Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Page 51
FÖSTUDAGUR 23. júlí 2010 SVIÐSLJÓS 51 Leikkonan Lindsay Lohan felldi tár á dögunum þegar dómari kvað upp úrskurð sinn um að hún skyldi eyða 90 dög- um í fangelsi og öðru eins á með- ferðarstofnun. Lindsay hafði ítrek- að brotið skilorð sitt en hún gerðist sek um ölvunarakstur árið 2007. „Ég gerði mitt besta,“ sagði Lindsay með tárin í augunum við dómsuppkvaðninguna en ákvörð- un dómarans varð ekki breytt. Lindsay mætti síðan til afplánunar þann 20. júlí síðastliðinn. En hvað varð til þess að leikkonan leiddist út á þessa braut? Rauðhærð barnastjarna Lindsay er fædd þann 2. júlí 1986 í New York og er því 24 ára göm- ul. Ferill hennar hófst þegar hún var aðeins þriggja ára gömul en Lindsay var þá fyrirsæta og sýndi barnaföt á tískuljósmyndum hjá Ford Models. Stóra tækifærið kom þó ekki fyrr en 1998 þegar henni bauðst aðalhlutverkið í Parent Trap aðeins 11 ára gömul. Heimurinn hreifst af rauða hárinu, freknun- um og sakleysinu og Lindsay varð barnastjarna á einni nóttu. Fleiri kvikmyndir fylgdu í kjölfarið á borð við Freaky Friday, Mean Girls og Herbie sem var frumsýnd árið 2005. Han gaf síðan út tvær plötur, Speak og A Little More Personal. Fljótlega eftir það fór að halla undan fæti hjá leikkonunni sem virtist ekki höndla frægðina mjög vel. Handtekin fyrir ölvunarakstur Eftir að Lindsay skaust upp á stjörnuhimininn vakti það athygli lesenda slúðurblaða að leikkonan virtist alltaf vera úti á lífinu. Alls- staðar þar sem fjörið var, þar var Lindsay Lohan með sígarettuna og kokteilglasið. Hún var mynduð í villtum snekkjupartíum og á Play- boy-setrinu og kollegar hennar í Hollywood sáu fljótt í hvað stefndi. Aðeins 21 árs var Lindsay hand- tekin fyrir að aka drukkin og það oftar en einu sinni. Í framhald- inu var henni gert að leggjast inn á hinar ýmsu meðferðarstofnanir en ekkert virtist stöðva hana í þrá sinni eftir skemmtanalífinu. Hún var dæmd til að ganga með sérstakt ökklaband sem nam magn áfengis í blóðinu en féll fljótt á því prófi. Grindhoruð og dottin í harðari efni Eftir að Lindsay var dæmd fyr- ir ölvunaraksturinn var eins og engin bönd héldu henni leng- ur. Hún sást veltast út af næt- urklúbbum í New York, Las Ve- gas og Los Angeles og var oftar en ekki mynduð með hvítt duft sem flestir voru vissir um að inni- héldi eiturlyf. Hún lenti ítrek að í bílslysum og í eitt skiptið fannst kókaín í bílnum sem að hennar sögn var til eigin neyslu. Á sama tíma hríðhoraðist leikkonan og var að því er virtist að reyna að líkjast sinni helstu partívinkonu á þeim tíma, Nicole Richie, sem var líka eins og gangandi beina- grind. Fötin héngu utan á Linds- ay, en hún landaði hverjum auglýsingasamning num á fæt- ur öðrum við tískurisa á borð við Miu Miu og Jill Stuart. Lesbískt ástarsamband Á árunum 2008 og 2009 hófst undarlegt tíma- bil í lífi stjörnunn- ar en þá kom- ust fjölmiðlar á snoðir um samband hennar við plötusnúð- inn Samönthu Ronson. Linds- ay og Samantha gerðu út á að halda sameigin- leg danskvöld á næturklúbbum og spilaði þá Ron- son tónlistina en Lindsay sá um að draga að fólkið. Aðspurð um kynhneigð sína, hefur Lindsay neit- að því að vera sam- kynhneigð en gefið loðin svör varðandi tvíkynhneigð. „Kannski, já. En ég vil ekki skilgreina sjálfa mig þannig.“ Í mars 2009 slitn- aði upp úr sambandi hennar við Samönthu og hefur Lindsay ver- ið einhleyp síðan þótt hún hafi verið orðuð við ýmsa glaumgosa. Ferillinn í ræsinu Flest kvikmyndaver- in hafa sagt skilið við Lindsay og eftir að samn- ingur hennar rann út við Disney hefur hún lítið sem ekkert leikið, fyrir utan gestahlutverk í nokkrum sjónvarpsþáttum. Tón- list hennar hefur ekki ver- ið vel tekið og hefur hún að mestu einbeitt sér að því að vinna fyrir sér með skemmtanalífinu, fá borg- að fyrir að mæta í opnan- ir og veislur. Enda hefur sú tryllta rússíbanareið sem líf Lindsay er þessa dagana einna helst farið fram á næt- urklúbbum heimsins. En Lindsay dansar ekki næstu þrjá mánuðina, það er ljóst. Síðan er spurning hvern- ig rauðhærða barnastjarnan vinnur úr sínum málum að afplánun lokinni. RÚSSÍBANAREIÐ LINDSAY Líf Lindsay Lohan hefur einkennst af óreiðu og tryllingi: Saklaus barnastjarna Lindsay þegar ferillinn var að fara á flug - ung og saklaus. Handtekin Lindsay var handtekin margsinnis fyrir ölvunarakstur og brot á skilorði. Grindhoruð Líferni leikkonunar tók sinn toll og lengi veltu fjölmiðlar því fyrir sér hvort hún þjáðist af anorexíu. Á Playboy-setrinu Lindsay sótti villt partí, meðal annars á Playboy-setrinu. Undir eftirliti Lindsay með ökklabandið sem mælir áfengismagn í blóðinu. Á leið í fangelsi Leikkonan brast í grát þegar dómur var kveðinn upp á dögunum. Sjúskuð úti á lífinu H eilbrigða útlitið sem Lindsay va r svo stolt af er löngu farið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.