Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 48
48 ÚTLIT UMSJÓN: VIKTORÍA HERMANNSDÓTTIR viktoria@dv.is 23. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
NÝ HÖNN-
UNARBÚÐ
Kiosk er ný íslensk verslun, staðsett
að Laugavegi 33. Búðin var formlega
opnuð í gær. Kisosk er fataverslun
þar sem níu íslenskir hönnuðir selja
hönnun sína. Þeir eru Arna Sigrún
Haraldsdóttir, Ásgrímur Már Frið-
riksson, Shadow Creatures, Eygló
Margrét Lárusdóttir, Hlín Reykdal,
María Björg Sigurðardóttir, Rebekka
Jónsdóttir, Sævar Markús og Ýr
Þrastardóttir. Þessari nýju viðbót í
verslunarflóru Íslendinga verður
vafalaust vel fagnað. Íslensk hönnun
er tiltölulega ódýr miðað við gæði
í flestum tilfellum og því tilvalið að
styrkja íslenskan iðnað. Íslenskt, já
takk!
FLUG-
MANNA-
JAKKAR
„Aviator“-jakkar, eða flug-
mannajakkar, eru eitt það
heitasta fyrir haustið. Margir
hönnuðir voru með jakkana í
haustlínum sínum og búast má
við að það verði mikið um þá í
verslunum með haustinu.
Þeir eru bæðir hlýir og töff.
Flottir leðurjakkar með hlýjum
loðfeld geta ekki klikkað. Það er
svo að sjálfsögðu toppurinn að
næla sér í alvöru gamlan flug-
mannajakka en það er líklega
mjög erfitt. Nýju jakkarnir fylgja
þó fast á eftir og þeir eru flottir
í alls kyns litum með mismun-
andi lituðu skinni.
Leiðrétting
Í síðasta helgarblaði urðu þau
leiðu mistök að það gleymdist að
setja nafn ljósmyndarans Heklu
Flókadóttur undir myndir í grein
um fatahönnuðinn Guðrúnu
Töru Sveinsdóttur. Biðjumst við
velvirðingar á þessu.
Flauel kemur sterkt inn í haust:
Konunglegt flauel
Þó að sumarið sé bara hálfnað
er hugurinn nú þegar farinn að
reika til hausttískunnar 2010.
Útsölur eru í flestum búðum og
það tekur því ekki að kaupa sér
sumarkjól sem endist manni
í mánuð. Þess vegna er freist-
andi að skoða hvað verður mest
áberandi í haust. Þar er flauel
áberandi í hinum ýmsu útfærsl-
um. Flauel var aðeins byrjað að
sjást síðasta haust og í ár verð-
ur það enn sýnilegra. Nokkr-
ir helstu hönnuðir heims voru
með flauel í haustlínum sínum
og skipti þá ekki máli hvort um
var að ræða kjóla, buxur, jakka,
blússur eða hvað eina annað.
Flauel er konunglegt, fallegt
og ekki skemmir fyrir hvað er
þægilegt að klæðast því. JULIAN LOUIS ROCHAS ALEXANDER WANG ALEXANDER WANG
„Okkur var búið að dreyma um þetta
lengi. Okkur fannst erfitt að fá þrí-
skipt jakkaföt – þá vesti, buxur og
jakka. Það var fyrst á dagskrá hjá okk-
ur að gera það. Síðan vildum við líka
gera okkar eigin hnébuxur. Buxurn-
ar í línunni eru þannig að þú getur
bæði haft þær síðar og notað þær
sem hnébuxur,“ segir Guðmundur
Jörundsson, yfirhönnuður Herraf-
ataverslunar Kormáks og Skjald-
ar. Verslunin hefur gert sína fyrstu
hönnunarlínu sem ber einfaldlega
nafnið „Kormákur og Skjöldur“. Lín-
an kemur í verslunina í haust. Hún
er saumuð í bakherbergi búðarinnar
og því algjörlega íslensk framleiðsla.
Verslunin hefur verið þekkt um langt
skeið fyrir gæðavöru og að halda
uppi heiðri alvöru herramennsku.
Þeir hafa lagt mikið upp úr því að
bjóða upp á gömul gæðaföt sem eru
samt ný. Yfirleitt úr gömlum lagerum
af ónotuðum fötum. Búðin byrjaði
þó upprunalega sem verslun með
notuð föt en færði sig fljótlega yfir í
ný gömul föt úr vönduðum efnum og
með góðum sniðum.
Mikil gæði
Guðmundur segir þá leggja mikið
upp úr að hafa efnin góð. „Þetta
eru mikil gæðaefni sem við notum
í hönnuninni. Þetta er fínasta enskt
tweed-efni. Efnin komu af gömlum
lager sem við keyptum part af. Við
vorum búin að ákveða að kaupa efn-
in fyrst og hanna út frá því. Við viss-
um samt hvernig efni við vildum fyrir
fram,“ segir hann. Þeir koma til með
að bjóða upp á 7–8 tegundir af efni.
Flestir karlmenn sem kunna að
meta góða hönnun ættu að geta not-
ið línunnar. Herramennskan er í fyr-
irrúmi. „Við verðum með fötin í mjög
góðum stærðum. Það ættu flestir að
fá föt sem passa, þau koma í stærð-
um 46–58. Þetta eru svona svolítið
öðruvísi föt. Þetta er fyrir alla karl-
menn, á hvaða aldri sem er,“ segir
Guðmundur og bætir við: „Mér hef-
ur líka fundist vanta vesti. Það hefur
verið mjög erfitt að fá flott vesti, með
smáatriðum og opin. Þau sem ég hef
fundið eru yfirleitt second-hand, það
hafa ekki verið til nein ný.“
Blanda af tímabilum
Hann segir línuna vera undir áhrif-
um frá fyrri árum. „Þetta er bara
svona klassík með tvisti. Þetta er
svona blanda af einhverjum tímabil-
um. Það er ekki mikið um föt í þess-
um stíl. Sérstaklega ekki ný.“ Guð-
mundur segir þá munu reyna að
stilla verðinu í hóf. „Það er ekki alveg
komið á hreint með verðið en þetta
verður verðlagt miðað við gæðin –
við stefnum á að þetta verði gæðaföt
á frekar fínu verði.“
Línan var frumsýnd á listahátíð
ungs fólks á Austurlandi – LungA
– um síðustu helgi. Að sögn Guð-
mundar tókst vel til og fengu þeir
góð viðbrögð við tískusýningunni.
„Svo stefnum við á að vera með aðra
sýningu í haust þegar línan er tilbú-
in. Hún verður þá haldin í Reykjavík.“
viktoria@dv.is
Herramennskan er í hávegum höfð í fyrstu herrafatalínu Herrafataverslunar
Kormáks og Skjaldar:
KLASSÍK
MEÐ TVISTI