Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 2
2 fréttir 18. ágúst miðvikudagur
Vinir í sárum
Nánir vinir Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á
heimili sínu um síðustu helgi, eru harmi slegnir yfir atburð-
inum og skilja ekki hver hafi viljað vinna góðvini þeirra mein.
Þeir segja hann hafa verið ljúfling og einn traustasta vin sem
hægt væri að hugsa sér.
Hannes Þór Helgason Traustasti vinur sem hægt var að hugsa sér, að sögn vina.
Handtekinn vegna
ástar á unnustunni
„Hannes var traustasti vinur sem
nokkurn tímann er hægt að hugsa
sér. Í mínum huga var hann einstakl-
ingur sem hefði ekki átt svona lagað
skilið. Ég sakna gríðarlega góðs vin-
ar,“ segir Óðinn Rafnsson, æskuvin-
ur Hannesar Þórs Helgasonar, sem
fannst látinn á heimili sínu síðastlið-
inn sunnudag.
Hannes Þór, sem var fram-
kvæmdastjóri hjá sælgætisgerðinni
Góu, fannst látinn á heimili sínu um
hádegisbil á sunnudag og var það
unnusta hans sem fann hann liggj-
andi í blóði sínu við rúmið. Ljóst er
á ummerkjum að stympingar höfðu
átt sér stað en morðinginn er tal-
inn hafa læðst inn í húsið inn um
inngang sem allajafna var ólæst-
ur. Fjölda stungusára var að finna á
hinum látna og talið líklegt að hann
hafi verið stunginn þar sem hann
lá sofandi. Rannsókn tæknideildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
stendur enn yfir.
Hláturmilt ljúfmenni
Í samtali við Pressuna sagði Eyþór
Eðvarðsson, náinn vinur Hannes-
ar Helgasonar, það vera óskiljanlegt
að einhver hafi viljað vinna Hann-
esi vini hans mein. Að hans sögn
töluðu þeir vinirnir saman kvöldið
fyrir andlátið. „Að fá fregnir af slík-
um hörmungaratburði sem þess-
um er reynsla sem ég óska engum.
Þær tilfinningar sem maður upplifir
eru ólýsanlegar. Hvernig kaldrifjað-
ur morðingi getur í skjóli nætur veist
svona að slíkum dreng sem Hannes
var, er algjörlega óskiljanlegt,“ segir
Eyþór.
Eyþór segist í samtali við Press-
una hafa kynnst Hannesi fyr-
ir nokkrum árum. Það var þegar
Hannes hóf uppsetningu KFC-veit-
ingahúsa í Litháen, en Eyþór er bú-
settur þar í landi. Eyþór segist ekki
nema gott eitt um Hannes að segja.
„Hann var ljúfmenni, vildi öll-
um vel, hjálpsamur og sanngjarn.
Hannes fór ekki í manngreinarálit.
Fyrir honum voru allir jafnir. Hann
var hláturmildur og fór í gegnum
hlutina með jafnaðargeði og æðru-
leysi. Hannes heitinn var kominn
af mjög samheldinni fjölskyldu og
greinilegt að hann ólst upp við ást-
ríki og tileinkaði sér traust gagnvart
náunganum,“ segir Eyþór.
Hugurinn hjá fjölskyldunni
Óðinn segist einfaldlega ekki skilja
örlög æskuvinar síns. „Hann vildi
gera allt fyrir alla sem voru í kring-
um hann. Hann var algjör ljúfling-
ur og toppstrákur í alla staði. Það var
aldrei nema gott eitt sem frá hon-
um kom. Ég skil ekki svona, þetta er
svo hrottalegt. Þetta kom gríðarlega
flatt upp á mig enda höfum við verið
vinir nánast frá fæðingu. Ég er mjög
reiður að svona geti átt sér stað, hér
á Íslandi og í svona litlu þjóðfélagi,“
segir Óðinn. „Þetta er gríðarlegt
áfall fyrir alla. Ég er bara orðlaus yfir
þessu og veit ekkert í hvorn fótinn ég
á að stíga.“
Eyþór segist hafa verið harmi
sleginn þegar hann fékk fréttirnar
af dauða Hannesar. Hugur Eyþórs
er hjá fjölskyldu hins látna „Maður
reynir að beina frá sér þeim hugs-
unum sem að manni sækja, eins og
þeim hvernig síðustu mínúturnar
voru í hans lífi. Ég var á gangi þeg-
ar ég fékk símtal með þessari hræði-
legu fregn. Ósjálfráð viðbrögð voru
að líta strax um öxl og í kringum mig.
Mér er fyrirmunað að skilja hvernig
fjölskyldu hans líður nú og hvernig
þau muni komast í gegnum þessa
raun,“ segir Eyþór.
ritstjorn@dv.is
Ég skil ekki svona, þetta er
svo hrottalegt.
Ástarjátningar á YouTube vöktu athygli lögreglunnar.
Maðurinn sem grunaður var um að
hafa tengst morðinu á Hannesi er
æskuvinur unnustu Hannesar, en
þau eru bæði úr Hafnarfirðinum.
Hann vakti mikla athygli í netheim-
um þegar ástarjátningar hans til
konu birtust á YouTube og vöktu
mikla athygli í fjölmiðlum. Stúlkan
sem ástarjátning hans beindist að
mun hafa verið unnusta hins myrta.
Það er meðal annars á grunni þess
sem rannsókn lögreglunnar beind-
ist að því hvort um ástríðuglæp hafi
verið að ræða. Hinn grunaði hafi ver-
ið heltekinn af ást á unnustu hins
myrta, ást sem hann játaði afar op-
inberlega og af einlægni á YouTube
í fyrra.
Síðar birti hinn grunaði annað
myndband á YouTube vegna fjölda
áskorana eftir að hann hafði fengið
þau svör frá stúlkunni að ástin væri
ekki endurgoldin. Hann varð þó fyr-
ir talsverðu aðkasti vegna mynd-
bandanna, eins og hann lýsir í einu
af myndböndum sínum á YouTube.
Handtekinn vegna ástar
Maðurinn sem er á þrítugsaldri
var handtekinn síðastliðinn mánu-
dag, grunaður um að hafa átt aðild
að málinu, og færður til yfirheyrslu
seint að kvöldi sama dags. Í kjölfar
yfirheyrslunnar þótti lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu ástæða til að
halda honum lengur og var ákveð-
ið að láta hann ekki lausan þar sem
grunur lék á að hann ætti aðild að
morðinu.
„Það var full ástæða til að hand-
taka hann og rannsaka málið bet-
ur. Gögn gáfu alveg tilefni til þess
og þess vegna var það gert,“ segir
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlög-
regluþjónn í samtali við DV. Spurð-
ur um rannsókn á hugsanlegri aðild
mannsins að málinu segir hann ein-
faldlega: „Ég gef ekkert upp um það.“
Í síðdegisfréttum RÚV klukkan
fjögur í gær kom fram að lögreglan
hefði krafist gæsluvarðhalds yfir hin-
um grunaða. Nokkru síðar barst fjöl-
miðlum tilkynning frá lögreglu þar
sem fram kom að honum yrði sleppt
úr haldi. Samkvæmt tilkynningunni
þótti ekki efni, að mati lögreglu, til að
krefjast gæsluvarðhalds yfir hinum
grunaða. Fleiri hafa verið handteknir
í tengslum við morðmálið í Hafnar-
firði en enginn er nú í haldi lögreglu.