Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 21
Eyjólfur Einarsson
myndlistarmaður í reykjavík
Eyjólfur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk landsprófi 1956,
var tvo vetur í menntaskóla, stund-
aði skúlptúrnámskeið hjá Ásmundi
Sveinssyni 1951-53 , stundaði nám
í módelteikningu við Handíða- og
myndlistaskólann 1957-60 og stund-
aði nám við Det Kongelige Danske
Kunstakademi í Kaupmannahöfn
1962-66 þar sem hann lærði hjá próf-
essor Søren Hjorth-Nielsen.
Sýningar sem Eyjólfur hefur hald-
ið eða tekið þátt í sl. hálfa öld: Sýning-
arsalurinn Týsgötu 1961; Mokkakaffi,
1964; Bogasalur Þjóðminjasafnsins,
1965; Mokkakaffi, 1968; Gallerí SÚM,
1971; Vestmannaeyjabær, 1972; Gall-
erí SÚM, 1974; Neskaupstaður, 1976;
Norræna húsið, 1978; Gallerí Háhóll,
1978; Listmunahúsið, Lækjargötu 2,
1983; Listmunahúsið, Lækjargötu 2,
1984; Listmunahúsið, Lækjargötu 2,
1985; Gamli Lundur, 1986; Safnahús-
ið á Húsavík, 1988; SCAG – Scand-
inavian Contemporary Art Gallery í
Danmörku, 1989; Nýhöfn, listasalur,
1990; Gallerí AllraHanda, 1994; Sól-
on Íslandus, 1994; Listasafn Kópa-
vogs – Gerðasafn, 1997; Galleri Art
Diana í Finnlandi, 1998; Mokkakaffi,
1999; Listasalurinn Man, 2000; Hring-
ekjur lífsins / The Carousels of Life,
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir,
2003; Gallery Turpentine, 2006; Gall-
ery Turp entine, 2008, og Söknuður, í
Listasafni Reykjanesbæjar, 2010.
Eyjólfur var sjómaður á togurum
Bæjarútgerðar Reykjavíkur um langt
árabil.
Eyjólfur var í stjórn Félags íslenskra
myndlistarmanna 1984-89 .
Fjölskylda
Eyjólfur kvæntist 1978 Sigríði Jónu
Þorvaldsdóttur, f. 17.11. 1940, teikni-
kennara. Foreldrar Sigríðar: Þorvald-
ur Guðjónsson, sem nú er látinn,
netagerðarmaður á Akureyri, og k.h.,
Helga Sigurjónsdóttir húsmóðir. Son-
ur Eyjólfs af fyrra hjónabandi er Einar,
f. 26.11.1958, fríkirkjuprestur í Hafnar-
firði, kvæntur Eddu Möller, f. 1.8. 1959,
skrifstofumanni og eiga þau tvö börn.
Systkini Eyjólfs eru Elsa, f. 16.7.
1935, húsmóðir í Reykjavík, gift Ól-
afi Ólafssyni lögfræðingi; Árni, f. 13.7.
1943, fyrrv. framkvæmdastjóri, búsett-
ur í Reykjavík; Hilmar, f. 31.5. 1949,
forvörður í Morkinskinnu, búsettur
í Reykjavík, kvæntur Kristínu Finns-
dóttur kennara.
Systir Eyjólfs, samfeðra: Unnur, f.
15.10. 1922, d. 5.7. 2000, húsmóðir í
Hafnarfirði, var gift Ólafi Magnússyni
húsasmið.
Foreldrar Eyjólfs voru Einar Eyj-
ólfsson, f. 23.9. 1897, d. 2.9. 1959,
kaupmaður í Reykjavík, og k.h., Gyða
Árnadóttir, f. 12.5. 1915, d. 19.10. 1964,
húsfreyja.
Ætt
Einar var sonur Eyjólfs „landshöfð-
ingja“, oddvita í Hvammi á Landi Guð-
mundssonar, afa Eyjólfs Ágústsonar
í Hvammi og langafa Guðlaugs Berg-
mann í Karnabæ. Móðir Eyjólfs var
Guðríður Jónsdóttir, b. í Gunnarsholti
Jónssonar. Móðir Jóns var Guðríður
Árnadóttir, pr. í Steinsholti Högnason-
ar prestaföður Sigurðssonar, forföður
Vigdísar Finnbogadóttur, Þorsteins Er-
lingssonar, Tómasar Sæmundssonar
og Jóhanns Hafstein. Móðir Guðríðar
var Guðbjörg, systir Guðna, afa Guðna
Kristinssonar í Skarði. Guðbjörg var
dóttir Jóns b. í Skarði á Landi Árna-
sonar, b. á Galtafelli Finnbogasonar,
föðurbróður Jóhanns, langafa Ingólfs
Margeirssonar rithöfundar.
