Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 18. ágúst 2010 miðvikudagur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Karlmaður- inn, sem er pólskur, var sakfelldur fyr- ir að nauðga konu á heimili sínu að- faranótt 29. júní árið 2009. Fyrir dómi sagði fórnarlambið að karlmaður- inn hefði boðið sér heim til sín. Þeg- ar þangað var komið hafi maðurinn hrint henni inn í herbergi með þeim afleiðingum að hún féll á skáp eða hillu. Hún hafi vankast og ekki vitað fyrr en hún hafi legið á rúmi mannsins. Hann hafi klætt hana úr buxum og nærbuxum og í framhaldinu nauðgað henni. Eftir að maðurinn hafði lokið sér af, tókst henni að komast á brott en vinir hennar hafi sótt hana á Ingólfs- torg. Í framhaldi af því fór hún á Neyð- armóttöku vegna nauðgana. Hinn dæmdi nauðgari sagði fyrir dómi að hann hefði verið á ferð um bæinn í leit að flöskum og dósum þegar hann hafi hitt konuna við Kolaportið. Þetta var síðla nætur. Hann neitaði því að hann hefði haft samræði við konuna. Hann hefði hins vegar kysst hana og þau verið innileg, en hann hefði ekki getað haft samræði við konuna. Dómurinn taldi framburð manns- ins ótrúverðugan, sérstaklega þar sem hann neitaði því að hafa haft samræði við hana. Fyrir dómi var maðurinn margspurður hvort hann hefði stung- ið getnaðarlim sínum í leggöng kon- unnar. Hann neitaði því ávallt, þrátt fyrir að DNA-rannsókn hefði sýnt fram á hið gagnstæða. Manninum var gert að greiða fórnarlambi sínu 1,2 milljónir króna í skaðabætur ásamt vöxtum. Þá var honum einnig gert að greiða rúmlega 1,1 milljónir króna í sakarkostnað. Nauðgari dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Fangelsi fyrir nauðgun Þriggja og hálfs árs fangelsi Maðurinn hrinti konunni þannig að hún vankaðist. Hann nauðgaði henni síðan. Tekið mið af stöðunni „Kirkjan virðist ekki ráða við sín innri mál og engu líkara er en að hún sé að ýmsu leyti að slitna úr sambandi við þjóðina,“ segir Björn Valur Gíslason sem situr í fjárlaga- nefnd Alþingis. Hann vill að tekið verð tillit til stöðunnar innan kirkj- unnar við gerð fjárlaga. Þá bendir hann meðal annars á umfjöllun DV um kynferðisbrot innan kirkjunnar og umræðu á meðal presta sem telja sig ekki þurfa að tilkynna barna- verndaryfirvöldum um slík brot. Þokkalegt hjá RÚV „Staðan er bara þokkaleg,“ sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri eft- ir fund með starfsmönnum Ríkis- útvarpsins í gær. Hann sagði frekari uppsagnir ekki fyrir- hugaðar hjá stofnuninni. „Það eru eng- ar uppsagnir fyrirhugaðar í tengslum við boðaðan niður- skurð á tekjum.“ Páll sagði RÚV vera langt komið með að mæta þessum niðurskurði. „Rekstur- inn hefur gengið vel og afkoman verið jákvæð. Við þurfum ekki að sækja þessar tekjur í reksturinn.“ Færður til í starfi Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur beðist afsökunar vegna ummæla sem hann lét falla í DV og óskað eftir að vera færður úr starfi yfirmanns kynferðis- brotadeildar. Fram kemur í tilkynningu frá embættinu að ummælin endur- spegluðu á engan hátt afstöðu eða viðhorf embættisins til kynferðis- brota eða fórnarlamba slíkra brota. LAGERSALA www.xena.is Mikið af fínum skóm í leikfiminano1 - st. 28-35 verð kr. 3995.- no2 - st. 41-47 verð kr. 7995.- no3 - st. 36-41 verð kr. 7495.- Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 „Ég var bara að segja þeim að ég hefði séð þá berja mann í bakið,“ sagði tón- listarmaðurinn Eyþór Gunnarsson. Eyþór talaði við lögregluna eftir að hafa orðið vitni að því að einn sak- borninganna var barinn í bakið þeg- ar hann hugðist fara aftur inn í Hér- aðsdóm Reykjavíkur eftir að fyrirtöku í máli á hendur nímenningunum, sem ákærðir eru fyrir árás gegn Al- þingi í desember 2008, lauk á þriðju- dag. „Einn af sakborningunum, sem átti erindi þangað inn, fékk að fara inn en þeir börðu hann í bakið. Það barði einn lögreglumaðurinn hann í bakið. Ef þetta er ekki tilefnislaust ofbeldi, sem á að kæra, þá veit ég ekki hvað það er,“ sagði Eyþór við blaðamann DV. Snorri Páll Jónsson, einn sakborn- inganna í málinu, segir að sér hafi um tíma verið meinuð innganga í Héraðs- dóm Reykjavíkur. „Ég brást eitthvað reiður við. Þeir ætluðu ekki að hleypa mér inn. Þá tóku þeir eitthvað í mig en ég ætla ekki að gera neitt mál úr því. Ég nenni ekki að gera eitthvað veður út af því. Þetta var ekkert ofbeldi, þetta var allt í lagi,“ sagði Snorri. Númerslausar löggur Til átaka kom á milli lögreglu og við- staddra í héraðsdómi áður en mál- ið var tekið fyrir. Eftir þær ryskingar ræddu menn mjög fyrir utan hér- aðsdóm það að lögreglumenn virt- ust vera númerslausir. Spurðu nokkr- ir lögreglumennina hvers vegna þeir bæru ekki númer og töldu sig ekki geta tilgreint lögreglumenn ef að til kvartana eða kæru kæmi vegna þeirra. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höf- uðborgarsvæðinu, segir ekkert mæla fyrir um að lögreglumenn eigi að vera með númer ef þeir eru á vettvangi. Númerin séu allajafna á einkennum þeirra. Hann segir ríkissaksóknara ákæra lögreglumenn. „Það fer ekkert á milli mála hvaða lögreglumenn eru við störf. Ef ríkissaksóknari kallar eftir þeim upplýsingum þá erum við með þær,“ segir Stefán. Vanhæfi dómara Í dómsalnum var þó fjallað um önn- ur mál en númer lögreglumanna. Þar vildi Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra sakborninganna, meina að einn dómaranna í málinu væri van- hæfur því að hann á að hafa beðið lög- reglu um að vakta dómsalinn. „Það fór fram málflutningur um hæfi eða vanhæfi dómarans,“ sagði Ragnar að- spurður um þann málflutning að frá upphafi hafi einn dómarinn boðað lögreglu til að vera viðstödd réttar- höldin. „Það fékkst nú endanlega staðfest í gær að frá upphafi, án þess að nokk- uð tilefni væri til, var lögregla boðuð í réttarsal. Það var ekki lögreglan sem átti frumkvæði að því heldur gerði dómarinn það í samráði við dóm- stjórann. Þar með voru komin afskipti annarra af meðferð dómsmálsins, sem er ekki rétt,“ segir Ragnar. Dómarinn tók málið til úrskurðar og kveður upp úrskurð í næstu viku. Til ryskinga kom á milli lögreglu og viðstaddra í héraðsdómi, en Ragnar sagði alla hafa verið stillta og prúða inn í réttarsal, eins og venjulega. Til átaka kom á milli lögreglumanna og viðstaddra fyrir utan Héraðsdóm Reykjavík- ur er fyrirtaka máls nímenninganna, sem sakaðir eru um árás á Alþingi árið 2008, fór fram. Viðstaddir, þeirra á meðal tónlistar- maðurinn Eyþór Gunnarsson, voru ekki á eitt sáttir við aðgerðir lögreglu. Veltu menn einnig vöngum yfir númerslausum lögreglu- mönnum sem stóðu vörð við héraðsdóm. Númerslaus lögregla og vaNhæFur dómari birGir olGEirssoN blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Ég brást eitthvað reiður við. Tekist á í héraði Fyrirtaka var í máli nímenninganna á fimmtu- dag þar sem þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi. myNd róbErT rEyNissoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.