Börnunumhótað lífláti
BuBBi morthens segir frá ofsóknum á hendur
sér af hálfu veikra einstaklinga. Einn taldi hann vera
sáluhjálpara, annar taldi hann hafa stolið lögunum
sínum og ætlaði að drepa hann fyrir vikið, sá þriðji
vildi deila geðveikisórum sínum með honum og sendi
honum morðvopn í pósti og sá fjórði taldi Bubba geta
sært út úr sér illan anda. Hann var eltur, legið var á
glugganum hjá honum, hann var stunginn inni á eigin
heimili og börnunum hans var hótað lífláti. Bubbi segir
frá reynslu sinni af eltihrellum.
Þetta hefur líka áhrif á sálarlífið og
ég finn fyrir þessu.
Hann kom æðandi til mín alveg kol-
geggjaður, froðufellandi
og snarbrjálaður og hót-
aði börnunum mínum.
ofsóttur maður Bubbi hefur
oftar en einu sinni verið fórnarlamb
eltihrella sem telja sig fá dulin skilaboð
úr lögum hans. Einn vildi að hann
særði út úr sér illan anda.
mynd þórhallur Jónsson