Móðir Einars var Guðrún Kolbeins-
dóttir, b. á Hlemmiskeiði á Skeiðum
Eiríkssonar, ættföður Reykjaættar
Vigfússonar, langafa Sigurgeirs Sig-
urðssonar biskups, föður Péturs bisk-
ups, föður Péturs prófessors. Móðir
Guðrúnar var Sólveig Vigfúsdóttir, b.
á Fjalli á Skeiðum Ófeigssonar, föður
Ófeigs ríka á Fjalli, afa Grétars Fells og
Tryggva Ófeigssonar útgerðarmanns.
Gyða var systir Guðmundar með
galleríið við Bergstaðastræti, föður
listamannanna Kristjáns og Sigurðar.
Gyða var dóttir Árna, prófasts á Stóra-
Hrauni Þórarinssonar, jarðyrkju-
manns á Stórahrauni á Eyrarbakka
Árnasonar, b. á Klasbarða í Vestur-
Landeyjum Jónssonar. Móðir Þórar-
ins var Jórunn, systir Tómasar Fjöln-
ismanns, afa Jóns Helgasonar biskups,
langafa Helga Tómassonar yfirlæknis,
föður Ragnhildar, fyrrv. ráðherra og
alþm., og langafa Þórhildar, móður
Páls heitins Líndal ráðuneytisstjóra,
og Sigurðar Líndal lagaprófessors. Jór-
unn var dóttir Sæmundar, b. í Eyvind-
arholti undir Eyjafjöllum Ögmunds-
sonar, pr. í Krossi í Landeyjum, bróður
Böðvars í Holtaþingum, forföður Vig-
dísar Finnbogadóttur og Matthíasar
Johannessens skálds. Ögmundur var
sonur Högna, ,,prestaföður“ á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð Sigurðssonar. Móð-
ir Sæmundar var Salvör Sigurðardótt-
ir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir
Árna á Stóra-Hrauni var Ingunn, systir
Helga, afa Ásmundar Guðmundsson-
ar biskups. Ingunn var dóttir Magn-
úsar, alþm. í Syðra Langholti Andrés-
sonar og Katrínar Eiríksdóttur, systur
Kolbeins á Hlemmiskeiði.
Móðir Gyðu var Elísabet, dóttir
Sigurðar, b. í Syðra-Skógarnesi Kristj-
ánssonar, b. í Ytra-Skógarnesi Gísla-
sonar. Móðir Kristjáns var Katrín
Bárðardóttir, systir Halldóru, lang-
ömmu Daða, föður Sigfúsar Daðason-
ar skálds. Móðir Elísabetar var Guð-
ríður Magnúsdóttir, b. í Skógarnesi,
Jónssonar. Móðir Magnúsar var Guð-
ríður Jónsdóttir Hólaráðsmanns Jóns-
sonar og Guðrúnar Benediktsdóttur,
skálds á Stóru-Þverá í Fljótum Sig-
urðssonar. Móðir Benedikts var Guð-
rún Þorsteinsdóttir, b. í Stóru-Brekku
í Fljótum Eiríkssonar, ættföður Stóru-
Brekkuættar, langafa Gunnlaugs, afa
Jóns Thoroddsens skálds. Móðir Guð-
ríðar var Kristín Sigurðardóttir, b. í
Skógarnesi Guðbrandssonar, bróður
Þorleifs, föður Þorleifs, læknis í Bjarn-
arhöfn. Móðir Sigurðar var Kristín Pét-
ursdóttir, pr. í Miklaholti Einarssonar,
langafa Péturs Eggerz, afa Kristjáns
Thorlaciusar, formanns BSRB.
