Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 19
Sigurlaug VordíS EyStEinSdóttir er einn af stjórnendum tónlistarhátíðarinnar Gærunnar sem fór fram á Sauðárkróki um helgina. Hátíðin var haldin í fyrsta skipti og komu margir þekktir tónlistarmenn fram. Sigurlaug Vordís vonast til þess að um árlegan viðburð verði að ræða. ENGAR HUGMYNDIR ERU SLÆMAR Þegar embættismenn í samráðs- hópi um fjármálastöðugleika ákváðu árið 2008 að halda alvarlegum og mikil vægum upplýsingum um stöðu bankanna leyndum sagði engin neitt. Þagnarmúrinn hélt. Innmúraðir og innvígðir höfðu hins vegar upplýsing- arnar og gátu selt og keypt hlutabréf í bönkunum í samræmi við innherja- upplýsingar sínar. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis- stjóri hrunflokkanna í fjármálaráðu- neytinu, sagði á fundi síðla þetta sum- ar að ef þær upplýsingar sem nefndin hefði undir höndum yrðu á allra vit- orði yrði það banabiti bankanna. Upplýsingarnar sem innvígðir höfðu urðu banabiti bankanna þótt þeim væri haldið leyndum fyrir al- menningi. Eftir sátu 40 þúsund hlut- hafar í íslensku bönkunum með sárt ennið. Fyrir utan alla hina, erlend- is sem hérlendis. Mánuðum, jafnvel misserum saman, hafði mikilvægum upplýsingum verið haldið leyndum fyrir þeim. Leyndin átti að koma í veg fyrir að eign þeirra í bönkunum rýrn- aði eða yrði að engu. Enginn hefur enn sagt þjóðinni hvort hjá sérstökum saksóknara liggi mál embættismanna, stjórnmála- manna, vina eða ættingja, sem hag- nýttu ofangreindar innherjaupplýs- ingar fyrir hrun og björguðu skinni sínu með aðstöðubraski eða aðild- inni að klíkum með flokksskírteini. Halldór Bjarkar Lúðvíksson, fyrrver- andi starfsmaður Kaupþings, hefur vitnað gegn eigendum og stjórnend- um hins fallna banka, meðal annars í Al Thani-málinu. Brot úr yfirheyrsl- um yfir honum hafa birst á síðum DV. Halldór Bjarkar sagði efnislega, að þegar honum varð ljóst hvers kyns bull væri í gangi, hefði hann selt hlutabréf sín í bankanum. Það var fyrir hrun. Hann, Baldur Guðlaugsson og margir aðrir innvígð- ir vissu. Hinir voru í góðri trú. Hreingerningu ekki lokið Þeim, sem mesta ábyrgð báru á stjórnsýslu, sem vísvitandi gekk út á að sniðganga lög um meðferð inn- herjaupplýsinga fyrir hrun, hefur flestum verið skákað úr embættum sínum. Davíð Oddssyni og aðstoð- armönnum hans í Seðlabankanum var hent út. Innmúraður Baldur, vin- ur Davíðs, er hættur og svarar fyrir innherjasvik í réttarsölum. Björgvin G. Sigurðsson, bankamálaráðherra „non grata“ í tíð Davíðs, Geirs og Ingi- bjargar, sparkaði Jónasi Fr. Jónssyni, meðvirkum forstjóra FME, úr emb- ætti og sagði jafnframt sjálfur af sér. Hann fékk engar þakkir fyrir fram- gönguna en mætir fálæti samherja sinna. Geir H. Haarde sagði af sér og hvarf út úr pólitík. Börn sjá um að auglýsa eftir honum með veggja- kroti þessa dagana. Árni Mathiesen fór sömu leið eftir skammarlega auð- sveipni við spillta flokksforystu sem kom vinum og vandamönnum fyrir í hæstarétti með kúbeini og járnkarli. Davíð hefur nú heilt Morgunblað á kostnað forréttindastéttar í landinu til að segja þjóðinni að vanrækslu- syndir hans hafi engar verið. Hafandi allt þetta í huga eru meint- ar vanrækslusyndir Gylfa Magnús- sonar, efnahags og viðskiptaráðherra, varðandi gengisbundin gjaldeyris- lán smávægilegar í samanburði þær syndir sem leiddu til alhruns íslenska fjármálakerfisins. Lengi hefur legið fyrir, að dómstólar myndu kveða upp úr um lögmæti gengistryggðra lána. Efast má um að það sé hlutverk fram- kvæmdavaldsins, ráðherra, að gefa út yfirlýsingar um mál sem dómsvaldið hefur til meðferðar. Ríkisstjórnin stefnir að bættri og heilbrigðari stjórnssýslu og skipaði nefnd til að fjalla um málið. Í áfanga- skýrslu nefndarinnar, sem út kom snemmsumars, segir meðal annars: „Stjórnarráð Íslands og stjórnsýslan í heild glíma við trúverðugleikavanda sem endurspeglast ekki síst í um- ræðu um ófaglegar og jafnvel spilltar ráðningar. Því er haldið fram að fólk sé oft ráðið á grundvelli pólitískra tengsla og fyrirgreiðslu frekar en fag- legra sjónarmiða – flokksskírteini hafi meira að segja við ráðningu og skip- un í embætti en menntun, hæfni og reynsla.