Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 35
föstudagur 23. júlí 2010 viðtal 35
hér aðeins brot af lengri sögu. Það er mjög
erfitt að hafa svona fólk á eftir sér. Það er líka
mjög erfitt að það er varla hægt að fá hjálp
þegar maður lendir í þessum aðstæðum. Það
hefur allavega reynst mér mjög erfitt. Það er
ekki fyrr en maður verður fyrir skaða að eitt-
hvað er gert. Ég var einu sinni stunginn með
eggvopni á mínu eigin heimili. Þá fyrst kom
lögreglan. Það var í eina skiptið sem hún hef-
ur brugðist hratt og örugglega við.“
Bubbi var þá með gest heima hjá sér. Allt
í einu var komin inn manneskja sem taldi
sig eiga eitthvað óuppgert við gest Bubba.
„Þessi manneskja kom óboðin inn til mín, var
hleypt inn fyrir slysni. Hún var mjög ógnandi
og lamdi frá sér. Þannig að ég tók ákvörðun
um að fylgja henni út. Hún átti ekkert að vera
þarna og ég var að reyna að koma henni út.
Okkur lenti síðan saman með þessum afleið-
ingum. Ég var stunginn í lærið með eggvopni,
ég veit ekki hvað það var, hnífur eða eitthvað.“
Fjölskyldan var öll heima og börnin horfðu
upp á þetta gerast. „Það er mjög erfitt þegar
Börnunumhótað lífláti Þegar ég fer út úr húsi á morgnana horfi ég í
kringum mig og skima eftir
því hvort það sé einhver að
fylgjast með mér.
framhald á
næstu sÍÐu
Björk
n Tilfelli Bjarkar var með því versta
sem þekkist. Maður að nafni Ricardo
Lopez varð hugfanginn af henni og lét
hana ekki í friði árið 1996. Það kórónaði
óhugnaðinn þegar hann reyndi að senda
Björk bréfasprengju, en breska lögregl-
an náði að stöðva hann í tæka tíð. Með
sprengjunni fylgdi myndband af mann-
inum, þar sem hann sýndi nákvæmlega
frá því hvernig hann bjó til sprengjuna,
rakaði svo á sér höfuðið, málaði sig í
framan og framdi loks sjálfsmorð.
EivØr
n Eivør Pálsdóttir sótti um nálgunar-
bann á íslenskan mann sem átti að hafa
elt hana á röndum í um þrjú ár. Málið
gekk meira að segja svo langt að maður-
inn flutti til Færeyja og tjaldaði í garðin-
um hjá henni í langan tíma. Maðurinn
sagði meira að segja að umboðskona Ei-
varar væri það eina sem stæði í vegi fyrir
sambandi þeirra og hótaði henni líkams-
meiðingum.
halldór
laxnEss
n Á ákveðnum tímapunkti þurfti að
hafa samband við allar leigubílastöðv-
ar í Reykjavík og segja leigubílstjórum
að aka vinsamlegast ekki drukknum
mönnum upp að Gljúfrasteini, heimili
skáldsins, ef þeir óskuðu eftir því. Menn
gátu fengið Halldór svo á heilann að
dæmi eru um að þeir hafi verið búnir að
hreiðra um sig í stofunni heima hjá hon-
um, þegar þau hjónin brugðu sér af bæ.
Þá var það nánast daglegur viðburður í
áraraðir að fólk hringdi og heimtaði að fá
að tala við skáldið.
hElgi áss
grétarsson
n Karlmaður var dæmdur í hálfs árs
fangelsi vegna hótana, húsbrota og
nálgunarbannsbrota í garð Helga Áss
Grétarssonar skákmeistara og fjölskyldu
hans. Maðurinn lét þó ekki staðar numið
þar og var tvívegis kærður fyrir áreitni
eftir að hann lauk afplánun refsingar
sinnar og vöknuðu upp margar spurn-
ingar í kjölfarið, um hvernig ætti að taka
á slíkum málum.
Þau voru
lÍka ofsótt
Fleiri Íslendingar hafa lent í klónum á
eltihrellum.
Brjálæðingur
hótaði Börnunum
Bubbi lét ekki koma sér úr
jafnvægi þótt hann sjálfur
fengi líflátshótanir en var
öllum lokið þegar brjálæð-
ingur hótaði börnunum.
mynd VEra PálSdóttir