Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 50
50 lífsstíll umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 23. júlí 2010 föstudagur
skyr-
terta
Inni á Ynjuneti má finna
skemmtilegar uppskriftir. Hér er
ein þeirra birt með góðfúslegu
leyfi ynjanna.
n Þessi ísterta fellur ekki, er fljót-
gerð og þarfnast ekki alls mögu-
legs hráefnis.
n Hana á að búa til með slumpi.
Bara svona eins og þér finnst
henta.
n Í meginatriðum er hún gerð
svona:
n Kökumót með lausum botni er
smurt og áður en það er klemmt
saman fer smjörpappír yfir botn-
inn.
n Hafrakex og smjör er mulið
saman í skál þar til það verður
nógu klesst til að geta þakið botn-
inn á mótinu.
n Mótinu með kexbotninum er
skellt í kæli á meðan ístertan er
búin til.
n Hrærðu saman í jöfnum hlut-
föllum bragðbættu skyri og van-
illuís. Hér var notað hindberja-
skyr og til þess að gera tertuna
pínulítið meira spennandi var
bætt í 2-3 msk. af hindberja-
sultu (með berjunum í). Þessari
blöndu er hellt ofan á kexbotninn
í mótinu og hún fryst í 30 mínút-
ur að minnsta kosti.
n Þegar kakan er tekin úr frysti
er ágætt að leggja mótið í snöggt
heitavatnsbað til að losa ísinn frá
mótinu eða verma það að utan
með höndunum.
n Skreytingin er skemmtilegust.
Hér var klipptur út bókstafur af-
mælisbarnsins og lagður ofan á
kökuna, kökuskrauti stráð yfir og
pappírsbókstafurinn svo tekinn
af.
Kolla gefur góð ráð um hvernig hægt er að breyta gömlum lúnum barnahúsgögnum með litlum tilkostnaði.
gömul húsgögn fá nýtt líf
Oftast þarf ekki mikið til að fríska upp
á lúin húsgögn og ef það er eitthvað
sem ég stenst ekki þá er það prufu-
málning í öllum regnbogans litum.
stólar og borð
Þú þarft:
Prufumálningardósir með lit að eig-
in vali. Ef þú ert í vafa er oft betra
að kaupa dekkri tóninn á litaspjald-
inu og kaupa hvíta málningu með
svo þú getir lýst að vild og fundið
þannig draumatóninn.
Pensil.
Fínan sandpappír, til dæmis 400, en
grófari ef gamla málningin er þykk
eða í mörgum lögum.
aðferð:
Byrjið á að þrífa alla fitu af húsgögn-
unum með sápuvatni. Ef húsgögn-
in eru máluð fyrir þarf að matta þau
með sandpappír og þurrka vel áður
en þau eru máluð.
Málið húsgögnin vandlega og athug-
ið að stundum þarf að grunna undir
ljósari litina. Að lokum eru húsgögn-
in lökkuð með möttu eða glansandi
lakki til að auka slitþol þeirra.
sessur
Þú þarft:
Svamp (þessi fékkst í Rúmfatalagern-
um fyrir nokkru)
Efni sem gleður augað (þetta tiltekna
efni breyttist úr gömlum víðum kjól
í sessu)
aðferð:
Sníðið svampinn eftir stólnum og
klippið til í rétta stærð.
Sníðið efnið ofan á sessuna í rúmlega
stærðina á sessunni og efnið undir í
tvo búta sem leggjast yfir hvorn ann-
an.
Faldið bútana tvo í saumavél.
Leggið röngu á móti röngu og saum-
ið saman en skiljið eftir faldaða opið
aftan á.