“ Ekki verður sagt að stjórnsýslan, sem tengir viðskiptaráðuneytið og Seðlabankann, hafi verið gagnsæ og markviss hvað gengislánin varðar. Hvergi yrði talin fagleg sú stjórn- sýsla sem hélt bankamálaráðherr- anum utan við atburðarásina og ákvarðanatökuna örlagadagana þeg- ar bankakerfið hrundi. Vonandi les ríkisstjórnin stjórn- sýsluskýrsluna sem hún bað um og fylgir grundvallarsjónarmiðum hennar. Megi sú stjórnsýsla og embættis- færsla, sem að ofan er lýst, aldrei þríf- ast á ný hér á landi. Afvegaleiðandi stjórnsýsla 1 Grunaður um morð í Hafnar-firði: Játaði ást á Youtube Karlmaður sem var í haldi lögreglu grunaður um morðið í Hafnarfirði birti ástarjátningar á netinu. 2 Hinn Grunaði kvartaði undan svefnleYsi Fjallað var um manninn sem sat í haldi lögreglunnar, grunaður um morðið í Hafnarfirði. 3 Gestir skemmtistaða: láta nauðGanir afskiptalausar Eyrún Jónsdóttir, deildarstjóri Neyðarmóttökunnar, segist heyra reglulega sögur af afskiptaleysi fólks. 4 manndráp í Hafnarfirði: Grunaður maður í Haldi Lögreglan handtók mann grunaðan um morðið í Hafnarfirði. Honum var sleppt um miðjan dag í gær. 5 baráttan við benzó-lYf: breYttu mér alGJörleGa Slæm reynsla konu sem fékk Benzodia- zepine-lyf. 6 HelminGur í veikindaleYfi Helmingur af framkvæmdastjórum Seltjarnarnesbæjar er kominn í leyfi frá störfum. 7 Grunaður laus úr Haldi Hinum grunaða í morðmálinu í Hafnarfirði var sleppt úr haldi lögreglunnar. mest lesið á dv.is myndin Hver er konan? „Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, deild- arstjóri tómstunda, viðburðastjórnandi, tónlistar- og leiklistarkona og varafor- maður Samfés.“ Hvað drífur þig áfram í lífinu? „Að hafa nóg fyrir stafni. Gera þá hluti sem mig langar að gera. Ekki vera með nein „ef“ í farteskinu. Engar hugmyndir eru slæmar hugmyndir.“ Hver er fyrirmyndin? „Móðir mín.“ Hvað borðarðu í morgunmat? „Seríos eða hafragraut.“ Hvar ólstu upp? „Á Hofsósi og á Sauðárkróki.“ uppáhalds tónlistarmaðurinn/ hljómsveitin? „Er með fjölbreyttan tónlistarsmekk. Í uppáhaldi núna eru Tom Waits, Janis Joplin og Led Zeppelin. Get ekki gert upp á milli.“ Hver eru áhugamálin? „Tónlistin númer eitt og svo leiklistin. Svo hef ég gaman af náttúrunni.“ Hvað er framundan? „Mikil vinna í sambandi við félagsmið- stöðvarnar og tómstundir. Halda áfram uppbyggingu Samféss. Fullt af söng og leikstýring. Halda námskeið líka og knúsa börnin mín aðeins.“ Verður gæran að árlegum viðburði? „Vonandi fáum við tækifæri til að gera þetta að árlegum viðburði og halda þannig eina flotta tónlistarhátíð á Norðurlandi.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Að vera jákvæð og brosa. Taka öllu með opnum huga.“ maður dagsins kjallari „Já, já.“ Hörður StEfánSSon 58 ÁrA, JÁrNSMiður „Ég er hlutlaus.“ guðmundur HaukSSon 25 ÁrA, SJúKrALiði „Já.“ Þorbjörg guðnadóttir 55 ÁrA, STArFSMAður Á HEiLSuGæSLu „Já ég geri það.“ HElgi Hrafn ÚlfSSon 22, ÁrA NEMi „Já, ekki spurning.“ róbErt SigurðSSon 28 ÁrA, HúSASMiður stYður þú niðurskurð HJá þJóðkirkJunni? dómstóll götunnar miðvikudagur 18. ágúst 2010 umræða 19 „Upplýsingarnar sem innvígðir höfðu urðu banabiti bankanna þótt þeim væri haldið leyndum fyrir almenningi.“ jóHann HaukSSon blaðamaður skrifar mávar Fjöldinn allur af mávum sat á Stjórnarráðinu eftir að mótmælendur dreifðu brauðmolum þar fyrir utan á þriðjudag. mynd róbErt rEyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.