30 ára
n Hermann Þór Sæbjörnsson Miðdal 2, Eskifirði
n Sara Rós Þórðardóttir Furugrund 42, Kópavogi
n Guðni Már Sigurðsson Hofteigi 38, Reykjavík
n Hjalti Hrafn Pétursson Blómahæð 10, Garðabæ
n Snorri Sigurður Karlsson Eskivöllum 7, Hafnarfirði
n Guðrún Jónsdóttir Álfheimum 30, Reykjavík
n Sara Friðgeirsdóttir Sólvallagötu 84, Reykjavík
n Sigurður Bóas Pálsson Vindakór 5, Kópavogi
n Ólöf Ósk Garðarsdóttir Sandbakka 16, Höfn í
Hornafirði
n Hlini Melsteð Jóngeirsson Staðarbergi 8,
Hafnarfirði
40 ára
n Örn Arnarson Suðursölum 10, Kópavogi
n Sigríður Freyja Ingimarsdóttir Sunnuvegi 7,
Hafnarfirði
n Gerður Guðmundsdóttir Gilsbakka 14, Nes-
kaupstað
n Jóna Guðrún Guðmundsdóttir Vesturgötu 88,
Akranesi
n Vigfús Ingvarsson Hraunbæ 22, Reykjavík
n Jóhann Örn Kristjánsson Brúnastekk 11, Reykjavík
n Kristín Anna Sæmundsdóttir Klapparstíg 9,
Reykjanesbæ
n Benedikt Gabríel Egilsson Tröllakór 1, Kópavogi
n Steinar Guðmundsson Brekkum 1, Hellu
n Brynjólfur Sigurjónsson Hólmgarði 43, Reykjavík
n Hulda Gestsdóttir Kirkjubraut 35, Akranesi
n Jens Eiríksson Suðurgötu 32, Sandgerði
50 ára
n Oddgeir Gylfason Viðarási 18, Reykjavík
n Hnikarr Antonsson Hálsaseli 22, Reykjavík
n Sigurlína Björg Hauksdóttir Foldarsmára 8,
Kópavogi
n Sigríður H. Gunnarsdóttir Sólvallagötu 39,
Reykjavík
n Einar Örn Einarsson Víðimýri, Varmahlíð
n Kolbrún Elsa Jónsdóttir Fiskakvísl 11, Reykjavík
n Elísabet Árnadóttir Brekkuhvammi 4, Búðardal
n Gísli Guðlaugur Sveinsson Skógarhlíð 16, Akureyri
n Stefanía Sigrún Björnsdóttir Bjarnastaðavör
2, Álftanesi
n Kristinn Jóhann Níelsson Sunnubraut 5, Vík
n Aldís Björg Arnardóttir Goðatúni 26, Garðabæ
n Gestur Ívar Elíasson Fagraholti 8, Ísafirði
n Cassandra C. Siff Sveinsdóttir Bröttugötu 11,
Vestmannaeyjum
n Vilborg Þorsteinsdóttir Blikahöfða 3, Mosfellsbæ
n Hallur Pálsson Nausti, Grundarfirði
n Sonja Jónasdóttir Tómasarhaga 41, Reykjavík
n Hildur Berglind Búadóttir Arnarsíðu 4f, Akureyri
60 ára
n Ágústa S. Gunnlaugsdóttir Álftalandi 13,
Reykjavík
n Hrönn Ríkharðsdóttir Lyngbarði 9, Hafnarfirði
n Sigrún I. Sigurðardóttir Einimel 1, Reykjavík
n Guðbjörg Guðmundsdóttir Ránarbraut 13a, Vík
n Lýður Guðmundsson Hraunbæ 63, Reykjavík
n Helgi Magnússon Vættaborgum 44, Reykjavík
n Helgi Ragnar Guðmundsson Vogagerði 17,
Vogum
n Gunnar Jónsson Norðurbyggð 20, Akureyri
n Guðjón Gunnlaugsson Hringbraut 114, Reykjavík
n Sigurmann Rafn Stefánsson Fagrahvammi 11,
Hafnarfirði
n Sævar Sigursteinsson Setbergi 11, Þorlákshöfn
n Sigurður Jarlsson Sundstræti 34, Ísafirði
70 ára
n Grétar Jón Magnússon Skipholti 47, Reykjavík
n Unnur Ragnarsdóttir Einivöllum 7, Hafnarfirði
n Guðrún K. Ísaksdóttir Ægissíðu 23, Grenivík
n Guðbjörg Guðmundsdóttir Hvanná 1, Egilsstöðum
n Anna Mary Gísladóttir Höfðahlíð 3, Akureyri
n Þór Ingi Erlingsson Réttarbakka 21, Reykjavík
n Sverrir Ingólfsson Granaskjóli 7, Reykjavík
75 ára
n Jóhanna Markúsdóttir Melteigi 17, Garði
