Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 51
FÖSTUDAGUR 23. júlí 2010 SVIÐSLJÓS 51
Leikkonan Lindsay Lohan felldi tár á dögunum þegar dómari kvað upp úrskurð
sinn um að hún skyldi eyða 90 dög-
um í fangelsi og öðru eins á með-
ferðarstofnun. Lindsay hafði ítrek-
að brotið skilorð sitt en hún gerðist
sek um ölvunarakstur árið 2007.
„Ég gerði mitt besta,“ sagði
Lindsay með tárin í augunum við
dómsuppkvaðninguna en ákvörð-
un dómarans varð ekki breytt.
Lindsay mætti síðan til afplánunar
þann 20. júlí síðastliðinn. En hvað
varð til þess að leikkonan leiddist út
á þessa braut?
Rauðhærð barnastjarna
Lindsay er fædd þann 2. júlí 1986
í New York og er því 24 ára göm-
ul. Ferill hennar hófst þegar hún
var aðeins þriggja ára gömul en
Lindsay var þá fyrirsæta og sýndi
barnaföt á tískuljósmyndum hjá
Ford Models. Stóra tækifærið kom
þó ekki fyrr en 1998 þegar henni
bauðst aðalhlutverkið í Parent Trap
aðeins 11 ára gömul. Heimurinn
hreifst af rauða hárinu, freknun-
um og sakleysinu og Lindsay varð
barnastjarna á einni nóttu. Fleiri
kvikmyndir fylgdu í kjölfarið á borð
við Freaky Friday, Mean Girls og
Herbie sem var frumsýnd árið 2005.
Han gaf síðan út tvær plötur, Speak
og A Little More Personal. Fljótlega
eftir það fór að halla undan fæti hjá
leikkonunni sem virtist ekki höndla
frægðina mjög vel.
Handtekin fyrir ölvunarakstur
Eftir að Lindsay skaust upp á
stjörnuhimininn vakti það athygli
lesenda slúðurblaða að leikkonan
virtist alltaf vera úti á lífinu. Alls-
staðar þar sem fjörið var, þar var
Lindsay Lohan með sígarettuna og
kokteilglasið. Hún var mynduð í
villtum snekkjupartíum og á Play-
boy-setrinu og kollegar hennar í
Hollywood sáu fljótt í hvað stefndi.
Aðeins 21 árs var Lindsay hand-
tekin fyrir að aka drukkin og það
oftar en einu sinni. Í framhald-
inu var henni gert að leggjast inn
á hinar ýmsu meðferðarstofnanir
en ekkert virtist stöðva hana í þrá
sinni eftir skemmtanalífinu. Hún
var dæmd til að ganga með sérstakt
ökklaband sem nam magn áfengis í
blóðinu en féll fljótt á því prófi.
Grindhoruð og dottin
í harðari efni
Eftir að Lindsay var dæmd fyr-
ir ölvunaraksturinn var eins og
engin bönd héldu henni leng-
ur. Hún sást veltast út af næt-
urklúbbum í New York, Las Ve-
gas og Los Angeles og var oftar
en ekki mynduð með hvítt duft
sem flestir voru vissir um að inni-
héldi eiturlyf. Hún lenti ítrek að í
bílslysum og í eitt skiptið fannst
kókaín í bílnum sem að hennar
sögn var til eigin neyslu. Á sama
tíma hríðhoraðist leikkonan og
var að því er virtist að reyna að
líkjast sinni helstu partívinkonu
á þeim tíma, Nicole Richie, sem
var líka eins og gangandi beina-
grind. Fötin héngu utan á Linds-
ay, en hún landaði hverjum
auglýsingasamning num á fæt-
ur öðrum við tískurisa á borð við
Miu Miu og Jill Stuart.
Lesbískt ástarsamband
Á árunum 2008 og 2009
hófst undarlegt tíma-
bil í lífi stjörnunn-
ar en þá kom-
ust fjölmiðlar
á snoðir um
samband
hennar við
plötusnúð-
inn Samönthu
Ronson. Linds-
ay og Samantha
gerðu út á að
halda sameigin-
leg danskvöld á
næturklúbbum
og spilaði þá Ron-
son tónlistina en
Lindsay sá um að
draga að fólkið.
Aðspurð um
kynhneigð sína,
hefur Lindsay neit-
að því að vera sam-
kynhneigð en gefið
loðin svör varðandi
tvíkynhneigð.
„Kannski, já. En
ég vil ekki skilgreina
sjálfa mig þannig.“
Í mars 2009 slitn-
aði upp úr sambandi
hennar við Samönthu
og hefur Lindsay ver-
ið einhleyp síðan þótt
hún hafi verið orðuð við
ýmsa glaumgosa.
Ferillinn í ræsinu
Flest kvikmyndaver-
in hafa sagt skilið við
Lindsay og eftir að samn-
ingur hennar rann út við
Disney hefur hún lítið sem
ekkert leikið, fyrir utan
gestahlutverk í nokkrum
sjónvarpsþáttum. Tón-
list hennar hefur ekki ver-
ið vel tekið og hefur hún
að mestu einbeitt sér að
því að vinna fyrir sér með
skemmtanalífinu, fá borg-
að fyrir að mæta í opnan-
ir og veislur. Enda hefur sú
tryllta rússíbanareið sem
líf Lindsay er þessa dagana
einna helst farið fram á næt-
urklúbbum heimsins. En
Lindsay dansar ekki næstu
þrjá mánuðina, það er ljóst.
Síðan er spurning hvern-
ig rauðhærða barnastjarnan
vinnur úr sínum málum að
afplánun lokinni.
RÚSSÍBANAREIÐ
LINDSAY
Líf Lindsay Lohan hefur einkennst af óreiðu og tryllingi:
Saklaus barnastjarna Lindsay þegar
ferillinn var að fara á flug - ung og saklaus.
Handtekin Lindsay var handtekin
margsinnis fyrir ölvunarakstur og brot
á skilorði.
Grindhoruð Líferni leikkonunar tók
sinn toll og lengi veltu fjölmiðlar því
fyrir sér hvort hún þjáðist af anorexíu.
Á Playboy-setrinu Lindsay sótti villt
partí, meðal annars á Playboy-setrinu.
Undir eftirliti Lindsay með
ökklabandið sem mælir áfengismagn
í blóðinu.
Á leið í fangelsi Leikkonan brast í
grát þegar dómur var kveðinn upp á
dögunum.
Sjúskuð úti á lífinu H
eilbrigða
útlitið sem Lindsay va
r svo stolt af er
löngu farið.