Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Qupperneq 43
föstudagur 23. júlí 2010 viðtal 43
Maður er bara enn að átta sig á stemmingunni hérna. Ég fór auðvitað út í mars 2008, það var ekkert hrun-ið þá,“ segir útvarpsmaður-
inn Andri Freyr Viðarsson, sem snéri heim til
Íslands eftir tveggja ára dvöl í Kaupmannahöfn
í byrjun sumars. Andri kom heim til að vinna
með Ómari Ragnarssyni að útvarpsþáttagerð,
en þeir félagar hafa heldur betur slegið í gegn
á öldum ljósvakans, enda nánast ógjörningur
að leiða jafn ólíka menn saman og fá jafn glim-
randi útkomu. „Það er unaður að vinna með
Ómari. Hreinn draumur í dós. Maður lærir ekk-
ert smá mikið, enda lætur hann bara út úr sér
einhverja fróðleiksmola,“ segir Andri.
„Kreppan eKKi jafn djúp og ég hélt“
„Ég hélt að þetta myndi vera mun verra,“ seg-
ir Andri. „Þegar maður fylgdist með frá Dan-
mörku héldum við að þetta væri bara búið. Ég
hélt ég myndi bara koma heim í rústir, en svo
blasir ekkert við nema þessi Harpa, hálfkláruð
hús og heilu hverfin eins og go-kart brautir,“
segir Andri og bætir því við að það fólk sem
hann þekki hafi hvort sem er aldrei haft neitt
á milli handanna svo í raun og veru hafi lít-
ið breyst. Andri segir þó að verðlagið sé kom-
ið langt yfir öll skynsemismörk, meira að segja
í samanburði við Kaupmannahöfn, sem telst
vera dýr borg. „Bjór er allt of dýr, matur allt
of dýr. Ég meina ég fer og kaupi mér túnfisk-
samloku á sértilboði í 10-11 á 590 krónur, verð-
ur það ekki að teljast ansi gott grín?“ spyr út-
varpsmaðurinn og bölvar leigumarkaðnum á
Íslandi í leiðinni, þar hefur verðlagið verið sér-
staklega óvinveitt.
hirð-plötusnúður borgar-
stjórans í Kaupmannahöfn
Andri hafði nóg að gera í Kaupmannahöfn,
annað en að vera með vikulegan útvarpsþátt
á Rás 2 sem hann sendi út ýmist beint úr stof-
unni heima hjá sér, eða úr danska ríkisútvarp-
inu. „Þegar ég kom fyrst út vann ég í tæplega
ár hjá ljósafyrirtækinu Brother & Son. Ég byrj-
aði þarna bara einn, en svo stækkaði fyrirtæk-
ið og ég fékk nánast að velja mér samstarfsé-
laga. Það er mjög vel séð að ráða Íslendinga í
vinnu í Danmörku, þykja afskaplega duglegir,
á meðan Danina þyrstir í kaffipásur og gubba
þegar þeir heyra minnst á yfirvinnu.“ Þá vann
hann einnig sem plötusnúður, undir nafninu
Sir Honky Tonk og spilaði allt að þrisvar í viku
á hinum ýmsu skemmtistöðum. Eftir eitt spil-
eríið hafði svo skrifstofa Franks Jensen, borg-
arstjóra Kaupmannahafnar, samband og í því
framhaldi spilaði Andri ótal sinnum á ýmsum
uppákomum sem tengdust framboði hans í
janúar á þessu ári. „Hann fílaði klassíska rokk-
ið. Ég spilaði meðal annars í sigurpartíinu
hans,“ segir Andri og á allt eins von á að fá lyk-
ilinn að Kaupmannahöfn sendan í pósti fyrir
vikið.
Kominn heim í bili og einhleypur í
þoKKabót
Andri er kominn heim til Íslands í bili, en hann
heldur áfram að vinna hjá RÚV í haust og að
minnsta kosti fram yfir áramót. Eins og vin-
ir kappans á Facebook hafa væntalega séð er
hann nýlega orðinni einhleypur, en vill lítið
tjá sig um þau mál. Prinsinn, þátturinn með
Ómari Ragnarssyni, verður í loftinu út sumarið,
en ekki er enn komið á hreint hvað Andri gerir
á Rás 2 í haust. Hann segir það ekki í kortun-
um að flytja aftur til Kaupmannahafnar á næst-
unni, þó svo honum líði vel í borginni, en úti-
lokar þó ekkert.
eKKi enn á toppnum
Andri byrjaði í útvarpi fyrir um það bil tíu árum
með þáttinn Karate á X-inu. Eftir það fór hann
að vera með daglegan þátt þar til stöðin var lögð
niður, en grínið hélt áfram á XFM, þar sem hann
og Búi Bendtsen nokkur stjórnuðu þættinum
Capone, við góðan orðstír. Nú er hann kominn
á Rás 2, ásamt Ómari Ragnarssyni, en segir það
af og frá að toppnum sé náð. „Þarf maður ekki
að bíða þar til Óli Palli deyr og taka starfið hans?
Ætli það sé ekki toppurinn.“ dori@dv.is
Ég hélt ég myndi bara koma heim
í rústir, en svo blasir
ekkert við nema þessi
Harpa, hálfkláruð hús
og heilu hverfin eins og
go-kart brautir.
Bjórinn
Útvarpsmaðurinn andri Freyr viðarsson er kominn aftur til landsins. Upphaflega kom hann einungis til
að vera með þátt yfir sumartímann á Rás 2 en nú er ljóst að hann mun staldra lengur við á stöðinni. Undanfarin
tvö ár hefur hann dvalið í Kaupmannahöfn, þar sem hann var meðal annars hirð-plötusnúður borgarstjórans.
allt of dýr
andri freyr Viðarsson
Er nú kominn aftur til Íslands, í
bili að minnsta kosti.
mynd hörður sVeinsson
í beinni Andri hefur verið ráðinn til frekari starfa
á Rás 2, en í sumar hefur hann stjórnað Prinsinum
ásamt Ómari Ragnarssyni. mynd hörður sVeinsson