Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 42
XXXXXXXXXX
42 SKRÝTIÐ UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON helgihrafn@dv.is 23. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Í kjallara einnar byggingarinnar á skóla-lóð Oglethorpe-háskólans í Georgíu- fylki í Bandaríkjunum eru þykkar stáldyr sem var lokað og þær innsigl-aðar með logsuðu fyrir sjötíu árum. Á
bak við þessar dyr leynist loftþétt hvelfing sem
full er af ýmsum munum og örfilmum, sem
komið var þar fyrir á árunum 1937 til 1940. Ef
farið verður eftir tilskipunum fólksins sem lok-
aði hvelfingunni mun innihald hennar liggja
óhreyft næstu 6103 árin. Þetta metnaðarfulla
verkefni hófst þegar síðari heimsstyrjöldin
var yfirvofandi og var drifið áfram af hræðslu
þeirra sem byggðu hvelfinguna við algera út-
rýmingu mannkyns og siðmenningarinnar.
Presturinn Thornwell Jacobs hafði umsjón
með verkefninu, en hann áleit að heimsend-
ir væri í nánd. Hann lokaði hvelfingunni, sem
hann gaf nafnið Grafhvelfing siðmenningar-
innar (e. Crypt of Civilization) árið 1940 og fyr-
irskipaði að hana mætti ekki opna fyrr en 28.
maí árið 8113.
Á hverfanda hveli
Við vitum ekki hvernig veröldin verður árið
8113. Sex þúsund ár eru langur tími á mæli-
kvarða mannsins þó það sé reyndar aðeins
augnablik í sögu alheimsins. Kannski verð-
ur mannkynið úr sögunni þá. En við verð-
um geymd en ekki gleymd því í hvelfingunni
í Oglethorpe-háskólanum eru átta hundruð
bókmenntaverk geymd á örfilmum úr efninu
sellulósaasetati, sem er afar endingargott. Á
filmunum eru 640 þúsund blaðsíður sem inni-
halda, meðal annarra verka, Biblíuna, Kóran-
inn, Hómerskviður, myndasögur Stjána bláa
og handrit kvikmyndarinnar Á hverfanda
hveli.
Í hvelfingunni liggja einnig ljósmynd-
ir, kvikmyndabrot og upptökur með röddum
stjórnmálaleiðtoga á borð við Hitler, Stalín,
Mussolini, Neville Chamberlain og Franklin
Roosevelt. Nokkrar kvikmyndir voru látnar
fylgja þar sem Jacobs og starfsfólk hans sést
byggja hvelfinguna. Jacobs talaði inn á hljóð-
upptöku og sagði: „Heimurinn vinnur að því
að koma siðmenningu okkar í eilífa gröf, en
með þessari grafhvelfingu eftirlátum við ykk-
ur hana.“
Bjór, Andrés Önd og tannþráður
Til þess að þessi gögn yrðu aðgengileg framtíð-
armönnum, eða jafnvel öðrum vitsmunaver-
um, má finna í hvelfingunni stækkunargler fyr-
ir örfilmurnar og ýmsa mynd- og hljóðspilara
sem verður hægt að knýja með vindumyllu-
tækni.
Jacobs fannst einnig að skylda manna væri
að varðveita hversdagslega muni. Í hvelfing-
una var hrúgað ýmsum munum úr daglegu
lífi, til dæmis saumavélum, símum, málverk-
um, plöntufræjum, tannþræði, brauðristum,
Budweiser-bjór, Andrésar Andar-leikföngum
og snuðum.
Með síðustu mununum sem lagðir voru
inn í hvelfinguna áður en hún var innsigluð
voru stálplötur með forsíðum dagblaða sem
sögðu frá upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar.
6177 ár frá upphafi Forn-Egypta
„Í þessari grafhvelfingu eru minningar um
siðmenningu sem var til í Bandaríkjunum og
fleiri stöðum í heiminum á fyrri hluta tuttug-
ustu aldarinnar,“ stendur á málmskildi sem
festur er á dyr hvelfingarinnar. Það eru skila-
boð frá Jacobs til þeirra sem koma að hvelfing-
unni árið 8113. Thornwell Jacobs heillaðist af
menningu Forn-Egypta og innsigluðum hvelf-
ingum þeirra, sem fundust margar ekki fyrr en
á nítjándu og tuttugustu öld. Jacobs ákvað að
opnunarárið yrði 8113 þar sem árið 1936 (þeg-
ar bygging hvelfingarinnar hófst) væri mið-
punktur sögunnar. 6177 ár voru liðin frá upp-
hafi egypska tímatalsins og Jacobs bætti við
sama árafjölda fram í tímann.
Ætti að endast
Ef þeir sem finna hvelfinguna kunna ekki
ensku eða skyld tungumál geta þeir notast við
myndletur sem teiknað er á veggi og muni.
Að auki má finna í hvelfingunni kennslurit í
ensku.
Ef fornleifafræðingar fyndu í dag ævaforna
grafhvelfingu er ólíklegt að þeir myndu virða
óskir þeirra sem bjuggu hana til um að hún
yrði ekki opnuð fyrr en eftir margar aldir. Það
er því ákaflega erfitt að vita hvort hvelfingin fær
að vera lokuð í þessi rúmlega sex þúsund ár.
Þar sem Grafhvelfing siðmenningarinnar
er í vatnsheldum kjallara og umkringd hörðu
bergi er líklegt að hún haldist nokkuð heilleg til
ársins 8113. Jarðskjálftar eru mjög óalgengir á
þessum slóðum í suðurríkjum Bandaríkjanna
og ekki er talið að náttúruhamfarir geti grand-
að neðanjarðarbyggingunni.
Við vitum ekki hversu vel innihald hvelfing-
arinnar hefur varðveist en munirnir eru taldir
vera í góðu ástandi. En það eru hins vegar að-
eins liðin 70 ár frá því að stáldyrum hennar var
lokað og þær innsiglaðar sem er eitt augnablik
í samanburði við 6103 árin sem hvelfingin á að
endast í viðbót. Við skulum þó vona að draum-
ur Jacobs verði að veruleika.
helgihrafn@dv.is
Heimurinn vinnur að því að koma siðmenn-
ingu okkar í eilífa gröf, en
með þessari grafhvelfingu
eftirlátum við ykkur hana.
MINNINGAR UM MANNKYNIÐ GEYMDAR
TIL ÁRSINS
Árið 1940 var ýmsum munum úr hversdagslífinu á þeim árum, ásamt meistaraverkum í bókmenntum
og listum, komið fyrir í læstri grafhvelfingu í Georgíufylki í suðurríkjum Bandaríkjanna. Menn reistu
hvelfinguna þar sem þeir óttuðust útrýmingu mannkyns. Hvelfinguna má ekki opna fyrr en árið 8113.
113
DYR HVELFINGARINNAR Þessar dyr má ekki
opna fyrr en eftir 6103 ár.
RADDIR Á UPPTÖKUM Í hvelfingunni eru
hljóðupptökur með stjórnmálamönnum á borð
við Roosevelt, Stalín, Hitler, Hirohito keisara og
Mussolini.
ÖRFILMUR ÚR SELLULÓSAASETATI
Safnvörður hvelfingarinnar, Thomas Pet-
ers, vinnur að örfilmunum sem innihalda
meistaraverk bókmenntasögunnar, og
eiga að endast í árþúsundir.
HVELFINGIN Grafhvelfing
siðmenningarinnar (e. Crypt
of Civilization).