n Bergsveina Gísladóttir Þúfubarði 6, Hafnarfirði
n Gunnar Brynjar Jóhannsson Stekkjargerði 6,
Akureyri
n Árni B. Árnason Dalsgerði 7f, Akureyri
n Sigtryggur Einarsson Þórsmörk 1, Selfossi
80 ára
n Friðrós S. Jóhannsdóttir Arahólum 6, Reykjavík
n Halldóra Gunnarsdóttir Kirkjubraut 28, Höfn í
Hornafirði
n Einar Jóhannesson Skálabrekku 19, Húsavík
n Sigríður Hansdóttir Hraunbæ 26, Reykjavík
n Anna Guðný Halldórsdóttir Hjallaseli 39,
Reykjavík
85 ára
n Jón Traustason Lindasmára 39, Kópavogi
n Árni Melstað Sigurðsson Smárabraut 6, Blönduósi
n Þórhalla Kristjánsdóttir Skólatröð 2, Kópavogi
n Eyjólfur Bjarnason Frostafold 20, Reykjavík
90 ára
n Oddný Þorkelsdóttir Skúlagötu 15, Borgarnesi
n Ágústa Gamalíelsdóttir Stigahlíð 30, Reykjavík
30 ára
n Sergejs Macanovs Seljabraut 54, Reykjavík
n Adam Gorajewski Asparskógum 22, Akranesi
n Lukasz Matysiak Sigtúni 45, Reykjavík
Hjörtur Traustason Berjarima 26, Reykjavík
n Oddur Örn Halldórsson Stórakrika 1, Mosfellsbæ
n Jóhanna Kristv. Guðbrandsdóttir Lækjartúni 17,
Hólmavík
n Ágúst Kristján Steinarsson Reynimel 44, Reykjavík
n Arnar Marrow Einarsson Bólstaðarhlíð 44, Reykjavík
n Guðrún Dröfn Whitehead Barðastöðum 7,
Reykjavík
n Rannveig Kristjánsdóttir Öldugötu 5, Reykjavík
Karl Guðni Hreinsson Þórunnarstræti 136, Akureyri
n Kristjana Björnsdóttir Asparskógum 22, Akranesi
n Halldór Svanlaugsson Laugatúni 7, Sauðárkróki
n Hilmar Örn Garðarsson Mjóstræti 2, Reykjavík
n Haukur Hafsteinn Þórsson Blöndubakka 12,
Reykjavík
n Árni Arent Guðlaugsson Jörfabakka 12, Reykjavík
n Árni Yngvi Árnason Eskivöllum 9b, Hafnarfirði
40 ára
n Nina Elisabet Sandberg Melhaga 15, Reykjavík
n Eyrún Einarsdóttir Kirkjubrekku 18, Álftanesi
n Hafdís Björg Guðlaugsdóttir Klettakór 1c, Kópavogi
n Áslaug Garðarsdóttir Vesturtúni 55b, Álftanesi
n Aðalgeir J. Hólmsteinsson Laufengi 152, Reykjavík
n Þórína Baldursdóttir Faxastíg 20, Vestmannaeyjum
n Þorbjörg Hafdís Erlingsdóttir Múlasíðu 5h,
Akureyri
n Þorsteinn Friðgeir Hermannsson Blómvöllum
9, Hafnarfirði
n Valdimar Tryggvason Vaðlabyggð 9, Akureyri
n Lovísa Inga Ágústsdóttir Hrauntúni 63, Vest-
mannaeyjum
n Ragnhildur Gunnlaugsdóttir Leirdal 20, Reykja-
nesbæ
n Sigurður Guðmundsson Álftahólum 6, Reykjavík
n Aleksandra Statkiewicz Lautavegi 9, Laugum
n Lasse Vigh Jörgensen Rauðavaði 19, Reykjavík
n Sigurlaug Forberg Jónsdóttir Birkidal 9, Reykja-
nesbæ
n Högni Rúnar R Tómasson Tröllaborgum 16,
Reykjavík
50 ára
n Jóhann Jónasson Kötlufelli 5, Reykjavík
n Þorgrímur P. Þorgrímsson Unnarbraut 8, Sel-
tjarnarnesi
n Bryndís Theódórsdóttir Grundargötu 42, Grund-
arfirði
n Katrín Kristín Ellertsdóttir Bólstaðarhlíð 44,
Reykjavík
n Margrét Einarsdóttir Sólheimum 32, Reykjavík
n Katrín Þórisdóttir Mánatúni 6, Reykjavík
n Hildur Sandholt Hverafold 22, Reykjavík
n Baldvin Breiðfjörð Vesturbergi 120, Reykjavík
n Birgir Símonarson Rjúpufelli 44, Reykjavík
n Jóhannes Kristjánsson Dofrabergi 11, Hafnarfirði