Snúið við og saumið bönd aftan á.
fyrir ynjur
á öllum aldri
„Þetta er eiginlega bara allt sem
viðkemur konum og okkur finnst
áhugavert og sniðugt. Við ákváð-
um einmitt að setja ekki stefnuna á
tísku því okkur finnst vera svo margt
í boði í henni en við tökum hana líka
í og með. En okkur finnst gaman að
kíkja bara á hvað konur eru að gera,
fara inn á vinnustofur og bara fjalla
um spennandi konur,“ segir Kolfinna
Mjöll Ásgeirsdóttir eða Kolla eins og
hún er kölluð. Hún heldur úti lífstíls-
síðunni ynjunet.is ásamt systrunum
Kristjönu Ösp og Örnu Guðbrands-
dætrum. Inni á síðunni er að finna
fjölbreytt úrval af efni fyrir konur á
öllum aldri. Þar má finna umfjöll-
un um afþreyingu, tískuumfjöllun,
umfjöllun um heilsu, ferðalög, börn,
menningu, mat og margt fleira.
Opið og fjölbreytt
Þær skrifa allar inn á síðuna en
þó um mismunandi málefni enda
áhugasvið þeirra ólík. „Við reynum
að hafa þetta fjölbreytt og þetta er
mjög opið. Við erum allar með mis-
munandi bakgrunn og það nýtist
okkur vel. Arna er menntaður arki-
tekt og hefur áhuga á náttúrunni
og öllu sem tengist því. Kristjana er
með blaðamennskubakgrunn og
getur skrifað um allt og ég er smíða-
kennari og hef rosalega gaman af því
að gera eitthvað í höndunum,“ seg-
ir Kolla. Systurnar stofnuðu síðuna
í september 2009 og buðu Kollu að
vera með í kringum síðustu jól. Kolla
heldur einnig út annarri síðu, augna-
blik.blogspot.com, þar sem má finna
einstaklega fallegar og skemmtilegar
ljósmyndir sem hún tekur. „Ég kem
inn í rauninni sem ljósmyndari með
frjálsar hendur. Þær voru náttúru-
lega búnar að sjá myndir af augna-
blik-síðunni og báðu mig þess vegna
að vera með. Ég tek allar myndir fyrir
síðuna nema annað komi fram. Sum-
ar eru aðsendar eða bara af netinu.“
Gerðu það sjálf
Kollu er margt til lista lagt og hefur
verið dugleg við að gefa lesendum
síðunnar góð ráð. Til dæmis hefur
hún breytt gömlum barnahúsgögn-
um með litlum tilkostnaði og sýnt
hvernig á að gera dýrðarinnar leik-
föng fyrir börn úr korktöppum.
„Þetta er til að gefa fólki hug-
myndir um hvað það getur gert sjálft.
Hún segist vera hrifin af því að gera
hlutina sjálf og vinni mikið í höndun-
um. Þetta er yfirleitt eitthvað sem ég
er að gera fyrir sjálfa mig og set það
svo inn. Það er misjafnt hvaðan hug-
myndirnar koma. Stundum er þetta
bara eitthvað sem ég sé eða bara úr
hausnum á mér,“ segir Kolla og hlær.
Myndrænt og skýrt
Síðan er mikið lesin af konum á öll-
um aldri. „Markhópurinn er í raun
bara konur á öllum aldri. Við reyn-
um að hafa þetta fjölbreytt og bara
eitthvað fyrir alla.“
Síðunni var breytt eftir að Kolla
slóst í för með þeim systrum og
stækkuð til muna. „Við ákváðum
að við vildum hafa hana svolítið
myndrænni og notendavænni. Bara
þannig að það sé fullt að sjá og skoða.
Fólk er kannski ekki að hanga og lesa
heilu greinarnar því það er kannski í
vinnunni eða að sinna börnunum og
þess vegna er fínt að hafa þetta svo-
lítið myndrænt og skýrt.“ viktoria@dv.is
Ynjunet.is er lífstílssíða fyrir konur á öllum aldri. Þar má finna umfjöllun um heilsu,
ferðalög, tísku, menningu, mat og nánast allt milli himins og jarðar.
Góð ráð Ynjurnar gefa góð ráð um hvernig megi gera auðvelda og fallega hjóla-
greiðslu í hárið.
Kolla Er ein þeirra sem
standa að baki síðunni.