n Steinn Bragi Magnason Ásvallagötu 20, Reykjavík
n Kristín Birgisdóttir Týsvöllum 7, Reykjanesbæ
n Kristín Finndís Jónsdóttir Jaðarseli 10, Borgarnesi
n Agnar Helgason Hamraborg 16, Kópavogi
n Kristný Vilmundardóttir Kambshóli 1, Akranesi
n Phetchada Khongchumchuen Austurbergi 12,
Reykjavík
n Zenon Czeslaw Skrabucha Háaleitisbraut 46,
Reykjavík
n Sigrún Hlíf Gunnarsdóttir Árskógum 2, Reykjavík
n Þórhildur Hrönn Ingólfsdóttir Álfhólsvegi 101,
Kópavogi
n Eiríkur Helgason Lágholti 6, Stykkishólmi
60 ára
n Inga S. Eggertsdóttir Steinholti 1, Vopnafirði
n Ingvar Már Pálsson Hörðukór 4, Kópavogi
n Bjarni Ingólfsson Hraunbæ 70, Reykjavík
n Oddur Borgar Björnsson Hellubraut 6, Hafnarfirði
n Valgeir Þórðarson Stífluseli 4, Reykjavík
n Anna Kristjánsdóttir Birkigrund 30, Kópavogi
70 ára
n Elma Kristín Steingrímsdóttir Hafralæk, Húsavík
n Jón Rafnkelsson Árnaneshóli, Höfn í Hornafirði
n Gróa Gunnarsdóttir Fífurima 7, Reykjavík
n Sigurður S. Helgason Háholti 10c, Laugarvatni
n Ísak Valdimarsson Víðimýri 11, Neskaupstað
75 ára
n Gísli Sólberg Sigurðsson Sólbergi, Tálknafirði
n Anna T. McDonald Smáragötu 16, Reykjavík
80 ára
n Pétur Pálmason Reykjavöllum, Varmahlíð
85 ára
n Rakel Guðbjörg Magnúsdóttir Hraunbæ 26,
Reykjavík
n Guðmundur H Kristjánsson Skólastíg 15, Bol-
ungarvík
n Gústaf A. Guðmundsson Fiskakvísl 1, Reykjavík
n Rakel Sveinbjörnsdóttir Reynimel 64, Reykjavík
90 ára
n Þórður Reykdal Hraunvangi 7, Hafnarfirði
n Björn E. Kristjánsson Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
til hamingju hamingju
afmæli 18. ágúst
Sigrún Ósk Björgvinsdóttir fé-
lagsráðgjafi er þrítug í dag, og ein
besta vinkona hennar, Jóhanna
Ruth Hólmgrímsdóttir snyrti-
fræðingur, varð þrítug sl. laugar-
dag.
Sigrún og Jóhanna ákváðu því
að slá saman í eitt ógleymanlegt
afmælispartí sem haldið verð-
ur einhvers staðar á stór-Reykja-
víkursvæðinu, á menningarnótt,
laugardaginn 21. ágúst n.k.. Þetta
á að verða afmælispartí aldarinn-
ar, takk fyrir:
„Ja sko, maður er að verða þrí-
tugur,“ segir Sigrún. „Fertugsald-
urinn er að bresta á. Síðustu ung-
dómsárin að hverfa út í veður og
vind, – bæði hjá mér og vinkonu
minni. Við verðum því að halda
upp á þessi tímamót með eftir-
minnilegum hætti.“
Er langt síðan þið ákváðuð að
slá þessu saman?
„Fyrir svona mánuði eða svo.
Það var í rauninni ekki annað
hægt því við eigum svo marga
sameiginlega vini. Við erum
komnar með húsnæði (sem eng-
in fær að vita af nema boðsgest-
irnir) – erum búnar að hanna og
senda út boðskort, redda tónlist-
aratriðum og öðrum skemmti-
atriðum og græja veitingar. Við
eigum von á svona áttatíu manns
og hörku stuði – því þarna verður
dansað og djammað fram á rauða
nótt.“
til hamingju
afmæli 19. ágúst
miðvikudagur 18. ágúst 2010 umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is ættfræði 21
70 ára sl. þriðjudag
Sigrún ÓSk og jÓhanna ruth
Sameiginlegt afmælispartí
á menningarnótt